Þjóðviljinn - 15.06.1982, Síða 5
Þriðjudagur 15. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Friðargangan hér I New York
var stærsta ganga sem nokkurn-
tima hefur verið farin i borginni
og stærsta ganga i sögu afvopn-
unarbaráttu i veröldinni. t
Central Park garðinum voru um
800 til ein milljón manna og þar
hefur aldrei i sögunni verið haldin
stærri samkoma. Mannhafið var
slikt að allir sem um þetta hafa
fjallað hafa lýst undrun sinni og
hrifningu yfir þessum viðburði.
Friðargangan í New York á laugardaginn haföi greinilega haft djúp áhrif á fulltrúa á afvopnunarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna er hún kom saman i gærmorgun.
Stærsta ganga í allri sögu
afvopnunarbaráttunnar
Gangan var ekki aðeins ólik
fyrri göngum og friðarfundum
hvað fjölda snertir,heldur var hún
einnig með allt öðru sniði. Aður
fyrr á dögum Víetnamstriðsins
var það fyrst og fremst ungt fólk
sem setti svip sinn á mótmælin,
og I baráttu blökkumanna voru
það að sjálfsögðu blökkumenn
sem þátt tóku I fjöldaaðgerðum,
en I þessari friðargöngu voru eins
og einn orðaði það allir saman-
komnir, þverskurður af mann-
kyninu. Það voru svartir og
hvitir, ungir og gamlir, kaþólskir
og mótmælendur, múhameðs-
trúarmenn og búddhatrúarmenn,
fólk úr öllum rikjum Bandarikj-
anna og frá flestum rikjum
heims. Hér voru samankomnir
fulltrúar friðarhreyfinganna út
um öll Bandarlkin, en um 1000
samtök áttu aöild að aðgerðunum
og einnig fulltrúar evrópskra
friðarhreyfinga. 1 stórum hópum
gengu saman fulltrúar friðar-
hreyfinga frá Þýskalandi, Hol-
landi, Sviþjóð, Kanada og
Astralíu, svo að nokkur lönd séu
nefnd.
Fórnarlömb
frá Hiroshima
Fremst i göngunni fór hópur
barna og unglinga til þess að
leggja áherslu á það að friðar-
hreyfingin I heiminum, friðar-
fundurinn hér og friðargangan,
væri fyrst og fremst I þágu barn-
anna og framtiðarinnar. A eftir
þessum friða hópi barna fór sveit
japanskra múnka og þeirra sem
lifðu af hörmungarnar i Hiros-
hima og Nagasaki, en margir
þeirra hafa siðustu sex mánuði
gengið þvert yfir Bandarikin til
þess að leggja áherslu á málstað
sinn. Þeir börðu friðarbumbur
sinar og settu meginsvip á upphaf
göngunnar i skrautlegum fatnaði
með borða og spjöld áletruð jap-
önskum stöfum. Og það var
áhrifamikið þegar hljómurinn úr
bumbum þeirra endurómaöi i
skýjakljúfunum þegar gengið var
eftir breiðstrætum New York i átt
að Central Park.
Kirkjuleiötogar
Hér voru samankomnir full-
trúar allra trúarhreyfinga og
kirkjudeilda i Bandarlkjunum og
I upphafi friöargöngunnar stóöu
12 biskupar og trúarleiötogar á
ræðupalli og fluttu i sameiningu
ávarp bandariskra kirkjudeilda
til göngumanna. Þar voru einnig
fulltrúar KFUM hreyfingarinnar
i Bandarikjunum sem gekk hér
undir fánum sinum og borðum til
stuðnings þessum málstaö.
Kvöldið áður hafði verið haldin
guðsþjónusta tiu þúsund manna
þar sem fulltrúar nær allra trúar-
hreyfinga i veröldinni fóru með
ritningarorð eða bænir til að
undirstrika samstööu allra trúar-
hreyfinga með málstað friðar og
afvopnunar.
Verkalýöshreyfingin
1 göngunni voru einnig stórar
sveitir frá verkalýðsfélögunum i
Bandarikjunum viðsvegar að, og
má þar nefna sem dæmi að tiu
þúsund verkamenn komu frá
Connecticut til að taka þátt i
göngunni. Þessir verkamenn
vinna allir I vopnaverksmiöjum
sem framleiða vopn til nota I
kjarnorkuvigbúnaðarkapp-
hlaupinu. Þeir voru komnir til
New York að krefjast þess að fá
aö framleiða annað en kjarnorku-
vopn, og að fá að vinna við annað
en að undirbúa endalok mann-
kyns. Þessir tiu þúsund verka-
menn sem komu frá Connecticut
eru litið dæmi af mörgum um
þátttöku verkalýðshreyfingar-
innar i göngunni.
