Þjóðviljinn - 13.03.1982, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 13.03.1982, Blaðsíða 24
24 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 13.-14. mars 1982 um helgina Nokkrir leikenda Fjölbrauta- skóians á Akranesi á æfingu á Isjakanum. Leikklúbbur Fjölbrautarskólans á Akranesi: ísjakinn í dag og á morgun Leikklúbbur Fjölbrautaskól- ans á Akranesi frumsýndi i gær- kvöldi leikritið „tsjakann” eftir Felix Liitzkendorf undir leik- stjórn Sigrúnar Björnsdóttur. Ekki er ákveðið hvað sýningar verða margar en sýningarnar um þessa helgi eru tvær, sú fyrri i dag (laugardag) og hefst kl. 20.30 i sal Fjölbrautaskólans þar sem allar sýningar á leikn- um verða og á morgun einnig kl. 20.30. „ísjakinn” gerist i þriðju heimsstyrjöldinni og fjallar á gamansaman hátt um þá að- stöðu sem skapast er báðir striösaðilar mætast vopnlausir á isjaka lengst norður i hafi. Og hvernig kvenkyns foringjum beggja liöa tekst að halda uppi hinum stranga heraga. „tsjakinn” er fjórða verkefni Leikklúbbsins, en áður hefur hann sýnt einþáttungana: Nak- inn maður og annar á kjólfötum og Bónorðið, gamanleikritið Elsku Rut og á siðastliðnu ári sakamálaleikritiö Músagildr- una eftir Agöthu Christie, við góðar undirtektir bæjarbúa. Rúmlega 30 nemendur við Fjölbrautaskólann vinna viö sýninguna en i hlutverkum eru þau Anna Hermannsdóttir, Ingi bór Jónsson, Helga Braga Jóns- dóttir, Bjarni Sigurðsson, Guð- laugur Hauksson, Guðfinna Rúnarsdóttir og Ingimar Garðarsson. Leikfélag Reykjavíkur: Skornum skömmtum fækkar Þjóðleikhúskjallari: „Kisuleikur í 20. sinn á morgun Litla sviðið í Þjóðleikhúskjaii- aranum hefur i 19. skipti verið vettvangur ungverska leikrits- ins „Kisuieikur” eftir Istvan Örkény. 20. sýningin verður á morgun og fer hver að verða siðastur að sjá leikinn, þvi óðum styttist i næstu frumsýningu Litla sviðsins. Kisuleikur var frumsýndur i byrjun janúars og hlaut þegar afbragðs viðtökur og aðsókn. Verkið fjallar á yfirborðinu um ástamál roskins fólks og kom- umst við að raun um það að ást- arþrlhyrningurinn eilifi er ekk- ert einkamál æskunnar, honum bregður vissulega fyrir I ellinni lika. öll saga persónanna I leiknum er krydduö ljúfustu gamansemi, en undir hvers- dagslegu yfirborðinu er áhorf- endum miðlað reynslu og sögu ungversku þjóðarinnar á þess- ari öld. Herdis Þorvaldsdóttir i hlut- verki sinu i Kisuleik. Með aöalhlutverkin I Kisuleik fara Herdis Þorvaldsdóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Bryndís Pétursdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Þorsteinn Hannesson. Ennfremur fáum við að siá Þóru Borg, Þórunni Magneu Magnúsdóttur og Jón S. Gunnarsson. — Karl Guð- mundsson og Hjalti Kristgeirs- son þýddu Kisuleik úr ung- versku, leikstjóri er Benedikt Amason, leikmynd og búning- ar eru eftir Sigurjón Jóhannsson og lýsinguna annast Páll Ragn- arsson. Sýningum fer nú að fækka á reviunni Skornir skammtar eftir þá félaga Jón Hjartarson og Þórarin Eldjárn, en hún hef- ur verið sýnd í Austurbæjarbiói fyrir fullu húsi I allan vetur. A laugardagskvöldið verður að vanda miðnætursýning á revi- unni og eru menn hvattir til aö drifa sig á sýningu vilji þeir ekki