Þjóðviljinn - 29.01.1982, Side 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJWN Föstudagur 29. janúar 1982
KÆRÍLEIKSHEIMILIÐ VÍdtalÍÖ
Margra mflna raðir af bflum eru á hraðbrautum i Bandarikjunum;
hafa bilar teppst þar i snjóþyngslunum dögum saman. Heima-
varnarliðið var kallað til hjálpar til að ryðja stærstu þjóðbrautirnar
i ;iO stiga frosti.
Viðtal við Jónas
Tómasson tónskáld
en í kvöld verða
tónleikar í Norræna
húsinu þar sem
eingöngu verða
flutt verk eftir hann
„Nóg að
gera á
ísafirði”
„Þetta er nú sennilega i 500.
sinn sem ég fæ þessa spurningu
og svörin eru orðin býsna
mörg”, sagði Jónas Tómasson
tónskáld á ísafirði er blaða-
maður spurði hann þeirrar
klassisku spurningar hvort ekki
væri hætta á að listamenn ein-
angrist við það að búa til
lengdar úti á landi. Og bætti svo
við: „Maður finnur ekki fyrir
einangrun ef maður hefur nóg
að gera”. Tilefni viðtalsins eru
tónleikar sem haldnir veröa i
Norræna húsinu i kvöld en þar
verða eingöngu flutt verk eftir
Jónas.
— Er þá gott fyrir tónskáld að
búa á isafirði?
— Já, það er gott á Isafirði,
þar hefur maður bæði næði og
vinnufrið og einnig nóg að gera.
—-Hvað ertu að fást við þar
vestra fyrir utan tónsmiðar?
— Ég kenni fulla kennslu i
Tónlistarskólanum og stjórna
Sunnukórnum a.m.k. að nokkru
leyti. Auk þess höfum við kenn-
ararnir við skólann kammer-
sveit og erum að byrja að æfa nú
bráðlega.
— Ég hélt að isfirðingar hefðu
svo mikið að gera i fiski að þeir
mættu ekkert vera að þvi að
stunda listalif.
— Annað sýnir aðsóknin að
skólanum. Þar eru i vetur um
200 nemendur og má geta þess
að fyrir jól voru þrennir
nemendatónleikar og i mars
verða svo aftur þrennir slikir.
Þá heldur Tónlistarfélagið
reglulega tónleika og má geta
þess að i haust sótti okkur t.d.
heim Kammersveit Reykja-
vikur. Hitt er annað mál að tón-
leikar eru misjafnlega sóttir.
Það er oft erfitt að taka sig upp
á kvöldin eftir erfiðan vinnudag
og margt annað sem er i sam-
keppnivið slikt tónleikahald t.d.
klúbbfundir, kvöldskóli, leikæf-
ingar o.s.frv. Og ekki má
gleyma kóræfingum.
— Er mikið kóralif á staðn-
um?
— Sunnukórinn starfar stöð-
ugt og nú nýlega var Karlakór
Isafjarðar endurvakinn eftir
nokkuð langan svefn en hann
verður einmitt sextugur á þessu
ári. Það er Kjartan Sigurjóns-
son skólastjóri sem stjórnar
honum.
— Þú segist hafa nóg að gera,
en er þá nokkur afgangstimi
fyrir tónsmiðar?
— Jú, jú, ég hef haft meira að
gera i þvi en nokkru sinni áður
ég er nú t.d. að smiða tónverk
eftir beiðnum bæði frá Reykja-
vik og Paris. Þá hef ég einnig
verið beðinn um að semja tón-
list i nýtt leikrit sem Böðvar
Guðmundsson er að semja fyrir
Litla leikklúbbinn á Isafirði.
Þar fyrir utan er ég með hug-
myndir um verk sem mig
langar sjálfur til að gera, t.d. hef
ég lengi haft hug á að semja tón-
list við látbragðsleik eftir Ninu
Björk Árnadóttur og læt bráð-
lega að þvi verða.
— Er tónlist þin eitthvað að
breytast um þessar mundir?
— Ég vona að ég standi ekki i
stað.
— Ætlarðu að búa áfram á
tsafirði?
