Þjóðviljinn - 01.05.1982, Side 25
Helgin 1,— 2. mai 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 25
Feður
hafa
öðlast
meiri
rétt
en
áður
i tið félagsmálaráðherra,
Svavars Gestssonar, hafa verið
gerðar margvislegar réttarbætur
til handa vinnandi fólki. Mörg
baráttumál verkalýðsfélaganna i
fjölda ára hafa allt i einu náð
fram að ganga fyrir tilstilli lög-
Spjallað við Þorgerði Benediktsdóttur
hjá Tryggingastofnun um fæðingarorlofið
og þátt feðra í þeim réttarbótum
gjafans.
Eitt þeirra mála sem verka-
lýðshreyfingin hafði barist fyrir
um margra ára skeið voru endur-
bætur á reglum um fæðingaror-
lof. Þær höfðu kveðið á um aö
konur sem voru í barneignarfrii
fengu greidda dagpeninga á sömu
forscndum og um atvinnuleysis-
bætur væri að ræða. Þær urðu aö
vera fullgildir féiagar i verka-
lýðsfélagi og margar fengu þvi
algera synjun þegar sótt var um
þessa sjálfsögðu aöstoð.
Nú þegar rúmt ár er liðiö frá
setningu laganna um fæöingaror-
lof, snerum við okkur til
Þorgerðar Benediktsdóttur hjá
Tryggingastofnun rikisins og
spurðum hana fyrst hvaða reglur
giltu um orlofið:
— Lög um fæðingarorlof al-
mannatrygginga tóku gildi 1. jan-
úar 1981. Rétt til fæðingarorlofs
eiga allar konur sem búsettar eru
á tslandi. Undanskildar eru þó
opinberir starfsmenn og banka-
starfsmenn, þar sem þeir eiga
rétt á launuðu barnsburöarleyfi i
þrjá mánuði.
Upphæð fæðingarorlofsgreiðslu
miðast við unnar dagvinnu-
stundir siðustu 12 mánuði fyrir
töku fæðingarorlofs. Þannig
greiðist fullt fæðingarorlof ef um-
sækjandi hefur unnið 1032 dag-
vinnustundir siðastliðna 12
mánuðúen sé vinnustundafjöldinn
minni greiöist skert fæðingaror-
lof, þ.e. 2/3 hlutar ef vinnustunda-
fjöldinn er á bilinu 516-1031 dag-
vinnustund, en 1/3 hluti sé um
færri vinnustundir að ræða eða að
umsækjandi hefur ekki unnið
utan heimilis. Full greiðsla er nú
kr. 8.073 á mánuði.
Fæðingarorlof greiðist i þrjá
mánuði, en i tvo mánuði sé um
ættleiðingu eða töku fósturbarns
að ræða.
— Hversu margir foreldrar
hafa notið greiðslna og hvernig er
skiptingin milli karla og kvenna?
— A siðastliðnu ári fengu alls
1168 einstaklingar greitt fæð-
ingarorlof i Reykjavik, þar af ein-
ungis sárafáir feður, en fjöldi
þeirra liggur ekki fyrir. Tölur frá
landsbyggðinni eru ekki komnar.
Varðandi ofangreinda tölu ber
aö hafa i huga að opinberir starfs-
menn og bankastarfsmenn eiga
rétt á launum i barnsburðarleyfi
eins og áður sagði og eiga þvi ekki
rétt á fæðingarorlofi almanna-
trygginga.
— En hvaða regiur gilda um or-
lof feðra núna?
— Faðir getur tekið siðasta
mánuö fæðingarorlofsins þ.e.
þriðja mánuð þess, og fellur þá
greiðsla til móður niður. Þess
misskilnings gætir aö réttur föður
feli i sér „viðbótarmánuð,” en
svo er ekki, heldur á faðir rétt á
þriðja mánuði fæöingarorlofs i
stað konu.
Frá 1. janúar 1981 fram til 24.
febrúar 1982 voru reglur um
fæðingarorlof feðra túlkaðar á þá
lund aö faðir ætti ávallt rétt á
sömu upphæö fæðingarorlofs og
móðir. Þannig var talið að réttur
föður væri að öllu leyti afleiddur
af rétti móöur, hann gengi ein-
ungis inn i hennar rétt. Með nýrri
lagatúlkun frá 24. febrúar s.l. var
hins vegar ákveðið að sú greiðsla
sem faðir eigi rétt á miðist við
þann vinnustundafjölda sem hann
hefur unnið siðastliðna 12
mánuði.
Óbreytt stendur hins vegar að
faðir á þvi aðeins rétt til
fæðingarorlofsgreiöslu að móðir
hafi átt þann rétt. Réttur föður er
háður skilyrðum um að vinnu-
veitandi staðfesti að vinna verði
felld niður þann tima sem
fæðingarorlof er greitt. Einnig er
réttur föður háður samþykki
móður, þar sem móðir á ávallt
forgangsrétt til fæðingarorlofs.
