Þjóðviljinn - 17.06.1982, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. júni 1982
fFóstrur —
þroskaþjálfar
Fóstrur og þroskaþjálfa vantar til starfa á
dagheimili og leikskóla i Hafnarfirði.
Um er að ræða hálfar og heilar stöður.
Athygli er vakin á rétti öryrkja til starfa
sbr. 16. gr. laga nr. 27 1970. Upplýsingar
um störfin veitir dagvistarfulltrúi i sima
53444.
Félagsmálastjórinn i Hafnarfirði
Akranes
Akraneskaupstaður
Starf bæjarstjóra hjá Akraneskaupstað er
hér með auglýst laust til umsóknar. Upp-
lýsingar veita Valdimar Indriðason, for-
seti bæjarstjórnar, og Magnús Oddsson,
bæjarstjóri.
Umsóknir skulu hafa borist fyrrnefndum
fyrir 1. júlin.k.
Bæjarstjórn Akraness
Auglýsið í Þjóðviljanum I
V______________________J
Undirbúningsnefnd iðnkynningarinnar og reiðhjólaferðalagsins með auglýsingaplakat kynningarher-
ferðarinnar. Talið frá v. Pálmi Gislason, Finnur Ingólfsson, Þórarinn Gunnarsson, Halldór Einarsson,
Skúli Oddsson og Sigurður Geirdal. Mynd — eik.
Um 6000 félagar 1 Ungmennafélagshreyfingunni
Hjóla í þágu
íslensks iðnaðar
17 daga ferðalag á þremur hjólum
hringinn í kringum landið
Ungmennafélagshreyfingin
hefur f tilefni 75 ára afmælis slns
á árinu, tekið upp samstarf við
Félag islenskra iðnrekenda um
að koma á fót kynningarherferð
fyrir islenskri framleiöslu undir
kjörorðinu Eflum islenskt. Til að
ná athygli landans verður hjólað
umhverfis landið á þremur
hjólum, og munu nærri 6000
félagar u n g m e n n a h r e y f -
ingarinnar stíga reiöskjóta dag-
ana 25. júni til 11 júll, en alls
verða hjólaðir um 3300 km.
Pálmi Gislason formaður
UMFÍ sagði að tilefni þessa fram-
taks hreyfingarinnar væri að
minna á upprunalega þjóðræknis-
hugsjón Ungniennafélaganna
sem væri jafn sterk i dag og
fyrrum. Hreyfingin vildi með
þessu benda á að atvinnuhorfur
unga fólksins yrðu ekki tryggðar
nema með öflugum iðnaði, og til
að svo tækist, yrðu Islendingar að
velja i frekari mæli en nú er,
islenskar vörur. Atvinnuleysi
ungs fólks i nágrannalöndum
okkar hefði haft hörmulegar af-
leiðingar og þvi væri hér um
nauðsynlegt verk að ræða.
Iðnaðarráðuneytið, Félag is-
lenskra iðnrekenda, SIS og fleiri
aðilar hafa styrkt þessa kynn-
ingaherferð, auk þess sem Fálk-
inn Jeggur til reiðskjótana sem
ferðast verður á umhverfis
landið, en fyrirtækið hefur nýlega
hafið samsetningu á reiðhjólum
hérlendis og má þvi að vissu
marki þar ræða um islenskan
iðnað.
Lagt verður upp i reiðhjóla-
feröalagið frá Lækjartorgi sið-
degis 25. júni og hjólað suður á
Reykjanes og þaðan austur og
siðan vestur um aftur til Reykja-
vikur þar sem endað verður 17
dögum siðar. Hvilt verður um
nætur, en suma dagana hjólað i
allt að 20 klumkustundir.
Samhliða reiðhjólaferðalaginu
verður efnt til iðnkynninga viða
um land og annara uppákoma til
að vekja athygli á islenskum iðn-
varningi. _ jg.
Kynnisferðir búnaðarfélaga
Búnaðarsamband Suðurlands
hefur ákveðið að gefa búnaðar-
félögum á Suðurlandi kost á að
fara eins dags kynnisferðir um
Itangárvallasýslu, með viðkomu
ogleiðsögn á nokkrum þeim stöð-
um i sýslunni, sem hvað mest
gildi hafa i ræktunarlegu tilliti.