— Það sem helst gæti staðið i
vegi fyrir þvi eru húsnæðis-
vandamál sem eru alveg að
gera útaf við okkur. Við hjónin
missum leiguibúð sem við höf-
um búið i nú i sumar og þar með
missir skólinn einnig 2 kennslu-
stofur. Tónlistarskólinn hefur
aldrei átteigiðskólahús og núna
er kennt á 10—11 stöðum i
bænum. Þetta er eilifur höfuð-
verkur.
— Eru Isfirðingar ekki svo
rikir að þeir geti reist tónlistar-
skóla yfir sig?
— Þeir ættu að geta það og
það hefur lengi verið á dagskrá.
Bygginganefnd er starfandi og
hún hefur fengið vilyrði um lóð i
nánd við nýja menntaskólann en
það llða sjálfsagt nokkur ár
þangað til það verður að veru-
Sjóður til
styrktar
íslenskum
náms
mönnum
Bandarikjamaður að nafni
Charles Keith Willey hefur
ánafnað hluta af eignum sinum
til styrktar islenskum náms-
mönnum. Upphæöin mun vera i
kringum 100 þúsund dollarar og
mun American Scandinavian
Foundation I New York varð-
veita sjóöinn. Afrakstri sjóðsins
veröur variö til aö styrkja
islenska námsmenn til náms i
Bandarikjunum, sérstaklega i
verkfræöi og öörum raunvis-
indum.
Charles Willey var fram-
kvæmdastjóri Harza
Enginering Company i Chicago,
en þaö fyrirtæki vann mikiö aö
virkjunarmálum á Islandi og
haföi m.a. yfirumsjón meö
hönnun, verkfræöilegum búnaöi
og eftirliti meö Búrfellsvirkjun
á sinum tima. Charles Willey
lést árið 1980.
Íslensk-ameríska félagið i
Reykjavik mun hafa umsjón
meö styrkveitingum úr sjóönum
og veröur fariö meö umsóknir á
sama hátt og að þvl er varöar
styrki úr Thor Thorssjóönum.
Mál ca:
Lengd: 4 m, breidd: 3,5 m,
hæð: 2,5 m
Húsgögnin eru máluð meö
vatnsmálningu, einnig gólf og
veggir.
Myndin á veggnum, hægra
megin, er svart/hvít ljósmynd
af litlu sveitabýli sem stendur
við sjávarsiöuna. Framarlega á
myndinni er lítill árabátur.
Myndin sem er litillega lituð og i
gylltum ramma er ca. 50x40 cm.
að stærð.
Af segulbandi heyrist andar-
dráttur kafara. Gólf og veggir
verksins eru úr spónaplötum og
skal verkið staðsett út við horn
sýningarsalarins, þó með ca. 10
cm bili frá veggnum.
„Gangurinn”hefur verið starfræktur sem galleri I rúmt ár.og hefur nú veriö gefin út bók með sama
nafni, þar sem verk þeirrasem sýnt hafa i „Ganginum” eru. Hreinn Friöfinnsson hélt fyrstu sýninguna
I „Ganginum” i febrúar 1980, en galleriiö er til húsa i Mávahlíö 24. Þar er einnig hægt að fá keypta bók-
ina, svo og i Eymundsson, Bókavöröunni og i Galleri Langbrók.
leika.
— Svo að við snúum okkur að
tónleikunum í kvöld. Hvernig
stendur á þeim?
— Þeir eru gömul hugmynd
sem komin er frá Atla Heimi
Sveinssyni og eru nú haldnir á
vegum Tónlistarfélagsins og
Háskólatónleika en falla innan
ramma Myrkra músikdaga sem
eru að hefjast núna um helgina.
Þeir Hjálmar Ragnarsson og
Sigurður Steinþórsson hafa haft
veg og vanda að öllum undir-
búningi.
— Hvað verður flutt og af
hverjum?
— Þarna verða flutt 6 tónverk
eftir mig frá undanförnum 9
árum, þar af eitt frumflutt.
Þetta eru kammertónleikar og
flytjendur eru Helga Þórarins-
dóttir, Helga Ingólfsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir, Carmel
Russel, Manuela Wiesler, Anna
Aslaug Ragnarsdóttir, Rut
Magnússon og Júliana Elin
Kjartansdóttir.
— GFr