Þjóðviljinn - 15.06.1982, Side 1
Þriðjudagur 15. júni—133. tbl. 47. árg.
„Sá ótti ætti þá
að vera úr sögu”
segir Benedikt Davíðsson formaður
Sambands byggingamanna
„Nær tffl
um 90%
byggingar-
manna”
— segir Grétar
Þorsteinsson
formaður
Trésmiðafélags
Reykjavíkur
„Þessi samningur sem hefur
verið gerður við Meistarasam-
band byggingamanna nær til að
minnsta kosti 90% iðnaðarmanna
i byggingaiðnaðinum og hann
verður lagður fyrir félögin I
kvöid. Þangað til þau hafa fjallað
um efnisatriði sainningsins, vil ég
ekkert um þennan samning tjá
mig”, sagði Grétar Þorsteinsson
formaður Trésmiðafélags
Reykjavikur að loknum trúnað-
armannaráðsfundi trésmiða i
gær.
Við spurðum Grétar Þorsteins-
son hver hafi verið aðdragandi
þess að samkomulag náðist:
„Eftir hinn einkennilega mála-
tilbúnað atvinnurekenda i siðustu
viku um að við værum með samn-
ing við meistara i burðarliðnum,
ákváðum við að láta á það reyna
hvort samkomulag gæti tekist. 1
framhaldi af þvi fengum við efn-
isleg svör frá okkar viðsemjend-
um og smám saman leiddi þetta
til þess að samningar tókust. Þá
er auðvitað hitt að skæruverkföll-
inogaðgerðirnará fimmtudag og
föstudag hafa haft talsverð áhrif
enda þátttaka okkar félagsmanna
með ágætum i þeim aðgerðum.
Við eigum að baki 5 daga vinnu-
stöðvun i þessari deilu og á þeim
spennutimum sem alltaf eru á
þessum árstima i byggingariðn-
aði, er ljóst að það hefur haft sitt
að segja”.
Er það rétt að breytingar á
reiknitölu ákvæðisvinnunnar taki
ekki gildi fyrr en haustið 1983, eða
að loknum samningstíma heild-
arsamtakanna, ef um það semst?
„Ég vil ekkert um þetta efnis-
atriði okkar samnings segja á
þessu stigi frekar en önnur atriði
þessa samkomulags”, sagði
Grétar Þorsteinsson formaður
Trésmiöafélags Reykjavíkur.
Samningur sveina i byggingar-
iðnaði var eins og áður sagði til
umfjöllunar i trúnaðarmannaráði
Trésmiðafélags Reykjavikur i
gær og samkvæmt heimildum
Þjóðviljans var samningurinn
þar samþykktur með flestum
greiddum atkvæðum. Félags-
fundir verða i félögum sveina I
byggingariðnaöi i kvöld.
Vinnings-
númerin
Vinningsnúmer i kosninga-
happdrætti Alþýöubandalagsins
1982 eru sem hér segir: Aðalvinn-
ingurinn, Suzuki-bifreið, kom á
miða númer 105.
Aðrir vinningar voru ferða-
vinningar frá Samvinnuferðum -
Landsýn, — 2. á nr. 1539, 3. á nr.
3616, 4. á nr. 11412, 5 á nr. 4621, 6 á
nr. 13399, 7. á nr. 13579, 8. á nr.
814, 9. á nr. 1518.
Vinninga skal vitjað á skrif-
stofu Alþýöubandalagsins aö
Grettisgötu 3, Reykjavlk simi
17500.
Fjölmennasti mótmælafundur í sögunni í New York
Frá fundi trúnaðarmannaráðs Trésniiöafélags Reykjavlkur i gær: mönnum leist vel á samkomulagið.
Ljösm.: —eik
Byggingamenn
náðu samningum
Um kl. 4.30 I fyrrinótt náðist
samkomulag I deilu Sambands
byggingarmanna og Meistara-
sambands byggingamanna og
voru samningar undirritaðir I
húsakynnum rikissáttasemjara
kl. 11. i gærmorgun.
Talsmenn byggingarmanna
vildu ekkert láta eftir sér hafa um
efnisatriði samkomulagsins fyrr
en að lokinni umfjöllun i félögun-
um, sem verður i kvöld. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans,
sem hann telur traustar, var i
þessu samkomulagi samið upp á
um það bil 17.5% grunnkaups-
hækkun á samningstímabilinu
sem verður 3 ár, eða til 1. mai
1985. Kemur þessi hækkun i á-
föngum allt timabilið og er bæði
um að ræða beinar grunnkaups-
Samið til 3ja
ára um 17.5%
launahækkun
hækkanir en einnig breytingar á
reiknitölu ákvæðisvinnunnar.
Fundi rxkissáttasemjara með
samninganefndum Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins var ekki lokið er blaðið
fór i prentun, en hann hófst kl.
