Þjóðviljinn - 26.02.1982, Page 16
mmi/m I Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-2U mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn hiaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbroi Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Föstudagur 26. febrúar 1982 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i’af- greiðslu blaösins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
I-------------------->--.----
! Guðrún Helgadóttir úr þriðja í áttunda sæti á G-listanum:
j„Sama fólkið á ekki
j að sitja allsstaðar”
,,Ég tel ekki ástæðu til að
sama fólkið sitji 1 öllum trún-
aðarstöðum i flokki, sem hefur á
að skipa hundruðum manna,
sem eru jafn færir um að gegna
þeim”, sagði Guðrún Helga-
dóttir alþingismaður og borgar-
fulltrúi i samtali viö blaðið i
gærkvöldi, en hún óskaði þess
eindregið að vera flutt úr þriðja
sæti G-listans i 8. sætið.
„Sfst af öllu tel ég ástæðu til
þess að konur sitji i fleiri en
einni stöðu, þvi það vantar fleiri
konur tii starfa í fulltrúasam-
komum og Alþýðubandalagið
hefur svo sannarlega úr mörg-
um konum að velja. Ég tel mig
stunda fullt starf á Alþingi Is-
lendinga og vinnuálagið sem
fylgir störfum alþingismanns og
borgarfulltrúa er það mikið að
það er naumast hægt að sinna
þeim samtimis svo vei sé nema
eitt kjörtfmabil.”
Tengsl þing- og borgar-
mála
Þjóðviljinn innti Guðrúnu
eftir þvf hvers vegna hún hefði
þá ekki tekið ákvörðun um að
fara af listanum.
„Það var lagt mjög hart að
mér að taka þátt i forvalinu.
Ekki sist vegna þess að margir
telja æskilegt að góð tengsl séu
milli starfs okkar að borgar-
málum og á þingi. Tiu efstu
menn listans eiga sæti í borgar-
málaráði Alþýðubandalagsins i
Reykjavik, sem er mjög virkt
og stefnumótandi, og með þvi-
að vera þátttakandi i þvi tel ég
mig geta annast þessi tengsl.
Þeim mun ég sinna eins og tim-
inn leyfir og beita mér i þeim
borgarmálum sem einkum hafa
verið á minni könnu i borgar-
stjórn s.l. fjögur ár.”
Góður listi— reynt fólk
Guörún lagði sérstaka áherslu
á það að i fyrsta skipti i sögu
flokksins væri framboðslistinn
til borgarstjórnar skipaður
þrautþjálfuöu borgarmálafólki.
Það hefðu orðið mikil umskipti
eftir kosningasigurinn 1978 og
fjöldi fólks orðið sér Uti um dýr-
mæta reynslu og þjálfun á kjör-
timabilinu.
,,Ég tel þetta vera ákaflega
góðan lista sem við teflum nú
fram. Og ég mun taka fullan
þátt f kosningabaráttunni og
leggja félögum minum allt það
lið sem ég má. Borgarmálahóp-
ur Alþýðubandalagsins i
Reykjavik hefur að minu mati
unnið ákaflega vel og flokkurinn
ætti þess vegna að hafa góða
stöðu i borginni. En við eigum
mikinn sigur að verja og það
mun ekki takast baráttulaust.”
Jafnréttislisti
Að iokum spurði blaðið Guð-
rúnu hvort þaö væri ekki tninus i
kvennabaráttunni að hún sem
kona skyldi færa sig neðar á
listann .
,,Min ákvöröun þurfti engum
að koma á óvart. En það er auð-
vitað úrskurður kjörnefndar að
halda sig sem mest við niður-
stööu forvalsins eftir að hún lá
fyrir. Ot frá jafnréttissjónar-
miði verður listinn varla betur
skipaður þvi' að i hópi tiu efstu
Olíumengun í Reykjavík:
Heiti lækurinn
og Nauthólsvík
stórskemmd
Mikil oliumengun hefur stór-
skemmt eitt vinsælasta útivistar-
svæði Reykvíkinga I Nauthólsvik-
inni og heiti lækurinn, sem marg-
ir baða sig i, er útataður i oliu.
Þaö virðist ljóst aö i vatnavöxt-
um undanfarna daga hefur tals-
verð olia runnið til sjávar frá
æfingasvæðum slökkviliðsins i
Reykjavik og á Reykjavikurflug-
velli. Klaki er nú i jörðu og þvi
hefur óþrifnaðurinn átt greiða
leið niður i fjöru i gegnum heita
lækinn svokallaða.
Siglingamálastofnun, en hún
hefur með aö gera allt sem lýtur
að mengun i sjó, hefur beöið
Rannsóknarlögreglu rikisins um
rannsókn á málinu. Að sögn
tveggja baðgesta sem við hittum i
heita læknum, var ástandið mun
verra i siöustu viku. Þá lá allt að 4
cm þykk brák ofan á vatninu og
botngrjótið i læknum og fjörunni,
var svart af oliu.
