Þjóðviljinn - 01.05.1982, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Qupperneq 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 1 —2. mai 1982 Gámavinna enollt annaö en hættulaus... Bara að stara á eina hönd... Framhald af 13. slöu. trúnaðarmannaráöinu og reynt aö gera það sem I okkar valdi stendur til aö uppfræöa menn hér um málin og þær hættur sem aö steöja viö hafnarvinnuna, og þær eru sannnarlega margar. Viö höf- um haldið námskeiö, þar sem við höfum sýnt myndir; fulltrúar frá Rauöa-krossi Islands og lögregl- unni hafa komið og haldiö erindi um slysavarnir. Viö vonum aö þetta beri einhvern árangur, en þvi má ekki gleyma aö slysahætta hér viö höfnina er gifurlega mikil og sú breytta tækni sem komin er hér hjá Eimskip, er sist hættu- minni en áöur var. Þessi tækni- breyting viö höfnina hefur enda gerst svo hratt, aö menn hafa varla náö aö átta sig á henni til fulls enn sem komið er. Eitt er svo þaö, að mannaskipti viö höfn- ina eru ákaflega ör og nýir menn eru alltaf nokkurn tima að átta sig á þeim hættum, sem eru starf- inu samfara. — Hversvegna eru manna- breytingar hjá ykkur svona örar? — Kaupið er lélegt, mjög lélegt, en vinnudagurinn langur og þvi gefast menn hreinlega upp og leita annaö. Þaö er nokkuö um það að menn sem eru tilbúnir til aö leggja á sig takmarkalausa vinnu komi hingaö um tima, en þeir eru fáir sem halda þetta út. Níu tíma alla daga — Þú talar um langan vinnu- dag; hversu langur er hann aö jafnaði? — Ég get nefnt dæmi af sjálfum mér. A siöasta ári vann ég 3.232 stundir, sem jafngildir þvl aö ég hafi unnið 9 stunda vinnudag alla 365 daga ársins. Samt var 3ja mánaöa helgarvinnubann um sumariö, svo þú getur séö hve langur vinnudagurinn er, þegar þess er einnig gætt aö ekki er leyft aö vinna á sunnudögum. Og ég er ekkert einsdæmi hvaö þessum langa vinnudegi viökemur; flestir vinna svona mikiö,og þeir eru til hér sem hafa fleiri vinnustundir • aö baki. I þessum vinnustunda- fjölda er tvöfaldur matartimi þegar unniö er frameftir á kvöld- in; þaö skekkir að vlsu dæmiö svolitið, en þó varla umtalsvert. Það hljóta allir að sjá aö svona þrældómur er ekki eftirsóknar- veröur, þetta er ekkert llf. Maöur sér varla fjölskyldu sina nema augnablik á morgnana og seint á kvöldin þegar maöur kemur heim. En án svona langs vinnu- tlma kemst maöur einfaldlega ekki af. Og hvað helduröu aö ég hafi haft I laun fyrir þessar 3.232 stundir I fyrra? Ég haföi I árslaun 159 þúsund krónur, eöa um 49 krónur á timann aö meöaltali. Það er þvl engin furöa þótt menn hverfi að einhverju ööru og betur launuðu. Miklar breytingar — Nú liggur ljóst fyrir aö mikil breyting hefur oröiö á vinnu hafnarverkamanna, eftir aö hin nýja löndunartækni var tekin upp meö tilkomu gámaskipanna? — Vissulega hefur margt breyst meö tilkomu þessarar löndunar- tækni, en vinnan er hvorki léttari né minni fyrir þaö. Þessi gáma- skip eru ákaflega dýr og þeim er uppálagt að halda stifa áætlun. Þessiáætlun vill skekkjast, bæöi I erlendum höfnum og ekki siöur I vondum veörum á milli landa. Skekkjan er svo rétt af hér hjá okkur meö botnlausri vinnu og vinnuhraða, sem aö okkar dómi er hættulega mikill. Magníö sem hér er losað og lestaö á einum degi er ofsalegt I einu oröi sagt, enda er okkur sagt aö hvergi ' veröldinni þekktist annar ein; vinnuhraði og hér hjá okkur. Breytingar samfara þessari nýju tækni eru eins og ég sagði áöan miklar. Nú losum viö og lestum skip á einum degi, sem áður tók um 4 daga. Gamalt met er stundum nefnt í þessu sam- bandi, en þaö var þegar Trölla- foss lá I 3 vikur og stanslaust var unnið og engar tafir uröu. Nú stoppa skipin vart lengur en einn dag. Hér fyrrum unnu um þaö bil 50 menn viö aö losa og lesta svona skip; nú, i gámaskipunum eru tvö 8 manna gengi, sem sé 16 manns auk kranastjóra og verkstjóra. Þvi hefur nýja tæknin oröiö til þess aö fækka hafnarverkamönn- um mjög mikiö. Þaö var komiö svo um tima, fyrst eftir aö þessi nýja flutningatækni var