Þjóðviljinn - 29.01.1982, Síða 3
' Föfciu'dágur< 29.‘ janúar'1982'ÞAótíVl'tjlSlN — SÍÐA 3
„Vertu ekki að mynda okkur svona úfin og agaleg”. Skúli Thoroddsen,
Ingibjörg Baldursdóttir og Jóhanna Gunnarsdóttir ætla að aðstoða
félagsmenn Dagsbrúnar i dag og á morgun við gerð skattframtala.
(Ljósm.: — eik —)
Verkamannafélagið Dagsbrún:
Hjálp við gerð
skattaskýrslna
t dag og á morgun eiga félags-
menn Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar kost á aðstoð við
gerð skattaframtala. Eflaust
mun þessi nýbreytni kærkomin
mörgum, þvi ekki er heiglum
hent að botna i frumskógi eyðu-
blaðanna, hvað þá laganna.
Reyndar hefur Dagsbrún veitt
slika aðstoð gegnum árin og
mæddi hún mest á Gyðmundi J.
Guðmundssyni, sem nýverið var
kjörinn formaður félagsins. 1
haust tók lögfræðingur til starfa
hjá Dagsbrún, Skúli Thoroddsen
að nafni og hann mun hafa veg og
vanda við leiðbeiningarnar i þetta
sinn. Honum til aðstoðar verða
skrifstofustúlkurnar Ingibjörg
Baldursdóttir og Jóhanna
Gunnarsdóttir, en að auki munu
tveir laganemar vera viðstaddir.
Skúli sagði okkur, að megin-
reglan væri ekki sú að telja fram
fyrir menn, heldur fyrst og
fremst að leiðbeina og aðstoða,
nema sérstaklega stæði á, svo
sem vegna veikinda, aldurs eða
fasteignakaupa. Þessi starfsemi
félagsins fer fram i Lindarbæ, i
dag frá kl. 17—21 og á morgun frá
kl. 13.30—17, en Lindarbær er i
sama húsi og skrifstofa félagsins
að Lindargötu 9.
Nú þegar veitir Dagsbrún '
fðlagsmönnum sinum alla lög-
fræðilega þjónustu. Einkum leita
menn til félagsins vegna
kjarasamninga og sagði Skúli
ótrúlega mikil brögð að þvi að
fólk væri hlunnfarið i launum og
einnig i greiðslum vegna veik-
inda, slysa, orlofs og raunar
hverju sem nöfnum tjáir að
nefna. Vill félagið hvetja alla sina
félagsmenn til þess að hafa sam-
band við skrifstofuna ef þeir eru i
einhverjum vafa um réttindi sin.
— ast.
Hvar á að úthluta í vor?
Skipulagssýniiig að
Kjarvalsstöðum
Næstkomandi laugardag og
sunnudag 30. og 31. janúar verður
haldin á vegum Borgarskipu-
lags Reykjavikur sýning á skipu-
lagsuppdráttum og Hkönum af
þeim byggingarsvæðum, þar sem
næstmunkoma til lóðaúthlutunar
I Reykjavik.
Hér er um að ræða eftirtalin
svæði: Artúnsholt, Laugarás,
Sogamýri og Suðurhliðar.
Sýningin, sem fer fram á Kjar-
valsstöðum verður opin kl. 14.00
- 22.00. Kl. 16.00 verður báöa dag-
ana gerð grein fyrir skipulagi ein-
stakra svæða, sýndar skýringar-
myndir og fyrirspurnum svarað.
Deilurnar innan sjónvarpsins:
Tel þetta vera
innanhússmál
— segir Andrés
Björnsson
útvarpsstjóri
Eins og skýrt var frá i Þjóðvilj-
anum i gær rikir hálfgert upp-
lausnarástand á sjónvarpinu.
Hnútukast og ásakanir ganga á
vixl og 8 dagskrárgcrðarmenn
hafa ritað útvarpsstjóra og út-
varpsráði opið bréf, þar sem
kvartaðer yfir ónýtum tækjum og
yfirverkfræðingur sjónvarpsins
talinn ábyrgur. Hann svarar
þeim hinsvegar fullum hálsi og
kallar ásakanirnar ,,eins og hvert
annað kjaftæði”. Uppsagnir
starfsfólks hafa verið með ólik-
Jndum tiðar hjá stofnuninni, jafn-
vcl svo að manneskja sem fór I
nokkurra mánaða fri kannaðist
vart við nokkurn mann þegar hún
kom til baka.
