Þjóðviljinn - 02.06.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. júni 1982
Miövikudagur 2. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Tii vinstri á myndinni eru húsin HliöogGrund þar sem m.a. veröur gist, en viö þau eru stúrar grasflatir meö trjágrúöri.
Litið við á
Laugarvatni
t Héraösskúlanum veröa höfuöstöövarnar m.a. setustofa, samkomu-
salur og matstofan.
A fimmtudaginn var fóru tiö-
indamenn Þjóðviljans ásamt
Baldri Óskarssyni framkvæmda-
stjóra Alþýðubandalagsins til
viðræðna við Laugdæli um undir-
búning á Laugarvatni og i vett-
vangskönnun á staðnum. Höfuð-
stöðvarnar verða i Héraðsskólan-
um þaðan sem göngustigur liggur
upp i hliðina að styttu Hriflu-Jón-
asar guðföður skólans. 1 þessu
stilhreina og fallega húsi sem á
sér mikla sögu verður matast og
haldnar kvöldvökur, auk þess
sem þar er gistirými fyrir þrjátiu
manns. Auk þess verður gist i
húsunum Mörk, Hlið og Grund
sem tilheyra skólanum. Þegar
okkur bar að garði i Héraðsskól-
anum voru skólanemar rétt ný-
farnir og tiltekt og vorlagfæring
að hefjast. Rúnar Hjaltason bryti
skólans tók á móti okkur, en hann
hefur undanfarin sumur haldið
uppi rausn á staðnum m.a. fyrir
Húsmæðraorlof sem þarna hefur
aðsetur ár eftir ár.
Rúnar leiddi okkur um sali og
lýsti aöbúnaði væntanlegra gesta
á vegum Alþýðubandalagsins. í
skólahúsinu verður innréttuð
vistleg setustofa, svo og sam-
komusalur, en matast verður i
matsal skólans. Hið alþekkta
Gufubað er skammt undan með
öllum sinum kostum og sundlaug
i húsnæöi áföstu við skólann, en
innifaldiriverði fyrir vikudvöl eru
m.a. tveir aðgöngumiðar að
sundlauginni og tveir i gufubaðið,
en viljimenneins ogmargir gera,
stunda frekara hreinlæti gera
þeir það á eigin kostnað.
Við ræddum við Rúnar um
kostinn og sagði hann að i verðinu
(1725 fyrir fulloröinn, lOOOfyrir
6—12 ára og 200 fyrir 0—6 ára)
fælust morgunmatur, hádegis-
matur, miðdegiskaffi, kvöldmat-
ur og kvöldkaffi. Hann sagðist
vera með hversdagslegan mat,
gjarnan fisk i hádegi og kjöt að
kvöldi með góðu grænmeti. Ekki
væri þjónustað til birös nema eitt
kvöld i hvorri viku en þá væri
geröur dagamunur og haft meira
við I mat. Sfldarborð og silungur
væru meöal þess sem skreytti
matseöilinn.
Eftir góðar viðtökur hjá Rúnari
bryta og Benedikt Sigvaldasyni
skólastjóra lá leiðin i Miðdal, þar
sem býr Birkir Þorkelsson kenn-
ari og bóndi, kunnur sósialisti þar
um slóðir, og kona hans Bryndis
Gunnlaugsdóttir. Birkir veröur
helstur tengslamanna Alþýðu-
bandalagsins i Laugardal i sumar
og hafði margt til að leggja um
dagskrá sumarfris og samveru
A Völlunum fyrir neðan Héraðsskúlann er gúð aðstaða til hverskonar iþrúttaiðkunar og
leikja.
Þessi innisundlaug var gerð af nemendum Héraðsskúlans á sinni tlð og stendur enn
fyrir slnu.
Birkir Þorkelsson i Miðdal, Elva dúttir hans og Baldur óskarsson skeggræða um skipulag Laugarvatns-
dvalar.
Óskar ölafsson kennari stakk upp á ökuferö að
Illöðufelli og þaðan Linuveg meðfram Skjaldbreiöi.
Hreinn Ragnarsson kennari verður i húpi heima-
manna sem segja þátttakendum deili á landi og
sögu i kringum Laugarvatn.
Kirkjan i Miödal sem kallar á málningu.
Hér sést yfir á vatniö og er gufubaðiö«em gestir á Laugarvatni gera sér tiðförult,til hægri á myndinni.
Eins og auglýst hefur verið i Þjóðviljanum efnir
Alþýðubandalagið til sumarfris og samveru að
Laugarvatni siðari hluta júlimánaðar. Þar er ætl-
unin að vista tvo 80 manna hópa viku i senn. Fyrir
siðustu helgi voru rúmlega 40 manns búnir að láta
skrá sig til dvalar að Laugarvatni fyrri vikuna, frá
19. til 25. júli, og rúmlega 50 siðari vikuna, frá 26.
júli til 1. ágúst. Af áhuganum má ráða að uppselt
verði innan tiðar.
Alþýðubandalagsmanna á Laug-
arvatni.
