Þjóðviljinn - 29.01.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 29.01.1982, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 íþróttir (2) íþróttir g) íþróttir Lena Köppen íþróttamaður Norðurlanda Markvörður iandsliös Qatar 20 ára og yngri bjargar i leik gegn Englendingum á HM unglinga i Astraliu i október. Qatar vann óvænt 2—1 og náði öðru sæti i keppninni. Kuwait sigraði Asiu/- Eyjaálfu-riðilinn i undankeppni HM og verður þvi meðal þátt- tökuliða á Spáni i sumar. Það eru greinilega þjóðir á mikilli uppleið sem tsland leikur gegn i Arabiu- ferðinni. Arabíu- ferð lands- liðsins í knattspyrnu: Enginn gefið afsvar ÍR efst tR vann Fylki 19-16 I 2. deild karla I handknattleik i gærkvöldi. 1R hefur þar með tekið forystuna I deildinni með 14 stig úr 9 Ieikjum, en Fylkir situr á botninum sem fyrr með 4 stig úr 10 leikjum og hefur ekki unnið siðan I fyrsta leik. Guðrún bætti metið Guðrún Ingólfsdóttir KR, sem um siðustu helgi setti nýtt tslandsmet í kúluvarpi innanhúss, 14.61 m. gerði sér litið fyrir og bætti það um 45 sm i fyrrakvöld, varpaöi þá kúlunni 15.06 m. Bæði metin setti hún á innanfélagsmóti hjá KR. LENA KöPPEN, danska badmintonstúlkan sem er okkur tslendingum svo vel kunn, var i gær kjörin iþróttamaður Norðurlanda. Er þetta i fyrsta sinn sem kona hlýtur þennan titil. Það voru fulltrúar frá samtökum iþróttafréttaritara á öllum Norðurlöndunum sem stóðu að kjörinu og stóð valið á milli þeirra sem kosnir höfðu veriö íþróttamenn ársins I viðkomandi löndum. Það voru auk Lenu, Jón Páll Sig- marsson iyftingamaður, ts- landi, Tom Lund, knatt- spyrnumaöur, Noregi, Inge- mar Stenmark skiðamaður, Sviþjóð og Hekki Mikola skiðagöngu- og skotfimi- kappi frá Finnlandi. Lena Köppen, sem er starfandi tannlæknir, hefur orðið Norðurlandameistari í bad- minton 25 sinnum, Evrópu- og heimsmeistari. — liðið tilkynnt á sunnudag Ekki er útlit fyrir eins mikil forföll i Arabíuferð islenska landsliðsins i knattspyrnu og talaö hefur verið um. Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari sagði I gær að leikmenn sem hann heföi haft samband við væru allir já- kvæðir og ekki einn einasti hefði enn gefið afsvar þó sumir hefðu beðiö um smáfrest til aö ihuga málið. Jóhannes mun kalla leik- mennina saman á fund og jafnvel æfingu á sunnudag. Lagt verður upp I ferðina 25. fe- brúar og komið heim aftur um ia mars. Leikið verður við Kuwait, Qatar og Sameinuðu Fursta- dæmin, tveir leikir við hverja þjóð. Ekki verður leikið við Egyptaland eins og möguleikar voru á,en Egyptar vildu fá lands- liðið til sin i leiðinni. Ferðin verður KS1 algerlega að kostnaðarlausu. Arabarnir greiða flugið og uppihald og siðan fær liðið ákveðna upphæð fyrir leik- ina sem á að dekka annan kostnað algerlega. Ekki er enn vitað um hvernig aðstæður verður leikið viiý annað en það að búast má við miklum hita, á bilinu 30—40 stig. Sand- bornir vellir og gervigrasvellir tiðkast mjög i þessum landshluta en þjóðir eins og þessar sem hafa lagt gifurlega fjármuni i upp- byggingu knattspyrnunnar á undanförnum árum og ekkert sparað tif, hljóta að hafa sóma- samlega leikvelli til að nota i landsleikjum. — VS Handknattleikur um helgfna: Blak Um helgina eru eftirtaldir leikir á dagskrá á tslands- mótinu i blaki: 1. deild karla: Viking- ur:Laugdælir á laugardag kl. 14, IS:UMSE á sunnudag kl. 15.15 og Þróttur:Vikingur á mánudag kl. 20 og eru allir leikirnir i Hagaskóla. 