Þjóðviljinn - 23.02.1982, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. febrúar 1982
Innlegg í skólamálaumræðu
Árni Stefánsson
kennari skrifar
Undanfarið hafa skólamál
verið allmikið til umræðu i fjöl-
miðlum. Reynt hefur verið að
vekja athygli ráðamanna og
þjoðarinnar á þvi aðstöðuleysi
sem alltof margar skólastofnanir
búa bið.
Áður en vikið er að þeim vanda
sérstaklega, vill undirritaður hins
vegar vekja máls á þeim ágrein-
ingi um starfsaðferðir sem rikir
meðal skólamanna. Þessi
ágreiningur spannar bilið milli
þessað nemendur eigi að búa við
svo til óheft frelsi til náms og
starfs til hins gagnstæða þ.e. að
þeir séu aldir upp við járnaga.
Hið algera frelsi hefur gjarna
verið bendlað við Sviþjóð, stund-
um talað um ,,hina sænsku linu”.
Sú uppeldismálastefna hefur
skapað þar mikinn vanda og i
fleiri löndum sem svipaðri stefnu
fylgja. Það hefur nefnilega komið
i ljós að við þær aðstæður vilja
nemendur einfaldlega hafa sína
eigin hentisemi. Þetta ástand
hefur m .a. leitt til þess að æ fleiri
kennarar yfirgefa starf sitt og
áhugi á kennaranámi hefur farið
dvinandi.
Að margra dómi hefur þessi
stefna leitt til margs konar
annars félagslegs vanda og auk-
innar lausungar almennt i þess-
um löndum. Þenkjandi menn i
skólamálum eru nú margir
hverjir farnir að efast um hvort
hér sé stefnt i rétta átt.
Litimenn svo hins vegar til fá-
tækrahverfa stórborga heimsins
þar sem miljónir manna búa, er
ástandið i skólamálum geigvæn-
legt og þar helst enginn kennari
við i starfi til lengdar nema ef
vera skyldu réttindalausir menn.
1 verstu tilfellum eru vqjnaðir
verðir i skólunum, jafnvel inni i
kennslustofun um.
Þvi álykta æðimargir, sem
velta fyrir sér þróun mála iheim-
inum að hinn samfélagslegi vandi
mimi stöðugt aukast m.a. af
umræddum ástæðum.
Þeir skólamenn sem vilja að
nemendur búi við strangan aga
eru þeirrar skoðunar, að eigi
menn að verða sæmilega ábyrgir
þegnar, þegar þeir vaxa Ur grasi
séslik ögun nauðsynleg. Hvemig
slik ögun eigi að vera má enda-
laust deila um, en einn mjög
mikilvægur þáttur er að nem-
andinn sannfærist um nytsemi
þess náms sem hann fæst við.
Þá standa menn frammi fyrir
spurningunni: Hvað er nytsam-
legt nám? Við slikri spumingu
fæst vitanlega aldrei neitt endan-
Ráðstefna um
sveitarstjórnarmál
Ráðstefna um
sveitarstjórnarmál
verður
haldin dagana
27. og 28. febrúar
1982 og hefst
kl. 13.30
fyrri daginn.
Ráðstefnustaður:
Hótel Esja,
Reykjavík
Ráðstefnustjórar:
Hilmar Ingólfsson,
Kristin Thorlacius
Alþýðu-
bandalagið
Kristján Soffla
Alfheiður
Kristin
Hiimar
Sigurjón
DAGSKRÁ:
1) Ávarp: Svavar Gestsson.
2) Áhersluatriði AB í komandi
sveitarstjórnarkosningum:
Framsaga: Sigurjón
Pétursson.
2.1) Lýðræði og valddreifing.
2.2) Atvinna.
2.3) Uppeldi, fræðsla og tóm-
stundir.
2.4) Félags- og heilbrigð-
isþjónusta.
2.5) Umhverfi og skipulag.
2.6) Framsetningu stefnumála
og blaðaútgáfa.
Stutta kynningu á hverjum
málaflokki flytja eftirtalin:
Logi Kristjánsson, Rannveig
Traustadóttir, KristjánAs-
geirsson, Alfheiður Inga-
dóttir, Þorbjörn Broddason og
Stefán Thors.
Umræðuhópar fjalla um liði
2.1,—2.6.
3) Samvinna ríkis og sveitar-
félaga um framkvæmdir,
rekstur og tekjuöflun:
Framsaga: Adda Bára Sig-
fúsdóttir.
4) Samskipti sveitarstjórnar-
manna Alþýðubanda-
lagsins innbyrðis og við
flokkinn:
Framsaga: Soffia Guð-
mundsdóttir.
5) Skýrsla umræðuhópa og af-
greiðsla mála.
Þátttaka tilkynnist á skrif-
stofu AB simi 17500.
legt svar. En skólar eiga og verða
að breytast i timans rás hvað
námsefni og starfshætti varðar
eigi þeir að geta gegnt þvi hlut-
verki sem þjóðfélagið ætlar þeim.
En hafa islenskirskölargert það?
Því miður verður að viðurkenna
að þar miðar sérlega hægt.
Hér verður að breyta viðhorf-
inu til skólans sem fræðslu- og
uppeldisstofnunar. — Það er ekki
nóg að byggja „kassa” og fleygja
þar inn nemendum og kennurum.
Menn verða að skilja að skóli er
ekki bara skólastofur og gangar.
Hann þarf að fylgjast með hvað
öll kennslugögn varðar og
kennslutækni og slikt kref st oftast
einnig rýmra húsnæðis.
Það er heldur ekki nóg að kenn-
arar hafi sína kennarastofu með
matar- og hvildaraðstöðu heldur
þurfa nemendurnir að eiga kost á
hinu sama þá kemur að þvi að
starfsfólk skólanna þurfi ekki aö
horfa upp á nemendur sina borða
snúða i einhverju horninu eða
stelist útinærliggjandisjoppurtil
sælgætisats.
Nemendur þurfa að fá sam-
felldan starfstima en þurfi ekki
að þeytast milli heimilis og skóla
jafnvel 3—4 sinnum á dag eins og
dæmi eru þvi miður til um.
Gleymum þvi ekki heldur að
stór hluti nemenda kemur van-
svefta til skólastarfsins aðallega
vegna sjónvarpsgláps og ekki
hefur „videóæðið” bætt þar um,
það mættu foreldrar gjarna
ihuga. Nú finnst vartþað foreldri
i landinu sem ekki vill búa barni
sinu hin bestu skilyrði heima fyrir
og þeim verður einnig að vera ljóst
að hið sama verður að vera til
staðar i skólanum. Skólinn er
nefnilega vinnustaður barna
þeirra stærsta hlutann úr árinu.
Vissulega mætti fjalla um
ástandið i skólamálunum i miklu
lengra máli, það skalekki gert að
sinni en það er þjóðarnauðsyn að
viðhorf ráðamanna og þjóðar-
innar allrar breytist i garð skóla-
kerfis þessa lands.
Lendingar og flugtök
á Keflavíkurflugvelli:
67,78%
vegna
herflugs
t yfirliti yfir flugumferð hér á
landi fyrir árið 1981 kemur fram
að um islenska flugumferðar-
svæðið hafa farið 7.823 herflug-
vélar, eða um 21% af allri flug-
umferð á svæðinu.
Ef hreyfingar á Keflavikur-
flugvelli (þ.e. flugtök og lend-
ingar) eru skoöaðar, hafa þær
veriö i herfluginu 39.799 eöa
67,78%.