missa af reviunni. Þeir Jón og Þórarinn hafa reynt aö halda efni reviunnar fersku og hafa breytt og endur- bætt i samræmi við atburði llð- andi stundar. Mikið er af söngv- um I reviunni, bæði gömlum lögum og nýjum og annast Jó- hann G. Jóhannsson allan undirleik ásamt Nýja Kompani- inu. Guðrún Auðunsdóttir og Guðbergur Auðunsson viö verk sin. myndlist Akureyri: Systkinasýning í Rauða húsinu Systkinin Guðrún Auðunsdótt- ir og Guðbergur Auðunsson opna i dag sýningu i Rauða húsinu á Akureyri. Á sýningunni verða ýmis verk ss. tréskúlptúr, collagemyndir og textilverk ýmist þrykkt, máluð eða saumuð. Guðrún lærði tauþrykk i Dan- mörku hjá Ingermarie Osten- feld og MHI 1973—1977. Hún er meðlimur i Galleri Langbrók og hélt sina fvrstn einkasýningu þar i febrúar sl. Hún hefur tekið þátt i fjölda samsýninga, þ.á.m. Nordisk textiltriennal 1979—1980 og islenskri samsýningu i Hasselbyhöil I Sviþjóð ’81. Hún hefur einnig fengist við leik- myndagerð, meðal annars hjá Leikfélagi Akureyrar, Alþýðu- leikhúsinu og Leiklistarskóla íslands. Guðbergur stundaöi nám við Kunsthaandværkerskolen i Kaupmannahöfn 1959—1963 og MHI 1976. Hann hefur haldið 8 einkasýningar þ.á.m. Kjarvals- stöðum 1978 og Baden-Baden i Vestur- Þýskalandi 1980. Einnig tekið þátt I samsýn- ingum FIM og Rostock biennal- inn i Austur-Þýskalandi 1981. Sýningin i Rauða húsinu Akureyri er opin daglega frá kl. 16—20 og stendur yfir til 21. Brúðuleikhúsið í síðasta sinn Leikbrúðuland sýnir i siðasta sinn um helgina þættina „Eggið hans Kiwi” og „Hátið dýranna” að Frikirkjuvegi 11, kl. 13.00. Leikflokkurinn Sunnan Skarðsheiðar: Sýnir Karlinn í kassanum Leikflokkurinn sunnan Skarðs- heiðar, sýnir Karlinn i kassanum, eftir Arnold og Bach, i Fannahlið Skilmannahreppi á morgun, sunnudag kl. 21. Leikstjóri er Auður Jónsdóttir. Leikendur eru 12, og með hlut- verk fara, Jón Sigurðsson, Maria Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Greipsdóttir, Þorvaldur Val- garðsson, Guðjón Friðjónsson, Lára Ottesen, Kristin Sigfúsdótt- ir, Óskar Þorgeirsson, Þorsteinn Vilhjálmsson, Einar Jóhannes- son, Asta Björk Magnúsdóttir og Sigurrós Sigurjónsdóttir. Þetta er 9. verkefni Leikflokksins. Miðapantanir i sima 1212. Germania sýnir: Rummungur ræningi Félagið Germania efnir til kvik- myndasýningar i Tjarnarbiói i dag, laugardag, klukkan fimm. Sýnd verður kvikmyndin „Neues vom R'áuber Hotxen- plotz” — Nýjar fréttir af Rummungi ræningja. Rummungur ræningi á sér marga aðdáendur á Ísíandi eftir að Helga Valtýsdóttir gerði hann frægan með lestri sinum i Morgunstund barnanna fyrir rúmum áratug. Þá hentu jafnt börn sem fullorðnir gaman af basli. og raunum Rummungs ræningja. Hér er á ferðinni fyrirtaks fjölskyldumynd, en aðgangur er ókeypis og öllum heimill. MJR-salurinn: „Steinblómið” Ævintýrakvikmyndin „Stein- blómið” verður sýnd i MIR- salnum, Lindargötu 48 kl. 16 i dag. Þessi mynd var gerð i Moskvu 1946 undir stjórn A. Ptutsko, sovéska leikstjórans sem kunnastur er fyrir ævin- týramyndir sinar. „Steinblóm- ið” var fyrsta sovéska litkvik- myndin sem sýnd var hér á landi skömmu eftir lok siðari heimsstyrjaldarinnar. Naut myndin mikilla vinsælda og var sýnd lengi