Þjóðviljinn - 23.01.1982, Side 24

Þjóðviljinn - 23.01.1982, Side 24
* ýt» 24 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.— 24. janúar 1982. Ip Læknaritari óskast til starfa við Heilsugæslustöðina að Asparfelli 12. Möguleiki er á að skipta starfinu milli tveggja. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á heilsugæslustöð- inniog framkvæmdastjóri heilsugæsiustöðva i Reykjavik, Barónsstig 47, Reykjavik. Sérstök umsóknareyðublöð liggja frammi á báðum stöö- unum. Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra heilsugæslu- stöðva i Reykjavik, Barónsstig 47, eigi siðar en 1. febrúar 1982. Heilbrigðisráð Reykjavikurborgar Starfsmaður óskast Samtök herstöðvarandstæðinga óska eftir starísmanni i hlutastarf. í starfinu felst umsjón með daglegum rekstri samtak- anna o.fl. Kunnátta i almennum skrif- stofustörfum nauðsynleg, auk þess æski- legt að viðkomandi hafi reynslu i félags- málum. Umsóknir sendist SHA, Skóla- vörðustig la, fyrir 1. febr. n.k.. Upplýs- ingar i sima 17966 virka daga milli 3 og 6. SHA Auglýsing um starf á strifstofu Borgarneshrepps Starf bókara á skrifstofu Borgarnes- hrepps er laust til umsóknar. Til starfsins þarf góða þekkingu á bókhaldi. Æskilegt er að umsækjendur hafi Samvinnuskóla- eða Verzlunarskólamenntun eða hliðstæða menntun frá öðrum skólum. Til greina koma einnig umsækjendur, sem með öðrum hætti hafa aflað sér nægjanlegrar þekkingar og reynslu á þessu sviði. Starfið er hlutastarf. Umsóknir um starfið berist skrifstofu hreppsins fyrir 5. febrúar n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirrit- aður. Borgarnesi, 19. janúar 1981 Sveitarstjórinn í Börgarnesi *■* Félagsmálastofnun Reykj'avikurborgar DAÓVISTIN BAKNA. KORNHAGA 8 StMI 27277 Tvær stöður sáJfræöinga við dagvistir barna Reykjavikurborgar eru lausar til umsóknar. Einnig staða forstöðumanns við dagheimilið Valhöll, Suðurgötu 39. Fóstrumenntun áskilin. Laun skv. kjara- samningi borgarstarfsmanna. Umsóknir um stöðurnar sendist til skrifstofu dag- vistar barna fyrir 12. febr. n.k. en þar eru veittar nánari upplýsingar um stöðurnar. Útboð Fyrir hönd Oliuverslunar íslands hf. og Oliufélagsins Skeljungs hf., óskar verk- fræðistoía Sigurðar Thoroddsen hf. eftir tilboðum i 19000 rúmm. fyllingu i lóð félag- anna við Brúartorg i Borgarnesi. Útboðsgögn verða afhent gegn 300 kr. skilatryggingu hjá verkfræðistofunni að Berugötu 12 Borgarnesi og Ármúla 4 Reykjavik. Tilboð verða opnuð að Beru- götu 12 Borgarnesi miðvikudaginn 3. febr. 1982 kl. 15.00. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf ÁRMÚU4 REYKJAVlK SlMI 84499 erlendar bækur The Penguin Concise Dictionary of Biographical Quotation. Edited by Justin Wintle and Ric- hard Kenin. Penguin Books 1981 Höfundarnir skrifa i formála, aö þeir leitist við að lýsa með til- vitnunum ritsins hinum mikla fjölbreytileika skoðana manna um hvern annan. Or nógu er að moða, svo að þeir hafa ein- skoröaö sig viö breska og banda- riska einstaklinga, sem eru kunnir, og einnig hafa þeir reynt að taka umsagnir úr sem flestum stéttum eða starfshópum. Það kom fljótlega i ljós að þeir, sem stunduðu skáldskap i einhverju formi virtust orðheppnari