Þjóðviljinn - 12.05.1982, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. mai 1982
F j ölbrau t arsk ólinn
Breiðholti
INNRITUN í FJÖLBRAUTASKÓLANN i
BREIÐHOLTI fer fram i Miðbæjarskól-
anum i Reykjavik dagana 1. og 2. júni
næstkomandi kl. 9.00—18.00 svo og i húsa-
kynnum skólans við Austurberg dagana 3.
og4. júni á sama tima. Umsóknir um skól-
ann skulu að öðru leyti hafa borist skrif-
stofu stofnunarinnar fyrir 7. júni.
Þeir sem senda umsóknir siðar geta ekki
vænst skólavistar. Fjölbrautaskólinn i
Breiðholti býður fram nám á sjö náms-
sviðum og eru nokkrar námsbrautir á
hverju námssviði. Svið og brautir eru sem
hér segir:
Almennt bóknámssvið (menntaskóla-
svið). Þar má velja milli sex námsbrauta
sem eru: Eðlisfræðibraut, Félagsfræði-
braut, Náttúrufræðibraut, Tónlistarbraut,
Tungumáiabraut og Tæknibraut.
Heilbrigðissvið: Tvær brautir eru fyrir
nýnema: Heilsugæslubraut (til sjúkra-
liðaréttinda) og Hjúkrunarbraut, en hin
siðari býður upp á aðfaranám að hjúkrun-
arskólum.
Ilússt jórnarsvið: Tvær brautir verða
starfræktar: Matvælabraut I er býður
fram aðfaranám að Hótel- og veitinga-
skóla islands og Matvælabraut II er veitir
réttindi til starfa á mötuneytum sjúkra-
stofnana.
Listasvið: Þar er um tvær brautir að
ræða: Myndlistabraut bæði grunnnám og
framhaldsnám svo og Handmenntabraut
er veitir undirbúning fyrir Kennarahá-
skóla islands.
Tæknisvið: (Iönfræðslusvið) Iðnfræðslu-
brautir Fjölbrautaskólans i Breiðholti eru
þrjár: Málmiðnabraut, Rafiðnabraut og
Tréiðnabraut. Boðið er fram eins árs
grunnnám, tveggja ára undirbúnings-
menntun að tækninámi og þriggja ára
braut að tæknifræðinámi. Þá er veitt
menntun tii sveinsprófs i fjórum iðngrein-
um: Húsasmiði, rafvirkjun, rennismiði og
vélvirkjun. Loks geta nemendur einnig
tekið stúdentspróf á þessum námsbraut-
um sem og öllum 7 námssviðum skólans.
Hugsanlegt er, að boðið verði fram nám á
sjávarútvegsbraut á tæknisviði næsta
haust ef nægilega margir nemendur sækja
um þá námsbraut.
Uppeldissvið: Á uppeldissviði eru þrjár
námsbrautir i boði. Fóstur- og þroska-
þjálfabraut, iþrótta- og félagsbraut og
loks menntabraut, er einkum tekur mið af
þörfum þeirra er hyggja á háskólanám til
undirbúnings kennslustörfum, félagslegri
þjónustu og sálfræði.
Viðskiptasvið: Boðnar eru fram fjórar
námsbrautir: Samskipta- og málabraut,
skrifstofu- og stjórnunarbraut, verslunar-
og sölufræðabraut og loks læknaritara-
braut. Af þrem fyrrnefndum brautum er
hægt að taka almennt verslunarpróf eftir
tveggja ára nám. Á þriðja námsári gefst
nemendum tækifæri til að ljúka sérhæfðu
verslunarprófi i tölvufræði, markaðsfræð-
um og sölufræðum. Læknaritarabraut
lýkur með stúdentsprófi og á hið sama við
um allar brautir viðskiptasviðs.
Nánari upplýsingar um Fjölbrautaskól-
ann i Breiðholti má fá á skrifstofu skólans
að Austurbergi 5, simi 75600. Er þar hægt
að fá bæklinga um skólann svo og Náms-
visiF.B.