i Reykjavik og viða um land. Aðgangur að MIR- salnum er ókeypis og öllum heimill. Tjarnarbíó sýnir: ,Morðinginn’ Spennumyndin DER MÖRD- ER (morðinginn) verður sýnd á laugardaginn kl. 17 á kvik- myndasýningu Germaniu i Tjarnarbiói. Myndin fjallar um sálarlif morðingja sem sleppur undan réttvisinni en á erfitt með að friða eigin samvisku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. (Myndin er þó ekki við hæfi barna.) Listasafn alþýðu: Sýning Hjálmars Þorsteinssonar Hjálmar Þorsteinsson, list- málari opnar i dag málverka- sýningu i Listasafni alþýðu við Grensásveg. Hjálmar hefur starfað sem myndmenntakennari á Akranesi i hart nær þrjátiu ár. A siðastliðnu ári fluttist Hjálmar til Danmerkur, þar sem hann hefur alfarið helgað sig mynd- listinni, og eru flestar myndir sýningarinnar málaðar i Dan- mörku. A sýningunni eru 44 oliumálverk og 4 vatnslita- myndir. Vönduð sýningarskrá er gefin út i tilefni sýningar- innar. Auk þess hefur Þórir Sig- Þór Elís Pálsson í Nýlistasafninu Þór Elis Pálsson opnar i dag sýningu I Nýlistasafninu við Vatnsstig. Hann sýnir þar 5 verk, 4 myndlistarverk unnin i ljósmyndir svo og eitt hljóð- verk. Þór lauk námi frá Mynd- lista- og handiðaskóla Islands 1978 og hefur nú undanfarin þrjú ár stundað nám i Hollandi. Þetta er önnur einkasýning Þórs, en hann hefur tekið þátt I samsýningum bæði hér heima og erlendis. Sýningin er opin frá kl. 14 til 22 um helgar og frá kl. 16 til 20 virka daga. Fjórar sýningar á Kjarvalsstööum Hver krókur og kimi verður nýttur til fullnustu á Kjarvals- stöðum um þessa helgi. Þrir listamenn islenskir ljúka þá sýningu á verkum sinum og ein til viðbótar opnar. Hjálmar Þorsteinsson urðsson, námsstjóri i mynd- og handmennt samið litskyggnu- þátt með tali og tónum, sem fluttur verður i kaffistofu safns- ins meðan á sýningunni stendur. Hjálmar hefur áður haldið fjórar einkasýningar, þrjár á Akranesi og eina á Akureyri, en þetta er fyrsta einkasýning hans i Reykjavik. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22. og lýkur henni sunnu- daginn 4. april. 1 vestursal sýnir Einar Há- konarsson málverk. Steinunn Þórarinsdóttir sýnir skúlptúra og myndverk i vesturforsal, og Karl Júliussonsýnir myndverk i austurforsal. Allar þessar sýn- ingar hafa vakið mikla athygli og umtal, og mörg verkanna selst. Sýningunum þrem lýkur á sunnudagskvöld. Þá verður opnuð um helgina ný sýning i Kjarvalssal, sýning á gömlum bandariskum búta- saumsteppum. Eigandi teppa- safnsins, Marti Michell, flytur erindi um sögu bútasaumsteppa i Bandarikjunum við opnunina. Sýningin verður aðeins opin i eina viku, eða til 21. þessa mán- aöar. Ljósmyndir i Bogasal Ljósmyndasýningin Mynda- safn frá Teigarhorni verður opnuð laugardaginn 13. mars kl. 16 i Bogasal Þjóðminjasafnsins. Myndirnar eru eftir tvo lærða ljósmyndara, Nicoline Weywadt (1848 - 1921) fyrsta kvenljós- myndara á Islandi, og Hansinu Björnsdóttur (1884 - 1973). Myndirnar eru frá Austfjörðum á árunum 1972 - 1930. Sýningin verður opin almenn- ingi sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga frá 13.30 til 16.00 og mun standa til 31. mai.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.