Þjóðviljinn - 13.03.1982, Blaðsíða 30
30 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 13.—14. mars 1982
Svavar Gestsson í Morgunpósti í gær
Stórháskalegt foidæmij
Samkvæmt þessum
túlkunum gœti
utanríkisráðherra
lagt Þingvelli
undir herinn
„Það sem undrar
mig mest i þessu
Helguvikurmáli er, að
samvinnuhreyfingin
hefur gert og stutt til-
lögur um ágæta lausn,
en Framsóknar-
flokkurinn hafnar til-
lögum samvinnuhreyf-
ingarinnar”, sagði
Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubanda-
lagsins m.a. i Morgun-
pósti í gær.
„Við skulum leggja okkur
fram um að finna lausn á þessu
máli sem er viðunandi. En við
skulum gera okkur grein fyrir
þvi hvað þarna er verið að tala
um. Utanrikisráðherra hefur
haldið þvi fram að hann ráði
þessu máli einn og fari einn með
það. Ef Amerikaninn og hann
komast að þeirri niðurstöðu að
það þurfi viðbótarland fyrir
herinn þá sé ákvörðunin i hans
Svavar Gestsson: Trúi ekki að
Ólafur keyri málið á enda.
höndum. Hér er um að ræða
stórháskalegt fordæmi fyrir ts-
lendinga og isl. stjórnmál á
næstu árum, eða þann tima sem
herinn verður hér.
Setjum upp dæmi: Segjum að
hér kæmi utanrikisráðherra,
einhver allt annar maður en
Ólafur Jóhannesson, sem væri
þeirrar skoðunar að Amerikan-
inn þyrfti t.d. Snæfellsnes, nú
ellegar Þingvelli. Þá gæti sam-
kvæmt þessum túlkunum þessi
sami utanrikisráðherra lagt
þessi landsvæði undir herinn.
Hér er með öðrum orðum verið
aðsegjaþaðað einn ráðherra sé
i rauninni rikisstjórn og öll
önnur stjórnvöld i landinu séu
sett tilhliðar. Hér er um algjör-
lega fráleitan hlut að ræða,
prinsip varðandi stjórn landsins
sem er óliðandi að minu mati.”
1 viðtalinu við Svavar kom
fram að sennilega myndu liöa
vikur eða mánuðir, jafnvelfram
á næsta ár, áður en fram-
kvæmdir hæfust, og hann tryði
ekki ööru en Ólafur Jóhannes-
son áttaði sig á alvöru málsins.
„Ég trúi þvi ekki að Ólafur Jó-
hannesson keyri þetta mál á
enda.”
Svavar kvað Alþýðubanda-
lagið vilja herinn burt, og
kvaðst eiga bágt með að skilja
þá menn sem vildu auka við
umsvifasvæði hersins meðan
hann væri hér af illri nauðsyn
eins og sumir hefðu að orði.
Formaður Alþýðubandalagsins
kvaðst hafa orðið var viö að
ýmis öflvildu gjarnan losna viö
flokkinn úr rikisstjórn. Alþýðu-
bandalagið vildi hins vegar sitja
i rikisstjórninni svo lengi sem
hún starfaði á þeim grundvelli
sem henni var markaður i önd-
veröu.
„Hvort þetta mál verður til
stjórnarslita skal ég ekkert um
segja. Það verður ákveðið af
okkur hvenær það orð yrði sagt,
og við látum ekki slita það út úr
okkur i Morgunpósti einn góðan
veðurdag, heldur mun það
koma fram með öðrum hætti.”
—ekh
Spenna í þingflokki Framsóknarmanna
Allt skelfur, en
ekkert fæst rætt
,Það titrar allt og
skelfur hér i þingsöl-
um, meðal þjóðarinnar
og innan rikisstjórnar-
innar út af tveimur
málum”, sagði einn af
þingmönnum Fram-
sóknarmanna í gær.
..Það merkilega er að
þessi tvö mál, Helgu-
vikurmálið og íscargo-
málið, eiga eitt sam-
eiginlegt. Þau hafa
hvorugt verið rædd i
þingflokki Framsókn-
arflokksins.”
Ummæli af þessu tagi benda
til þess að nokkur ólga sé í þing-
flokki Framsóknarflokksins út
af einstefnu utanrlkisráðherra i
Helguvikurmálinu. Svo var að
skilja á öðrum þingmanni
flokksins i gærmorgun að þess
að vænta að boðað yrði til auka-
fundar i þingflokknum i gær, og
mál væru mjög eldfim, en sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
varð ekki af þvi. Þingflokks-
fundur Framsóknarflokksins
verður þvi ekki fyrr en á mánu-
dag ogeruþá „feimnismálin” á
dagskrá.
