Þjóðviljinn - 13.03.1982, Side 2

Þjóðviljinn - 13.03.1982, Side 2
I 2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 13.—14. mars 1982 skammtur ’míi Af Meiri Kampf II. kapítuli Ég hefði aldrei álpast til að f ara að láta gera við tennurnar í mér, ef mig hefði grunað að þær teldust varla til líffæra, í tryggingarlækn- isfræðilegum skilningi. Þegar botnlanginn í. mér sprakk, hérna um árið, þá var það orða- laust lagað gratis, eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Sömuleiðis var taugunum einhvern tíman kippt í lag, án þess að ég þyrfti að leggja út túkall með gati. Af þessum sökum glápti ég alveg eins og tröll a heiðrikju þegar tann- læknirinn minn rukkaði mig um peninga, eftir að haf a veitt mér aðkallandi læknishjálp; gert viðtennunar í mér. „NU, ég er i sjúkrasamlaginu", sagði ég við klíníkkdömuna, en hún fór bara að hlæja og sagði: „Þú ert nú ekki einn um það vinurinn". Svo borgaði ég sanngjarnan tannlæknaprís fyrir viðgerðina og hugsaði með mér: „Þetta fæ ég endurgreitt hjá Sjúkrasamlaginu eða í trygg- ingunum, því hér á landi njótum við háþróaðs samhjálpar og tryggingakerf is". í vikuskammtinum um síðustu helgi, komst ég inn í anddyrið á Tryggingastofnuninni, en snéri til baka eftir mjög mislukkuð viðskipti við heimamenn. Nú fór ég til míns heima til að hugsa málið eins og það er kallað. Það var semsagt mál málanna að reyna að fá tannlækningar endurgreiddar úr sjúkra- samlaginu eða tryggingunum. Og hér var það að ég fékk hugljómun: Rétt að nota símann. Ég byrjaði að hringja í stofnunina strax eft- ir hádegi og náði sambandi um kaffileytið. „Tryggingastofnunin — Andartak" Og nú kom eitt af þessum séríslensku and- artökum, sem sumar opinberar stofnanir eru svo frægar fyrir. En þegar andartakið hafði breyst í drykklanga stund og drykklanga stundin í timakorn og tímakornið í stundarbið og stundarbiðin í þrásetu, heyrði ég smell og elskuleg röddspurði : „Eftir hverjum voriðþér aðspyrja?" „Það er útaf tönnum" „Nújá?" „Já, ég ætlaði að spyrjast fyrir um endur- greiðslu..." „Ég skal gefa þér sjúkratryggingadeild — Andartak". Og nú kom annað andartak og svosmellur. „Sjúkratryggingadeild" svaraði eldri mað- ur. „Líklega uppflosnaður dreifbýlískrati, sem hefur talað við þingmanninn sinn og fengið djobbið", hugsaði ég. „Já ég ætlaði að spyrjast fyrir um tenn- ur..." ,, Eru það tennur sem hafa tapast?" „Nei það eru tennur, sem ég lét gera við". Það var eiginlega nauðsynlegt vegna starfs- ins" bætti ég svo við í einhverju fáti og vafa- laust með þann þánka bak við eyrað að ef ég gæti ekki unnið tannlaus, þá hlyti Trygginga: stof nun að hlaupa undir bagga með mér. „Hvaða starf er það?" spurði dreifbýlis- kratinn, og ég dauðsá eftir að hafa farið að minnast á þetta með starf ið, því að í raun og veru er það draumur hvers manns í mínu starf i að geta tekið útúr sér allt tannskartið — báða gómana, þegar það á við og eftir behag, eins og danskurinn segir. Og nú kvað ég fastar að orðunum en áður: „Ég ætlaði að leita upplýsinga um endur- greiðslu vegna tannviðgerða". „Ja, þetta er nú ekki rétti staðurinn til