1. deild kvenna: Þrótt- ur:KA á sunnudag kl. 14 og Þróttur:UBI á mánudag kl. 18.15, báðir I Hagaskóla, og ÍS:KA á mánudag kl. 21 i iþróttahúsi Háskólans. 2. deild karla: Þróttur N og HK á Neskaupsstað á laugardag kl. 16, Samhygð og Þróttur 2 á Selfossi á sunnudag kl.14:80 og Þróttur 2 og Fram I Hagaskóla á mánudag kl. 21.15. Vfldngur - KR Þróttur - FH Um helgina verður leikin 8. um- ferð i 1. deild karla i handknatt- leik, og mjög þýðingarmiklir leikir á dagskrá. Fjögur efstu liðin leika innbyrðis, Vikingur og KR i Laugardalshöllinni á morg- un, laugardag, kl. 14 og Þróttur og FH á sama stað á sunnudag kl. 14. Þá verður mjög þýðingar- mikill leikur i fallbaráttunni. KA og HK mætast á Akureyri á morgun kl. 15.30. Fjórða viður- eignin er svo leikur Vals og Fram i Laugardalshöllinni á sunnu- dagskvöld kl. 20. t 1. deiíá kvenna veröa þrír leikir. Vikingur-KR Þróttur-FH og Valur-Fram en allir hefjast strax á eftir karlaleikjum við- komandi félaga. Staðan i 1. deild karla: FH 7 6 0 1 181:159 12 Vikingur 7 5 0 2 153:126 10 KR 7 5 0 2 152:142 10 Þróttur 7 5 0 2 155:147 10 Valur 7 3 0 4 142:145 6 HK 7 1 1 5 125:146 3 Fram 7 1 1 5 142:171 3 KA 7 1 0 6 137:163 2 IS á ystu þröm Það er nú ljóst sem lengi blasti við að Stúdentar falla úr Urvals- deildinni í körfuknattleik. Þeirra siðasta hálmstrá visnaði og féll I gærkvöldi, er liðið tapaöi fyrir tR, næst-neðsta liðinu 69-88. t hálfleik var staðan 41-34, ÍR I vil. Liðin skiptust á um forystuna framan af en siðan náði IR yfir- héndinni ieitt skipti fyrir öll. Þeir gerðu siðan út um leikinn á fyrstu 8 min. siðari hálfleiks, er liðið skoraði 20 stig gegn 7. Staðan þá var 61-41 og eftir það fór munur- inn aldrei niður fyrir 14 stig. Lið 1R var mjög jafnt. Stanley, Jón Jör, Kristinn Hjörtur og Benedikt léku nær allan leikinn og lentu ekki i teljandi vandræðum, nema Stanley i hinum venjulegu villuvandræðum. Ingi Stefánsson ÍS - ÍR 69:88 skoraði 14 stig fyrir 1S á fyrstu 15 min. en siðan fór honum að förlast. Komst þó best Stúdenta frá leiknum. Bock er of hógvær undir körfunni til að vera af- gerandi leikmaður. Hann slasaðist siöan á lokaminútunum og varð að yfirgefa völlinn. Stig 1R: Stanley 25, Kristinn 20, Jón 18, Hjörtur 13, Benedikt 10 og Ragnar 2. Stig 1S: Ingi 22, Bock 17, Bjarni 12, Guðmundur 8, Gisli 4, Árni 2, Jón 2 og Þórður 2. Staðan i úrvalsdeildinni er nú þessi: Njarðvik ... 13 11 2 1139:1025 22 Fram........ 13 9 4 1094:1001 18 Valur....... 13 7 6 1056:1023 14 KR ..........13 7 6 1014:1081 14 1R...........14 5 9 1089:1152 10 1S...........14 1 13 1112:1262 2 1 kvöld mætast svo Valur og Fram i iþróttahúsi Hagaskólans kl. 20 og KR og Njarðvik leika á sama stað á sunnudagskvöld kl. 20. — VS. PAT BOCK, 1S, og BOB STANLEY, 1R, berjast um knöttinn I leik lið- anna i úrvalsdeildinni I gærkvöldi. Mynd: eik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.