— ekh
Formaður þingflokks Framsóknar um stjórnarsamstarfið
Engar stórframkvœmdir
á vegum Varnarliösins
Minn skilningur
að í utanríkis-
málum ríki nánast
„status quo”
,,Minn skilningur á
stjómarsamstarfinu er
sá, að i utanrikismál-
um riki nánast „status
quo”. ” sagði Páll Pét-
ursson formaður þing-
flokks Framsóknar-
manna i viðtali við
Morgunblaðið i febrúar
1981.
Enginn mælir þvi i mót að ef
úr hugmyndum utanrikisráð-
herra um framkvæmdir við
oliubirgðastöð og höfn á vegum
hersins á Suðurnesjum verður
er um að ræða meiriháttar
Páll Pétursson, formaöur þing-
flokks Framsóknarmanna.
framkvæmdir. í þvi sambandi
rifjar Þjóðviljinn upp ummæli
formanns þingflokks Fram-
sóknarflokksins, þar sem hann
staðfestir þann skilning sinn að
milli stjórnarliða riki sam-
komulag um óbreytt ástand f ut-
anrlkismálum.
I áðurnefndu viðtali segir Páll
Pétursson orðrétt:
,,Minn skilningur á stjómar-
samstarfinu er sá, að i utanrík-
ismálum riki nánast „status
quo”, herinn verður ekki látinn
fara eins og sumir okkar vilja,
en hins vegar verða þær breyt-
ingar,sem gerðar verða i þá átt
að aðskilja herlifið og þj^lifið.
Ég skil stjórnarsamstarfið
þannig að ekki sé ástæða til að
stuöla að neinum stórfram-
kvæmdum á vegum Varnarliðs-
ins.”
Höfn fyrir 35 þúsund lesta
olíuskip, löndunaraöstaöa, ný
oliubirgðastöð i næsta nágrenni
Keflavíkur, nýtt svæði undir
herinn i Helguvik, og „virkjun”
svæðis I Gerðahreppi „i eigu”
varnarmáladeildar flokkast
hvorki undir —óbreytt ástand —
né aðskilnaö herlifs og þjóðlifs.
— ekh
Kór Menntaskólans við Sund. Á myndina vantar nokkra kórfélaga en
þeir eru alls um 40 talsins.
Kór Menntaskólans við Sund:
Heldur tónleika
í Bústaðakirkju
Kór Menntaskólans við Sund
heldur tónlcika á morgun
(sunnudag) kl. 8.30. I
Bústaðakirkju. A dagskrá verða
lög eftir erlenda og innlenda
höfunda.
I vetur hefur kórinn sungið við
nokkur tækifæri ínnan skóla og
utan, núna siðast við setningu
hinnar árlegu Þorravöku i M.S.
Næstu helgi áætlar kórinn að fara
i ferðalag til Austurlands og
halda nokkra tónleika þar.
Stjórnandi kórsins er Guömundur
Öli Gunnarsson.
Vinna við sýninguna I Þinghólsskóla var í fullum gangi er við litum þar
við i gær. Ljósm —gel.
Sýning í Þinghólsskólanum:
KÓPAVOGUR
— bærinn okkar!
Mikið hefur verið aö gerast I
Þinghólsskóla i Kópavogi undan-
farnar tvær vikur, en þann tima
hafa kennarar og nemendur skól-
anskastað frá sérnámsbókum og
reglugerðum, en einbeitt sér að
sjálfstæðu verkefni, sem ber yfir-
skriftina: KÓPAVOGUR —
BÆRINN OKKAR. Nemendur
skiptu sér i hópa og tóku þeir fyrir
nokkur verkefni sem tengjast
þessari yfirskrift. Þar má nefna
hóp um sögu og uppruna Kópa-
vogs, annan um Kópavog, náttúru
og umhverfi, sá þriðji um sjó-
vinnu, fjórði fjallaði um menn-
inguna i Kópavogi o.s.frv.
Afrakstur þessa sjálfstæða
starfs verður svo til sýnis i skól-
anum nú um helgina og verður
Þinghólsskóli opinn öllum, báða
dagana milli kl. 14.00 og 18.00.
Veitingar verða á boðstólum og er
ekki að efa að Kópavogsbúar og
aörir, verða margs visari um bæ-
inn, eftir heimsókn á sýninguna
en áður.
—v.