Þjóðviljinn - 17.06.1982, Síða 9
Fimmtudagur 17. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
„Nehei, þeir eru sko ekkert likir.” Anna Maria Skúladóttir eignaöist
ekki aldeilis einnbróöur áriö 1980, heldur tvo!
Eins klæddir tvíburar
rugla menn í ríminu
Anna Maria Skúladóttir, nlu
ára Reykjavlkurmær, var aö
passa bræöur sina úti viö þegar
okkur Ijósmyndarann bar aö
garöi. Þótt ung sé aö árum virtist
henni fara pössunin vel úr hendi,
allavega kvörtuöu bræöurnir
ekki.
Reyndar eru þeir tviburar og
heita Óskar og Ólafur. Anna
María sagöi þá tveggja ára og
ósköp góöa. Henni fundust þeir
ekkert llkir, en sagöi aö fólki
fyndist þaö oft. „En þaö er bara
af þvl aö þeir eru eins klæddir”,
sagöi Anna María 9 ára, og ýtti
tviburakerrunni rösklega á undan
sér. ast
áölhiaupiö. —(Ljósm.—kv —)
Bjarnheiður passar Gumma og Ilrafnhildur (yst t.h.) passar Kristlnu. Meö þeim á myndinni er ónafn-
greind vinkona.
Stelpur passa og strákar hjóla
Um leið og skólanum
sleppir á vorin fyllast
stræti og torg af ungmenn-
um. Börnin eru fegin að
sleppa úr prístundinni og
una sér daglangt úti við,
f jarri þurrum skræðum og
vetrarveðrum.
Þá er þetta algeng sjón:
stelpur á aldrinum 9—13
ára eru nær allar með litil
börn einhvers staðar á sér,
strákarnir á sama aldri
hjóla. Hvað ungur nemur
gamall temur, ekki rétt?
Viö hittum barnapiurnar
Hrafnhildi og Bjarnheiöi uppi i
Breiöholti, en þær eru 11 ára
gamlar (Hrafnhildur aö veröa 12)
Þær sögöust passa frá 10—12 og
siöan frá 2—6. Mömmur krakk-
anna eru heinavinnandi en þær
sögöu nokkuö algegnt aö stelpur á
þeirra aldri pössuöu allan daginn
fyrir konur, sem ynnu úti.
— Hvaö fáiö þiö svo i kaup?
„Við vitum þaö ekki”, svara
þær aö bragöi. „Okkur er llka
alveg sama. Viö viljum bara
vinna.
— Finnst ykkur ekkert leiöin-
legt aö vera aö passa allan dag-
inn?
Nei nei, svöruöu þær. „Þetta er
ágætt”.
— En getiði nokkuö hjólaö eöa
leikiöykkur?
„Jú, jú, milli 12 og 2”, segir
Bjarnheiöur. „Mitt hjól er alltaf
sprungiö”, segir Hrafnhildur. Svo
fara þær i sund á þessum tima og
gera sér ýmislegt sér til gamans.
ast
'17.JÚNI
1982
i Reykjavfk
I. DAGSKRAlN HEFST:
Kl. 09.55
Samhljómur klrkjuklukkna I
Reykjavik.
Kl. 10.00
Forseti borgarstjórnar, Albert
Guömundsson, leggur blómsveig frá
Reykvikingum á leiói Jóns Sigurðs-
sonar i kirkjugarðinum v/Suðurgötu.
Lúðrasveit verkalýðsins leikur: Sjá
roöann á hnjúkunum háu. Stjórn-
andi: Ellert Karlsson.
II. VIÐ AUSTURVÖLL:
Lúðrasveit verkalýðsins leikur
ættjarðarlög á Austurvelli.
Kl. 10.40
Hátiðin sett: Guðriður Þorsteins-
dóttir, formaöur Þjóðhátiðarnefndar.
Karlakórinn Fóstbræöur syngur:
Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri:
Ragnar Björnsson.
Forseti fslands, Vigdis Finnboga-
dóttir, leggur blómsveig frá íslensku
þjóðinni að minnisvaröa Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli.
Karlakórinn Fóstbræður syngur
þjóðsönginn.
Avarp forsætisráðherra, dr.