Vonir standa til að hægt verði
aö bæta tjónið en ljóst er að
hreinsun kann að taka talsverðan
tima.
— v.
Slökkviliðsstjóri
Reykjavíkurflugvallar:
„Aldrel
komið fyrir .
áður”
„Svona siys hafa sem betur fer
ekki komið fyrir áöur enda höfum
við ekki verið með æfingar á
þessum árstima fyrr”, sagði
Guðmundur Guömundsson
slökkviliðsstjóri á Reykjavlkur-
flugvelli i samtali við blaðið.
„Aftur á móti hefði þetta verið i
lagi nú, ef ekki væri þessi klaki i
jörðu. Þrær, sem eiga að taka við
oliunni og ööru, yfirfylltust i
vatnavöxtunum og þvi fór sem
fór. Hins vegar höfum við skoðað
svæðið og þetta er ekkert sem
ekki er hægt að bæta. Fjaran t.d.
hefur oft litið verr út en þetta og
okkur finnst nú að óþrifnaður af
völdum baögesta i heita leiknum
sé öllu alvarlegra mál en þetta”,
sagði Guðmundur að endingu.
/
Alfheiður Ingadóttir,
form.
U mhverfismálaráðs:
„Æfingasvæði
slökkviliðsins
til skammar”
„Það hefur verið farið óvarlega
með oliu á þessu svæði um árabil,
þótt engin slys hafi oröið fyrr en
nú. t vatnavöxtunum i siðustu
viku flaut olian til sjávar I stórum
stil, enda klaki I jörðu, þannig að
heiti lækurinn og fjaran i Naut-
4iólsvikinni eru stórskemmd”,
sagði Alfheiður Ingadóttir,
formaður umhverfismálaráðs
borgarinnar I samtali við Þjóö-
viljann.
„Þetta æfingasvæði slökkvi-
liðsins er auk þess til háborinnar ’
skammar mitt i einu vinsælasta
útivistarsvæði borgarinnar.
Fiugvélaflök, tunnur og annað
drasl á þvi þarf aö fjarlægja og
forráðamenn flugvallarins veröa
að sjá svo til að tryggilega sé frá
þessu æfingasvæði gengið svo olia
og annar óþrifnaöur valdi ekki
skemmdum. Sem betur fer mun
vera hægt að hreinsa fjöruna og
lækinn, en svona slys mega ekki
endurtaka sig,” sagði Álfheiður
Ingadóttir að lokum.
Siglingamálastjóri:
„Höfum
beðið
Rannsóknar
lögregluna
um
rannsókn”
„Við fengum tilkynningu um
þetta frá Náttúruverndarráöi
siðdegis i gær og sendum strax
mann niður I Nauthólsvik til að
skoða skemmdirnar”, sagði
Hjálmar R. Bárðarson siglinga-
málastjóri, cn öll mengun i sjó
heyrir undir hans stofnun.
„Það var Magnús Jó-
hannesson efnaverkfræðingur og
sérfræðingur okkar I oliumeng-
unarmálum og hann ræddi við
brunaverði Slökkviliðsins i
Reykjavik og á flugvellinum, en
þeir virðast eiga sök á þvi hvernig
fór. Við erum boðnir og búnir að
aöstoöa þá við hreinsunina og
með nýjum upplausnarefnum er
hægt aö iosna við óþrifnaðinn”,
sagði Hjálmar ennfremur.
Siglingamálastofnun rikisins
hefur beöið Rannsóknarlögreglu
rikisins um rannsókn á orsökum
þessarar mengunar.
Guðrún Helgadóttir: Sist t
ástæða fvrir konur að sitja á >
mörgum stöðum.
eru fimm konur og fimm karlar,
og i sætum 11 til 42 eru 14 konur
af 32. Ég tel að niðurstaða for-
valsins hafi sýnt vilja flokks-
manna til þess að trúa konum ■
fyrir ábyrgðarstörfum. Hins I
vegar held ég að umræðan um
stöðu kvenna hafi engin áhrif |
haft á niðurstöðu forvalsins ■
varðandi efstu sætin. Þar réðu I
ekki kynhlutverkin heldur mat á
verkum manna fyrir flokkinn. |
Og niðurstaðan hefði orðið ná- •
kvæmlega hin sama, þótt engin I
sérstök umræða hefði farið
fram um kvennabaráttuna.
Hins vegar er ég ekki frá því.að •
fleiri konur séu á neðri hluta I
listans vegna þeirrar umræðu
en ella hefði verið.”