Blærinn á göngunni, þar sem
saman var komið fólk á öllum
aldri, með litskrúðuga boröa og
spjöld, var einstæður. Hún var
friðsöm, hún var lifleg, hún var
einbeitt og hún var skrautleg. 1
henni var fjöldinn allur af uppá-
komum, leikrænum tilburðum, og
brúður, dúfur, listrænar skreyt-
ingar og litagleði settu svip sinn á
Manhattan. Fjöldi leikhópa og
listamanna viðsvegar að úr
Bandarikjunum og annarsstaðar
úr veröldinni áttu mestan heiður-
inn af þeim brag sem var á göng-
unni og fundinum. Þegar þessi
hundruð þúsunda liðuðust
áfram eftir breiðgötunum i New
York klukkustundum saman
áleiðis I Central Park var þetta
eins og samfelld alda úr mann-
hafi jarðar sem birtist þarna með
skrautlegum og leikrænum hætti
til þess að leggja áherslu á sam-
eiginlegan málstað. Þetta var þvi
ekki dapurleg ganga, þetta var
lifandi og hressileg ganga, hún
var ekki bitur, heldur full af
bjartsýni og þrótti. Samt sem
áður lýstu margir þeirra sem
töluðu I upphafi við aðalstöövar
Sameinuðu þjóðanna eða I Cen-
tral Park þeirri skoðun sinni að
óttinn við tortimingu jarðarinnar
væri meginástæðan fyrir þvi að
milljónir manna flykktust nú út á
torg og stræti til þess að krefjast
kjarnorkuafvopnunar.
ógleymanleg sjón
Það var ógleymanleg sjón að
lita eftir hinum löngu breið-
strætum á Manhattan og sjá þetta
ólgandi mannhaf á leiöinni inn i
Central Park. Og koma svo á
fundinn sjálfan þar sem að hvar
sem augað eygði varð ekki þver-
fótað fyrir fólki, tvöfalt meiri
mannsöfnuður en hefur nokkurn-
tima verið samankominn i Cen-
tral Park, áætlaö á milli 800
þúsund til milljón manns. Og til
viöbótar var svo út um allan
garðinn slikur aragrúi af fólki að
sá sem það hefur upplifað mun
aldrei gleyma þvi meðan hann
lifir.
Listamenn og baráttufólk
Bæði i upphafi göngunnar og i
Central Park ávarpaði fjöldi
kunnra manna samkomuna. For-
seti borgarstjórnar New York og
Kock borgarstjóri buðu friöar-
sinna velkomna og lýstu stuðningi
við málstaö þeirra. Meöal ræðu-
manna voru margir heimsþekktir
listamenn svo sem Orson Welles
og það var tilkomumikið að sjá
hann gráskeggjaðan og með staf-
inn flytja hvatningarræðu sina i
Central Park.
Þar voru einnig baráttumenn
blökkumanna eins og Coretta
King, ekkja Martin Luther King,
og fjölmargir aðrir sem kunnir
eru úr baráttusögu blökkumanna
og friöarhreyfingarinnar. Bruce
Kent einn af forvigismönnum
bresku friðarhreyfingarinnar
flutti ávarp frá evrópsku friðar-
hreyfingunni. Hér var einnig
samankominn mikill fjöldi
bandariskra þingmanna og má
þar nefna Hartfield öldunga-
deildarþingmann sem flutti til-
löguna um tafarlausa stöövun
kjarnorkuvopnakapphlaupsins,
og hér var einnig mættur dr.
Spock sem hefur haft meiri áhrif
á uppeldi barna um allan heim
með bókum sinum og greinum en
nokkur annar, og margir tslend-
ingar þekkja. Hér var fjöldinn
allur af iistamönnum eins og
Peter, Paul og Mary, Joan Baez,
Linda Rotstadt og fjölmargir
aðrir, sem of langt yrði upp að
telja.
Nýtt pólitískt afl
Kröfur fundarins og göngunnar
voru um tafarlausa kjarnorkuaf-
vopnun og afnám kjarnorkuvig-
búnaðar. Gagnrýni á Sovétrlkin
og Bandarikin og kjarnorku-
veldin öll var mjög áberandi og
þó sérstaklega i garð Ronalds
Reagans Bandarikjaforseta. Það
var greinilegt að vigbúnaðar-
stefna Reagans mætir gifurlegri
andstöðu hér I Bandarikjunurn,
og menn horfa á niðurskurð hans
á félagslegri þjónustu, til
menntamála og heilbrigðismála
og bera saman við ákvarðanir um
aukin fjárútlát til vigbúnaðar-
mála á sama tima.
Fjölmargir ræöumenn sögðu að
þeir vildu að peningunum yrði
varið til þess að mennta börnin
þeirra, lækna sjúka,til að útrýma
atvinnuleysinu en ekki til að tor-
tima mannkyninu.
Þessi barátta sem birtist á
þessum einstæða laugardegi i
sögu bandariskra fjöldahreyfinga
mun greinilega halda áfram.
Allir ræðumenn voru sammáia
um að þetta væri aðeins upphafið.
1 þingkosningunum I nóvember i
haust verður þetta aðalumræðu-
efnið, og þegar er þvi spáð að i
forsetakosningunum að tveimur
árum liðnum muni friðar-
hreyfingarnar veröa eitt megin-
aflið.
Allar sjónvarpsstöövarnar i
New York og helstu sjónvarps-
stöövar i Bandarikjunum helguðu
fundinum og göngunni meginefni
fréttatima sinna á laugardaginn.