en þeir sem t.d. stunduðu visinda- eða önnur skyld störf, og er það vel skiljanlegt að þeir, sem ástunda orðlistina, hafi meiri æfingu i meðferö orða og séu hnittnari i lýsingum á mönnum og mál- efnum en t.d. læknar eða verk- fræöingar og kauphöndlarar. Fyrrum var talsvert af orð- högum stjórnmálamönnum, en orðsnillingum i þeirri atvinnu- stétt hefur stórfækkað á þessari öld og nú er svo komiö að þar hliöta menn aö fara i geitarhús að leita ullar i leit að orðsnilld þar eð meginhluti atvinnustjórnmála- manna eru orðvana. Svokáffaðir sérfræðingar eru þó enn verr á vegi staddir, enda fer litið fyrir þeim fyrirbrigðum i þessu riti. Samkvæmt reynslunni hérlendis kunna þeir, sem flokkaðir eru til þess hóps hvorki eigið mál né heldur það mál, sem þeir hafa notað til þess aö heyja sér sér- fræðikunnáttu sina með. Ot- koman hjá þeim hópum verður litt skiljanlegt stofnana-mál. Stundum gátu einstaka blaða- menn veriö orðheppnir og lýst náunganum á niðangurslegan hátt, eða lýst einhverjum fyrir- brigðum svo að menn myndu, en slikir eru nú jafn sjaldgæfir og hvitir hrafnar. Höfundarnir segja i formála að þeir taki ekki i bók sina umsagnir núlifandi manna. Þaö skyldi þó ekki vera að i þeim hóp væri ekki um auöugan garö aö grisja, þótt þeir þeir láti annað i veðri vaka. Islendingar voru fram undir þetta orösins þjóð; flestir gátu kastað fram visu eða sagt eitt- hvað um menn eöa málefni, sem menn minntust lengi. Nú er öldin önnur, stofnanamálið ræður i fjölmiðlun og orðfæö eykst með góðum stuðningi framúrstefnu manna i menntamálum; félags- fræðingar og sálfræðingar klúðra saman orðskripum og vitleysu, sem fáir skilja og stjórnmála - menn mæla óþarft og þegja aldrei. Rit þetta er brautryðjendarit, að þvi leyti að sviðið sem þaö spannar eru valin snillyrði orð- hagra manna, sem mæltu á enska tungu á þeim timum, þegar með- vitund manna var vel vakandi og skörp og menn kunnu eigið mál og einnig þau mál, sem eigið mál var leitt af. Ritið er rúmar 700 tvidálka blaðsiður. Þetta er mjög mjög skemmtilegt rit. Barbara Euphan Todd: Worzel Gummidge or the Scarecrow of Scatterbrook. Hlustrated by Elizabeth Alldridge. Penguin Books 1981. Það eru 40 ár siðan Penguin forlagið tók að gefa út barna- bækur sér i flokki, sem nefndur var „Puffin”. I tilefni þess er þessi bók gefin út að nýju, hún var númer eitt i þessum flokki. Nú er hún gefin út sem nákvæmt eftirrit þeirrar fyrstu. Þessi saga hefur veriö endurprentuö tuttugu og einu sinni siðan hún kom út i fyrstu og er þetta tuttugasta og önnur útgáfa. Georg Trakl: Das dichterische Werk. Auf Grund der historischkrit- ischen Ausgabe von Walter Killy und Hans Szklenar. Deutsche Taschenbuch Verlag 1980. Flest ljóö Trakls birtust i timaritinu „Brennar” á árunum 1912—14 og i tveimur ljóðabókum „Gedichte” 1913 og „Sebastian im Traum” 1914. Trakl fæddist i Salzburg 1887 og lést á hersjúkra- húsi i upphafi fyrri heims- styrjaldar, en hann starfaði sem liösforingi i hjúkrunardeildum austurriska hersins. Ljóð Trakls eru oftflokkuð til expressionisma og áhrif má kenna frá Baudel- aire, Rimbaud, Hölderlin og Dostojevski. Trakl er oft talinn meðal frumlegustu skálda þess- arar aldar. Þetta safn er endur- prentun.sjötta upplag útgáfudtv. frá 1972. Magnus Magnusson Tieasures of Scotland National Trust for Scotland — Weidenfeld and Nicolson 1981. Magnús Magnússon er kunnur fyrir þætti sina um fornminja- fræði og einkum sögu vikinganna i breska sjónvarpinu. Ýmsir þessir þættirhafa siðan komið Ut i bókarformi, endurunnir, m.