Þjóðviljinn - 15.04.1982, Page 7
Fimmtudagur 15. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Jakob S.
Jónsson
skrifar um
kvikmyndir
Suðuramerískar
kvikmyndir
’gerist áriö 1962 á fyrstu árum
byltingarinnar á Kúbu. Aöalper-
sónur eru þrjár: Yolanda, milli-
stéttarkennari sem finnur til
samkenndar meö byltingunni og
reynir aö nýta sér hugmynda-
fræöi hennar jafnt i einkalifi og
starfi, Marió, ungur verkamaöur
úr fátækrahverfi, sem verður ást-
fanginn af Yolöndu,og Húmbertó,
verkamaöur og vinur Mariós,
sem viöurkennir byltinguna i oröi
kveönu, en reynir þó aö lifa upp á
gamla móöinn, einkum meö tilliti
til samskiptanna viö hitt kynið.
A einn eöa annan veger þó ekki
nein venjuleg, leikin kvikmynd —•
inn á milli hinna leiknu atriða er
skotiö inn heimildamyndaat-
riöum, sem fjalla ýmist um sögu
byltingarinnar á Kúbu og greina
frá þvi hvers vegna þessar óliku
persónur hittast — skýra uppruna
þeirra, ef svo má að oröi komast,
eða segja frá sögu tiltekinna
félagslegra fyrirbæra og útlista
t.d. karlaveldið á Kúbu og kúgun
kvenna — sem er aö þvi er viröist
enn við lýöi, hvaö sem liöur allri
byltingu.
Tvö kvikmyndaform
Með blöndun þessara tveggja
kvikmyndaforma verður myndin
beinskeytt ádeila á nútimaþjóö-
félag á Kúbu, án þess þó að veröa
„billeg”. Sökudólgur er i raun
enginn einn — byltingin er stað-
reynd þrátt fyrir allt og fyrir
hennar tilstilli hefur margt gott
áunnist, en fordómar og gamlar
venjur þvælast samt fyrir og gera
mönnum erfitt um vik aö skapa
hið fullkomna samfélag þar sem
allir menn eru jafnir.
Myndin leggur þannig ótviræöa
áherslu á þá staðreynd, aö mann-
leg samskipti mótast aö verulegu
leyti af þjóöfélagsaöstæðum og
það er vel hægt að taka undir
áskorun þá, sem má lesa i
sýningarskrá Fjalarkattarins um
þessa mynd: þetta ættu Is-
lendingar aö gera sér ljóst. Þaö
væri t.d. forvitnilegt aö sjá, hvort
hérlendum kvikmyndageröar-
mönnum mætti ekki auðnast að
benda á viðlika þróun hér á landi
og sagt er frá i þessari kúbönsku
mynd. Eða hvaö segja menn um
breytingar á lifsháttum hér meö
tilkomu hins bandariska herliðs?
Hvar voru allir?
Að endingu skal itrekuð þökk til
Fjalakattarmanna fyrir þessa
Suöur-Amerisku dagskrá og fólki
bent á, að enn er ekki of seint aö
berja myndirnar augum. Reynd-
ar var sárt að sjá fámenniö á
sýningunum á mánudaginn var —
ætli kvikmyndaáhuginn snúist
aðeins um þaö að fara aö heiman
frá sér, en ekki um myndirnar
sjálfar? Eða hafa auglýsingar
Kattarins virkilega fariö framhjá
þorra manna i skólum, á vinnu-
stöðum og i sjoppum? Eöa hafa
islenskir kvikmyndahúsagestir
aöeins áhuga á breskum og
bandariskum kvikmyndum?
