Þjóðviljinn - 12.02.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. febrúar 1982.
Föstudagur 12. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Geirtaug Sigurjónsdóttir
Geirlaug Sigurjónsdóttir
Langholti 18,
F. 8. scptember 1928.
Húsmóðir en vinnur nú i
igripum á skrifstofu Iöju. 1 stjórn
þess félags sl. 4 ár og gegnir
gjaldkerastörfum. Áður lengi i
trúnaðarráði. Lauk skyldunámi
og vann lengi á sútun Iðunnar.
Ritari stjórnar Alþýðubandalags-
ins á Akureyri. Gift og 5 barna
móðir.
Gisli Ólafsson
Heiöarlundi 2 j,
F. 24. júti 194«.
Símvirki hjá Pósti og sima i
allmörg ár eítir nám i sim-
Gisli Ólafsson
Katrin Jónsdóttir
Forval Alþýdubandalagsins á
Akureyri fer fram um helgina
virkjun. Hefur unnið ýmis félags-
störf innan Kélags islenskra
simamanna. Sat i stjórn Alþýöu-
bandalagsins á Akureyri 1978—81
sem gjaldkeri. A sæti i umferðar-
nefnd Akureyrar og er vara-
maður i samninganefnd bæjarins.
Kvæntur og þriggja barna faðir.
Gunnar Helgason
Klettaborg 1,
F. 21. ágúst 1942.
Rafvélavirki og vann viö þau
störf allmög ár á verksmiðjum
SIS. Ráðinn til Sjálistojargai til að
stofnsetja plastiðjuna Bjarg og
veitti henni forstöðu i 8 ár.
Gunnar Helgason
Seinni umferö fovals Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri fer fram um helgina, þ.e. laugardaginn 13. og
sunnudaginn 14. febrúar. Kosið er i Lárusarhúsi
báða dagana milli kl. 14.00 og 18.00 Allir félagar Al-
þýðubandalagsins á Akureyri hafa rétt til að taka
þátt i forvalinu.
Neðangreindir 10 félagar hafa gefið kost á sér til
seinni umferðar:
Starfaði siðan á eigin vegum en
vinnur frá þvi i fyrra aö iðn sinni i
Slippstöðinni á Akureyri. A sæti i
rafveitustjórn Akureyrar. Hefur
unnið mikið innan skáta-
hreyfingarinnar og var íélagsíor-
ingi Skátafélags Akureyrar sl. 6
ár. Kvæntur og á 3 börn.
Helgi Guðmundsson
llraunholti 2,
F. 9. október 1942.
Trésmiður og störf aö iðninni
næstu ár eftir sveinspróf. Lengi
formaður Trésmiðafélags Akur-
eyrar og starfsmaöur þess félags.
Fv. formaður Iðnnemasambands
tslands og núverandi formaður
Menningar og fræðslusambands
alþýðu. Starfsmaður stjórnar
verkamannabústaða á Akureyri.
Ritstjóri Alþýðubandalags-
blaðsins 1971-73. Bæjaríulltrúi
frá 1978 og formaöur bygginga-
nefndar ogsitur i skipulagsnefnd.
Kvæntur og á 2 börn.
Helgi Guðmundsson
Hiimir Helgason
Seljahlið lc,
F. 12. nóvember 1945.
Vinnuvélstjóri hjá Möl og Sandi
siðustu árin en var lengi áður
starfsmaður Orkustofnunar viö
Hilmar Helgason
Ingibjörg Jónasdóttir
jarðboranir og 2 ár hjá Land-
helgisgæslunni. Á sæti i’ trúnaðar-
mannaráði Einingarog formaður
bilstjóradeildar félagsins. Fv.
formaður Alþýðubandalagsins á
Akureyri. Varabæjarfulltrúi frá
1978 og situr i hafnarstjórn og
stjórn Krossanesverksmiðj-
unnar.
Kvæntur og fjögurra barna faðir.