þess." „Nú er þetta ekki Tryggingastofnun ríkis- ins?" „Að vísu en við endurgreiðum ekki tannvið- gerðir". Nú fór ég að þrasa við þennan saklausa sveitamann, og fann að hann varð fljótlega þreyttur á mér og ég lái honum það í sjálf u sér ekki. En samtalið endaði á því að hann sagði mér að koma á skrifstofuna og fá allar upp- lýsingar um málið. Ég þangað og nú án viðkomu í anddyrinu beintá deildina, sem mér hafði verið vísað á. Ég sfillti mér upp við afgreiðsluborðið. Fyr- ir innan borðið voru stelpurnar svona einsog að rabba saman og tóku ekki eftir mér, þótt undarlegt megi virðast. Nú fannst mér allt í einu ég vera orðinn eins og illa gerður hlutur og f ór að hugsa um það hvað ég væri eiginlega að vilja hingað. Seint og um síðir veitti ein sú yngsta mér athygli, gekk að afgreiðsluborðinu og sagði setningu sem mér fannst eiginlega sérhönnuð fyrir stof nunina: „Get ég aðstoðað?" Mig svimaði snöggvast svolítið, en ég hélt mér bara fast í borðröndina. „ Ég ætlaði að spyrjast fyrir um endur- greiðslu á tannviðgerð" ,, Er það fyrir barn, örorkuþega, eða ellilíf- eyrisþega?" „Nei, þaðer útaf sjálf um mér". „ Nú ertu með fæðingargalla?" Hún beið ekki eftir svari,_heldur snéri sér við og hrópaði hvellum rómi: „Bfbí! Bíbí!" Og Bíbí svaraði hinummegin úr salnum: „Jááááá!!!" „Fær hann ekki eitthvað borgað uppí tann- viðgerð, ef hann er holgóma?" „Júúúúú!!!" hrópaði Bíbí. Allir litu upp og steinhættu að kjaf ta saman. Nú átti ég sko athyglina óskipta. Bíbí stóð upp hinum megin í salnum og gekk að afgreiðslu- borðinu, ég held helst bara til að skoða mig. Svo leit hún á mig og sagði: „Fékkstu þér falskar?" „Nei, svaraði ég. „Þetta eru aðallega krón- ur og brýr" Þá svaraði Bíbí: „Þar sem þú ert hvorki barn né gamalmenni, vanskapaður, holgóma né örorkuþegi, koma engar bætur til greina og þó þú værir þetta allt, þá fengirðu krónur og brýr aldrei bættar." Og svo bætti hún við, ótrúlega elskulega: „Við borgum tannviðgerðir fyrir börn og unglinga áður en tennurnar fara að skemmast og fyrir gamalt fólk, sem búið er að missa all- ar tennurnar. Þessir aðilar fá tannviðgerðir greiddar sjötíu prósent uppí topp." Og með þetta yfirgaf ég Tryggingastofnun ríkisins vonandi í eitt skipti f yrir öll og raulaði vísu Hjálmars um leið og ég gekk framhjá konunni í glerbúrinu: Þó hrjái mig kröm bæði og kvöl og kvelji mig ónýtur magi er indæltaðeig'á því völ að eldast með tennur í lagi. skak Á síðasta snúningi Kasparov Pshakis r x • naði Það var í síðustu um- ferð á sterkasta lands- móti ársins, sovéska meistaramótinu fyrir ár- ið 1981. I fararbroddi var hinn 23 ára gamli Lev .Pshakis, hafði hlotið 12 vinninga úr 16 skákum. í 2. sæti var undramaður- inn frá Baku, Harry Kas- parov, með 11 1/2 vinning úr jafnmörgum vinning- um. í 16. umferö haföi hann tapaö fyrir Boris Gulko, misst niöur 1/2 vinnings forskot. Þessir tveir menn, skærustu stjörnurn- ar i skákinni i dag, áttu einir möguleika á sigri. Næstu menn voru vlösfjarri. Pshakis geröi jafntefli eftir snarpa viöureign i siöustu umferö, en Kasparov fór meö erfitt hlutverk, varö aö sigra Tukmakov meö svörtu. Tukmakov haföi gengiö vel i mótinu.