Þjóðviljinn - 01.04.1982, Síða 1
DJOOVIUINN
Ný samtök grásleppukarla:
Urðu undir á
aðalfundinum
Fimmtudagur 1. april 75. tbl. — 47. árg.
og þess vegna hlaupa þeir nú
burt, segir Guð -
mundur Lýðsson
Maður sér í hendi sér að
hér róa grásleppuhrogna
útflytjendur undir hjá
þeim mönnum/ sem ætluðu
aö ná yfirtökunum á aðal-
fundi SGHF/ en urðu undir
i atkvæðagreiðslu/ una því
ekki og rjúka nú til og ætla
að stof na ný samtök, sagði
Guðmundur Lýðsson,
framkvæmdastjóri Sam-
taka grásleppuhrogna-
framleiðenda í samtali við
Þjóðviljann i gær vegna
stofnunar hinna nýju sam-
taka sem skýrt var frá í
blaðinu í gær.
Ég veit ekki hvort þetta verður
til þess að sprengja SGHF, en
vissulega getur stofnun nýrra
samtaka veikt okkar samtök og
þetta er sérlega bagalegt nú, þeg-
ar virðist vera að rofa til i okkar
málum með tilkomu nýrra laga
um grásleppuveiðar, sagði Guð-
mundur. Hann sagði að auövitaö
væri öllum heimilt að stofna sam-
tök, en að sinum dómi væri það
heiöarlegra aö berjast innan
sinna samtaka fyrir ákveðnum
málum og skoðunum, i stað þess
að rjúka burt I fýlu og stofna ný
samtök, vegna þess að menn
veröa undir á fundi. c
Þór Magnússon þjóðminjavörður var fyrstur fræðimanna á staðinn í gær og sést hér handleika krossinn sem fannst við eina hauskúpuna og
er ekki af norrænum uppruna. i dag verður sýning i Þjóðminjasafninu á mannvistarleifunum úr Helguvik. Ljósm.eik.
Stórmerkur fornleifafundur í Helguvík í gær?
Kapella írskra munka?
Þjóðminjavörður stöðvar jarðrask í
Helguvík meðan rannsókn fer fram
Þegar starfsmenn Orkustofn-
unar voru að fást við undirbúning
borunarframkvæmda i Helguvík
við Keflavik i gær komu þeir nið-
ur á mannvistarleifar, sem urðu
til þess að þeir stöðvuðu vinnuna
og höfðu samband við iögreglu og
þjóðminjavörð. Verið getur að
hér sé um elstu minjar sem til
þessahafa fundist um mannvist i
landinu og að þær renni stoðum
undir þá staði i fornum ritum sem
segja að hér hafi trar (Papar)
setið áður en norrænir menn
komu að landi.
„Þetta er alveg stórmerkilegur
fundur, og ef er eins og sýnist við
fyrstu sýn, að hér séu fundnar
minjar frá þvi fyrir norrænt land-
nám, þá eru þetta ekki litil tiðindi
i tslandssögunni”, sagði Þór
Magnússon þjóðminjavörður. Þór
sagði að krossinn sem fannst við
eina hauskúpuna bendi sterklega
til að hér hafi verið papar á ferö,
þvi hann er alls ekki af norrænum
uppruna.
Allar framkvæmdir Orkustofn-
unar i Helguvik hafa verið
stöðvaðar um sinn meðan frekari
rannsókn fer fram á svæðinu, en
sifellt fleiri minjar komu i ljós
eftir að fornleifafræðingar höfðu
hafið skipulega rannsókn á svæö-
inu.
,,Af þeim hlutum sem þegar
hafa fundist er helst að merkja að
hérna hafi verið kapella irskra
munka, en það er auðvitað vara-
samt að fullyröa nokkuð frekar á
þessu stigi”, sagði Þór þegar
blaðamaður Þjóðviljans ræddi
við hann i Helguvik i gær. Þór
bætti þvi við að örnefnið Helguvik
styddi hans ágiskanir, þvi likast
til hefði hún heitið upphaflega
„Hin helga vik”.
Akveðið hefur verið að halda
sýningu á þeim minjum sem þeg-
ar hafa fundist i Lögbergi á lóð
Háskólans, og hefst sýningin kl.
16.00 i dag. Þar munu ýmsir
fræðimenn verða til staðar og
skýra og útlista þennan
stórmerka fornleifafund.
Sjá nánar um fornleifafundinn i
Helguvik og ummæli ólafs Jó-
hannessonar utanrikisráðherra á
bls. 3.
-lg-
Sjá síðu 3
Framkvœmdastjóri Jarðefnaiðnaðar h.f:
Slær vopnin ur hendi
þingmanna Suðurlands
Jón Helgason.
í gærkveldi stóð til að
þingmenn Suðurlands-
kjördæmi legðu fram
þingsályktunartillögu
sina um að steinullar-
verksmiðjan verði reist i
Þorlákshöfn. Sama dag
lætur framkvæmda-
stjóri Jarðefnaiðnaðar
h.f. hafa eftir sér í
blaðaviðtali að það
skipti engu máli hvað
rikisstjórn eða Alþingi
segi um þetta mál,
Sunnlendingar muni
reisa steinullarverk-
smiðju i Þorlákshöfn
hvað sem hver segi og
keppa við þá sem talað
hefur verið um að
byggja á Sauðarkróki.
Að áliti þingmanna i gær slær
hann vopnin úr höndum þing-
manna Suðurlandskjördæmis,
sem eru að afla málstað Sunn-
lendinga fylgi á þingi. Ummæli
þessa manns breyta ekki þeirri
sannfæringu minni að steinullar-
verksmiðjan eigi að risa i Þor-
lákshöfn og með 40% eignarhlut
rikisins, sagði Garðar Sigurðsson
alþingismaður i gær. Hann sagði
að það væri heimild fyrir þvi ef
nægjanlegt hlutafé safnaðist að
reisa steinullarverksmiöju i Þor-
lákshöfn en ég tel útilokað að
tvær verksmiðjur verði reknar
hér á landi og ef rikið tekur þátt i
þeirri fyrir norðan, þá er vonlitið
aðbyggjaaðra fyrir sunnan. Þess
vegna verðum við að vinna okkar
Framhald á 14. siðu
Ulfar
Þormóðsson
I formaður !
j Útgáfu- j
j félags j
: Þjóðviljans j
Aðalfundur Otgáfufélags I
I Þjóðviljans var haldinn fyrir J
■ stuttu. Nýkjörinn stjórn kom ,
I saman á sinn fyrsta fund i I
fyrrakvöld og var Úlfar Þor- I
| móösson þar kjörinn for- J
■ maður Útgáfufélagsins. .
I Svavar Gestsson var for- I
maður Útgáfufélagsins sið- 1
| asta starfsár, en tilkynnti á 1
■ aðalfundi að sökum anna ■
Igæfi hann ekki kost á sér til |
formennsku i Útgáfufélaginu ,
■ næsta starfsár.
I Auk Úlfars Þormóðssonar I
skipa stjórn útgáfufélags |
I Þjóöviljans eftirtaldir .
* menn:
Adda Bára Sigfúsdóttir, I
Ingi R. Helgason, Margrét |
I Björnsdóttir, Ólafur R. Ein- ■
' arsson, ólafur Ragnar I
I Grimsson, Ragnar Arnason, I
Skúli Thoroddsen, Svanur |
I Kristjánsson, Svavar Gests- ■
' son og Þorbjörn Guðmunds- l
| son. — Og til vara: Kjartan I
I ólafsson, Gisli B. Björnsson, |
I Gunnar H. Gunnarsson og ■
* Guðmundur Agústsson. I