Ég vil nota tækifærið til þess að
árétta það að faðir á þvi einungis
rétt til fæðingarorlofs álmanna-
trygginga að móðir njóti þess
réttar. Þegar móðir hefur fengið
sina fyrstu greiðslu getur faðir
lagt inn umsókn.
— Og það hafa fáir feður sótt
um?
— Fram til þessa hafa fáir
feður sótt um fæðingarorlof, en
allmikið hefur verið spurst fyrir
um þaö. Þar sem hin nýja laga-
túlkun frá 24. febrúar sl. felur i
sér rýmri rétt feðrum til handa en
áður gilti, má gera ráð fyrir að
1 umsóknum frá þeim muni fjölga.
Fyrsta hljómplata sem verkalýðs
s
hreyfingin á Islandi gefur út
Nú er komin út hljómplatan
ALMANNARÓMUR með söng-
flokknum HALFT i HVORU en
hann skipa Aðalsteinn Asberg
Sigurðsson, Bcrgþóra Arnadótt-
ir, Gisli Helgason, Eyjólfur
Kristjánsson, Ingi Gunnar Jó-
hannsson og örvar Aðalsteins-
son.
Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu gefur plötuna út, en
Fálkinn h.f. annast dreifingu.
Þetta er fyrri hljómplatan af
tveimur, sem MFA hefur
ákveðið að gefa út á þessu ári.
Sú siðari verður með verklýðs-
söngvum og ættjarðarsöngvum
fyrri ára, unnin i samvinnu við
Sigursvein D. Kristinsson.
Söngflokkurinn Hálft i hvoru
hefur á liönum vetri og siðast
liðið sumar komið fram á fjöl-
mörgum vinnustöðum viða um
land á vegum MFA og verka-
lýðsfélaganna á hverjum stað.
Slikar heimsóknir hafa þótt tak-
ast vel og nú gefst þeim m.a.
sem þekkja hópinn frá slikum
heimsóknum tækifæri til að
heyra i söngflokknum á hljóm-
plötu.
A plötunni Almannarómur er
að finna 13 lög, bæði innlend
og erlend. Meðal erlendra höf-
unda eru Victor Jara, Barbara
Helsingius og Joe Hill. tslenskir
höfundar laga og ljóða eru auk
þeirra sem eru i söngflokknum
Asgeir Ingvarsson, Einar
Bragi, Jón úr Vör, Ólöf Sverris-
dóttir, Steinn Steinarr og óli i
Nýborg.
Platan er tekin upp i Stúdió
Stemmu undir stjórn Gisla
Helgasonar. Margir hljóðfæra-
— Hvernig hcfur verið staðið að
kynningu á fæðingarorlofinu?
— Þegar lög um fæðingarorlof
almannatrygginga tóku gildi
þann 1. janúar 1981 voru nýmælin
kynnt nokkuð rækilega i dag-
blöðum og útvarpi, svo og með
sérstöku kynningarbréfi til hlut-
aðeigandi stofnana. Siðan hefur
verið látið við það sitja að gefa út
upplýsingabæklinga, sem sendir
eru til heilsugæslustöðva, fæð-
ingarstofnana og fleiri staða.
Leitast hefur verið við að benda
umsækjendum á rétt föður um
leið og tekið er við umsókn, jafn-
framt þvi sem upplýsingabæk -
lingar eru öllum tiltækir.
— Lita menn etv. á þetta sem
ölinusu eða er sá hugsunarháttur
að breytast?
— Ég hef ekki orðið vör við að
umsækjendur liti á fæðingarorlof
sem ölmusu. Mér virðist sá hugs-
unarháttur vera algengari hjá
eldri kynslóðinni en hjá þeirri
yngri, sagði Þorgeröur
Benediktsdóttir lögfræðingur hjá
Tryggingastofnun rikisins i sam-
tali við Þjóðviljann að lokum.
leikarar koma við sögu Al-
mannaróms, auk sjálfs söng-
flokksins.
Þetta er i fyrsta sinn sem
verkalýðssamtökin á Islandi
ráðast i útgafu á hljómplötu, en
þess er aö vænta aö framhald
verði á sliku, ekki sist ef mót-
tökur veröa góðar.
Þá má geta þess að út er kom-
in á vegum MFA söngbókin
„Syngjum” sem hefur að
geyma liðlega 300 sönglög og
kvæöi, ný og gömul. Ætla má að
ekki hafi áöur komiö út jafn
efnismikil söngbók, en hún
skiptist i nokkra kafla og er
myndskreytt af Sigurði Þóri
Sigurðssyni myndlistarmanni.
Aðalsteinn Asberg Sigurðsson
valdi efni bókarinnar og sá um
útgáfuna.