Þjóðviljinn - 12.05.1982, Síða 2

Þjóðviljinn - 12.05.1982, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. mai 1982 viötaliö Rætt við Magnús Erlingsson formann Sigluness: Siglingar eru hættu- lítil íþrótt „ Ég er nú búinn að vera í þessu í ein 10 ár og þann tíma hefur ekkert alvar - legt slys orðið í starf - semi okkar", sagði AAagnús Erlingsson for-| maður siglingaklúbbsins Sigluness sem í sumar. gengst fyrir fjöldamörg- um námskeiðum fyrir áhugamenn um siglingar. „Ég held mér sé óhætt aö full- yröa aö öryggis sé gætt í hvi- vetna. Viö erum meö 2 hraöbáta i gæslu, brýnum fyrir þeim sem siglingarnar stunda aö klæöa sig vel og vera vel búna aö ööru leyti. Björgunarvesti má t.d. aldrei vanta. Seglbátarnir eru þannig úr garöi geröir, aö þó þeim hvolfi, þá fljóta þeir eftir sem áöur og þegar þeim hvolfir erum viö fljótir aö koma á staö- inn”, sagöi Magnús. Magnús sagöi ennfremur aö aösóknin i námskeiðin væri mikil, en meirihluti þeirra sem þau sækja væru börn. Þó væri Siglunes með námskeiö fyrir fjölskyldur og fulloröna. Þaö er ekki alltaf fariö út á sjó á þess- um námskeiöum. Veöur eru vá- lynd og þegar eigi blæs byrlega eru krakkarnir hafðir inni við; oftsinnis eru kvikmyndasýn- ingar, leikir og ýmiskonar fræösla. Þá er oft fariö meö krakkana i ferðir á hraðbátum þeim sem klúbburinn hefur yfir aö ráöa. Starfsemin er blómleg og fer vaxandi. — hól. Rit um landbúnað Fyrir skömmu kom út á vegum Upplýsingaþjónustu landbún- aöarins smárit um landbúnaö á tslandi. Er þar aö finna upplýs- ingar um flesta þætti landbún- aöarframleiöslunnar. Upplýs- ingar eru um fjölda jaröa og flokkun búa eftir bústærö. Gefiö er yfirlit um vélvæöingu f land- búnaöi og húfjárfjölda. Margan fleiri fróölcik er þarna aö finna. Bæklingur þessi getur komið sér vel fyrir nemendur i skólum landsins vilji þeir vinna aö ritgerð um þróun landbúnaöarins. Hann er og ákjósanlegur fyrir leiösögu- menn, sem feröast innanlands með erlendum feröamönnum. Þeir sem vilja geta fengiö þetta fróðlega smárit gefins hjá Upp- lýsingaþjónustu landbúnaöarins ef þeir lita þar inn eöa hringja. Verður ritiö þá afhent og sent hvert á land sem er. Simi Upplýsingaþjónustunnar er 20025 og hún er til húsa i Bændahöllinni. — mhg Úr galdraskræðum m-ntfhthi- ftmrmf-h n ■m fi- rwk-WKH mw- í&T o L&éiS /yioAcu ~ 'Pt&t', 'Murt fo^ ti Breski herinn i sókn. Svínharður smásál Eftir Kjartan Arnórsson Fugl dagsins Dvergsnípa Minnst af hinum eiginlegu snipum. Eigi ósvipuö hrossa- gauk en auðgreindust frá hon- um á smæöinni og mun styttra nefi. Flýgur auk þess hægar og beinna en hrossagaukur. Var um sig og flýr ekki felustað sinn fyrr en allt annað þrýtur. Undir slikum kringumstæöum lætur dvergsnipan sig falla til jarðar mjög fljótlega, hrossagaukur- inn á hinn bóginn flýgur i hlykkjóttu óöagotsflugi. Fer mikiö einförum. Röddin meö þeim hætti á biðilsflugi aö einna er lfkust niöurbældum trumbuslætti eöa hófadyn hesta á trébrún. Kjör- lendi hiö sama og hrossagauks. Verpir I mýrum og flóum. Flæk- ingur á Islandi. Rugl dagsins: Kærleiksblómin spretta Ég ætla aö láta ykkur vita þaö aö Bjarni er ekki i Sjálfsfróun lengur. Þessi aumingi var rek- inn, enda var hann falskur, frekur og leiöinlegur. Helgarpósturinn. Reiðskól- inn í Saltvík i ár sem undanfarin ár verður starfræktur í Saltvik á Kjalar- nesinu reiöskóli sem Æskulýös- ráö Reykjavikur og Hesta- mannafélagiö Fákur standa fyrir. Skólinn hefst 1. júni og lýkur starfssemi hans 20. ágúst. Lengd hvers námskeiðs er 2 vikur, aldur er ákveöinn 8—14 ára og þátttökugjald ýmist 900 eða 1000 krónur. 1. námskeiðiö hefst 1. júni og stendur til 11. júni. 2. námskeiöiö hefst 14. júni og stendur til 25.júni og þannig koll af kolli. Fyrirkomulag námskeiðanna er með þeim hætti að hver hópur fer frá Reykjavik að morgni dags kl. 8.20. Reiöskóli er frá kl. 9 .15—10,45, 10.45—12.15, 13,00—14,30, og 14.30—16.00. Komið er til Reykjavikur kl. 17.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.