Þessir staðir eru: Þykkvibær,
þar sem gerð verður grein fyrir
kartöfluframleiðslunni. Gunn-
arsholt, þar sem kynnt verður
starf Landgræðslunnar og Fóður-
og fræframleiðslunnar. Tilrauna-
stöðin á Sámsstöðum, þar sem
kynnt verður tilraunastarfsemi
og frærækt. Skógrækt rikisins á
Tumastöðum, þar sem kynnt
verður ræktun trjáplantna. Þá
verður þeim ferðahópum, sem
koma austan úr Skaftafellssýslu,
gefinn kostur á að skoða Fjalla-
fóður og Þorvaldseyri undir
Eyjafjöllum.
A öllum þessum stöðum fer
fram fjölþætt og merkileg starf-
semi, sem gagnlegt og skemmti-
legt er að kynnast og er vonast til
að þátttaka i þessum ferðum
meðal búaliðs á Suðurlandi verði
sem almennust.
Hér er um dagsferðir að ræða
og verður ferðalöngum séð fyrir
aðstöðu til að kaupa sér mat og
kaffi, þannig að ekki er ætlast til
að þeir hafi með sér nesti. Þar
sem gert er ráð fyrír að fleiri
ferðahópar verði á ferð samtimis,
er um nokkrar mismunandi
ferðaáætlanir að ræða. A töfl-
unum hér á eftir má sjá, hvernig
einstökum búnaðarfélögum hefur
verið raðað saman i ferðahópa,
sem ætlast er til að standi saman
að undirbúningi ferðarinnar, svo
sem útvegun á farkosti og þvi um
liku. Þar má einnig sjá hvaða
ferðadagur hefur verið ákveðinn
og hvaða ferðaleið er boðið upp á.
Búnaðarsambandið mun leggja
til fararstjóra i hvern ferðahóp,
en sérstakir leiðsögumenn verða
á hverjum skoðunarstað. Ahersla
er lögð á að þær áætlanir, sem hér
eru kynntar, standist, en i sér-
stökum undantekningartilvikum
verður þó hægt að koma við
breytingum.
Leið A.
Kl. 10.00 Þjórsárbrú.
Kl. 10.15 Þykkvibær.
Kl. 12.00 Maturi Þykkvabæ.
Kl. 13.30 Gunnarsholt.
Kl. 16.00 Hvolsvöllur, kaffi.
Kl. 16.45 Sámsstaðir.
Kl. 18.00 Tumastaðir.
Leið B.
Kl. 10.00 Gunnarsholt.
Kl. 12.30 Hvolsvöllur, matur.
Kl. 14.00 Sámsstaðir.
Kl. 15.00 Tumastaðir.
Kl. 16.30 Helia, kaffi.
Kl. 17.30 Þykkvibær.
LeiðS.
Kl. 11.00 Þorvaldseyri.
Kl. 12.30 Gunnarshólmi, matur.
Kl. 14.00 Tumastaðir.
Kl. 15.00 Sámsstáðir.
Kl. 16.30 Gunnarsholt, kaffi.
Kl. 19.30 Þykkvibær.
Kl. 21.00Þykkvibær, matur.
LeiðC.
Kl. 10.00 Tumastaðir.
Kl. 11.00 Sámsstaðir.
Kl. 12.30 Hella, matur.
Kl. 14.00 Þykkvibær, kaffi.
Kl. 16.30 Gunnarsholt.
Sveitir Dagur Áætlun
Olfushr., Selvogshr., Grafningshr..................... 21/6 A
Þingvallahr., Grimsneshr., Laugardalshr............... 24/6 A
Biskupstungnahreppur.................................. 24/6 B
Hrunamannahreppur .................................... 22/6 B
Gnúpverjahreppur...................................... 24/6 C
Skeiðahreppur......................................... 23/6 A
Villingaholtshr., Hraungerðishr., Selfoss ............ 23/6 B
Sandvikurhr., Eyrarbakkahr., Stokkseyrarhr.
Gaulverjabæjarhreppur ................................ 25/6 A
A-Eyjafjallahr., V-Eyjafjallahr....................... 25/6 S
A-Landeyjarhr. V-Landeyjahr........................... 23/6 C
Fljótshliðahr., Hvolhr., Rangárvallahr................ 22/6 A
Landmannahr., Holtahreppur............................ 21/6 B
Asahreppur, Djúpárhreppur ............................ 25/6 D
Hörglandshr., Kirkjubæjarhr............................21/6 S
Leiðvallahr., Skaftártunguhr., Alftavershr.............22/6 S
Hvammshreppur, Dyrhólahreppur .........................23/6 S
Allar nánari upplýsingar veitir Búnaðarsamband Suðurlands á Sel-
fossi.
— mhg