20.30 i gærkvöldi. Báöir aðilar
skoðuðu samkomulag byggingar-
manna strax i gærmorgun og
fundir voru tiðir i ailan gærdag
þar sem hin nýja staða var til um-
ræðu. í trúnaðarmannaráði Tré-
smiðafélags Reykjavikur var
samningurinn til umfjöllunar um
miðjan dag i gær og samkvæmt
heimildum Þjóðviljans leist
mönnum vel á samkomulagið.
Talið er að erfitt muni fyrir Al-
þýðusambandið að standa gegn
styttri samningstima en i þessu
samkomulagi byggingarmanna
er kveðið á um. A mönnum i
verkalýðshreyfingunni var að
heyra i gær að Alþýðusambandið
gæti ekki gengið frá samningum
til 3ja ára nema i þvi væru fyrir-
varar um tafarlausa uppsögn
samningins, færi kaupmáttur
launa niður fyrir ákveðin mörk.
—v.
„Ég er mjög ánægður með að
þetta skyldi takast”, sagði Bene-
dikt Daviðsson formaður Sam-
bands byggingarmanna þegar
Þjóðviljinn leitaði áiits hans á
samningnum I gær.
„Með þessum samningi er að
minnsta kosti rutt úr vegi þeirri
hindrun i almennu samningunum
og vinnuveitendur hafa notað svo
mjög sem skálkaskjói, að ástæða
væri til að óttast að byggingar-
menn seudu á eftir aðalkjara-
samningi um eitthvað meira
þeim til handa. Nú höfum við
samið og báðir aðilar vinnumark-
aöarins geta nú fengið staðfest
hvaða samkomulagi viö höfum
náð. Þá er einnig ánægjulegt að
þetta samkomuiag okkar hefur
orðið til þess að atvinnurekendur
fást nú til að ræða málin og það út
af fyrir sig verður að teijast nokk-
ur ávinningur I aðalsamninga-
deilunni”, sagði Benedikt enn-
fremur.
18 félög i Sambandi byggingar-
manna eiga aðiid að þessum ný-
gerða samningi en hins vegar
gildir það ekki um tvö þessara fé-
laga, Sveinafélag húsgagna-
bólstrara og Sveinafélag hús-
gagnasmiða, þar sem viðsemj-
endur þeirra eru ekki i Meistara-
sambandi byggingamanna heldur
eiga aðild að Vinnuveitendasam-
bandinu.
Ljóst var á viðræðum við bygg-
ingamenn I gær að þeir voru al-
mennt ánægðir með þetta sam-
komulag og enda þótt margar af
kröfum þeirra hefðu ekki náð
fram aö ganga, væri þetta góður
samningur „miðað við allar að-
stæöur nú”, eins og einn þeirra
komst að oröi.
Benedikt Daviðsson formaður
Sambands byggingarmanna:
þetta samkomulag okkar hefur að
minnsta kosti leitt til þess að
Vinnuveitendasambandið fæst til
að ræða málin.
Míljón manns
í Central Park
Það markmið eitt þúsund
bandariskra friöarhreyfinga aö
efna tii stærsta mótmælafundar
gegn kjarnorkuvigbúnaði sem
haldinn hefur verið tókst I New
York á laugardaginn. Talið er að
um hálf miijón manna hafi tekiö
þátt I litskrúöugri og leikrænni
göngu um breiöstræti Manhattan
og 800.000 til ein miljón manna
hafi veriö á útifundinum sem
haldinn var i Centrai Park. Þetta
var stærsti stjórnmálafundur
sem haldinn hefur verið I New
York og I sögu Bandarikjanna.
Hinn mikli útifundur á laugar-
dag hefur haft veruleg áhrif á
fulltrúa á afvopnunarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna. í gærmorg-
un flutti Helmut Schmidt kanslari
Vestur-Þýskalands m.a. ræðu þar
sem hann lýsti stuöningi við mál-
stað friðarhreyfingarinnar og
hvatti þjóöarleiðtoga um allan
heim til þess að reyna að skilja
þann boðskap sem miljónir
manna austan hafs og vestan
væru aö flytja á útifundum þessa
dagana. „Fólkið I löndum okkar
mun ekki liða það að afvopnunar-
viðræður dragist á langinn og
skili ekki árangri”, sagði
Schmidt.
Norðurlandaþjóðirnar hafa all-
ar stórar sendinefndir á afvopn-
unarráðstefnunni og eru forsætis-
ráðherrar allra Norðurlandanna
nema Islands á mælendaskrá, og
fjöldi norrænna þingmanna og
formenn þingflokka viöstaddir
þinghaldið. 1 gær héldu mótmæia-
aðgerðir áfram i New York og
beindust þær einkum að kjarn-
orkuveldunum, og voru mót-
mælafundir haldnir við aösetur
sendinefnda þeirra hjá Samein-
uöu þjóðunum i New York.
A siðu fimm i blaöinu i dag er
birt frásögn Olafs Ragnars
Grimssonar alþingismanns af at-
burðum laugardagsins i New
York, en hann er nú i hópi is-
lenskra alþingismanna sem sitja
afvopnunarráðstefnuna.
—ekh
Sjá síðu 5