Þjóðviljinn - 22.07.1982, Blaðsíða 16
mavnnNN
Fimmtudagur 22. júll 1982
Tvær
Akraborg-
ir í f örum
Frá og með deginum i oag
verða tvær ferjur og báðar undir
heitinu Akraborg I ferðuin á milli
Reykjavikur og Akraness.
Astæðan fyrir þvi að gamla
Akraborgin hefur á ný verið tekin
i notkun er sú, að umferð hefur
aukist mjög sjóleiðis til Akraness,
eftir að nýtt skip var tekið I notk-
un. Svo mikið, að hið nýja skip
hefur engan veginn annað flutn-
ingunum, þrátt fyrir mun meiri
flutningagetu en hið gamla hafði.
Forráöamenn Skallagríms hf.,
sem rekur Akraborgirnar tvær
telja að tvö skip geti annað öllum
bílaflutningunum á þessari leiö
og þvi eigi það að vera úr sögunni
aö ökumenn þurfi frá aö hverfa
með bíla sina.
Tvö skip verða í förum frá
fimmtudegi til mánudags, en eitt
skip á þriðjudögum og miöviku-
dögum.
Alþjóða hvalveiði-
ráðstefnan:
Mælt með
kvóta-
skerðingu
Samþykkt var kvótaskerðing á
öllum hvalategundum sem is-
Iendingar veiða, á fundi tækni-
nefndar Alþjóða hvaiveiðiráðsins
i Brighton I Engiandi i gær.
Tillagan frá Oman um að
minnka langreyðakvóta tslend-
inga úr 194 dýrum i 73 var sam-
þykkt með 15 atkvæðum gegn 10
og sömuleiðis var tillaga Þjóð-
verja um að leyfa engar veiðar á
sandreyðum samþykkt. Hrefnu-
kvóti Islendinga og Norðmanna
var skorinn niður um 32 dýr, úr
320 i 288.
Aö sögn Arna Einarssonar,
fulltrúa Náttúruverndarráös á
ráöstefnunni er litið hægt að segja
á þessu stigi hvað muni gerast á
aöalfundinum þvl þar á eftir að
fara fram mikið leynimakk á
óformlegum fundum. Þó er vafa-
samt að þessar tillögur tækni-
nefndar nái fram að ganga, nema
þær þjóðir sem setið hafa hjá taki
virka afstöðu með friðunarmönn-
um.
Tvoþriðju hluta atkvæða þarf á
aðalfundinum til að tillögur teljist
samþykktar af Alþjóða hvalveiði- >
ráðinu. Búist er við að aðalfundur
hefjist siðdegis i dag.
—úþj
Auglýsing friöunarsinna, sem
birtist nýiega I Newsweek, þar
sem fólk er hvatt til að kaupa ekki
vörur frá hvalveiðiþjóöunum.
Abalilmi Þjóöviljans er 81333 kl. 8-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiðslu blaösins i slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöid. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Eggert Isaksson hjá Hval hf
Komið við í Hval-
stöðinni
Sjá opnu
„Þurfum ekki að
réttlæta neitt”
Auglýsingar friðunarsinna ekki nýnæmi
,/Viö þurfum ekki að
réttlæta eitt eöa neitt í
sambandi við hvalveiðar
okkar. Þessar veiðar hafa
verið stundaðar hér síðan
1948 og við teljum þetta
ekki ómerkari þátt í at-
vinnusögu þjóðarinnar en
hvað annað". sagði Eggert
tsaksson hjá Hval hf., er
blm. Þjóðviljans spurði
hann hvernig þeir réttlættu
hva Iveiðar sínar á tímum
þegar friðunarsjónarmið
virtust eiga vaxandi fylgi
að fagna meðal margra
þjóða heimsins.
„Það er siður en svo, að mati
sjómanna okkar, að hvalastofn-
inn fari minnkandi”, hélt Eggert
áfram, „án þess að maöur geti
svo sem sannað það með borð-
leggjandi staðreyndum. Þaö
virðist einnig vera, aö visinda-
menn liti svipaö á málin, allavega
hafa þeir ekki mælt með veiöi-
banni, en þeir fara varlega I sak-
Denis nokkur Barrachin frá
Frakklandi var að skoða sig um i
Hvalstöðinni hér á dögunum, er
blm. Þjóðviljans var þar á ferö.
Aðspurður um hver afstaða hans
væri til hvaiveiðimála, sagðist
hann vera algjöriega á móti öllu
hvaladrápi og styðja heilshugar
þá baráttu sem Grænfriðungar og
aðrir friðunarsinnar hafa uppi til
verndunar hvalnum. mynd: gel.
irnar og þvl hefur kvótinn veriö
minnkaður verulega.”
— Hvað viltu segja um aug-
lýsingu friðunarsinna I erlendum
blöðum, þar sem þeir hvetja fólk
til að kaupa ekki vörur frá hval-
veiðiþjóðum, þar á meöal
íslandi?