Ingibjörg Jónsdóttir
Heiðarlundi 2j,
F. 14. október 1950.
Lauk gagnfræðaprófi og hefur
unnið verkamannastörf af ýmsu
tagi, siðast við heimilisþjónustu
Akureyrarbæjar. Vann við
auglýsingasöfnun og dreifingu
Norðurlands.en er nú i fullu starfi
sem húsmóðir. Gift og þriggia
barna móðir.
Katrln Jónsdóttir
Alfabyggð 10,
F. 6. júli 1932.
Sjúkraliði og húsmóðir. 1 stjórn
Jafnréttishreyfingarinnar og
hefur setið i stjórn Alþýðubanda-
lagsins á Akureyri. Varafulltrúi i
félagsmálaráði. Gift og á 5 börn.
Margrct Björnsdóttir
Margrét Björnsdóttir
Hráfnagilsstræti 25,
F. fi. nóvember 1901.
Nemandi i tí. bekk íélagsíræði-
deildar i Mennidskólanum á
Akureyri. Hefur starfað mikið
með Leikfélagir' Menntaskólans
og átti sæti I stjórn Landsam-
bands Mennta- og Fjölbrautar-
skólanema. Ýmis störf á sumrin.
Siðast hiá Vegagerö rikisins.
Páll Hlöðvesson
Grundargerði 6 j,
F. 27. mars 1945.
Lauk prófi i vélvirkjun 1966 og
skipatæknifræði 1971. Störf i
þeirrigrein siðan, siðustu árin við
Slippstöðina á Akureyri. For-
maður kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins 1978—79 og átti sæti
i stjórn ABA. Formaður atvinnu-
málanef ndar Akureyrar.
Kvæntur og fjögurra barna íaöir.
Páll lllöðvesson
Sigriður Stefánsdóttir
Vanabyggð 10 c,
F. 29. júli 1949.
Verslunarskólapróf og
stúdentspróf frá sama skóla.
Laukprófi i þjóðfélagsfræðum frá
Ht 1975. Við ýmis störf jafnhliða
námi. Vann á Unglingaheimili
rikisins i Kópavogi, eftirlitsstörf
á vegum Náttúruverndarráðs i
Mývatnssveit og við kennslu.
Kennari við Gagnfræðaskólann á
Akureyri 1978—80 og við Mennta-
skólannfrá þeim tima. Tók sæti I
framhaldsskólanefnd Akureyrar-
bæjar. Gift og tveggja barna
móðir.
Sigriður Stefánsdóttir
Rætt við Soffiu Guðmundsdóttur bœjarfiilltrúa á Akureyri_
„Rétt að menn deili með sér verkum”
Soffía Guðmundsdótt-
ir. bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins á Akureyri
siðan 1970, lýsti þvi yfir
fyrir nokkru á félags-
fundi að hún mundi ekki
verða i kjöri til bæjar-
stjórnar i kosningunum i
vor. Við snerum okkur
af þessu tilefni til Soffiu
og báðum hana að svara
fáeinum spurningum og
byrjuðum á að inna
hana eftir þvi hvers
vegna hún hefði tekið
þessa ákvörðun.
„Ég hef aldrei litið á störf bæj-
arfulltrúa sem neina lifstiðar-
ráðningu. Ég hefi setið hér i
bæjarstjórn á Akureyri i 3 kjör-
timabil og tel það nægilega lang-
an tima. Ég hef ævinlega verið
sammála þeim reglum sem gilda
i Alþýöubandalaginu um tima-
mörk varðandi trúnaðarstörf inn-
an flokksins og á vegum hans.
Framboð, nefndarstörf og önnur
opinber störf eru bara hluti þeirra
starfa sem leysa þarf fyrir ílokk-
inn og mér finnst rétt aö menn
deili með sér verkum. Það er
æskilegast aö íá nýtt fólk til
starfa og nýta alla hæfni. Þeir
sem eru sjóaðir i hinu pólítiska
vafstri þurfa alls ekki að kviða
pólitisku aðgerðarleysi. Verkefn-
in eru næg i hreyfingunni.”
Framfarir
a sviði
félagsmálanna
— Alþýðubandalagið hefur tek-
ið þátt i meirihlutasamstarfi á
Akureyri síðan 1974. Hvaða bar-
áttumál finnst þér einkum hafa
náð fram að ganga?
