Þjóðviljinn - 23.01.1982, Síða 19
Helgin 23,— 24. janúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Bœjarstjórbarkosningar í Reykjavík 1908
Fjórar
konur
kjörnar
i dag, 24. janúar, eru ná-
kvæmlega 73 ár liöin frá
hinum merku bæjarstjórn-
arkosningum í Reykjavik
1908 er konur fengu fyrst
kosningarétt og listakosn-
ing fór fram í fyrsta sinn.
Kjósa átti alls 15 fulltrúa
en hvorki meira né minna
en 18 listar komu f ram, þar
af einn kvennalisti. Sá
fékk reyndar flest atkvæöi
í kosningunum eða rúm-
lega fimmtung atkvæða og
fjóra menn kjörna. Hafa
ekki í annan tima setiö
fleiri konur í bæjarstjórn
Reykjavíkur. Nú sitja þar
t.d. aðeins 3 konur, tvær
frá Alþýöubandalaginu og
1 frá Alþýðuflokknum.
Hinn 22. nóvember 1907 voru
sett lög um stjórn bæjarmáiefna
Reykjavikur en skv. þeim skyldu
allir bæjarbúar fá kosningarétt,
konur sem karlar, er náö höföu 25
ára aldri, átt heföu lögheimili i
bænum i eitt ár, heföu óflekkaö
mannorö, væru fjár sins ráöandi,
ekki öörum háöir sem hjú né i
skuld vegna sveitastyrks. Konur
kjósenda höföu þó atkvæðisrétt
þótt þær væru ekki fjár sins ráö-
andi og greiddu ekki neitt gjald i
bæjarsjóö. Þessi lög veittu um
2850 mönnum atkvæöisrétt af um
9000 ibúum bæjarins, þar af höfðu
um 1200 konur kosningarétt.
A þessu ári voru menn ekki
farnir aö skipa sér i flokka eftir
almennum reglum eða skoöunum
heldur voru flestir listanna bornir
fram af ýmsum félögum i bænum
og gátu þá menn með ólikar
stjórnmálaskoðanir oft verið
saman á lista.
En hvers vegna var boðinn
fram sérstakur kvennalisti i þess-
um bæjarstjórnarkosningunum?
Þessari spurningu var svarað i
Kvennablaöinu sem Briet Bjarn-
héðinsdóttir ritstýrði: „Fyrir oss
konur ætti aöalatriöiö við þessar
kosningar að vera aö koma kon-
um að. Þaö er byrjunin, sem hér
er um að ræða. Ef vér notum nú
ekki tækifæriö, {)á er þaö sú póli-
Briet Bjarnhéöinsdóttir
tiska synd, sem hefnir sin i öilum
málum vorum siöar. A næsta
þingi yröi þaö ástæöa móti póli-
tiskum réttindum kvenna”.
Hiti var töluverður i kosninga-
undirbúningnum og m.a. reyndi
Iðnaöarmannafélagiö aö ná sam-
vinnu viö kvenþjóöina, bauö
henni samvinnu og örugg sæti á
lista þess. Ekkert varö úr þeirri
samvinnu þvi að konurnar skár-
ust úr leik. Þá voru 6 kvenfélög i
bænum og sameinuöust þau um
einn lista fyrir forgöngu Kven-
réttindafélagsins.
Kosningaundirbúningur var
með töluvert ólikum hætti miðað
viö þaö sem nú er. Félögin skiluöu
listum sinum og létu þar viö sitja.
Enginn borgarafundur var hald-
inn og blöðin ræddu það ekki til
hvers væri ætlast af hinum nýju
fulltrúum eöa hvert hlutverk biði
hinnar nýju bæjarstjórnar. Þó
var töluvert um áróður i heima-
húsum og haldnir voru t.d. opin-
berir fyrirlestrar til stuðnings
kvennaframboöinu. Þeir voru
m.a. fluttir af þekktum karl-
mönnum i bænum svo sem Sig-
urði Eggerz, Birni Olsen og Sveini
Björnssyni.
1 kosningunum neyttu um 1600
manns atkvæðisréttar eöa um
56% þeirra, sem hann höfðu, og
þótti þaö nokkuö gott hlutfall á
þeim tima. Um 600 konur kusu
eöa um helmingur þeirra sem at-
kvæðisrétt höfðu.
Kosningin fór þannig að 10 list-
ar komu engum manni aö og féllu
þar 287 atkvæði ónýt. Kvennalist-
inn fékk, eins og áöur sagöi, flest
atkvæöi eöa um 350 og var þvi
langt i frá að allar konur hefðu
kosiöhann. Náðu 4 konur kjöri. Sá
listi sem næstfiest atkvæöi fékk
kom þremur mönnum aö. Sjó-
mannalisti fékk engan mann
kjörinn og ekki heldur listar sem
Dagsbrún annars vegar og
Verkamannasambandiö hins
vegar buðu fram. Ef tveir siöast-
töldu aðilarnir heföu boöið fram
saman hefðu þeir fengiö tvo menn
kjörna.
Hinir nýju bæjarfulltrúar
kvenna voru Þórunn Jónassen
forstööukona Thorvaldsensfé-
lagsins, Briet Bjarnhéöinsdóttir
ritstjóri Kvennablaösins, Katrin
Magnússon húsfreyja og Guðrún
Björnsdóttir ekkjufrú. Af þessum
Þórunn Jónassen
fjórum konum mátti telja þrjár til
embættismannastéttarinnar.
Daginn eftir aö kosningaúrslit
voru kunn hélt Kvenréttindafé-
Katrin Magnússon
lagiö hóf til aö fagna sigri. Þar
orti Þorsteinn Erlingsson kvæöi
fyrir minni félagsins og var þetta
niðurlag þess:
Guörún Björnsdóttir
Að frjálsir menn aö fegri tiö
með frjálsum konum vinni,
þær óskir fylgi ár og siö
vors unga félags minrti. _____GFr
"MANNSHVARF”
Atilio Cesar MARTINEZ Lagrava,
Argentína. 28 ára, námsmaður
„hvarf” 22. lúní 1977.
AFDRIF
„H0RFINS" FANGA ERU ÚKUNN
Það er algeng aðferð ríkisstjórna í ýmsum löndum að láfa fólk
„hverfa”. Þetta eru ekki aðeins yfirlýstir pólitískir and-
stæðingar, heldur einnig almennir borgarar, sem eru yfirvöldum
þyrnir í augum. í mörgum tilfellum er um að ræða leynilega
aftöku án dóms og laga. Þannig hafa þúsundir manna „horfið”
að undirlagi yfirvalda síðastliðin 10 ár.
Styðjiö baráttuna fyrir skoðanafrelsi, og gegn pyntingum og dauðarefsingu með þvi að gerast meðlimur
í Amnesty International. Námskeið verður haldið á vegum Islandsdeildar Amnesty International
2. og 3. febrúar 1982. fyrir þásem vilja kynnast starfsemi A.l. og hvernig þeir geti gerst virkir félagar.
ISLANDSDEILD
amnesty
^ international
Pósthólf 7124, 127 Reykjavik
”MANNSHVARF”1982
Nafn
Nafnnúmer Sími
Heimilisfang
□ Námskeiðsþátttaka
□ Virkur □ Styrktarfélagi
Félag
járniðnaðar-
manna
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 26. janúar
1982 kl. 8.30 e.h. i Domus Medica v/Egils-
götu.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Iðnfræðslumál
3. Önnur mál
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna