Þjóðviljinn - 15.04.1982, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. april 1982
Fimmtudagur 15. april 1982. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Spjallað viö Oddberg Eiríksson bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins í Nj arðvík:
Við eigum allt undir utan
ríkisráðuneytið að sækja
,,Þó margt sé i nokkuð góðu
horfi, eins og fram kemur annars
staðar i blaöinu, þá er Iangt f frá
aö manniffið hér i Njarðvikum sé
án annmarka.
A heimstyrjaldarárunum siðari
kom hingað ameriskur her, sem
hér átti að hafa aösetur til strfðs-
ioka. Lagt var undir hann
Kosmhvalanesið mestanpart að
frátalinni ræmu meðfram sjónum
og þar að auki stórar spiidur af
Keykjanesinu sjálfu”, sagði Odd-
bergur Kiriksson bæjarfulltrúi
Aiþýöubandalagsins og efsti
maður á lista flokksins til bæjar-
stjórnarkosninganna i vor, þegar
hann var beðinn aö lýsa mannlifi
og þróun byggðar i Njarövik.
„Nú, þessum her gekk illa að
fara þó að striðinu lyki og svo
kom hann aftur vegna ótryggs
ástands i heiminum og hann er
hér enn.
Hervirkjum dreift
án alls skipulags
A striðstimanum var hervirkj-
um eins og dreift úr hendi án
skipulags og án tillits til fólksins
sem býr á ströndinni. Undan
þessu hefur verið kvartað en það
er ekki laust þaö sem skrattinn
heldur. Annars leggjast þar vist
fleiri á eitt. Kanarnir eru yfir-
gangsdólgar og fara eins langt og
þeir komast, en ég hefi grun um
að hægt sé að sveigja þá að regl-
um, sem þeim eru settar.
En hér koma við sögu landar
vorir, sem eru ameriskari en
Kanar og þeir eru verri viö>
skiptis. Sama er hverju er hreyft,
jafnvel sjálfsögðum umgengnis-
háttum eöa almennum manna-
siðum, þá eru þessir landar okkar
reiðubúnir að bera af þeim blak,
þetta mundi kosta of mikiö.
Þessi Utgerð hér norður i At-
lantshafi er þegar orðin alltof dýr
fyrir bandariska rikissjóðinn.
Þess vegna er að byggðunum hér
á Reykjanesi þrengt á allar lundir
og einkanlega byggðinni hér i
Ytri Njarðvik.
Allt á hendi utan-
ríkisráðuneytisins
Við megum ekki byggja
nema með leyfi utanrikis-
ráöuneytisins.
Við getum átt það undir utan-
rikisráðuneytinu hvort við
getum drukkið vatn.
Viö eigum það undir Utan-
rikisráðuneytinu hvort viö
getum óhindrað talað saman
undir berum himni.
Við eigum það undir Utan-
ríkisráðuneytinu hvort viö
höfum svefnfrið.
Við eigum undir þetta Utan-
rikisráðuneyti að sækja frá
vöggu tii grafar.
Viðeigum það sem börn und-
ir Utanrikisráöuneytinu
hvort við tolium i barna-
vögnunum okkar fyrir
skelfingu þegar þoturnar
fara yfir,
Við eigum það undir Utan-
rikisráðuneytinu hvort orð
prestsins komast til skila
þegar við erum grafin.
Væri ekki ráð að Njarðvik
fengi sérstakan sendiherra i
utanrikisráðuneytinu.
Of margir þurfa
að leita á Völlinn
Enn er hér einn hængur á. Allt-
of margir þurfa að leita á flug-
völlinn I leit að atvinnu til lifs-
framfærslu. A þetta mál hefir oft
verið bent og mikið um þetta tal-
aðog skrifað en árangurinn ekki i
samræmi við það. Þó vil ég segja
að Sjóefnavinnslan á Reykjanesi
er að vissu marki sprottin af
þessu bollaleggingum. Hins veg-
ar er það leitt, að meðan fyrir-
tækið er enn á byggingarstigi þá
skulu vera til þeir menn sem ekki
hafa annað til málanna að leggja
en að ófrægja það.
Heilsuverndarver
En við Suðurnesjamenn bind-
um miklar og fjölbreyttar vonir
við hitaveituna hér á Reykjanesi.
I þvi sambandi er vert að benda á
það að háhitaorka liggur hvergi
að sjó nema á Reykjanesi og i
öxarfirði.
A aðalfundi Samtaka sveitar-
félaga á Suðurnesjum setti ég
fram skoðanir um þetta efni og
þær eru óbreyttar enn, nema þær
hafi styrkst ef eitthvað er.
Ég benti á, að þegar við erum
komin að þvi marki að hafa
möguleika á orku, sem ekki þyrfti
aðfara til þeirra þarfa, sem fyrir
eru, þá er spurningin, til hverra
hluta megi nýta þessa orku? Ef
við Suðurnesjamenn fáum ein-
hverju um það ráöið, sem ég
vænti þar til annað sannast, þá
eigum við ekki að selja hana til
þess að bræða erlent eða innlent
grjót gegn engu gjaldi. Slikt er
þursaviðfangsefni. Helst vildi ég
aö viðnotuðum þessa orku til þess
aö baka brauð, rækta rósir og
laga vin, en siðast og ekki sist
ættum við að koma á laggirnar
heimsins stærsta og fjölbreytt-
asta heilsuræktar og heilsu-
verndarveri. Af þessum kostum
fullnægt væri ég bjartsýnn á
framtið okkar Suðurnesjamanna.
Ester Karvelsdóttir skipar 2. sætið á lista Alþýðubandalagsins:
Þarf að gefa gaum atvinnu-
málum kvenna og aldraðra
Ester Karvelsdóttir sérkennari
skipar annað sætið á lista Aiþýöu-
bandalagsins I Njarövikum við
komandi bæjarstjórnarkosning-
ar. Ester er uppalin i Njarðvik og
hefur búiö þar alla tið að einu ári
undanskildu. Hún hefur starfaö
sem sérkennari við grunnskólann
i Njarðvik frá þvi árið 1956, og
jafnframt tekið mikinn þátt i
félagsstarfi I bænum, einkum inn-
an Kvenfélagsins þar sem hún
hefur átt sæti i stjórn.
— Hvers vegna ákvaðst þú aö
hella þér út I stjórnmálastarfið?
— Ég hef mikinn áhuga á mál-
efnum bæjarins og vil gjarnan
hafa hönd í bagga með þvi
hvernig að ýmsum málaflokkum
er staöið og hafa áhrif á hvert
peningar skattborgaranna fara.
Auk þess er sjálfsagt að konur
séu framarlega á lista, ef eftir þvi
er leitaö. Þaö er full þörf fyrir
okkur i þjóöfélaginu til
ákvöröunartöku á ýmsum
sviðum, en þegar nöfn kvenna
lenda neðarlega á listum og þá
nánast eingöngu til uppfyllingar,
þá náum við þvi aldrei að hafa
áhrif á gang mála, hvað þá að
ráöa einhverju um framvindu.
— Hver eru brýnustu málin sem
þarfnast úrlausnar að þinu mati?
— Það er brýn þörf á aö ráða
hingað menntaðan félagsmála-
fulltrúa. Bæjarfélag meö 2000
ibúa þarf að ráða fram úr svo
mörgum félagslegum vandamál-
um, aö óhugsandi er annað en aö
hafa menntaöan starfsmann sem
starfar á vegum Félagsmálaráðs.
Barnaverndunarmál, æsku-
lýösmál og tómstundastarfsemi
málefni aldraðra, heimilishjálp
og dagvistunarmái, svo eitthvaö
sé nefnt, allt eru þetta atriði sem
krefjast sérþekkingar og mikillar
umhyggju og nærfærni, sem ekki
er hægt að ætlast til aö fólk sem
kosið er i nefndir sinni i tóm-
stundum sinum.
Húsnæðismál
aldraðra
Það er skoðun okkar Alþýðu-
bandalagsmanna að ef bærinn
leggur fram fé til byggingar
eignaribúða þá hafi bæjarstjórn
ráöstöfunarrétt á ibúðum I réttu
hlutfalli við framlag sitt, enda
bærinn þá oröinn eignaraðili.
Framtiðarmarkmið hlýtur að
vera leiguibúðir, svo öryggis
aldraðra I húsnæðismálum verði
ekki háð fjárhagslegri afkomu
þeirra.
Atvinnumál
Bæjarfélagiö þarf að standa
fyrir atvinnuuppbyggingu i
byggðarlaginu og eignast hlut-
deild i stærri atvinnufyrirtækj-
um. A þann hátt er hægt aö hafa
áhrif á stjórnunina til hagsbóta
fyrir ibúana.
Sérstaklega þarf aö gefa gaum
atvinnumálum kvenna og
aldraðra. Þessir tveir hópar
missa fyrst vinnuna, ef harðnar á
dalnum og eiga sjaldnast nokkuð
val, en þvi aðeins geta ibúarnir
búið við fjárhagslegt og félags-
legt öryggi að þessi uppbygging
sé veitt á félagslegum grunni og
arðurinn renni til samfélagslegra
þarfa heimamanna.
Samráð við íbúa
í skipulags- og umhverfismál-
um þarf að hafa samráö viö Ibú-
ana og virða skoðanir þeirra og
taka tillit til krafna sem settar
eru fram af sanngirni og skyn-
semi. Við skipulagningu þarf
fyrst og fremst að taka mið af
fólkinu sem staðinn byggir og
þörfum þess þar með taliö þjón-
ustu stofnana, dagheimili og fl.
Brot á
landslögum
Varðandi þær breytingar sem
geröar hafa verið á aðalskipulagi
Keflavikur, Njarðvikur og Kefla-
vikurflugvallar þá vil ég láta
reyna á þaö fyrir dómstólum,
hvort hægt sé að rifta staðfestu
aðalskipulagi án þess að ibúar,
hvað þá stjórnaraðilar, viðkom-
andi sveitarfélaga séu að nokkru
spurðir. Ég lit fyrst og fremst á
þessar breytingar á flugvallar-
stæðinu sem lagabrot. Þetta er
mál sem snertir ekki aöeins okk-
ur hér I Njarövik, heldur alla
landsmenn. Löglegu skipulagi er
kippt úr öilu samhengi viö hlut-
ina.
Hávaðamengunin frá flugvell-
inum er annar handleggur sem er
Ester Karvelsdóttir: „Full þörf á
okkur konum til ákvarðanatöku á
ýmsum sviðum I þjóðlifinu.”
okkar sérmál hér I Njarövikum.
Vissulega hanga þessi mál
saman, en mér finnst hitt mikil-
vægara að ekki sé hægt aö brjóta
landslög án þess að nokkuö sé við
þvi gert. Þetta mál verður aö
taka fyrir, þvi annars geta menn
spurt sjálfan sigr Hvar veröur
traðkað á okkur lagalegu réttind-
um næst? —lg
Hitaveita Suðurnesja i Svartsengi og „bláá lóniö” i forgrunni. A þetta eftir að vera helsta heilsuræktar-
ver og miöstöð á islandi og kannski viðar, i næstu framtið? Mynd —eik.
Verður hitaveitan aukabúgrein
Allar aðstœður fyrir
heilsurœktarstöð
L
„Samstarf sveitarféiaganna á
Suðurnesjum hefur valdið aldar-
hvörfum. Þetta samstarf hófst
fyrir 11 árum siðan. Stærsta verk-
efnið sem Samtök sveitarfélaga á
Suðurnesjum hafa ráðist i til
þessa er Hitaveitan, en nú þegar
er búiö aö tengja á allar byggö-
irnar, nema á Vatnsleysuströnd
innanveröa, Hafnir og nokkur
bændabýli á Miðnesi, en Hafnir
veröa tengdar I sumar”, sagði
Oddbergur Eiriksson bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins i Njarð-
vikum, þegar blaðamenn Þjóö-
viljans litu þar við á dögunum, til
að kynna sér helstu framkvæmdir
og athafnalif i Njarðvikum.
„Það er margt sérstakt i kring-
um þessar hitaveitufram-
kvæmdir, en eitt atriði finnst mér
vert að nefna. Þeir Ibú-
ar hér á Suöurnesjum sem
ekki fengu hitaveitu til sin á þeim
tima sem hún var tengd inn á
þéttbýlin þeir fengu greiddan
mismun á hitaveitu og oliukynd-
ingarkostnaði frá hitaveitunni
þar til tengt haföi verið inn i
þeirra eigin hús. Þetta er algjört
nýmæli en að sama skapi réttlæt-
ismál sem menn hafa verið
ánægöir meö.
Til að kynna okkur betur að-
stööu Hitaveitu Suöurnesja i
Svartsengi, ókum viö á virkj-
unarstaðinn.
Að sögn Oddbergs er fjárhags-
staða Hitaveitunnar mjög slæm
um þessar mundir og stafar það
einkum af þvi að ennþá hefur ekki
veriö tekið nema litið vatn inn á
Keflavikurflugvöll eins og þó
haföi verið um samiö, en um 50%
af hitavatnsframleiðslunni frá
Svartsengi mun fara til notkunar
á Keflavikurflugvelli.
Þessar tafir hafa komið sér
mjög illa, innkoman hefur ekki
veriö fyrir fjármagns og
rekstrarkostnaði.
Samhliða þvi að sjá Suður-
nesjamönnum fyrir heitu vatni til
húskyndingar, framleiðir Orku-
verið i Svartsengi um 10MW af
rafmagni, sem seld er inn á
Landsvirkjunarkerfið, en þessi
raforka er nálægt þvi sú sama og *
þörf er á á Suöurnesjum.
„Ég hef helst trú á þvi að þegar
fram liöa stundir þá verði hita-
veitan hér I Svartsengi alger
aukabúgrein.
Heilsulindin svokallaöa „Bláa
lónið” gæti orðið upphafið að heil-
mikilli heilsuræktarsvæði hér i
Svartsengi ef rétt er haldið á mál-
um. Salböð eru mjög heilsusam-
leg, hér höfum við heitt vatn og
tært loft. Ég veit ekki hvað menn
vilja hafa það betra. Hér eru allar
aðstæöur til að koma á fót stór-
merkri heilsuræktarstöö sem
myndi veita f jölda manns atvinnu
og um leið kalla á fjölbreytta aðra
þjónustu. Þetta er sú stóriðja sem
við gætum vel átt kost á. Hér eru
allar aðstæður færöar upp i hend-
urnar á okkur frá náttúrunnar
hendi.
Þegar viö litum við I Svartsengi
var verið að bora i nágrenni
stöövarhússins, en aö sögn Odd-
bergs hefur hitaveitan fengiö af-
notarétt af nýju svæði nokkuð
vestar en Svartsengissvæðið i
svokölluðum „Eldvörpum” sem
eru taldar yngstu eldstöðvarnar á
Reykjanesi. Þar er áætlaö aö
bora eftir heitu vatni i sumar.
„Þessar boranir eru ekki vegna
þess aö viö séum að komast I þrot
með vatn hér I Svartsengi, heldur
ræður fyrirhyggjan hér feröinni,
viö erum einfaldlega að tryggja
okkur fyrir framtiðina”.
— lg
u
Félagsleg aðstaða
er með betra móti
„Ég held ég geti fullyrt aö
félagsleg aðstaba hér i bænum sé
með betra móti. Dagvistarmál
eru t.d. i góöu ástandi, og þegar
nýja dagheimiliö sem verib er aö
leggja lokahönd á i Innri-Njarð-
vik, veröur komiö I notkun þá má
segja aö þörfinni fyrir dagvistar-
rými hér i bænum veröi full-
nægt”, sagöi Oddbergur Eiriks-
son bæjarfulltrúi Alþýöubanda-
lagsins I Njarövikum.
