Þjóðviljinn - 17.06.1982, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. júnl 1982
Gísli
Framhald af 15. siðu.
Mér fannst athyglisvert aö
fylgjast með sjónvarpsumræðum
af kosningunum I Hafnarfirði.
Hafnfirskir Sjálfstæðismenn
boðuðu harða og ótviræða hægri-
stefnu i flestum málum. Þar var
ekki það almenna stefnuleysi eða
það „miðju-moð” sem einkenndi
áróöur Sjálfstæðisflokksins
annarsstaðar i þessum kosn-
ingum.
Sjálfstæöisflokkurinn vann
minna fylgi i Hafnarfirði en
annarsstaöar. Hann fékk 37,5%
kjósenda 1982, 1978 fékk hann
36,1%. 1 kosningunum 1974 hafði
hundraðshluti Sjálfstæðisflokks-
ins i Hafnarfirði verið 42,1%.
Kosningarnar og
klofningur Sjálf-
stæðisflokksins
Heimskulegt væri að deila um
hvort kosningarnar voru van-
traust á Gunnar eða Geir. Þær
sýndu traust á Sjálfstæðisflokk-
inn I heild sinni og þvi traust á
báða. Þaö sást greinilega að
stjórnarliðar i Sjálfstæðisflokkn-
um unnu mjög ötullega að sigri
flokksins i kosningunum, engu
siður en stjórnarandstæðingar.
Kosningarnar sýna hve sierkur
Sjálfstæðisflokkurinn i raun og
veru er, þótt hér sé um sundur-
leitan flokk að ræða. Hér gafst
hinum ýmsu öflum, flokksins
tækifæri til að vinna heilshugar
og sameinaðir að einu ákveðnu
verkefni og það tókst óneitanlega
vel. Ég held að vaxandi hópur
Sjálfstæöismanna telji sig hvorki
vera harða stjórnarsinna né
stjórnarandstæðinga heldur vilji
þeir taka afstöðu eftir málefnum
hverju sinni. Umfram allt eru
þeir þreyttir á klofningnum og
kenna næstum öllum um hann.
Nú gefst tækifæri til að vinna
saman án tillits til klofningsins og
Sjálfstæðisflokksmenn virðast
hafa notið þess.
Úrslitin i kosningunum segja
þvi mjög litið um stöðu núverandi
rikisstjórnar, miklu minna en
ástand loðnu- og þorskstofna við
landið segir um þá stöðu það er
mjög hæpið að yfirfæra úrslit
þessara kosninga á næstu Al-
þingiskosningar. Þá veröur erf-
iðara að dylja málefnaágreining i
Sjálfstæðisfiokknum en nú var og
mjög margt er breytilegt frá
mánuði til mánaöar i stjórnmála-
þróuninni.
Auk þess er stór hluti Sjálf-
stæðisflokksins vanur að skemma
fyrir sér með hroka og gegndar-
lausri bjartsýni i hvert sinn sem
vel viðrar fyrir flokknum.
Astæðan er sú grundvallartrú
margra íhaldsmanna að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé eini eðlilegi
stjórnandinn og allt annað sé
óeðlileg aöskotadýr. Enginn
ástæða er til að ætla aö ýmsir
leiðtogar Sjálfstæðisflokksins
hafi breytt hér um hugarfar eða
vinnubrögð. 1 þessu atriöi felst
ein von vinstrimanna.
12. júni 1982
Gisli Gunnarsson
Ertþú
búinn að faca í
I jósa -
skoðunar
-ferð?
U tbreiðslustj óri
Þjóðviljinn vill ráða útbreiðslustjóra fyrir
blaðið. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veitir frkvstj. blaðsins.
MYNDAVEL
Til sölu er lítið notuð Practica myndavél með
linsum 50 og 28. Verð kr. 3.000, sem telst gjaf-
verð. Uppl. í síma 72465.
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU -
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
í frystiskápa.
Góð þjónusta.
VBfk
REYKJAVÍKURVEGI 25 Hafnarfirði sími 50473
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Þingkjörin nefnd vegna
árs aldraðra 1982 hefur nú
látið útbúa barmmerki
sem sala hefst á i dag, 17.
júní.
Merkið prýðir einkennismynd
heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um öldrun, sem haldin verð-
ur i Vínarborg 26.7. - 6.8. i sumar.
Einkennismynd ráðstefnunnar er
bengalskt fikjutré (Ficus Beng-
halensis). Tré þetta vex aðallega
i hitabelti Asiu, en afbrigði þess
finnast i Afriku og Suður-Amer-
iku. Út frá greinum trésins ganga
loftrætur sem siðan skjóta rótum
og mynda enn frekari stofna.
Tréð getur þvi vaxið yfir allt að 50
m svæði, orðið 30 m hátt og að
ummáli 600 m þannig að allt að
20000 manns geta skýlst undir
greinum þess. 1 sumum samfé-
lögum býður tréð upp á skjól fyrir
markaði, félagsstarfsemi og
samkomur aldraðra; annars
staðar hefur það trúarlega merk-
ingu. Einkennismynd merkisins
táknar þannig langlifi, sjálfs-
traust, samfelldan vöxt og tengsl
i samfélaginu. Merkið var teikn- Attræður Bandarikjamaður, Oscar Bergei;teiknaöi ffkjutréð sem prvð-
aö af áttræðum Bandarikja- ir merkiö.