Gunnars Thoroddsens.
Karlakórinn Fóstbræður syngur:
Island ögrum skorið.
Ávarp Fjallkonunnar.
Lúðrasveit verkalýðsins leikur:
Ég vil elska mitt land.
Kynnir: Guðrún Guðlaugsdóttir.
Kl. 11.15
Guösþjónusta í Dómkirkjunni.
Biskupinn yfir fslandi, herra Pétur
Sigurgeirsson, predikar. Dómkórinn
syngur. Marteinn H. Friðriksson
leikur á orgel. Einsöngvari: Kristinn
Sigmundsson.
DAGSKRÁ
III. TRÚÐALEIKUR:
Kl. 11.15-13.00
. Heimsóknir á barnadeildir sjúkra-
húsanna. Tóti trúður og félagar.
(Ketill Larsen).
IV. BIFREIÐAAKSTUR:
Kl. 14.00
Félagar úr Fornbílaklúbbi fslands
aka bifreiðum sínum frá Elliöaám
vestur Miklubraut og Hringbraut,
norður Tjarnargötu, austur Vonar-
stræti, suður Frikirkjuveg og Sóleyj-
argötu og austur Hringbraut aö
Reykjanesbraut.
V. HLJÓMSKÁLAGARÐUR:
Kl. 14.00
Lúörasveit Reykjavlkur leikur.
Stjórnandi: Ernest Majo.
Kl. 14.00-18.00
Félagar úr skátahreyfingunni sýna
tjaldbúöar- og útistörf. Barna- og
fjölskyldulejkir.
VI. LYFTINGAR Á
LÆKJARTORGI:
Kl. 14.00-17.00
Lyftingamenn lyfta lóðum og
aðstoða áhorfendur við lyftingar.
VIII. NORSKIR GESTIR VIÐ
MENNTASKÓLANN f REYKJAVlK.
Kl. 14.30
Lúðrasveit barna og unglinga frá
Alta í Noregi leikur.
Kl. 15.15
Stúlknakór frá Gloppen í Noregi
syngur.
VII. Á LÆKJARTORGI:
Kl. 15.00
Jasshljómsveit leikur á Lækjartorgi.
IX. LAUGARDALSSUNDLAUG:
Kl. 15.00
Reykjavikurmótiö í sundi.
X. FJÖLSKYLDUSKEMMTUN:
Kl. 15.00
Safnast saman við Hlemmtorg.
Kl. 15.20
Skrúðganga frá Hlemmtorgi, gengið
niður Laugaveg, Bankastræti og
Ingólfsstræti á Arnarhól. Lúörasveit-
in Svanur leikur undir stjórn
Sæbjörns Jónssonar. Skátar ganga
undir fánum og stjórna göngunni.
Kl. 16.00
Dagskrá á Arnarhóli:
Umsjón: Sigmundur Örn Arngrims-
son.
Kynning: Glsli Rúnar Jónsson og
Edda Björgvinsdóttir.
Jafnvægislist: Walter Wasil.
Atriði úr Gosa: Sigurður Sigurjóns-
son, Árni Blandon, Margrét Ákadótt-
ir, Hákon Waage, Anna Kristin Arn-
grimsdóttir. Leikstjóri: Brynja
Benediktsdóttir.
Atriði úr Litla krítarhringnum:
Soffia Jakobsdóttir, Guðmundur
Ólafsson, Hanna María Karlsdóttlr,
Aðalsteinn Bergdal. Leikstjóri:
Þórunn Siguröardóttir.
Skemmtiþáttur: Sigurður $igurjóns-
son og Randver Þorláksson.
Barnavísur: Bessi Bjarnason.
„Hálft i hvoru": Gísli Helgason,
Aðaisteinn Ásberg Sigurðsson,
Bergþóra Árnadóttir, örvar Aðal-
steinsson, Ingi Gunnar Jóhannsson,
Eyjólfur Kristjánsson.
XI. KVÖLDSKEMMTUN:
Kl. 21.00
Hljómsveitin Pónik leikur á Lækjar-
torgi og hljómsveitin Egó leikur
i Austurstræti.
Dagskránni lýkur kl. 01.00.