Þjóðviljinn - 12.05.1982, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
Miðvikudagur 12. mai 1982 —106. tbl. 47. árg.
. Þjóðviljinn 28 síður á morgun:
' Blaðauki um Breiðholt !
■
L™
12 siöna blaðauki fylgir Þjóðviljanum á morgun.helgaður Breiö-
holti og ibúum þess. Þar kennir margra grasa, m.a. er viðtal við
einn af frumbyggjendum i Asparfelli, grein um aukna þjónustu SVR
við ibúana, viðtal við formann Framfarafélags Breiðholts III,
spjallað við Alfheiði Ingadóttur um friðun Elliðaárdals o.fi. Þá er
forstöðukona dagvistarheimilis heimsótt, i þróttasvæðið i S-Mjódd •
rækilega kynnt og fjöldi mynda auk annars efnis er i þessum blaö- *
aukaum Breiðholt.
J
Nú er ætlunin að leggja áherslu
á uppbyggingu 14 heilsugæslu-
stöðva hér á höfuðborgarsvæðinu,
sagði Svavar Gestsson á blaða-
mannafundi i gær þarsem fjaliað
var um heilbrigðismál i borginni.
Frá árinu 1973 hefur verið lögð
sérstök áhersla á uppbyggingu
heiisugæslustöðva úti á landi
samkvæmt lögum um það efni.
Nú hins vegar hefur verið unnið
ötullega að þvi að breyta kerfinu
hér i Reykjavik frá heimilis-
læknakerfinu yfir I heilsugæslu
stöðvar þarsem alhliða heils-
brigðisþjónusta verður Iboöi.
Áhersla lögð á
uppbyggingu
heilsugæslu-
stöðva á höfuð-
borgarsvæðinu
A fundinum meö heilbrigðisráðherra I gær
Samkomulag í
grundvallaratrið-
um um þróun
heilsugæslu-
kerfisins milli
ríkis og borgar
Svavar sagði að samkvæmt til-
lögum Heilbrigðisráðs borgarinn-
ar, og sem ráðuneytið fyrir sitt
leyti hefði samþykkt, væri gert
ráð fyrir þvi að um 12 heilsu-
gæslustöðvar risu hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Þrjár heilsu-
gæslustöðvar hafa nýlega tekið til
starfa i Árbæjarhverfi 1977.
Breiðholti 1978 og Fossvogi 1980.
Væntanlega er heilsugæslustöð á
12 heilsugæslustöðvar
Seltjarnarnesi. Ragnar Arnason
hefur verið formaður nefndar
sem undirbúið hefur að nokkru
leyti nýja kerfið sem á að taka við
1. okt. nk. Nefndin hefur náð sam-
komulagi við læknasamtök og
skylda aðilja um flesta þætti
þessa máls. Starfandi heimilis-
læknar skulu fá forgangsrétt að
stöðum i heilsugæslustöðvum,
þeim er tryggður lifeyrir og auk
þess gerir nefndin ráð fyrir að
rikið og Reykjavikurborg geri
með sér samkomulag vegna
kostnaðarauka við nýja kerfið.
—óg
Holræsakostnað-
ur á Rauðavatns-
svæðinu
véfengdur:
Útreflaiings-
mistök sem
áróðurs-
efni
Markús örn Antonsson
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins hefur sjálfur sem
fulltrúi I framkvæmdaráöi
borgarinnar beðið um
könnun á þvlhvort rétt sé að
kostnaður viö holræsagerö á
Rauðavatnssvæöinu yrði 50
til 60 miljónum krónum
meirien ef fariö væri að hug-
myndum Sjálfstæðismanna i
skipulagsmálum. Fram-
kvæmdaráð véfengdi á fundi
sinum sl. fimmtudag þessa
útreikninga og skrifaði
Markús örn undir bókun þar
að lútandi. Samt sem áður
slær hann um sig með
þessum tölum i sjónvarpi,
sem m.a. byggja á þeirri for-
sendu að væntanlegir ibúar
Rauðavatnssvæðisins muni
láta frá sér meira af úrgangi
en meðal-Reykvikingur
hefur hingað til verið álitinn
gera I forsendum holræsaút-
reikninga.
A fundi framkvæmdaráðs
5. mai var lagt frám
kostnaðaryfirlit Almennu
verkfræðiskrifstofunnar •
h.f. varðandi holræsi á
Rauðavatnssvæðinu, sem
það hafði gert á grundvelli
uppiýsinga frá borginni.
Helgi G. Samúelsson
fulltrúi Alþýðúbandalagsins
benti á að hönnunarfor-
sendur væru ekki réttar.
Frárennsli frá hitakerfum
húsa væri áætlað allt að
þrisvar sinnum meira en
venja er að reikna með á hol-
ræsadeild borgarinnar.
Þá væri ekki gengið út ffá
samþykktu aöalskipulagi
austursvæöanna þegar
skolpmagn væri reiknað út
frá fjölda ibúa á Ibúð og
fjölda ibúða á hektara.