Skólameistari
Áttræður í dag
lón Sigurðsson
fyrrverandi formaður Sjómannasambands fslands
Jtín Sigurðsson, fyrrverandi
formaður Sjómannasambands
íslands, erindreki Alþýðusam-
bands tslands og framkv. stj.
þess um mörg ár og forustu-
maður i verkalýðshreyfingunni i
meira en hálfa öld á áttatiu ára
afmæli i dag.
Ég vil setja hér á blað örfáar
iinur i tilefni þessara ti'mamóta í
Bætt kjör sjómanna voru Jóni
ávallt hjartans mál. Hann þekkti
af eigin raun vel til þess
aðbúnaðar og starfsaðstöðu er
sjómenn áttu við að búa
áratugum saman. Hann beitti sér
af einbeit ni fyrir stofnun Sjó-
mannasambandsinS árið 1957 og
var strax kosinn formaður þess
og ávallt endurkosinn til 1975 að
lifi Jóns, svo mikil samskipti hefi
ég átt við hann, allt frá fyrstu
starfsárum minum i' verkalýðs-
hreyfingunni, allt til þess að hann
lét af formennsku i Sjtímanna-
sambandi Islands árið 1975.
Ekki er það þtí svo að við Jón
höfum ávallt verið samsiða i
gegnum árin og áratugina i
verkaiýðsmálabaráttunni. Ég
man Jón ungan og vigreifan,
jakkalausan á skyrtunni á
alþýðusambandsþingum i — and-
skotaflokkinum miðjum —eins og
Þorsteinn Erlingsson orðaði það,
þegar hann þing eftir þing var i
þeim armi þingsins, sem ég
barðist gegn.
Ég man Jón lika, og ekki siður,
sem samherja og málefnalegan
samstarfsmann, og þá ekki sist
hin siðari ár hans, sem formann
i Sjómannasambandi Islands. En
mest og best man ég Jón sem
starfsmann og erindreka Alþýðu-
sambands Islands, — man hann
sem góðan gest á fundum og
ferðalögum viðsvegar um landið,
gefandi upplýsingar, ráð og til-
sögn, sem á þurfti að halda á
hverjum stað. Þá var hann
ráðgjafinn, sem öllum félögum
þjónaði jafnt i hvaða armi eða
sellu forustumenn og félögin voru
talin.
Jón var ávallt sterkur
baráttumaður og vigfimur vel i
þeim hörðu átökum, sem oft urðu
á fyrri starfsárum hans i verka-
lýðshreyfingunni. Vist er um það
að á þeim árum og raunar lengst
af var Jón mjög umdeildur, svo
hefur og oft verið um þá, sem i
forustu hafa staðið.
hann gaf ekki lengur kost á sér.
Jón var einnig ritari og formaður
Sjómannafélags Reykjavikur
árum saman. Jón taldi mikla
nauðsyn á stofnun Sjómannasam-
bandsins, ekki sist vegna þess að
kjörsjómanna voru að ýmsuleyti
i sérflokki, þegar hinir almennu
kjarasamningar voru til
meðferðar. Þá urðu ósjaldan
útundan i samningalotunum
ýmisleg hagsmunamál
sjómanna. Kannske kom oft og
tiðum lika til erfið aðstaða
starfandi sjómanna til að vera
virkir i samningagerðinni og Jón
þvi oft liðfár i' allsherjarsamn-
inganefndunum af samherjum úr
sjómannastétt.
Með stofnun Sjómannasam-
bandsins breyttist þetta mjög til
batnaðar. Sjómannasambandið
tók i sinar hendur sérkjaramál
stéttarinnar. Sambandið varð
fljótlega, undir forustu Jóns, af-
gerandi aðili i samningum fyrir
sjómenn, og fjölgaði félögum i
sambandinu strax á fyrstu árun-
um sem gerði það að verkum að
Sambandið náði fram mjög mik-
ilvægum atriðum inn i kjara-
samninga sjómanna.