,,Ég var þvi mjög fylgjandi á
sinum tima að þessi meirihluti
var myndaður og átti minn þátt i
þvi. Ég tel reynsluna hafa sýnt
það ótvirætt aö þetta var rétt
skref. Staða Alþýðubandalagsins
hefur styrkst og okkur tókst að
komast út úr áralangri einangr-
un.
Ef meta á hvað hafi helst kom-
ist fram má auðvitað bera viða
niður. Undanfarin ár hafa verið
mikið framkvæmdatimabil og sér
þess viða staði. Mér er ofarlega I
huga hver þróunin hefur orðið á
sviði félagsmálanna. Þegar ég
kom i bæjarst jórn var hér enn við
lýði Framfærslunefnd.en hún var
lögð niður og sett á laggirnar. Fé-
lagsmálaráð og Félagsmala-
stofnun. Kyrrstaða var þá i öllu
sem hét félagsmál og félagslegri
þjónustu. Félagsmálastofnunin
hér á Akureyri hefur vaxandi um-
svif og veitir nauðsynlega þjón-
ustu á mörgum sviðum, sem
snerta lif hins almenna borgara i
bliðu og striðu. Stofnunin hefur
góða starfsaðstöðu i vistlegu
gömlu húsi hér i miðbænum og
hefur ágætu starfsliði á að skipa.
Tværnýjardagvistirhafa tekið
til starfa á þessu kjörtimabili,
Lundasel og Siðusel en skóladag-
heimilið Brekkukot hefur verið
starfrækt siðan 1976. Unnið er að
hönnunnýrrar dagvistar við Þór-
unnarstræti. Það verður hins veg-
ar að segjast eins og er að fram-
kvæmdir í dagvistarþættinum
hafa dregist úr hömlu, miðað við
yfirlýsingar allra stjórnmála-
flokkanna fyrir siðustu kosning-
ar. Þá var lofaö skjótum úrbótum
i þessum efnum, en þessi áætlun
hefur því miður tafist. Má ef til
vill segja að fleiri konur hefðu
þurft i bæjarstjórn Akureyrar, til
að tryggja framgang þessara
mála og konur i öðrum flokkum
hefðu þurft að hafa medri áhrif
hver á sinum flokkslega heima-
velli.
Á sviöi húsnæðismálanna hefur
mikið áunnist. Þar hafa orðið
ótvfræðar framfarir við útrým-
ingu heilsuspillandi húsnæðis i
eigu bæjarins. Með stóraukinni
byggingu leiguibúða og á vegum
Verkamannabústaða hefur okkur
tekist að ná þarna miklum ár-
angri, en áfram verður að halda
af sama kraftinum og slaka
hvergi á.”
Vinna þarf
ötullega að
atvinnumálum
— Hver eru stærstu óleystu
verkefnin framundan á vettvangi
bæjarstjórnar Akureyrar?
„Þar vil ég nefna atvinnumál-
in. Þau eru auðvitað undirstaða
þess hvemig okkur tekst til með
önnur mál og bæjarstjórnin verð-
ur að líta á það sem sitt megin-
verkefni að stuðla að aukinni
verðmætasköpun hér, renna stoð-
um undir traustara atvinnulif og
tryggja atvinnuöryggi bæjarbúa.
Þessi mál hafa talsvert verið
rædd i seinni tið og okkar hug-
myndirhafa veriðþærað efla þær
atvinnugreinar sem fyrir eru og
stuöla að myndun nýrra, sem
byggja á þjóðlegum grunni.
Þarna eru mikilvæg verkefni
framundan, sem hljóta að koma
verulega til kasta bæjarstjórnar á
næstu misserum”.
Auðvitað eru
konur óánægðar
— Sérstök kvennaframboö
munu að öllum likindum koma
fram við næstu kosningar á Akur-
eyri og Reykjavik. ltver er af-
staða þín til þeirra mála?
