Þjóðviljinn - 17.06.1982, Síða 15
Fimmtudagur 17. júnl 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 15
Hvað gerðist í
s v eitarst j órnar
kosningunum?
Fyrst skal rifjaö upp hver staöa
stjórnmálaflokkanna raunveru-
legavar eftir kosningarnar miöaö
viö fyrri kosningar.
Alþýöuflokkurinn fékk i þessum
kosningum betri stööu en var
1974, ef litiö er á landiö i heild, en
þá 1974, var fylgi flokksins I al-
gjöru lágmarki.
Framsóknarflokkurinn fékk
núna talsvert minna fylgi en hann
haföi i sveitarstjórnarkosning-
unum 1974. Hann aftur á móti
græddi miöaö viö kosningarnar
1978, en tapaöi hinsvegar miöaö
viö Alþingiskosningarnar 1979.
Sjálfstæöisflokkurinn var nú
meö 45% i staö 40% 1978 og 50%
1974.
Alþýöubandalagiö fékk i heild á
öllu landinu talsvert minna fylgi
en flokkurinn fékk 1978 en hins
vegar aöeins meira fylgi en þaö
fékk 1974. Þetta er misjafnt eftir
kjördæmum, þannig er besta út-
koma Alþýöubandalagsins á
Austurlandi en verst á Reykja-
nesi. Innan sama kjördæmis er
útkoman einnig oft misjöfn: Al-
þýöubandalagiö fékk góöa út-
komu á Reyöarfiröi, en slæma á
Eskifiröi, góöa á Grundarfiröi, en
slæma á Hellissandi og Stykkis-
hólmi.
Ef úrslit sveitarstjórnarkosn-
inganna núna væru beint um-
reiknuö, fyrir Alþingiskonsingar,
þá fengi Alþýöubandalagiö 10
þingmenn i staö 11 núna, og er þá
ekki gert ráö fyrir þvi aö Alþýöu-
bandalagiö fengi neitt fylgi frá
kjósendum, sem nú kusu Kvenna-
-framboöin. En hæpiö er aö gera
ráö fyrir sliku. Yfirleitt er hæpiö
aö draga viötækar afleiöingar um
úrslit væntanlegra alþingiskosn-
inga á grundvelli sveitarstjórnar-
kosninganna eins og betur veröur
vikiö aö siöar.
Þótt þessi úrslitséu óneitanlega
ósigur fyrir Alþýöubandalagiö
eru þau ekki afhroö. Viö skulum
ekki nota sterkari hugtök en þörf
er á.
Reykjavík
Og þaö er almennur misskiln-
ingur, sem hefur leitt af sér
margan annan, ab fylgistap Al-
þýöubandalagsins og framgangur
Sjálfstæöisflokksins séu tvö fyrir-
bæri sem hljóti aö fylgjast aö.
Astæöan fyrir þessum misskiln-
ingi eru úrslitin 1978 þegar 5.
maöur G-listans felldi 8. mann
O-listans, en þetta var nánast til-
viljun. Þaö er fátt sem bendir til
markverbs streymis á kjörfylgi
milli Sjálfstæöisflokks og Alþýöu-
bandalags.
Ef litiö er til langs tima sést aö
oft hefur fylgi Sjálfstæöisflokks-
ins og Alþýöubandalagsins breyst
i sömu átt samtímis. Báöir sækja
oft á um leiö. Þeir sækja einfald-
lega fylgi til mismunandi kjós-
endahópa. Sú staöa gæti vel
komiö upp aö Sjálfstæöisflokkur-
inn héldi góöum meirihluta i
Reykjavik og Alþýöubandalagiö
fengi allt aö 30% atkvæöa aftur.
Þessvegna er best aö halda
þessuvelaögreindu, annarsvegar
gróöa Sjálfstæöisflokks, hins
vegar tapi Alþýöubandalags.