—jsj
guðspjallinu. Einhverjir heföu nú
trúlega sagt sem svo, að þarna
væri verið að túlka guðspjöllin á
byltingarvisu — og ætli þaö sé
ekki bara rétt! Messuformið, um-
ræöa um texta dagsins, altaris-
ganga i skjóli trjánna og ýmislegt
fleira i svipuöum dúr undir-
strikaöi eöli baráttu Sandinista,
sem og þau atriði þar sem for-
ingjar innan samtakanna útlist-
uöu beinlinis þá hugmyndafræði,
sem þeir sögöu vera samtak-
anna: aö útrýma ólæsi, aö koma á
efnahagslegu og menningarlegu
sjálfstæöi þjóöarinnar, aö efla
menntun, landbúnaö og iðnaö.
Heimildamyndarformiö er
skemmtilega nýtt i þessari mynd
meö sögulegum innskotskafla,
stuttum, en aö þvi er virtist
greinargóðum. Og þótt friösælla
sé nú i Nicaragua en þegar þessi
mynd var gerö, hygg ég, aö hún
fræði vel um bæöi land og þjóö.
Astin, byltinqin og upp-
byggingin
Á einn eða annan veg(De cierta
manera — one way or another),
fjallar um mannleg samskipti og
í Fjalaketti
Þessi mynd er úr kvikmyndinni ,,E1 Salvador — bylting eða dauði”.
„Ákvörðun um að sigra” barst svo óvænt til landsins, að ekki var unnt
að fá neinar ljósmyndir úr myndinni eða upplýsingar um hana. Hún er
sýnd með kvikmyndinni um Nicaragua á dagskrá Fjalakattarins.
Allt mun nú vera með kyrrum kjörum i Nicaragua um þessar mundir.
En i myndinni „Frjálst land eða dauði” er fjailað um uppreisnina gegn
einræði Somoza, sögulegar forsendur hennar skýrðar og greint frá dag-
legu lifi skæruliða úr Frelsishreyfingu Sandinista.
Marió i myndinni ,,A einn eða annan veg” — ást hans á millistéttar-
kennaranum Yolöndu verður prófsteinn i lifi hans og byltingarinnar.
Myndin er ekki aðeins leikin, heldur er einnig brugðið upp heimilda-
myndaratriðum, þar sem kafað er dýpra ofan i hlutina og þeir út-
skýrðir með tilvisunum til forsögu þjóðarinnar og þróunar byltingar-
Frjálst land — eöa dauði
A dögum borgarastyrjaldar-
innar lögðu fjölmargir kvik-
myndagerðarmenn leiö sina til
Nicaragua, og árangurinn af þvi
starfi er meöal annars þessi
mynd, sem tekin er árið 1979,
nokkru áður en Somoza einræöis-
herra var steypt af stóli. Mynd
þessi er sögð hafa veriö gerö i
nánu samstarfi við Frelsis-
hreyfingu Sandinista, og hún ber
það einnig með sér: sýnd er þjálf-
un skæruliöa i bak og fyrir,vopna-
búnaður þeirra og óbifandi trú á
sjálfum sér og samtökum sinum;
meöal þeirra er enginn, sem efast
um endanlegan sigur. Þau atriði,
þar sem Eden Pastora, nýoröinn
yfirhershöföingi Sandinista, lýsir
einræöisherranum Somoza og tvi-
skiptu sálarlifi hans, eru hreint
stórkostleg; vel til þess fallin aö
auka traust fólks á Frelsis-
hreyfingunni og endanlegum sigri
þeirra.
Biblían lesin til fjalla
Eins fannst mér merkilegt aö
sjá úr messu þeirra skæruliöanna
og útlistingu þeirra á Matteusar-
ákvörðun um að sigra (E1 Salva-
dor 1981).
Frumsýning Fjalakattarins á
þeirri síðastnefndu var jafnframt
Evrópufrumsýning, og af þvi til-
efni bauð Fjalakötturinn þeim 7-8
áhorfendum, sem mættir voru,
upp á rótsterka uppahellingu,
annars er kaffi selt á öllum sýn-
ingum. Og framkvæmdastjóri
Fjalakattarins bað menn jafn-
framt að hafa sina hentisemi og
segja til þegar mætti setja
sýningarvélina i gang. Notaleg
stemmning aö visu en þaö var
ekki laust við aö maður saknaöi
þeirra Islendinga sem sagöir eru
fara ellefu sinnum á ári i bió: eöa
ætli Fjalakötturinn teljist ekki
með i þeirri tölfræöi?