„Ég vildi gjarnan benda á
tvennt i þessu sambandi. Það
þarf auðvitað enginn að vera
hissa þótthugmyndirum kvenna-
framboðið komi fram nú. Áhrifa-
leysi kvenna i' stjórnmálum og
allri ákvaröanatöku er i'hróplegu
ósamræmi við vinnuframlag
þeirra um þjóðfélagið allt, hvert
semJitiðer. Þessu una konur auð-
vitað ekki.
Hins vegar eru hugmyndir um
kvennaframboðið enn eitt dæmi
um þverrandi áhrif stjórnmála-
flokkanna og að staða þeirra
veikist i sifellu. Þarna er að min-
um dómi að ræða iskyggilega
þróun.
Þetta kvennaframboð sem
sjálfsagt má gera ráð fyrir að sé
skyndiaðgerð nú, virðist greini-
lega hafthaft áhrif á stjórnmála-
flokkana, amk. virðast þeir hafa
tilburði uppiþessa dagana aðláta
konur sjást á listum i mun meira
mæli en áður hefur verið. Það
verður fróðlegt að sjá hverju
fram vindur i Alþingiskosningun-
um, ef nú fer fram sem horfir i
þessum efnum”.
— En finnst þér hlutur kvenna
jafn illa fyrir borð borinn innan
Alþvöubandalagsins og annarra
flokka?
„Ég hef margsagt þaö og ég get
endurtekið það hér, að ég tel
Alþýðubandalagið hafa nokkra
sérstöðu að þvi leyti, að innan
þess vébanda hefur veriö mein
umræða og umfjöllun um jafn-
Soffia Guðmundsdóttir bæjar-
fulltrúi
réttismál en innan annarra
stjórnmáliflokka. Auðvitað eru
það konurnar sem hafa staðið
fyrir þessari umræðu og haldið
henni vakandi.
Híns vegar þarf ekki annað en
að lita á sveitarstjórnirnar og
Alþingi, til að sjá að allir flokk-
arnir eru þvi marki brenndir að
pikka upp eina og eina konu, og
sumir hafa jafnvel enga, sem
fulltrúa sinn i þessum valdastofn-
unum. Ég held aðkarlmenn í öll-
um stjórnmálaflokkum þurfi að
læra þá lexiu að lita á konur sem
jafningja og viðurkenna hæfni
’beirra og eigin pólitiskan vilja.
Ég er aftur á móti þeirrar skoð-
unar að karlarnir i forystu Al-
þýðubandalagsins hafi betri for-
sendur aö skilja hiö róttæka afl,
sem felst i' jafnréttisbaráttu nú-
timans. Þeirhljóta þaraf leiðandi
að vera lfklegri til að hlýða kalli
timans, ekki sist vegna þess að
þeir hafa stóran hóp kvenna sér
við hlið í eigin flokki. Þær hafa
reynst hæfar og i besta máta
flokkshollar”.
Næg verkefni
— En hvernig list þér þá á stööu
Alþýöubandalagsins fyrir næstu
byggöakosningar?
„tþessu sambandi má minna á
að við siðustu kosningar komst
Alþýðubandalagið i mikla sókn
um land allt og mikið af nýju fólki
tók til starfa fyrir flokkinn, bæði i
sveitarstjomum og i nefndum á
þeirra vegum. Núna er bvi
stærri hópur en nokkru sinni fyrr
að vinna aö framlagi baráttu-
mála flokksins. Ég hygg að þrótt-
mikið starf þessa stóra hóps sýni
svo ekki verði um villst að árang-
ur næst ef allir leggjast á eitt.
Þetta fólk hefur unnið meö þeim
hætti fyrir flokkinn, að ekki er
ástæða til annars en að vera
bjartsýnn. Hins vegar er ég þeirr-
ar skoðunar að nú þurfi allir að
taka á, ef halda á i hoírinu og
bæta við þann árangur, sem viö
náðum eftir siðustu kosningar”.
— Að lokum, Soffia, ertu nokkuö
hætt í pólitfkinni að sinni?