Gróöi Sjálfstæöisflokksins er
fyrst og fremst á kostnaö Alþýöu-
flokksins. Hér var um 5% sveiflu
aö ræöa frá Alþýöuflokki til Sjálf-
stæöisflokks. Satt aö segja var
þessi 5% sveifla fullkomlega
veröskulduö. Alþýöuflokkurinn
hefur haldiö þvi fram I nokkur á
aö Gunnar Thoroddsen sé hálf-
geröur óbótamaöur I islenskum
stjórnmálum vegna stjórnarsam-
vinnu viö „kommana” og hefur
Alþýöuflokkurinn jafnvel gengiö
hér oft lengra en hinn svo kallaöi
Geirsarmur i Sjálfstæbisflokkn-
um. Samtimis hefur Alþýöu-
flokkurinn gagnrýnt Alþýðu-
bandalagiö fyrir undirgefni við
„ihaldiö” með þvi að sitja i stjórn
með þessum Gunnari Thorodd-
sen. Jafnframt öllu þessu hefur
Alþýöuflokkurinn veriö i sam-
vinnu viö þetta alræmda Alþýöu-
bandalag i borgarstjórn Reykja-
vikur en hefur verið þar veiki
hlekkurinn og hvaö eftir annaö
hlaupið burt frá geröu samkomu-
lagi.
Eftir öll þessi afrek koma
frambjóöendur Alþýöuflokksins
og biöja stuöningsmenn Gunnars
Thoroddsens aö kjósa Alþýðu-
flokkinn til þess aö klekkja á
stjórnarandstöðuarmi Sjálf-
stæðisflokksins. En samtimis
biöja frambjóöendur Alþýöu-
flokksins óánægöa vinstri menn
aö kjósa Alþýðuflokkinn til þess
aö refsa Alþýöubandalaginu fyrir
þaö að sitja i stjórn meö þessum
sama Gunnari Thoroddsen.
An þess aö leggja neinn sér-
stakan dóm á Alþýðuflokkinn i
heild þá veröur samt að teljast
þroskamerki fyrir kjósendur aö
þeir höfnuöu heimskulegum og
mótsagnakenndum tilboöum
flokksins I þessum kosningum.
Hlutverk Morgun*
blaðsins og annarra
f jölmiðla
Umfram allt einkenrdist
áróöur hægri aflanna i þessum
kosningum af hatursáróöri á Al-
þýöubandalagiö, sem hefur haft
lélega aöstööu til þess aö svara
fyrir sig. Einkum á þetta viö
Kosningarnar sýna hve sterkur Sjálfstæöisflokkurinn i raun og veru er
þótt hér sé um sundurleitan flokkaöræða... en þaö er almennur mis-
skilningur, sem hefur leitt af sér margan annan, aö fylgistap AI þýöu-
bandalagsins og framgangur Sjálfstæöisfiokksins séu tvö fyrirbæri
sem hijóta aö fyigjast aö. Flokkarnir sækja fylgi til mismunandi
kjósendahópa, segir GIsli Gunnarsson f þessari grein.
Morgunblaöiö. Ósanngirnin og of-
stækiö I garð Alþýöubandalagsins
hefur haft tvær mótsagnakenndar
afleiöingar. Annars vegar hafa
árásirnar skapaö gagnsefjun
meðal fjölmargra vinstrimanna
og þjappaö þeim um Alþýðu-
bandalagiö. Hins vegar hafa
árásirnar hrætt óákveöna kjós-
endur nálægt miöju stjórnmál-
anna frá Alþýðubandalaginu.
En umfram allt hefur árás-
unum I raun og veru veriö beint á
samstarfsaöila Alþýöubanda-
lagsins. Alþýðubandalagiö er lýst
óalandi og óferjandi, smitunar-
fyrirbæri sem verður aö einangra
i islensku þjóöfélagi. Þessu næst
ræöst Sjálfstæöisflokkurinn á
samstarfsaöila Alþýöubanda-
lagsins og segir: Hvert atkvæöi
greitt þeim (Framsóknarflokki
eöa Alþýöuflokki) er atkvæöi
greitt kommum. Þótt þessi
áróöur taki fá atkvæöi frá Al-
þýöubandalaginu hefur hann
mjög oft viötæk áhrif á sam-
starfsflokka Alþýðubandalagsins,
einkum á þann mikla fjölda kjós-
enda sem er hikandi hvort greiöa
eigi atkvæöi Alþýöuflokki eba
Sjálfstæöisflokki. Arásir Morgun-
blaösins á Alþýöubandalagiö voru
þvi i reynd fyrst og fremst árásir
á Alþýðuflokkinn og aö nokkru
leyti á Framsóknarflokkinn. Al-
þýöuflokkurinn svarabi þessu
meö þvi aö reyna á köflum aö
ganga lengra en Sjálfstæöis-
flokkurinn i árásum á Alþýöu-
bandalagiö meö þeim árangri i
trúveröugheitum Alþýöuflokksins
sem þegar hefur veriö lýst.