Öflug íþróttahreyfing
Skólamál eru hér I góöu lagi, og
við hreykjum okkur af þvi, að i
grunnskólanum reykir enginn
nemandi. Það þökkum við m.a.
annars öflugri iþróttahreyfingu
sem starfar hér i bænum, og er
vel kynnt um allt land. Viö viljum
þvi búa vel að iþróttastarfsemi
hér og ég held að okkur hafi lán-
ast það meö ágætu móti. Hér var
t.d. tekinn i notkun fyrsti gras-
völlur á landinu, strax á sjötta
áratugnum og myndarlegt
iþróttahús hefur verið starfrækt i
12 ár. Við metum starf iþrótta-
hreyfingarinnar mikils þvi við
vitum að hún forðar mörgum
vandamálum, og er um leið heil-
brjgður félagsskapur. Þá má ég
til með að minnast á tónlistar-
skólann, þá ágætu stofnun. Þar
eru nú yfir 100 nemendur og 40
nemendur i söngskóla. Það hefur
verið mikill fjörkippur I tónlistar-
lifinu hér i bæ, og öílug starísemi
hjá Tónlistarskólanum.
— Atvinnumálin hafa ekki veriö
með besta móti hjá ykkur?
— Jú, þaö er rétt: Viö þurfum
mjög nauösynlega að breikka at-
vinnulinuna, bjóða upp á fieiri at-
vinnumöguleika. Stærstu at-
vinnufyrirtækin hér i bænum eru
Sjöstjarnan og Slippurinn.
Ný verkefni f
Slippnum
A siðustu árum höfum við i
Slippnum orðiö illa verkefnalaus-
ir á hávertiðinni, svo viö
ákváðum að brúa þetta bil i vetur
með þvi að kaupa tilbúinn skrokk
frá Noregi og smiða yfir hann hér
heima. Þetta hefur verið gagn-
rýnt af sumum, en ég held aö sú
gagnrýni sé alls ekki réttmæt.
Það eru aöeins 20% af heildar-
vinnunni við skipið sem liggur i
skrokknum. Við höfum veriö
gagnrýndir fyrir að flytja inn er-
lent vinnuafl en hjá okkur hafa
starfað 5 norömenn viö ráðlegg-
ingar og kennslu. Ég hefði haldið
að það væri ódýrara aö fá
kennara hingaö og gefa þar með
öllu starfsfólki kost á leiðsögn,
heldur en að senda starfsfólkiö
utan. Við höfum farið þarna inn á
nýja braut til aö tryggja atvinnu,.
og ég get fullyrt að þetta hefur
gefið góöa raun, enda höfum viö
þegar samið um kaup á tveimur
skrokkum til viöbótar frá Noregi
til að yfirbyggja hér heima á
tveimur næstu árum.
Meiri aöföng
Sjöstjarnan er eitt af betri bún-
um frystihúsum f landinu en þar
gæti verið mun meiri rekstur en
nú er. Þar þarf nú fyrst og fremst
að styrkja útgerðina og tryggja
meiri aöföng til vinnslu.
-lg
Listi Alþýdubandalagsins
1. Oddbergur Eiriksson,
skipasm., Grundarvegi 17
2. Ester Karvelsdóttir, sérkenn-
ari, Þórustig 10
3. örn Óskarsson, skólastjóri,
Tunguvegi 7
4. Þórarinn Þórarinsson, verka-
maður, Borgarvegi 13
5. Lina Maria Aradóttir, hús-
móðir, Holtsgötu 12
6. Karvel Hreiöarsson, náms-
maður, Borgarvegi 10
7. Marinó Einarsson, kennari,
Brekkustig 19
8. Fanney Karlsdóttir, kennari,
Þórustig 12
9. Bjarni M. Jónsson, vélstjóri,
Hliðarvegi 86
10. Bóas Valdórsson, bifvélavirki,
Brekkustig 23
11. Óskar Böövarsson, verka-
maöur, Hákoti
12. Arni Sigurösson, verkamaður,
Kirkjubraut 17
13. Jóhann B. Guömundsson,
verkamaður Klapparstig 16
14. Sigurbjörn Ketilsson, fyrrv.,
skjólastjóri, Hliðarvegi 26