Bar nú margt á góma svo sem
morgunleikfimi, garðveislur með
þátttöku Laugdæla, gönguleiðir,
rútuferöir, merkisstaðir að skoða
og nauðsyn þess að mála kirkjuna
i Miðdal. Auðvitað var yfir salt-
keti og baunasúpu margt spjallað
annað svo sem úrslit kosninga og
upphefð Andropovs KGB-for-
stjóra austur i Sovét, en það er
önnur saga. En um það varð að
endingu algjört samkomulag i
stofu þeirra hjóna Birkis og Bryn-
disar að hentugri stað fyrir starf-
klukkustundum að Hlöðufelli og
þaðan eftir troðningum á svokall-
aðan Linuveg meðfram Skjald-
breiði og yfir á Uxahryggjarleið.
Leist viðstöddum á að þetta væri
fáfarin og sérkennileg leið sem
öllum þætti fengur af að komast.
A heimleið frá Laugarvatni var
úr nógum hugmyndum að moða.
Baldur Óskarsson segir að mein-
ing skipuleggjenda sé að útbúa
dagskrá fyrir hvora vikuna sem
sé allt i senn fjölbreytt, vönduð og
sveigjanleg. „Það á að vera mik-
ið rúm fyrir frumkvæði og hugar-
flug þátttakenda sjálfra svo og
Rúnar Hjaltason bryti hugar að húsgögnum I herbergi I Héraösskúl-
anum, en þar stendur nú yfir undirbúningur fyrir sumarstarfsemina.
semi, af þvi tagi sem Alþýöu-
bandalagiö ráðgerir á Laugar-
vatni i júli væri ekki hægt að
finna. Möguleikarnir til útiveru
og allskonar annarra athafna
hvernig sem viðrar eru slikir á
Laugarvatni að á betra verður
ekki kosið.
Frá Miðdal lá leiðin aftur i Hér-
aðsskólann og nú á kennarafund,
það er að segja til þess að ræða
við þá Óskar Ólafsson og Hrein
Ragnarsson, staðarkennara og
sagnfræðinga, og konu hins fyrr-
nefnda Margréti Gunnarsdóttur.
Hrein gripum við glóðvolgan á
leiðinni og er okkur bar að garði
var Oskarað koma heim úr gróð-
ursetningu. Þeir Hreinn og Óskar
tóku vel i þá málaleitan að segja
aökomufólki allt af létta um sögu
staðarins og leiðbeina þvi á
styttri ferðalögum út frá honum.
Fleiristaðarmenn voru tilnefndir
og verður vonandi hægt að fá þá
til liðs við að tengja saman land
og sögu i nágrenni Laugarvatns.
Eins og i Miðdal var margt rætt
um hvað aðkomumenn ættu að
hafa fyrir stafni vikulangt að
Laugarvatni. Nú brestur blaða-
mann staðarþekking til þess að
fara nákvæmt með, en þeir sem
koma með á Laugarvatn munu
verða leiddir i allan sannleika.
Mælt var með gönguferðum upp-
úr Gullkistu og þaðan yfir Fagra-
dal og niður hjá Snorrastöðum,
frá Laugarvatni inn i Stóragil og
að Trúlofunarhrislunni, fram
með vatninu og fleira i þessum
dúr. Þá var stungið upp á bilferð
um Biskupstungur með viðkomu i
ylræktarverum og á fyrirmynd-
arbúum eða upp að Hlöðufelli,
sem ku vera ákaflega fögur og
sérkennileg leið. Upp úr þeim
umræðum spratt sú hugmynd að
vel mætti fara á svo sem eins og 5
fyrir afslöppun og einveru i sam-
verunni.” Ætlunin er að hvor
hópur velji úr dagskráratriðum
og raði niður á vikuna i grófum
dráttum þegar komið er á stað-
inn, en siðan verði dagskráin fyr-
ir hvern dag negld niður við
morgunverðarborðið i samræmi
við veðurfar og lundarfar.
Undirbúningur að kvöldvökum
og gestakomum er að hefjast
þessa dagana og verður það allt-
saman auglýst siðar i Þjóðviljan-
um.
Rétt er að geta þess hér að
frestur til að panta og staðfesta
pöntun á vikudvöl að Laugarvatni
i sumar á vegum Álþýðubanda-
lagsins rennur út 15. þessa mán-
aðar og er væntanlegum þátttak-
endum gert að greiða fjúrung
dvalarkostnaðar fyrir þann tima
til staðfestingar ásetningi sínum
að koma með á Laugarvatn.
„Við vorum einstaklega heppin
að geta hafið starfsemi af þessu
tagi á Laugarvatni, þvi þar er allt
sem þarf til þess að láta hana tak-
ast vei”, sagði Baldur óskarsson
eftir skoðunarferðina þangað.
Að endingu viljum við gauka
þvi að væntanlegum þátttakend-
um að taka með sér Sturlungu á
Laugarvatn, og fara þangað vel
sofin þvi starfsfólk heldur þvi á-
kveðið fram að hvergi sé morg-
unfríðara og kvöldfegurra en þar,
og mönnum þvl ekki svefnrótt um
sumarnætur hafi þeir auga fyrir
sliku.
Hver heldur fram sinni heima-
byggð, en það er eins gott að vera
við öllu búin. —ekh
Ljósm. eik