Sumar sjónvörpuðu beint frá
göngunni klukkustundum saman
á meðan á henni stóð.
A næstu dögum og vikum
verður mikill fjöldi áframhald-
andi aðgerða á vegum friðar-
hreyfingar hér I Bandarikjunum
til þess að fylgja eftir árangrinum
i New York. Mikill áhugi rikir á
þvi meðal forsvarsmanna hreyf-
inganna hér I Bandarikjunum að
tengja baráttuna við hreyfinguna
i Evrópu og mynda meö fólki úr
öllum heimsálfum sameinaða
sveit sem knýr á um raunveru-
legar afvopnunarviðræður.
Dapurleg örlög
Það var tilkomumikið en jafn-
framt dapurlegt að sjá fórnar-
lömbin frá Hiroshima og Naga-
saki mæta i þessari göngu og
Afvopnunarráðstefna
Það var áberandi á afvopn-
unarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna i dag að þessi fundur og hin
mikla ganga hafa haft gifurleg
áhrif á fulltrúana hér. 1 ræðu for-
seta Panama sem var fyrstur
ræðumanna á fundinum i dag
gerði hann atburði laugardagsins
i New York að aðalumræðuefni.
Og það sem var kannski enn
athyglisverðara var það að
Helmut Schmidt kanslari
Vestur-Þýskalands lauk ræðu
sinni með löngum kafla þar sem
hann lýsti yfir stuðningi við mál-
stað friðarhreyfingarinnr og
hvatti þjóðarleiðtoga um heim
allan til að reyna að skilja þann
boðskap sem þessar miljónir
manna væru að reyna að flytja.
Hann minnti á að fundurinn i
Central Park væri ekki sá eini
heldur hefðu verið á undan-
förnum dögum gifurlega miklir
mótmælafundir i helstu borgum
Evrópu. Þessir fundir lýstu ótta
almennings i þessum löndum
öllum við að veröldinni yrði tor-
tímt i kjarnorkustriði. Og hann
minnti einnig á að visindamenn
og ábyrgir rannsóknaraðilar á
sviði vigbúnaðar væru margir
hverjir á sömu skoðun og
almenningur. Friðarhreyfing-
arnar fælu þessvegna i sér mikil-
vægan siðferðilegan boðskap sem
leiðtogar veraldarinnar hlytu að
taka mark á. „Fólkið i löndum
okkar mun ekki liða það að
afvopnunarviðræöur dragist á
langinn og skili ekki neinu”, sagði
Schmidt. Þegar maður hefur i
huga þær deilur sem Helmut
Schmidt hefur á siðasta ári átt viö
forsvarsmenn friðarhreyfingar-
innar i eigin landi þá var það
merkilegt að sitja hér I morgun
og hlusta á lokakafla ræðu hans,
þar sem hann túlkaöi á áhrifa-
mikinn hátt boðskap hinna miklu
fjöldafunda siðustu vikna austan
hafs og vestan. Og það var greini-
legt á hinum gifurlegu undir-
tektum sem ræða Schmidt fékk
hér i fundarsal Sameinuðu þjóö-
anna að mikill þorri fulltrúa
þeirra rikja sem hér eru mætt
voru sama sinnis.
i dag hafa svo verið hér áfram-
haldandi aðgerðir friðarhreyf-
inga fyrir framan aðsetur sendi-
nefnda kjarnorkuveldanna hjá
Sameinuðu þjóðunum svo það er
ljóst að baráttan heldur áfram.
Það er Ijóst að sá sem hefur upp-
lifað atburði siðustu daga hér i
Bandarikjunum mun aldrei
gleyma þvi meðan hann lifir. Að
horfa yfir miljón manns i Central
Park sem þangað er kominn til
þess að lýsa stuðningi við málstað
friðarhreyfinga um aiian heim er
stund sem herstöðvaandstæðingi
af tslandi mun aldrei úr minni
falla.
Pianósnillingurinn
ZOLTAN
KOCSIS
heldur tónleika
í Háskólabíói
miðvikudaginn 16. júní kl. 21.00
Efnisskrá:
Zoltán Kodály: 3 af 7 verkum fyrir pianó óp. 11.
Liszt: Sedrustrén i Villa d’este
Gosbrunnarnir I Villa d’este
Wagner-Kocsis: Atriði blómastúlkunnar og
lokaatriðið úr Parsifal
Chopin: Polonaise Phantasie óp. 61
Hlé
Chopin: 12 valsar.
Miðasala i Gimli Lækjargötu.
Opin alla daga frá ki. 14 - 19.30. Simi 29055
Ólafur
Ragnar
Grímsson
símar frá New York
segja sögu sina. En það var ekki
siður átakanlegt að sjá það sem
minna hefur verið rætt um — fjöl-
mörg fórnarlömb kjarnorku-
vopnatilraunanna hér i Banda-
rikjunum, sem urðu fyrir barðinu
á geislavirkni frá kjarnorku-
vopnatilraununum I Nebraska
eyðimörkinni. Þegar skipta þeir
þúsundum sem beðið hafa varan-
legt tjón i Bandarikjunum vegna
tilrauna með kjarnorku-
sprengjur.