—ekh •
Kjaradeilunefnd:
Nær allir
hjúkrunar-
fræðingar
áfram
Helstu atriðin i úrskurði Kjara-
deilunefndar eru þau að hjúkrun-
arfræðingar sem starfa við
heimahjúkrun hjá Heilsuvernd-
arstöðinni skuli starfa áfram og
einnig þeir er annast sjúklinga
hjá Borgarspitalanum og deild-
um hans, sagði Helgi V. Jónsson
formaður Kjaradeilunefndar i
samtali við Þjóðviljann.
— Þýðir þetta ekki það að nán-
ast allir hjúkrunarfræðingar
munu starfa áfram þó til verk-
falls komi?
— Jú, það yrðu kannski 2 - 3
hjúkrunarfræðingar sem myndu
leggja niður vinnu hjá Borgar-
spitalanum, en mér er ekki alveg
ljóst hvað þeir yrðu margir hjá
Heilsuverndarstöðinni, en þaö
eru þeir sem vinna viö heilsu-
gæslu i skólum og þess háttar.
— Var þá ekkert tekið tillit til
verkáætlunar Hjúkrunarfélags-
ins er úrskurðurinn var felldur?
— Ef farið hefði veriö eftir
henni, hefði oröið að senda . 70 -
78 sjúklinga heim og það var ekki
meirihluti fyrir þvi i nefndinni.
Fulltrúar BSRB töldu þó að fara,
ætti eftir henni meö breytingum.
Verkfall hjúkrunarfræðinga á
,að byrja á miðnætti i kvöld, ef
samningar hafa ekki tekist fyrir
þann tima.
— Svkr.
„V erkf allsréttur
tekinn af okkur”
„Við höfum verkfallsrétt sam-
kvæmt lögum eins og aörir opin-
berir starfsmenn, cn úrskuröur
Kjaradeilunefndar tekur þennan
rétt af okkur,” sagði Sigrún Ósk-
arsdóttir, varaformaður Hjúkr-
unarfélagsins, i viðtali við Þjóð-
viljann.
Það er mikii óánægja meðal
hjúkrunarfræðinga með úrskurð-
inn og við munum að sjdlfsögðu
mótmæla honum. Hjúkrunar-
fræðingar höfðu unnið upp mjög
vandaða verkáætlun i samráði
við stjórn Borgarspitalans, en
þaö er ekkert gert með þessa
áætlun i Kjaradeilunefnd. 1 okkar
áætlun var gert ráð fyrir aö neyð-
arþjónusta yrði veitt, og einu
deildirnar sem myndu irafa lok-
ast voru göngudeildir og dag-
deildir,” sagöi Sigrún.
Hún sagði ennfremur að fundi
með sáttasemjara hefði verið
frestað tiikl. 16 i dag og hjúkrun-
arfræöingar hjá borginni myndu
Framhald af 14. siðu.
Ragnar Halldórsson forstjóri
tsal, dótturfyrirtækis Alu-
suisse og formaður
Verslunarráðs tslands. Er
hægt að taka þau samtök
alvarlega i islensku samfé-
lagi, sem gera forstjóra
erlends auðfyrirtækis að for-
manni sinum?
Alusuisse
í forsæti
V erslunar-
ráðs
Ragnar S. Halldórsson for-
stjóri tSAL, sem er i eigu
Alusuisse, var einróma kjör-
inn formaður Verslunarráðs
tslands á aðalfundi þess i
gær. t einni af samþykktum
fundarins segir m.a. að
Verslunarráðiö vilji „efla
frjálst atvinnulif og heiðar-
lega viðskiptahætti með
þjóðarhag að markmiði”.
Liður i þvi er m.a. „að rikis-
umsvif verði takmörkuð með
lagasetningu við þriöjung
þjóðartekna, en einkaaðilar
taki yfir hluta þeirrar starf-
semi, sem rikið hefur nú með
höndum.”
Það má furðu gegna að
Verslunarráð Islands skuli
velja forstjóra erlends fyrir-
tækis helsta taismann sinn,
sérstaklega nú þegar islensk
stjórnvöld standa i erfiðri og
viðkvæmri deilu við þennan
sama auðhring. Hvort valið
eigi aö teljast táknrænt fyrir
þessi hagsmunasamtök skal
ósagt látið. Ef þetta á að
vera byrjun á nýjum kafla i
sögu „frjálsrar verslunar”
hér, þá má Pétur Þrihross
fara að vara sig.
Opið hús fyrir þátttakendur á sveitastjórnarráð-
stefnu AB og gesti þeirra.
Opið hús verður fyrir þátttakendur á sveitastjórnarráðstefnu Al-
þýðubandalagsins og gesti þeirra i Þinghól i Kópavogi á laugar-
dagskvöld. Húsið opnað ki. 21.
— Kaffi, kökur og aðrar veitingar.
— Kvöldrabb og óvæntar úppákomur.
— Komum öll.
Nefndin.
v.
— v.