Kvennairamboðið
Ég tel það nokkuð öruggt aö
mikill meirihluti kjósenda
Kvennaframboösins i Reykjavik
núna hafi kosiö Alþýöubandalagiö
i borgarstjórnarkosningunum
1978, en það þýöir alls ekki aö Al-
þýöubandalagiö hafi „átt” þessa
kjósendur eöa aö þeir heföu
flestir núna i þessum kosningum
kosiö Alþýöubandalagiö heföi
Kvennaframbobið ekki séö dags-
ins ljós. Skoöun min er sú aö
kjarninn i fylgi Kvennaframboðs-
ins i Reykjavik hafi verib nokkurs
konar lausafylgi á vinstra kanti
stjórnmálanna sem undanfarin
ár hefur skipst milli Fram-
sóknarflokksins, Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna og Al-
þýöubandalagsins. Alþýöubanda-
lagið fékk nokkurn veginn allt
þetta lausafylgi i borgarstjórnar-
kosningunum 1978, i Alþingis-
kosningunum sama ár skiptist
þaö milli Alþýöubandalagsins og
Samtaka frjálslyndra og vinstri-
manna, i haustkosningunum 1979,
fór stór hluti þessa lausafylgis á
Framsóknarflokkinn.
Þaö er nefnilega þannig aö
vinstrisinnuöu fólki fannst
Kvennaframboðið vera ótviræöur
vinstri valkostur meö skýrri
vinstristefnu og hægra fólki
fannst þaö sama og kaus þaö þvi
yfirleitt ekki. Kvennaframboös-
konur geta siðan ásakaö þetta
vinstri og hægra fólk af báðum
kynjum fyrir karlrembingshátt
fyrir aö finnast þetta, en þaö
breytir engu um staöreynd máls-
ins .
Ef Kvennaframboöið heföi ekki
komiö fram núna, er sennilegt aö
stór hluti kjósenda þess heföu þá
kosiö Alþýöubandalagið, jafnvel
enn þá stærri hluti Framsóknar-
flokkinn og sumir heföu þá setiö
heima.
Annaö mál er aö Kvennafram-
boöiö veikti almennt stööu and-
stæöinga Sjálfstæöisflokksins.
Ljóst var aö valkosturinn viö
meirihluta þess flokks var nú
samstarf fjögurra aöila. Kvenna-
framboöiö gaf engar yfirlýsingar
um vinstra samstarf I framtiöinni
og allt stuölaöi þetta aö umtals-
veröum ruglingi hjá vinstri flokk-
unum, einkum þó Alþýöuflokk og
Gísli
Gunnarsson
skrifar
Framsóknarflokk. Var þetta ein
ástæöa þess aö þessir tveir
flokkar fóru báöir aö biðla til
Sjálfstæöisflokksins um samstarf
eftir kosningar meöan á kosn-
ingabaráttunni sjálfri stóð.
Framsóknarflokkurinn fór aö
taka upp nokkur baráttumál
Sjálfstæöisflokksins I kosning-
unum og afneita sumum verkum
sinum I borgarstjórnarmeirihluta
fjögur árin á undan. Fyrir Fram-
sóknarflokkinn, sem aldrei hefur
haft nein atkvæði aö sækja til
Sjálfstæöisflokksins i Reykjavik,
var þetta furðuleg skammsýni.
Ef meta á framboö Kvenna-
framboösins aöeins út frá þvi
sjónarmiöi hvort þaö stuölaöi aö
meirihluta Sjálfstæöisflokksins
eöa ekki er þvi margt ab athuga,
bæöi plúsa og mlnusa og erfitt er
aö segja hvorir vógu meira. Ég
held þó aö Kvennaframboðið hafi
i raun og veru litlu breytt hér um.