Ákvörðun um að sigra
Það er ekki laust viö að þaö fari
um mann, þegar horft er á kvik-
mynd eins og E1 Saivador —
ákvörðun um að sigra. 1 mynd-
inni er lýst daglegu lifi og störfum
skæruliða FMLN, en sú hreyfing
er kennd við Farabundo Marti,
sem var i fararbroddi bænda sem
gerðu uppreisn snemma á fjóröa.
áratugnum gegn ranglátri
skiptingu jarðnæöis. örlög
þeirrar hreyfingar urðu skjót-
ráðin. Bændurnir, þrjátiu þúsund
að tölu voru myrtir, Farabundo
Marti sömuleiðis. Enn er þó bar-
ist i E1 Salvador, að þessu sinni
gegn rikisstjórn kaþólikka og
hersins sem gaf fyrirheit um um-
bætur i upphafi ferils sins, en
sveik þau fyrirheit samstundis.
Skæruliðar FMLN og Lýöræðis-
lega byltingarhreyfingin sem er
að mestu byggö á starfi sósial-
demókrata undir forystu Ungos,
standi þvi i strangri og
miskunnarlausri baráttu gegn
herstjórninni, sem nýtur stuön-
ings kaþólskra stjórnmálaflokka
viða um heim og páfans sjálfs,
auk Reagan-stjórnarinngr.
Eitt af ónotalegri vopnum her-
stjórnarinnar eru hinar alræmdu
dauðasveitir, sem „afgreiða”
fórnarlömb sin á þann veg, að þau
verða óþekkjanleg. Duartes for-
seti sver að visu af sér allan
kunningsskap viö sveitir þessar,
en mannréttindanefndinni I EÍ
Salvador hefur tekist að sanna
ótviræö tengsl á milli stjórnarinn-
ar og dauðasveitanna.
Hvað er satt?
Kvikmyndin Akvöröun um aö
sigra leggur þó ekki megin-
áherslu á þennan þátt baráttunn-
ar, heldur sýnir hún mestmegnis
lifið innan skæruliöabúöanna:
skæruliöar eru lika menn er
boðskapur hennar: þeir gifta sig,
skemmta sér, dansa, leika leikrit
— og þeir eru jafnframt mannúb-
legir gagnvart föngum, starf-
rækja skóla fyrir börn þeirra for-
eldra sem stjórnarher eða dauða-
sveitir hafa myrt.
Það var þvi ekki laust viö, að
nokkur áróöurskeimur væri af
myndinni, svona ef horft er á
hana með strangvesturlenskum
augum. Ég ætla mér ekki að
halda þvi fram, að myndin sé
lygi: likast til er hún það ekki.
Hinu get ég ekki neitað, aö vegna
fáfræöi minnar um gang mála i
E1 Salvador er ég aö sumu leyti
ekki vel i stakk búinn aö segja eitt
eða neitt um myndina. Hún er þó
greinilega gerö af fólki sem þekk-
ir vel til ástandsins — og það held
ég skipti mestu máli. Og trúaö
gæti ég, að Akvörðun um að sigra
sé ágætis viðbót við þær tvær aör-
ar myndir frá E1 Salvador, sem
sýndar eru i Fjalakettinum nú:
E1 Salvador — fólkið mun sigraog
El Salvador — byiting eða dauði.
Aö minnsta kosti skyldu menn
ekki láta hinn afstæöa „sann-
leika” aftra sér frá þvi að berja
þessar myndir augum, þvi þær
geta án efa varpað ljósi á margt,
sem litið fer fyrir i fréttum, svo
sem forsögu baráttunnar og eöli
hennar.