‘Hann var i 3. sæti þegar skák hans við Kasparov fór fram og að sigra sterkan stór- meistara meö svörtu er ekki þaö auðveldasta i heimi hér. Góð þekking á byrjunum get- ur nefnilega tryggt mönnum frumkvæðið 20-30 fyrstu leikina, eitt feilspor til eöa frá af hálfu svarts getur reynst hafa Urslita- þýðingu. Þegar sovésk skák- sveit er komin i keppni á Olympiumóti, svo dæmi sé tek- ið, þá er dagskipunin yfirleitt á þá leið, að vinningar skuli fást með hvitu, jafntefli með svörtu. Þetta sanna dæmin. Kasparov á hinn bóginn virðist hafa tileink- að sér vinnubrögð Fischers, hann teflir miskunnarlaust til vinnings, bæði meö hvitu og svörtu. Og I viöureigninni viö Tukmakov var ekkert um annaö að ræöa. Skákin sem fylgir er full af þeim augnablikum sem gerir skákina svo leyndardómsfulla: beinar og óbeinar hótanir, sál- fræðileg bellibrögö, þung undir- alda. Hún er morandi i taktík, taugaspennu, jafnvel tima- hraki. M.ö.o. skák sem er ein- kennandi fyrir hinn unga snill- ing: Hvitt: Vladimir Tukmakov Svart: Harry Kasparov Kóngsindversk vörn 1. d4-Rf6 3. Rc3-Bg7 2. c4-g6 4. e4-d6 (Þegar teflt er til vinnings með svörtu koma oft ekki ýkja mörg byrjunarafbrigði til greina. Kóngsindverska vörnin er eitt þessara afbrigða. Það er meðal vopna i vopnabúri Kasparovs.) 5. Be2-0-0 7. d5-b5!? 6. Bg5-c5 (Ballið er byrjaö. Svartur kast- ar peöi i andstæöinginn til þess aö opna linur. Ef ég man rétt þá tefldi Spasski þannig viö Kasparov á Interpolismótinu i Hollandi i haust — og vann!) 8. cxb5-a6 14. 0-0-Rc7 9. a4-h6 15. Hel-Rxb5 10. Bd2-e6 16. Rxb5-d5 11. dxe6-Bxe6 17. exd5-Rxd5 12. Rf3-axb5 18. Re5-He8 13. Bxb5-Ra6 19. Hcl-Bf5 (Svartur hefur sáralitlar bætur fyrir peðiö. Eftir t.d. 20. Rc4 hefur hvitur umtalsveröa yfir- burði. En i sjónhendingu sér hann annað peð. Mikill vill meira. Peð er peð, sagði Peder- sen. Dramb er falli næst (?), og allt það. I grófum dráttum: hvitur gerist nú girugur um of og hendir heilum eða hálfum vinning út um gluggann. Þetta er vendipunkturinn i skákinni.) hb m'rnm ■ ■ mtm ■ ■ mtm Umsjón Helgi Ólafsson abcdefgh 20. Rc6?-Dd7 23. Dcl-Rb6 21. Hxc5-Hxel+ 24. b3-He2! 22. Dxel-He8 (Það er hvergi rakinn vinning að sjá. Hins vegar er svartur farinn að prila meira en góðu hófi gegnir og þegar við bætist timaskortur hjá hvitum er voð- inn vis.) 25. Ba5-Be4! 26. Re5 (26. Bxb6 strandaði á 26. — Dg4 27. Dfl Hel! o.s.frv.) 26. ..-De7 27. Rd4 (Hér var betra að leika 27. Dfi. Tukmakov var hins vegar kom- inn I slikt og þvilikt timahrak að hann átti enga möguleika á að átta sig á stöðunni svo gagn væri i. Hann lék aöeins þvi sem hendi var næst.) 27. ..-Ha2 (Þarna verður hrókurinn tæpast angraður.) 28. De3? (28. Hc8+ og siðan 29. De3 var skárra.) 28. ..-Dxc5! — Hvitur gafst upp. Kasparov og Pshakis deildu efsta sætinu og hlutu báðir nafn- bótina „Skákmeistari Sovét- rlkjanna 1981”. 1 3. sæti varð Romanishin með 10 vinninga. Gavrikov og Tukmakov urðu i 4.-5. sæti meö 9 1/2 vinning. Keppendur voru 18, flestir hverjir skákmenn af yngri kyn- slóðinni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.