tekin upp, aö stærstu innflutningsfyrir- tækin komu meö sitt fólk og tæki til aö losa skipin, en aö sjálfsögöu var tekiö fyrir slikt. Spurt um aukavinnu — Ef viö vikjum aöeins aftur aö vinnutima og kaupi, myndi ein- hver fást til aö vinna hér ef ekki kæmi til aukavinna? — Nei sjálfsagt ekki þvi aö á meöan kaupi okkar er haldiö svo niöri sem raun ber vitni, þá kemst maður ekki af án hennar, en of mikiö má af öllu gera. Þaö er vissulega rétt, aö þegar nýir menn hefja hér störf, þá spyrja þeir um hve mikil vinna standi til boöa. En eins og ég sagöi áöan una menn þessu skamman tima, meöan þeir standa I einhverjum framkvæmdum kannski, en hætta svo um leið og þeir mögu- lega geta og fá sér eitthvaö þægi- legra. — Hvaö er hæsta kaup sem greitt er viö höfnina fyrir 40 stunda vinnuviku? — Þaö eru 1914 krónur á viku. Þaö eru menn sem vinna sam- kvæmt hæsta taxta og meö hæsta starfsaldur. — Hvaö heldur þú aö séu meöal vikulaun hér fyrir 40 stundirnar? — Taxtar eru nokkuö margir þannig aö erfitt er aö segja til um það nákvæmlega, en gróft sagt þá rokkar kaup manna almennt hér á milli 1300 og 1600 krónur á viku fyrir dagvinnu. Þetta smánar- kaup leiöir auövitaö af sér taum- lausa aukavinnu; þaö ber allt aö sama brunni meö þaö. Færri skip en stærri — Helduröu aö séu einhverjar enn frekari breytingar á ykkar vinnu I sjónmáli? — Þaö er þá helst aö tæki öll veröi stærri og afkastameiri. Gámaskipin veröi mun stærri en nú er og þá um leið færri og sömu- leiðis veröa lyftarar og kranar stærri og kraftmeiri; þaö leiöir af sjálfu sér. Hér hjá Eimskip eru enn nokkur skip sem ekki voru sérsmiöuð til gámaflutninga, en flytja samt allt i gámum og þau munu hverfa fljótlega. Þaö tekur mun lengri tima aö losa þau og lesta en hin skipin, sem eru sér- smlðuð. Viö góð skilyröi lestum viö og losum 2500 tonn á einum degi i sérsmiöuöu skipunum, sem eru griöarlega mikil afköst, þau mestu i heimi segja þeir sem gerst þekkja. — Er ekki mikilvægt aö vera meö samhenta menn viö þetta og eru ör mannaskipti þá ekki nei- kvæö? — Jú, mikil ósköp, samæföur og samhentur mannskapur er mjög mikils viröi, en þaö verður vart sagt aö hér sé mikiö gert til aö laða aö vana menn. Sem dæmi um þaö get ég sagt þér aö ef hafnarverkamaöur hættir störf- um i eitt ár, fer hann aftur niður á byrjendalaun, hann missir öll áöur áunnin réttindi I launum. Og annaö sem er furöulegt. Háset- arnir á Fossunum, sem eru eftir- litsmenn um borö, sjá til þess að viö vinnum þar allt rétt, veröa aö fara á byrjunarlaun ef þeir fara I land og hefja hér störf. Meöan þeir eru hásetar eru þeir I raun yfir okkur settir sem eftirlits- menn, en fari þeir aö vinna meö okkur, eru þeir byrjendur. Þetta eru fáránlegar reglur. Stressið bætist við — Er ekki starf hafnarverka- mannsins oröiö lfkamlega léttara en áöur var meö tilkomu þessarar nýju tækni? — Þaö er ég ekki viss um. Sjáöu til, menn vinna nú viö að hlaöa vörum I gáma og þaö er mjög erfitt likamlega oftast nær og svo hefur andlegt álag, eöa stress, bæst við. Breytingin er þvi minni hvaö líkamlegu álagi viökemur, en margur heldur. — t hverju fellst svo mikiö and- legt álag? — Þaö er annað en gaman aö þurfa aö skriöa uppá isaöa gáma I hvaöa vetrarveöri sem er. Erlendis er bannað aö vinna viö efstu gámana i hvassviöri. Hér er sliku engu ansaö. Viö höfum beö- iö um að fá vindmæli hingaö til okkar, en þvi er ekki ansaö enn sem komiö er aö minnsta kosti. Stundum hafa menn veriö sendir uppá gáma i svo miklu roki að ekki var stætt, og menn hafa orðið aö skríöa eftir þeim. Neiti menn, eru þeir reknir. Hér eru engir samningar um þetta atriði, sem vernda menn ef þeir neita aö vinna viö svo hættulegar aöstæð- ur. Annað atriöi sem viö erum óá- nægöir meö er frágangur svo nefndrar löndunarbrúar I gáma- skipunum. Hún er aöeins lögð niöur á bryggjuna, en ekki land- fest. Stundum dettur hún niöur og þaö hefur oft munaö aöeins hárs- breidd aö stór slys hlytist af. Við höfum beðið um aö fá þetta