þ. nokkrar bækur um vikinga. 1 þessari bók er fjallað um fjórtán fyrrverandi hefðarsetur, sem nú eru i eigu hins opinbera i' Skot- la.ndi, opin almenningi tii skoð- unar. Höfundurinn rekur sögu þessara setra og birt er mikill fjöldi mynda af byggingunum utan og innanhúss. Allar þessar byggingar eru nú nokkurs konar söfn sem mörg geyma dýrmætar minjar frá fyrri öldum. Höfundurinn skrifar lipurlega sögu setranna, þetta er einkar aðgengileg lesning og höfundi tekst oft að li'fga við fyrri tima i frásögn sinni og tengja sögu vissra ætta, sem áttu þessi setur, þjóðarsögunni. Byggingarnar, sem hér er lýst voru og eru mjög dýrar til búsetu, viðhaldskostnaður mikill og kynding mjög dýr. Til þess að koma i veg fyrir að þessi fornu hús dröbbuðu niður gerðu margir ei^gendur þeirra samning við „The National Trust for Scot- land” um að sú stofnun tæki að sér viðhald og rekstur bygging- anna, gegn þvi að fyrri eigendur fengjuaðbúa áfram i þeim. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel húsin veru vel varðveitt og hinir fyrri eigendur hafa þak yfir höf- uðið, með þeim ágalla að visu að þurfa að sihna snuðrandi túrist- um öll sumur, sem hlýtur að vera ákaflega leiðinleg kvöð. Bók þessi er smekklega gefin Ut og val mynda gefur hugmynd um glæsiieika fortiðarinnar. Joseph von Eichendorff: Samtliche Gedichte Herausgegeben von Wolfdietrich Rasch. Deutscher Taschenbuch Verlag 1980. Fyrsta dtv-útgáfa ljóða Eichen- dorffs kom út 1975 og er þetta endurprentun. Höfundurinn gekk sjálfur frá niðurröðun kvæöanna i útgáfunni 1837 og eru sfðari tima útgáfur byggðar á henni. Eichendorff var ósvikinn lyriker og rómantíker. Náttúran var hon- um guöleg opinberun og ljóð hans eru tjáning þeirrar kenndar. Schumann, Richard Strauss og Mendelssohn hrifust af ljóðum Eichendorffs og kennir áhrifa hans ihljómverkum þeirra. Þessi útgáfa er vandlega unnin, eins og öll þau verk, sem gefin eru út i dtv-bibliothek. ^ Þroskaþjálfar Dagheimilið Viðivellir óskar að ráða nú þegar tvo þroskaþjálfa eða fóstrur til starfa með þroskaheftum börnum bæði i sérdeild og á almennum deildum heimilis- ins. Laun skv. kjarasamningum Hafnar- fjarðarbæjar. Upplýsingar gefur deildar- stjóri s. 5 48 35, eða forstöðumaður s. 5 35 99. Umsóknir sendist til félagsmálastjórans i Hafnarfirði Strandgötu 6. Athygli er vakin á rétti öryrkja til starfs- ins sbr. 16. gr. laga nr. 27/1970. Félagsmálastjóri IH^ Auglýsing um íbúð í verka- mannabústöðum í Borgarnesi Til sölu er ein ibúð i verkamannabústöð- um við Kveldúlfsgötu 18 i Borgarnesi Umsókn um ibúðina þarf að berast skrif- stofu Borgarneshrepps fyrir 5. febrúar n.k. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu hreppsins. Borgarnesi, 14. janúar 1982 Stjórn verkamannabústaða i Borgarnesi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.