Þjóðviljinn - 13.03.1982, Síða 15

Þjóðviljinn - 13.03.1982, Síða 15
Helgin 13.—14. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Kjarasamningar ASl og VSl: Samninga- lotan af stað á mánudag Miklar umræður urðu á 72 manna nefndarfundi ASÍ Þegar kjarasamningum milli ASl og VSÍ var frestaö I haust er leið með þvi samkomulagi að kaup hækkaði um 3,25%, var ákveðið að samningar yrðu teknir upp að nýju 15. mars, þe. á mánu- daginn kemur. Og það er stefnt að þvi að fyrsti fundurinn verði hald- inn þá, sagði Benedikt Davíðsson, formaður Sambands bygginga- manna i samtali við Þjóðviljann i gær. Fundur var haldinn i 72ja manna nefnd ASI i gær og flutti AsmundurStefánsson, forseti ASI þar skýrslu um gang mála siðan kjarasamningum var frestað i haust er leið. Að sögn Benedikts urðu miklar umræður á fundinum að lokinni skýrslu Asmundar. A fundinum var lögð fram könnun kjararannsóknanefndar, sem birt var opinberlega á dögunum, um yfirborganirog bónusgreiðslur til vinnandi fólks, ásamt meðal launum þess. Sem kunnugt er voru þær kröf- ur helstar settar fram af hálfu ASI við upphaf samninga í.haust að almennt kaup hækkaði um 13% i áföngum á tveimur árum. Þá var ogsettfram krafa um það að verðbætur á laun greiddust árs- fjórðungslega og miðuðust við óskerta framfærsluvisitölu. Ýms- ar sérkröfur voru og settar fram, svo sem að eftirvinna yrði felld niður mánudaga til fimmtudaga en i staðinn kæmi næturvinnu- greiðsla eins og á föstudögum. Gert var og ráð fyrir að lands- sambönd og félög semdu sér um ýmsar sérkröfur, sem að meira eða minna leyti væru staðbundn- ar. Kröfur atvinnurekenda voru nokkrar, en sú helst að breyta grundvelli vísitölunnar, þannig að hún mældi aðeins helming og að visitölubætur væru greiddar á 6 mánaöa fresti. — S.dór Kjaradeila starfsfólks ríkisverksmiðjanna og Vinnumála- nefndar rikisins: Engin þau teikn á lofti, að deilan leysist um helgina — segir Guðmundur Vignir Jósepsson Það eru engin þau tcikn á lofti sem benda til þess að deila þessi leysist alveg á næstunni, a.m.k. ekki um helgina, sagði Guömund- ur Vignir Jósepsson, vararikis- sáttasemjari, en hann fer nú með kjaradeilu starfsfólks rikisverk- smiðjanna og Vinnumálanefndar rikisins, i forföllum rikissátta- semjara Guðlaugs Þorvaldssonar sem er erlendis. Að sögn Guömundar væru samningsaðilar mestmegnis að skoða kröfur starfsfólks rikis- verksmiöjanna, en þær ganga út á að ná samræmingu við Grundartangasamninginn. —hól. MARSTILBOÐ: SAMSTÆBA PR0-1022A: AKAIAM-U22 magnari AKAIAT-K22 útvarpstæki AKAIAP-D33 plötuspilari AKAI CS-F9 kassettutæki (metal) SOMA SE-825 hátalarar(2) Áður: Nú: 18.960.- SAMSTÆÐA PR0-1055A: AKAIAM-U55 magnari AKAIAT-S55 útvarpstæki AKAIAP-Q55 plötuspilari AKAI CS-F11 kassettutæki (metal) SOMA SE-835 hátalarar(2) SAMSTÆBA PR0-1033A: AKAIAM-U33 magnari AKAIAT-K33 útvarpstæki AKAIAP-D33 plötuspilari AKAI CS-F9 kassettutæki (metal) SOMA SE-835 hátalarar(2) Aður: 1*008. Nú: 20.960.- SAMSTÆÐA PR0-921L: AKAIAA-R21L útvarpsmagnari AKAIAP-B21 plötuspilari AKAI CS-M3 kassettutæki (metal) SOMA SE-825 hátalarar(2) Áður: ■ ” Nú:Æi*#Bfcl81f ■ ” I ^ SAMSTÆBA PR0-931L: “'Qgtfíe/Kt! 24.250,- Áður: .ó m. Nú: 17.810,- AKAI AA-R31L útvarpsmagnari AKAIAP-D33 plötuspilari AKAI CS-F9 kassettutæki (metal) SOMA SE-825 hátalarar(2) Áður: 19.940.- Ef keypt er hei! AKAI samstæða fylgja bæði skápur og hljómplata að eigin vali með í kaupunum. NESCO greiðirfjutningsgjaldog flutningstryqqinqu fyrir það lands- byggðarfólk sem nýtir sér mars- tilboðið. Greiðslukjör: 10% staðgreiðsluafsláttureða 1 /4-1 /3 út og eftirstöðvar á 6-9 mánuðum. I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.