En þtí kjaramál verkalýðs-
hreyfingarinnar hafi verið snar
þáttur i starfi Jóns i gegnum árin
gegndi hann jafnframt mörgum
opinberum stik-fum, átti sæti i
mörgum stjórnskipuðum neftid-
um. Hann gegndi um tima fram-
kvæmdastjórastarfi félags sér-
leyfishafa, forstjórastarfi inn-
flutningsskrifstofunnar, skrif-
stofust jóra starfi verðlagsskrif-
stofunnar, endurskoðandi sildar-
verksmiðju rikisins ofl. ofl. Þessi
upptalning sýnir að Jón hefir not-
ið verðugs trausts og verið sam-
kvæmt þvi valinn til margskonar
ábyrgðarstarfa.
Kona Jóns er Jóhanna
Guðmundsdtíttir frá Seyðisfirði.
Mikilhæf og góð kona, sem verið
hefir Jtíni styrk stoð i hans marg-
þættu viðangsefnum. Á heimili
þeirra að Kvisthaga 1 er gott að
koma. Þar er mótttakahlý, sam-
ræður og viðdvölin ávallt
ánægjuleg.
Nú er Jón á áttræðisafmælinu ,
sestur að mestu i helgan stein.
Kraftur æskuáranna að sjálf-
sögðu nokkuð þorrinn. Vonir
æskuáranna um bætt lifskjör
verkafölks i landi okkar margar
orðnar að veruleika, þó sumar
hafi ekki ræst, eins og gengur og
gerist á veðrasamri veraldar-
göngunni. Vissulega getur Jón lit-
ið yfir farinn veg ævistarfsins
með rósemi þess manns, sem
skilað hefir hlutverki sinu með
sóma.
Þegar sóltekur að siga að Ægi á
ævibrautinni eru minningarnar
sá fjársjóður sem geymist og
varðveitist meðan vitund vakir.
Þar er af miklu að taka hjá Jóni,
svo fjölþætt og umfangsmikið er
það starf, sem hann hefur af
hendi leyst á langri og oft
stormsamri ævigöngu.
Ég óska þess að ævikvöldið
verði Jóni og Jóhönnu bjart og
gæfurikt og færi þeim þakkir
minar fyrir vinsemd og ánægju-
leg kynni.
Björgvin Sigurðsson,
Stokkseyri.
Hvað ná
margar
konur
kosningu?
Kvenréttindafélag tslands
verður með kosningagetraun f til-
efni sveitarstjórnarkosninganna
22. mai n.k.
Þátttakendur munu geta upp á
fjölda kvenna, er ná kosningu i
Reykjavik, á Akureyri og á land-
inu öllu. Eingöngu er miðað við
úrslit á þeim stöðum þar sem kos-
ið verður 22. mai 1982.
Getraunaseðlarnir, sem kosta
10.00 kr. eintakið, munu verða til
sölu hjá félagsmönnum, og á
fundum sem tengjast kosningun-
um, s.s. á fundi KRFl meö kven-
frambjóðendum i Reykjavik og á
framboðsfundum stjórnmála-
flokkanna.
Upplag miðanna er 6.000 eintök,
og er vinningshlutfall 40% af and-
virði seldra miða.
Ritarl
Utanrikisráðuneytið óskar að ráða ritara
til starfa i utanrikisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu i ensku og
a.m.k. einu öðru tungumáli, auk góðrar
vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun og starf i utanrikisráðuneyt-
inu má gera ráð fyrir að ritarinn verði
sendur til starfa i sendiráðum íslands er-
lendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
utanrikisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,105
Reykjavik, fyrir 22. mai 1982.
Utanrikisráðuneytið.
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
wm—-n&i
REYKJAVÍKURVEGI 25 Hafnarfirði sími 50473