lag- fært, þannig að brúin sé landföst, en þaö hefur ekki gengiö enn. Kannski er beöiö eftir slysi. Mikil slysatíðni — Viö töluöum I upphafi um slysatlöni hér; er hún meiri en bú- ast má viö I hafnarvinnu? — Viö teljum aö svo sé. Hér hafa orðiö alltof mörg dauöaslys og önnur alvarleg slys aö okkar dómi. Þaö tekur á mann skal ég segja þér að sjá vini sina og félaga deyja af slysförum. Menn sem sátu kannski hlæjandi viö hliö manns I matartlmanum, eru liöin lik klukkustundu síöar, eöa þá limlestir. Og þegar þetta gerist æ ofan I æ og allir bera ugg I brjósti, og spyrja: verð ég næstur eöa veröur hann vinur minn þarna næstur?, þá er ekki nema von aö andlegt álag veröi mikiö. Sannleikurinn er nefnilega sá aö meö tilkomu þessarar nýju tækni eykst hættan á stórslysum. Þaö þarf svo ósköp litiö útaf aö bera til aö stórslys hljótist af. Þetta er allt oröib svo stórt I sniðum og þungt. Hér varö slys I gær, svo ég nefni dæmi; sá mun bera örkuml alla sina ævi vegna þess, en hann fær sjálfsagt litið eöa ekkert i slysabætur, vegna þess aö hann var aö vinna verk sem honum bar ekki ef strangt er tiltekið, en hann var að reyna að láta hlutina ganga, fór ekki alveg rétt aö og stórslasaðist. Svona er þetta. Við höfum stundum verið að ræöa þaö I okkar hóp aö þaö þyrfti að stór-hækka liftryggingu og slysatryggingar okkar og um leiö aö gera meiri kröfur til öryggis manna. Hér er ákaflega strangt rekið á eftir og þess kraf- ist að þessu eöa hinu verkinu veröi lokiö I dag, hvaö sem það kostar. A móti kemur svo að menn hér eru hálf dofnir af alltof mikilli vinnu og eru m.a. þess vegna i meiri slysahættu en ella. Þaö vita allir aö örþreyttur maöur á hættulegum vinnustaö er I meiri hættu en óþreyttur. Þvi má svo einnig bæta viö aö þau tæki sem viö vinnum meö hafa ekki verið endurnýjuð I takt viö breytinguna á skipunum. Við er- um meö of mikið af gömlum og lélegum lyfturum og krönum, sem geta brugöist hvenær sem er. Abeins 2 lyftarar og 2 kranar hafa veriö keyptir og miöaöir við nýju tæknina öll önnur tæki eru frá timum eldri aöferbarinnar vib losun og lestun. Hávaðinn langt yfir hættumörkum —■ Nú erum viö aö rabba saman I hvlidarstund, sem þú færö sem kranamaður; skiptist þiö á um aö vera á krananum? — Já, annaö væri glapræöi. Ée hygg að oft heföi mátt koma I veg fyrir slys, sem orðiö hafa viö höfnina, ef þaö heföi veriö tekið upp fyrr aö hvlla kranamennina. Þú þarft ekki lengi aö horfa á kranamann vinna á löndunar- krana til aö sjá hversu óskapleg ábyrgð hvilir á honum. Smá mis- tök geta kostað mannslif. Viðmegum ekki gera mis- tök — þá kostar það slys. Þar aö auki erum viö iú'anamennirnir orbnir hræddir viö þessi stóru en slitnu og lélegu tæki, sem oröin eru 8 til 10 ára gömul. Þau voru góö, en nú eru þau beinlínis hættuleg. En varðandi skipting- una, þá er starf okkar þannig að við förum blint eftir lúgumanni, annað getum viö ekki. Við megum aldrei líta af hendi hans eitt augnablik. Bara stara, ein- blina á þessa hönd sem segir hvað á að gera. Slik einbeiting er erfiö- ari en svo aö hægt sé aö halda hana út nema i einn til einn og hálfan tima án hvildar. Þess vegna hvilum viö okkur á eins og hálftlma fresti. Svo má ekki gleyma hávaöanum. Hættumörk hávaða eru 85 desibel, en inni kranahúsinu er hávaöinn 114 desibel. Og þrátt fyrir þaö að við erum meö heyrnarhlifar, hef ég oröið fyrir varanlegum heyrnar- skemmdum, og sjálfsagt viö allir sem höfum haldið þaö út i nokkur ár að vinna viö þessi tæki. Maður finnur þaö glöggt þegar maður kemst útúr kranahúsinu, hve há- vaðinn er streituvaldandi. Svo erum við hifandi tonna þunga gámana yfir hópa af mönnum hvað eftir annaö á tækjum, sem viö vitum aö eru oröin gömul og úr sér gengin. Ég veit ekki hvort ég myndi nokkru sinni bera þess bætur ef ég yröi valdur aö alvar- legu slysi, svo ég nefni ekki dauöaslys. Ég þori ekki aö hugsa þá hugsun til enda, en þó vofir þessi hætta ævinlega yfir. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.