„Nei, ég hef ekki hugsað mér
það. Kosningabaráttan er fram-
undan sem ég tek að sjálfsögöu
fullan þátt i, enda þótt ég verði
ekki i eldlinunni. Mikið starf er
einnig framundan við aö koma
Norðurlandinu út, en þar er ætl-
unin að reisa við fallið merki af
myndarskap. Auk þess eru ótal
verkefni sem ég er enn að sinna
og hefi hugsað mér að takaáfram
þátt i, þó ekki séu þau á vettvangi
bæjarmálanna”.
—v.
Sigrún Edda Björnsdóttir og Saga Jónsdóttir i hlutverkum mæögnanna
i „Dans á rósum”.
25. sýning í kvöld á
„Dans á
3 sýningar eftir
t kvöld veröur 25. sýning á
Dansi á rósum eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur, og eru nú aöeins
þrjár sýningar eftir á þessu verki
sem vakti mikla athygli, umtal og
jafnvel deilur viö frumsýninguna
i október sl,-
Gagnrýnendur báru mikið lof á
túlkun leikendanna i sýningunni
og um leikritið sjálft var m.a.
sagt: „...vekur vonir um aö
komið sé fram leikskáld sem eigi
eftir að búa til lifandi dramatik
um veruleik okkar allra...” (Jón
Viðar Jónsson i Helgarpóstinum),
og „Með þessu leikriti hefur is-
lensku leikhúsi bæst sjónleikur
sem á erindi viö samtiöina. Og
okkur hefur bæst leikritaskáld
sem byrjar feril sinn með þeim
tilþrifum að það hlýtur að vekja
vonir”. (Halldór Kristjánsson 1
Timanum).
Leikurinn gerist sem kunnugt
er á nokkrum dögum á Akureyri i
rósum”
kringum 17. júni og snýst at-
burðarásin kringum Astu, sem
komin er heim til að halda upp á
tiu ára stúdentsafmælið sitt.
Heimsóknin verður afdrifarik,
þvi Asta er knúin til þess að gera
upp hug sinn varðandi sjálfa sig
og þá sem hún umgengst. Saga
Jónsdóttir leikur Astu, Kristbjörg
Kjeld og Helgi Skúlason leika for-
eldra hennar, Sigrún Edda
Björnsdóttir leikur dóttur hennar,
Siguröur Skúlason leikur
heimilislækninn og gamla
drauminn, Þórhallur Sigurðsson
leikur manninn sem eltir Astu
norður og vill ekki sleppa henni úr
augsým loks eru i hlutverkum
þau Steinunn Jóhannesdóttir,
Andri örn Clausen og Július
Hjörleifsson. — Leikstjóri er
Lárus Ýmir Óskarsson, leikmynd
og búningar eftir Þórunni Sigriði
Þorgrimsdóttur, lýsingu annaðist
Ingvar Björnsson og tónlistin er
eftir Manuelu Wiesler og leikin af
henni sjálfri.
Siðustu sýningarnar á Dansi á
rósum verða siðan sunnudaginn
14. og fimmtudaginn 18. febrúar.
Kirkjustarf fyrir
heyrnarskerta
Sr. Myiako Þórðarson starfar
nú sem prestur heyrnarskertra.
Guösþjónustur fyrir heyrnar-
skcrta og aöra er annan sunnudag
hvers mánaöar, kl. 14.00 i Hall-
grimskirkju. Sr. Myiako flytur
mál sitt mcð oröum og táknum
samtimis. „Kór” flytur sálma á
táknmáli en heyrandi fólk I söfnr
uöinum syngur meö.
Barnastarf er einnig reglulega i
Hallgrimskirkju siðasta laugar-
dag hvers mánaöar, kl. 14.00. Þar
eru bæöi heyrnarskert og heyr-
andi börn, og er sr. Jón Sætran
o.fl. til aðstoðar.
Eðli málsins samkvæmt er það
aö guösþjónustur sr. Myiako
verða eitthvað öðruvisi en venju-
legar guðsþjónustur.
. Sr. Myiako hefur viðtalstima á
þriðjudögum og fimmtudögum i
Hallgrimskirkju.