Dagskráin
líFjala-
kettinum
I Næstu daga verða þessar
myndir sýndar:
FIMMTUDAGUR
15. APRÍL
kl. 19.30 Nicaragua, frjálst
iand eða dauði og
Akvörðun um að
sigra
kl. 22.00 De Cierta Manera
LAUGARDAGUR
17. APRÍL
kl. 17.00 State of Siege
kl. 19.30 EI Salvadoif bylting
eða dauði og E1
Saivador, fólkið
mun sigra
kl. 22.00 Afl fólksins
SUNNUDAGUR
18. APRIL
kl. 17.00 De Cierta Manera
kl. 19.30 Nicaragua, frjálst
land eða dauði og
Akvörðun um að
sigra
kl. 22.00 Chuquiago
Það fer ekki á milli mála að
kvikmyndaframboð hér á höfuð-
borgarsvæðinu væri stórum fá-
tæklegra ef ekki nyti við Fjala-
kattarins, kvikmyndaklúbbs
framhaldsskólanna — og reyndar
má nefna i sömu andránni kvik-
my ndasýningar Germaniu,
Alliance Francaise og MIR.
Gamlar og nýjar sýningarskrár
kattarins bera vitni hreint ótrú-
legri elju við að draga að öðruvisi
myndir en ganga og gerast á al-
menna kvikmyndamarkaðnum,
og frá öðrum löndum en ensku-
mælandi|Oft löndum, sem aldrei
hefur neitt heyrst frá I kvik-
myndaefnum, a.m.k. ekki hingað
til tslands — einfaldlega vegna
þess að kvikmyndaáhugi okkar
(eða þeirra, scm velja myndir
fyrir okkur) er múlbundinn engil-
saxneskum menningarheimi!
1 vetur hefur Fjalakötturinn
starfað meö kvikmyndahátiöar-
sniði: mörgum myndum verið
safnað i senn undir einn hatt:
Finnskar myndir, Nýjar myndir
héðan og þaðan og nú um þessar
mundir: Suöur-Amerika. Ég er
fyrir mitt leyti hrifinn af þessu
fyrirkomulagi. Það getur ef vel
tekst, gefið aukna innsýn i
viðfangsefni þemans, veitt betri
þekkingu á yfirgripsmiklu efni og
gert ljóst samhengi sem ella heföi
ekki legið i augum uppi. En
ókostirnir eru einnig ljósir: fjölda
mynda er þjappaö saman á
skömmum tima sem getur orðið
til þess að margir verði af góö-
gætinu fyrir vikið og tómarúm
verður milli hinna einstöku dag-
skráa, sem hefur aftur þá hættu i
för meö sér, að áhugafólk um
kvikmyndir einfaldlega missi af
dagskránni, þegar hún loksins
kemur.
7-8 áhorfendur
Fregnir herma, aö þeir Fjala-
kattarstjórnendur hyggist breyta
til á vetri komanda. Aðsókn ku
vera litil að klúbbnum nú — og
hún var svo sannarlega litil á
þeim sýningum sem ég sá fyrir
skemmstu á þremur mynda úr
Suður-Amerikudagskránni: De
Cierta Manera (Kúba 1977),
Nicaragua, frjálst land eða dauði
(Costa Rica 1979) E1 Saivador —
mmiR
Afgreiöum
einangrunar
Dlast a Stór
Reykjavikurj
svœóið frá
mánudegi
föstudags.
Afhendum
voruna á
byggingarst
vióskipta t
mönnum aó
kostnaóar
lausu.
Hagkvoemt veró
og greiósluskil
málar vió flestra
hœfi.
einangrunai
Hiplastið
Aðrar
framleiósluvorur
pipueinangrun
'sor Utrufbutar
orgarplast 1 h f
BorgarneiiT rm
' k»okJ 09 hctgammi 93 7355