/
Merkí Ars aldraðra
manni, Oscar Berger. nefndir annast dreifingu á þvi. 1 frá þvi kl. 10.00 þann 17. júni. Góö
Merkinu hefur nú verið dreift Heykjavik verður sölubörnum af- sölulaun eru i boði. Merkið kostar
viða um land og munu 17. júni hent merkið að Frikirkjuvegi 11 20 kr.
Leikræn sagnfræði
17. júní
Sambands-
lagamálin
1918
„Sambandsmálin á Alþingi
1918” heitir þáttur i samantekt
Karls Guðmundssonar og Ey-
vindar Erlendssonar sem einnig
stjórnar dagskránni. Efnið er
unnið upp úr bók Haraldar Jó-
hannssonar um sambandsmálin
við Dani frá 1918 til 1944.
— Sagt verður frá atburðum
og leikiö fyrir hlustendur og allt
byggt á atburðum ársins 1918 á
alþingi. Leikið veröur með laga-
bálkinn um sambandið og ræður
fluttar. Hlustendur fá aö heyra
ræður manna á borð við Einar
Arnórsson, Magnús Torfason,
Bjarna frá Vogi, Benedikt
Sveinsson og Jóhannes bæjarfó-
geta Jóhannesson. Fánamálið
(bláhviti fáninn islenski) kemur
nokkuö við sögu og Ris þú unga
lslands merki verður sungiö og
spilað. Flytjendur þessa efnis
eru auk þeirra Karls og Ey-
vindar: Þorsteinn ö. Stephen-
sen, Baldvin Halldórsson, Hjalti
Rögnvaldsson, Jón Hjartarson
og Siguröur Karlsson. Dag-
skráin veröur hin fróölegasta
auk þess sem hún verður sjálf-
sagt skemmtileg. Þetta voru
snjallir stjórnmálamenn og list-
fengir i þvi að þæfa mál og
flækja sagði Eyvindur Erlends-
son er við leitum fregna af þætt-
inum hjá honum.
Kristilegt
stúdentafélag
Kaffisala
í dag
Kristilegt stúdentafélag sem
stofnað var 17. júni fyrir 46 árum
hefur kaffisölu á þjóðhátiðardag-
inn á 3. hæö að Freyjugötu 27. Kl.
14.30 hefur Astráður Sigurstein-
dórsson, fyrrverandi skólastjóri,
hugleiöingu og hefst kaffisalan að
henni lokinni. Allir velunnarar fé-
lagsins eru hvattir til að mæta.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisráðstefna á Austurlandi 19.-20. júni
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi heldur Vorráðstefnu
á Hallormsstað (Hússtjórnarskólanum) um helgina 19.—20.júni
Rædd verða m.a., sveitarstjórnarmál, samgöngumál og önnur hags-
munamál kjördæmisins.
Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á ráð-
stefnunni.
Fulltrúar i kjördæmisráði, nýkjörnir sveitastjórnarmenn og forystu-
menn Alþýðubandalagsfélaganna eru hvattir til að sækja ráðstefnuna.
Kjördæmisráð
Vopnafjörður
Alþýðubandalagið boðar til almenns stjórnmálafundar á Vopnafirði
föstudaginn 18. júni kl. 20.30 i Miklagarði. Alþingismennirnir Helgi
Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á fundinum. Fundurinn er öll-
um opinn. — Aiþýðubandalagið.
Ungir sósialistar — Þórsmerkurferð Æskulýðs-
nefndar Alþýðubandalagsins
ÆnAb stendur fyrir skemmtiferð i Þórsmörk helgina 25.-27. júni nk.
Allt stuðningsfólk Alþýðubandalagsins er hvatt til að taka þátt i ferð-
inni og iáta skrásetja sig hjá ÆnAb á Grettisgötu 3 — Simar: 17504 og
17500
Fyrirhugað er að halda til i Húsadal i tvo sólarhringa við söng, glens og
gaman og farið i góða göngutúra undir leiðsögn fróðra
manna. — Ferðahópur Æskulýðsnefndar.
Suðumesjamenn athugið
Jón Böövarsson
Alþýöubandaiagið
mun efna til fjöl-
skylduferðar um
Hvalfjörð laugardag-
inn 26. júni. Boöið
veröur upp á styttri
sem lengri gönguferö-
ir. Gengið verður upp
að Glym og farin verð-
ur Sildarmannagata
fyrir þá sem vilja
lengri gönguferð.
Glymur
Fjöröurinn verður skoöaöur beggja handa undir öruggri leiðsögn
Jóns Böðvarssonar, skóiameistara. Sameiginleg grillveisla
verður ef veður leyfir um miðjan dag i Brynjudal, þar sem tóm
gefst til leikja og almennrar útiveru. Lagt verður upp frá bið-
stöðvum S.B.K. kl. 8.00. Nánari upplýsingar og skráning eru f
sima 92-1948 (Sólveig) sima 92-3096 (Bjargey) og 92-3191 (Alma).
Pantið timanlega, það auöveldar allan undirbúning.
Alþýðubandalagsfélag Keflavikur.