Einnig væri reiknað með
miðlungs vatnsfrekum
iðnaði, sem skipulagstil-
lagan gerir ekki ráð fyrir að
sé á svæðinu.
Mannlifiö hefur heldur breytt um svip hér á
höfuöborgarsvæöinu frá því i síðustu viku/
þegar fry^ti flestar naetur. S.l. sunnudag
komst hitinn hér í 12 stig og siöan hefur
hann verið um 10 stig. Gróður hefur þegar
tekið heilmikið við sér og krakkarnir
komnír út á tún með bolta og sippubönd.
Þessi strákur Í Iþróttafélagi Kópavogs
hefur brett upp ermarnar og skallar
boltann af mikílli list. Ljósm. eik
Kjarasamningamir;
Sami leikur!
og í haust? j
Eftir 2ja tlma samnúiga- '
Ifund hjá rikissáttasemjara i
gær voru menn á þvi að eitt-
hvab lægi i loftinu og höfðu
það fyrir sér að sáttasemjari
Iboðaði nýjan sáttafund kl. 9 á
föstudagsmorgunn og baö
menn vera viðbúna þvi að
það yrði langur fundur og öll
Ihelgin færi i hann. Þeir sem
Þjóðviljinn ræddi við sögðust
ekki vita hvað um væri að
vera, en höituöust helst aö
þvl að endurtaka ætti leikinn
frá því i nóvember að bjóða
verkalýðshreyfingunni uppá
stuttan samning, jafnvel
Iaðeins til hausts og þá um
leið litla kauphækkun.
1 gær var ákveðiö aö i dag
kæmu fulltrúar Verka-
Imannasambandsins til
fundar en á morgun yröi
kallað á fulltrúa frá Lands-
sambandi verslunarfólks,
Landssambandi iönverka-
fólks, Málm og skipasmiða-
sambandsins, alla hópa
byggingamanna, starfsfólks
Iá veitingastöðum og Iðn-
nemasambandsins. A
þessum fundum gr fyrir,-
hugað að ræöa sérkröfur
* sambandanna. Þá er einnig
fyrirhugaöur fundur meö
Bókagerðarmönnum i dag,
en eins og flestir vita standa
þeir utgn ASI. — S.dór
G-listar í 21 kaupstað á landinu
Konur í l.og2.sætí
G-lista á 16 stöðum
Konur í fram-
boði 1974,
1978 og 1982
Sjá opnu
Alþýðubandalagiðbýöur fram
G-Iista í 21 af 22 kaupstööum
landsins. I 16 af 21 G-Iista um
landið allt eru konur I 1. og 2.
sæti. Heildarhlutfall kvenna á
G-listum i kaupstöðum iandsins
er 40% en 38% I efstu tveimur
sætunum.
A A-listum, listum Alþýðu-
flokksins, i kaupstöðum eru 9
konur, i 1. og 2...,sæti. Heildar-
hlutfall kvenna á A-listum i
kaupstööum er 31% en 26% i
efstu tveimur sætunum.
A B-listunum, listum
Framsóknarflokksins, i kaup-
stöðum eru 5 konur i 2. sæti.
Heilarhlutfall kvenna á B-list-
um er 28% en aöeins 12% á efstu
tveimursætunum.
A D-listum, listum Sjálf-
stæðisflokksins i kaupstöðum
eru 4 konur i 1. eöa 2. sæti.
Heildarhlutfallið er 28% eins og
hjá Framsókn, en hlutfall
kvenna I efstu tveimur sætunum
á D-listum er lægst, eða aðeins
11%.
A þremur G-listum i kaup-
stöðum eru konur i 1. sæti á ein-
um D-lista og einum A-lista, en
engum B-lista.
Konur i 1. og 2. sæti á G-listum
i kaupstöðum eru þessar:
Adda Bára Sigfúsdóttir, 2.
sæti Reykavik, Heiðrún Sverris-
dóttir 2. sæti Kópavogi, Guðrún
K. Þorbergsdóttir 1.. sæti Sel-
tjarnarnesi, Albina Thordarsen
2. sæti Garðabæ, Rannveig
Traustadóttir 1. sæti Hafnar-
firði, Alma Vestmann 2. sæti
Keflavik, Ester Karvelsdóttir
2 sæti Njarðvik, Ragnheiöur
Þorgrimsdóttir 2. sæti Akra
nesi, Þóra Hansdóttir 2. sæti
Bolungarvik, Þuriður Péturs-
dóttir 2. sæti ísafirði, Marta,
Bjarnadóttir 2. sæti Sauðár-
króki, Svanfriður Jónasdóttir 1.
sæti Dalvik, Sigriður Stefáns-
dóttir 2. sæti Akureyri, Jóhanna
Aðalsteinsdóttir 2. sæti Húsa-
vik, Elma Guðmundsdóttir 2.
sæti Neskaupstað, Kolbrún
Guðnadóttir 2. sæti Selfossi.-ekh