Þjóðviljinn - 11.03.1982, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN
Fimmtudagur 11. mars 1982
Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaöamenn og aðra starfsmenn hlaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 8i285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i‘af- greiöslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Samtök her-
stöðvaandstæðinga:
Mótmæla
áformum
um aukin
umsvif
hersins
v ::;m;ííSv
Menningar-
starfsemi
bankanna
Glæsilegt bókasafn
Öll þau býsn sem við eigum og vissum áður ekkert um
Bókasafn Landsbankans og
Seðlabankans að Einholti 4 i
Reykjavik. Það eru ekki margir
sem hafa vitað um þessa reisu-
legu byggingu bankanna cða til-
vist hins vandaða bókasafns. A
myndinni sést inni einn salinn
þar sem trónar brjóstmynd af
Tryggva sáluga Gunnarssyni
(margir kannast við hann af pen-
ingaseðlum). Innfeiida myndin er
af húsi bókasafnsins. Á minni inn-
feildu myndinni sjást þær bækur
sem bankastjórar hljóta oftast að
fá lánaðar, nefnilega Kapitalið
eftir Karl Marx i þremur þykkum
og finum bindum. Lögð hefur ver-
ið fram fyrirspurn á alþingi um
þetta myndarlega bókasafn okk-
ar landsmanna. Fyrirspurnin er
frá Guðrúnu Helgadóttur til við-
skiptaráðherra og spurt er
hvenær það var stofnað, hversu
margir vinni þarna, hverjir noti
safnið, hversu mikill kostnaður sé
við það ásamt fleiri spurningum
sem hijóta að leita á almenning
þegar hann fréttir af þessari
glæsilegu eign sinni.
— Ljósmynd Gel.
Þjóðviljanum hefur borist eftir-
farandi yfirlýsing frá Miðnefnd
Samtaka herstöðvaandstæðinga:
Vegna umræðna um staðsetn-
ingu nýrra flugskýla á Kefla-
vikurflugvelli og að bandariska
herstjórnin fái að reisa nýja oiiu-
birgðastöð og oliuhöfn við Helgu-
vik vilja islenskir herstöðvaand-
stæðingar leggja áherslu á eftir-
farandi:
1. Herstöðvaandstæðingar
skoða byggingu kjarnorkuheldra
flugskýla á Keflavikurílugvelli og
stórfellda aukningu á eldsneytis-
birgðarými hersins sem augljóst
skref i þá átt að auka mjög um-
svif hins erlenda hershérá landi.
2. Meðferð Varnarmáladeildar
og bandariska hersins á áætl-
unargerð og framkvæmdum er
tengjast Keflavikurflugvelli og
öðrum svæðum bandariska hers-
ins hér á landi er skýlaust brot á
islenskum lögum og skulu i þvi
sambandi sérstaklega nefnd
skipulagsiög frá 1978 og bygg-
ingarlög frá sama ári.
3. Að gefnu tilefni fordæmir
Miðnefnd Samtaka herstöðva-
andstæðinga trúnaðarbrot
embættismanna Varnarmála-
deildar Utanrikisráðuneytisins
við Islenskan almenning. Sér-
staklega eru fordæmd þau lögbrot
og valdniðsla sem framin hafa
verið gagnvart ibúum Njarðvikur
og Keflavikur. Koma þau einkum
fram með staðsetningu fiugskýla,
þannig að flugi orustuflugvéla
verði um fyrirsjáanlega framtið
beint yfir fjölmenn ibúðasvæði og
framtiðarbyggingarsvæði sam-
kvæmt staðfestu aðalskipulagi.
Þessi lögbrot verða að skoðast
sem beint tilræði við lifsskilyrði
yfir 8000 ibúa þessara sveitafé-
laga og er enn ein sönnun þess, að
Varnarmáladeild Utanrikisráðu-
neytis svifst einskis þegar hags-
munir bandarikjahers eru annars
vegar.
4. Miðnefnd Samtaka her-
Framhald á 14. siðu
Fiskaflinn jan.-feb.
Mun
minni afli
en í fyrra
Heildar fiskaflinn hér á landi
tvo fyrstu inánuði ársins er tæp-
um 100 þúsund lestum minni en
var á sama tima i fyrra. Það er
einkum þrennt sem orsakar
þetta. t fyrsta lagi sjómanna-
verkfallið, mun minni loðnuafli
og aimennt minni afli togaranna i
ár en i fyrra.
Bátaaflinn i ár er heldur meiri
en var i fyrra, eða 44.480 lestir á
móti 44.393 lestum i fyrra. Tog-
araaflinn i ár er 39.414 lestir en i
fyrra var hann 55.839. 1 þessu
sambandi verður að taka með i
reikninginn að stóru togarana
vantar alveg inni myndina i jan-
úar. Loðnuaflinn i ár varð aðeins
11.676 lestir en var i fyrra 87.311
lestir. 1 þessu liggur heildar mun-
urinn en heildaraflinn i ár er
99.398 lestir en var i fyrra 193.087.
— S.dór
Frá fundi Hlifar i gær. — Ljósm eik —
Alverssamningarnir
samþykkti
t gær voru haldnir fundir með
þeim félögum i Verkamannafé-
laginu Hlif I Hafnarfirði, sem
vinna i Álverinu i Straumsvik og
þar lagður fram nokkuð breyttur
kjarasamningur, frá þeim sem
felldur var um siðustu helgi.
Svo fór að þessi nýi samningur
var samþykktur með 123 atkvæð-
um gegn 96 eftir miklar umræður.
Þær breytingar helstar i þeim
samningi sem samþykktur var
frá hinum sem felldur var eru
þær að aðlögunartiminn vegna
'vaktabreytinga verður út samn-
ingstimabilið, til 1. okt. nk. og þó
menn fari á þessu timabili af þri-
skiptri vakt yfir á tviskipta halda
menn launum sem á þriskiptri
vakt væri til 1. okt. I öðru lagi
varð breyting á bónusgreiðslum
þannig að ákveðin prósentutala
verður ekki látin gilda, eins og
fyrirhugað var i fyrri samnings-
drögunum, heldur verður sú pró-
sentutala sem þar var rætt um
lágmarksprósenta, _ s.áór