Vart getur ástandið verið eðli-
legt og i gær var útvarpsstjóri
spurðurað þvi hvort hann ætlaði
ekki að láta málið til sin taka.
Ég hef nú ekkert gert i þvi að
kynna mér málið, enda tel ég að
þarna sé um innanhússmál að
ræða.
Jafnvel þótt um opið bréf til þin
sé að ræða?
Já, jafnvel þótt svo sé, enda eru
nú viða sambúðarerfiðleikar.
Annars vil ég sem minnst um
þetta allt saman segja.
Og ætlar þú þá að láta málið al-
veg afskiptalaust?
Ég veit ekki hvort ég skipti mér
nokkuð af þvi, enda kann ég ekki
ráð til að leysa málið; kannt þú
nokkur ráð?
Það kunni fréttamaður ekki og
lengra varð samtalið ekki.
— S.dór.
Innbrot í Félagsmálastofnun:
Kvelkt
vígorð
í gærmorgun var brot-
ist inn i Felagsmála-
stofnun Reykjavikur-
borgar við Vonarstræti
og kveikt þar i skrif-
stofubúnaði og spjald-
skrá.
Um sjöleytið i gærmorgun var
slökkviliðið kallað að Vonarstræti
4 til að slökkva eld, sem logaði á
fyrstu hæð hússins. Gekk greið-
lega að slökkva hann, en tals-
verðar skemmdir urðu, aðallega
vegna reyks. Greinilegt var að
brotist hafði verið inn i húsið og
hafði innbrotsmaður verið i mót-
mælahug, þvi hann hefur haft
með sér málningu og málað á
veggi ýmis vigorð gegn Félags-
málastofnuninni.
Rannsóknarlögreglan sagði i
gær, að ekki væri vitað hver
þarna hefði verið að verki, enginn
lægi undir grun enn sem komið
væri. Ekki væri heldur ljóst hvort
einn maður hefði verið þarna á
ferð eða fleiri.
— Svkr.
í skrifstofu og
máluð á veggi
Mótmæli þeirra sem telja sig órétti beitta gerast nú æði tilþrifamikil. t
gær var brotist inn I Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar og kveikt I
gögnum á skrifstofu og andúð viðkomandi á stofnuninni látin 1 Ijós með
málningu á veggjum. Ljósm. eik.
Jafnréttisráðstefna SÍB
Jafnréttisráðstefna Sambands
Islenskra bankamanna hófst i gær
og lýkur henni nú i kvöld. Meöal
þess sem f jallað var um i gær eru
Jafnréttislögin sem Guðriður
Þorsteinsdóttir, form. Jafnréttis-
ráðs fjallaði um, samanburður á
stöðu kynjanna innan SIB sem
Vilhelm G. Kristinsson tók fyrir
og yfirlitserindi var flutt um
stöðu kvenna innan Landsbanka
Islands af Arndisi Sigurðardótt-
ur. Þá fjallaði Björn Tryggvason
um viðhorf bankakerfisins til
kvenna sem starfsmanna og f jall-
að var um reynslu kvenna i
ábyrgðarstöðum með fulltrúum
stærstu bankanna i Reykjavik.
Meðal þess sem fjallað er um i
dag er staða mála i Noregi, en
fulltrúi Norska bankamannasam-
bandsins, Tordis Stenberg, hefur
framsögu um það mál. Þd er hóp-
starf og niðurstöður ráðstefnunn-
ar verða teknar saman i lok henn-
ar.
Svædisfundur
á Suóvesturlandi
Kaupfélögin á Suðvesturlandi halda svæðisfund með stjórnarformanni og for-
stjóra Sambandsins. Fundurinn verður í Átthagasal Hótel Sögu sunnudaginn 31.
janúar kl. 13.30.
DAGSKRÁ:
1. Fundarsetning
Ólafur Jónsson, formaður KRON.
2. Ávarp
Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Sambandsins.
3. Vlðfangsefni Sambandsins
Frummælandi: Erlendur Einarsson, forstjóri.
4. Samvinnustarf á Suðvesturlandi
Frummælandi: Hörður Zophaníasson, formaður KFH.
5. Önnur mál - almennar umræður.
Félagsmenn kaupfélaganna og annað áhugafólk um samvinnustarf er hvatt til
að koma á fundinn.
Kf. Hafnfirðinga Kf. Kjalarnesþings
Kf. Reykjavíkur og nágrennis Kf. Suðurnesja
Samband ísienskra samvinnufélaga