Úrslit utan
Reykjavíkur
Orslit utan Reykjavikur veröa
abeins mjög stuttlega rædd hér.
Aö dómi minum er þróun kjós-
endafylgis Alþýðubandalagsins i
Kópavogi alvarlegasta útkoman
fyrir Alþýðubandalagið á öllu
landinu. Þar hefur smásaman
verið að hverfa gamalt Alþýöu-
bandalagsvigi. Fylgiö annars-
staöar I Reykjaneskjördæmi var
hinsvegar mest nýtilkomiö og
hvarf viöa skjótt eftir að þaö kom.
Aö sjálfsögöu ber aö harma þaö
lika.
Athyglisvert er aö Sjálfstæðis-
flokkurinn vann góða sigra á
þeim stööum þar sem hann starf-
aöi bæöi meö Alþýðuflokknum og
Alþýðubandalaginu, meöan sam-
starfsflokkarnir tveir á sömu
stöðum stórtöpuöu. Hér er um aö
ræöa Akranes og Siglufjörö.
Sjálfstæðisflokknum fer augsýni-
lega vel á þvi aö starfa sem
frjálslyndur miðflokkur, en illa á
þvi aö marka sér stööu sem
haröur hægriflokkur. Samstarf
viö Sjálfstæbisflokkinn viröist
hinsvegar vera öörum flokkum
hættulegt meö tilliti til kjósenda-
fylgis. Framhald á 22. siðu
Poul Nielson, orkuráðherra Dana
í Norræna húsinu
V indmyllur annist 10%
raforkufmmleiðslu
um næstu aldamót
Gert er ráö fyrir aö vindorka
sjái fyrir um 10% af raforku-
framleiöslu Dana um næstu
aldamót. 800 - 1000 vindmyllur
eru nú þegar risnar í Dan-
mörku, sem framleiða frá 55 og
upp I 1000 kw hver.
Frá þessu skýröi Poul Niels-
on, orkuráöherra Dana i erindi,
sem hann flutti hér i Norræna
húsinu á mánudagskvöld i þess-
ari viku.
Hjörleifur Guttormsson gat
þess i inngangsoröum aö Danir
heföu náö mjög góöum árangri
á sviöi orkusparnaðar hin siö-
ustu ár, og þvi heföi hann óskaö
eftir þvi aö Poul Nielson kynnti
þau mál meö fyrirlestri hér.
t máli danska orkuráðherrans
kom fram, aö fyrir skömmu var
allt aö 95% af orkubúskap Dana
byggður á oliu, en i þeim efnum
hefur átt sér staö mikil breyting
á siöustu árum og notkun ann-
arra orkugjafa, ekki sist kola
farið vaxandi. 52% af húsnæöi
er nú hitaö upp meö oliu I Dan-
Poul Nielson, orkuráöherra Dana, talar á fundi I Norræna
húsinu á mánudagskvöld.
mörku, en gert er ráö fyrir að sú
tala lækki i 10 - 12% fyrir alda-
mót. Ollunotkun Dana var um 12
miljónir tonn á siöasta ári, en
þar af voru um 300 þús. tonn eig-
in framleiösla úr Noröursjón-
um, þar sem oliuvinnsla Dana
er á byrjunarstigi.
Danir leggja mikla áherslu á
orkusparnaö og hagkvæma
orkunotkun. Aöur fór orkunotk-
un á hvern fermetra ibúöarhús-
næöis vaxandi, en nú hefur
þeirri þróun veriö snúiö viö.
Geröar eru strangar kröfur um
einangrun húsnæöis, og stefnt
aö þvi að 2/3 ibúöarhúsnæðis
veröi hitaö upp meö orku frá
fjarvarmaveitum er nýti af-
gangsvarma, m.a. frá kola- og
oliukyntum raforkuverum.
Hlutur sveitarfélaga I orku-
sparnaöaraögeröum er mikill
og þaö er að veröa keppnismál
fyrirtækja aö sýna fram á lækk-
andi orkunotkun. Sérstakir
orkusparnaöarfulltrúar eru
ábyrgir fyrir orkureikningum i
stofnunum og fyrirtækjum og
tekist hefur aö fá almenning til
viötækrar þátttöku i aögeröum
á sviöi orkusparnaöar.