„Það er ekkert um þessa aug-
lýsingu að segja. Hún hefur
komið oft áður og er ekkert ný-
næmi fyrir okkur. Það er ósköp
skiljanlegt aö þessir hópar reyni
aö nota allar aðferðir til aö ná
fram sinum málstað.”
— Geta ekki svona auglýsingar
skaðað annan útflutning okkar
tslendinga?
„Mig minnir að það hafi verið
upplýst I fyrra, I viötali við Þor-
stein Gislason, forstjóra sölu-
félags SH i Bandarikjunum, að
þeir hefðu ekki merkt að þessar
auglýsingar hefðu haft nein áhrif,
til hins verra, á sölu fslenskra
afuröa þar ytra. Það er nú frekar
að svona hlutir veki athygli hér
heima og komi róti á hugi fólks,
en athyglin sem þeir fá úti er
mjög takmörkuö.”
-áþj
Nöfn
þeirra
sem fórust
Meö flugvélinni sem fórst I
hllðum Esju á þriðjudags-
kvöld fórust fimm manns.
Þau voru Jón Þröstur Hlið-
berg flugmaður 24 ára, Alf-
hólsvegi 31, Kópavogi. Hann
lætur eftir sig konu og eitt
barn. Hjónin Björn Magnús-
son fyrrum slökkviliðsmaður
á Keflavikurflugvelli 49 ára
og Svanhvit Gunnarsdóttir 47
ára, Faxatúni 5, Garðabæ.
Börn þeirra Margrét Auður
25 ára hjúkrunarnemi og
Axel Magnús 23 ára nemi.
Björn og Svanhvit láta eftir
sig tvö uppkomin börn.
Menn frá Loftferðaeftirlit-
inu og rannsóknarnefnd flug-
slysa fóru á vettvang i gær
og söfnuðu gögnum um slys-
ið. Þeir gátu ekkert sagt um
orsakir slyssins og töldu að
rannsóknin myndi taka
nokkurn tlma.
—kjv
Norð-Austurland:
Slitlag á
33,5 km
Ákveðiö er að leggja
bundið slitlag á fimm veg-
arkafla í Eyjafirði og
Suður-Þingeyjarsýslu nú í
sumar, alls 33,5 km., sagði
Guðmundur Svavarsson,
umdæmisverkfræðingur
hjá Vegagerðinni á Akur-
eyri okkur í gær (miðviku-
dag), en of snemmt er að
staðhæfa að sú áætlun
standist að fullu, bætti
hann við.
Þessir kaflar eru frá Hrisum aö
Dalvik, 2 km., og 1,5 km. um
Kálfaskinn á Arskógsströnd, báð-
ir á Ólafsfjaröarvegi. A Norð-
austurvegi verður lagt á 17 km.
kafla frá Skjálfandafljótsbrú að
Laxárbrú og svo á veginn frá
Laxamýri til Húsavikur en það
eru um 9 km. Loks koma svo 4
km. umhverfis þéttbýlið i Reyni-
hlið viðMývatn.
Að öðru leyti sagði Guömundur
Svavarsson að stærstu verkefnin
við vegagerö I umdæmi hans nú
væri vegurinn um Vikurskarö en
til hans er veitt 7 milj.kr.
Mun sú fjárveiting væntanlega
duga til þess, að undirbyggingu
vegarins verði hartnær lokið. Þá
er og unniö að vegagerð i mynni
Svarfaöardals og er þaö i Ólafs-
fjarðar-, Svarfaðardals- og Skíða-
dalsvegum. Unnið er I Eyjafjarö-
arbraut vestari hjá Melgeröi. Er
þaö allmikið verkefni, sem boöið
var út. Næst er þá að venda sér
austur á Melrakkasléttu. Verður
reynt aö ljúka uppbyggingu veg-
arins frá Höskuldarnesi til Rauf-
arhafnar og þegar það er frá hef-
ur uppbyggingu vegarins yfir
Melrakkasléttu verið lokið.
Minni fjárveitingar eru svo til
einstakra vega sem tilheyra þjóð-
brautum eins og til Ólafsfjaröar-
vegar hjá Vatnsenda, Báröar-
dalsvegar vestari um öxará,
Staðarbrautar við Eyvindariæk,
Uppsveitarvegar i Kelduhverfi,
Langanesvegar og fjárveiting er
til Miöbrautar hjá Hrafnagili.
Þar er og verið að ljúka viö brú
yfir Eyjafjaröará, sem byrjað
var á i fyrra. Er gert ráö fyrir að
hún veröi opnuð til umferðar
núna þann 15. ágúst. Einnig brú á
Svarfaðardalsá hjá Dalvik, sem
lika var byrjaö á árið sem leiö.
Stefnt er að þvi að opna hana til
umferðar 15. okt. i haust.
—mhg