Þjóðviljinn - 09.09.1982, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. september 1982
ÞJOÐVIUINN
Málgagn sósíalismaT verkalýds
hreyfingar og þjódfrelsis
Litgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Þórunn Sigurðardóttir.
L'msjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Auglvsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttjf.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson
Blaöamenn: Auöur StyrkársdóUir, Helgi Ólafsson
Maanús H. Gislason, olafur Gislason, Óskar Guömundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson. Vaiþór Hlöðversson.
iþróttalréttaritari: Viöir Sigurösson.
t tlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guöjón Sveinbjörnsson.
l,jósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prnfarkalestur: Elias Mar.
Auglvsingar: llildur ltagnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuörUn Guövaröardóttir, Jóhannes Harðarson
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn Oladóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bílstjóri: SigrUn Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson. Gunnar
SigUrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
l tkeyrsla. afgreiösla og auglýsingar: Síöumúla 6,
Keykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Hœgristjórn
í Danmörku
• Minnihlutastjórn dariskra sósíaldemókrata er fallin
og borgaraleg stjórn tekin við, samsteypa tveggja
hægriflokka, íhaldsflokksins og flokks sem heitir Vinstri
þótt hann sé óralangt frá því að rísa undir nafni. Þar
með eru borgarlegar stjórnir við völd í öllum þrem vir-
kjum sósíaldemókrata á Norðurlöndum - en reyndar er
búist við að borgarastjórnin sænska falli í kosningum
innan nokkurra daga.
• Ástæðurnar fyrir þessum stjórnarskiptum eru fyrst og
fremst tvær. í fyrsta lagi hafa hinir gömlu borgaraflokk-
ar í fyrsta skipti sætt sig við það að reikna hið óhreina
barn stéttarinnar Framfaraflokk Glistrups inn í stjórnar-
dæmið - sá flokkur verður einn þeirra sem stuðst verð-
ur við, þótt ekki hafi verið látið undan ágirnd hans í
ráðherrastóla.
• ( annan stað gátu dæmi minnihlutastjórnar Ankers
Jörgensens ekki gengið upp lengur. Hann hafði um
skeið stutt sig við samstarf eða samráð við helsta
keppinaut sinn til vinstri, SF, en tók nú síðast æ meira
tillit til viðhorfa borgaraflokkanna til hægri við undirbún-
ing fjárlaga og efnahagsráðstafana. Niðurstaðan varð
svo sú, að enginn flokkur var lengur reiðubúinn tilað
styðja sósíaldemókrata.
• Borgaraflokkarnir vildu styðja um 10 miljarða króna
niðurskurð á ríkisútgjöldum, en þeir voru ekki reiðubún-
ir til að styðja nýja tekjuöflun sem átti að koma fram í
skattlagningu á tekjur lífeyrissjóða. Sósíalíski alþýðu-
flokkurinn, SF, gat hinsvegar ekki fallist á niðurskurð
útgjalda til félagslegra þarfa - en stjórn Ankers Jörg-
ensens ætlaði m.a. að skera niður um 710 miljónir í
sjúkradagpeninga. Fjölskyldubætur, ellilífeyri og at-
vinnuleysisbætur um röskan miljarð.
• Sem fyrr segir hafði dregið saman með sósíaldem-
ókrötum og íhaldsmönnum í viðræðum síðustu daga
fyrir stjórnarkreppu. En sú staðreynd að ekki varð af
samkomulagi verður fyrst og fremst skýrð með vist-
kreppu flokks Ankers Jörgensens. Flokkurinn mun
hafa talið að hann hefði ekki efni á því að láta niður-
skurð á hinu félagslega sviði efla helsta keppinaut sinn
til vinstri, SF. Sósíalíski alþýðuflokkurinn vann í desem-
ber mikinn kosningasigur, hefur 21 mann á þingi, og
gæti bætt verulega við sig ef að kosið yrði nú. í annan
stað er danska Alþýðusambandið, sem flokksbræður
Ankers Jörgensens stjórna ekki lengur reiðubúið til að
leggja blessun sína yfir kreppustjórn hans. Hardy
Hansen, formaður Verkamannasambandsins, sem
Anker Jörgensen ólst sjálfur upp í, hefur kallað niður-
skurðarstefnuna „borgaralega11 og tekið þátt í því að
hvetja Anker til að segja af sér.
• Ráðleysi hefðbundinna krataflokka, sem ekki geta
lengur flotið á hagvexti uppgangstíma hefur sameinast
óttanum við vinstrisveiflu í að koma minnihlutastjórn
Ankers Jörgensens frá völdum. Það er auk þess vert
að gefa því gaum, að þótt verkalýðshreyfingin dánska
megi eiga von á enn verri niðurskurðarráðstöfunum af
hálfu borgaralegrar stjórnar, þá kýs hún heldur að taka
við þeim skelli frá pólitískum andstæðingum en eitt-
hvað milduðum kreppuráðstöfunum úr hendi flokks-
bræðra. - áb.
Hvaö eru kratarnir?
A vinstra væng stjórnmál-
anna hefur mönnum oröiö tiö-
rætt um þaö hvort Alþýöu-
flokkurinn sé verkalýösflokkur
eða ekki. Þeir sem eru þeirrar
skoðunar að flokkinn hafi
dagaö uppi sem litill borgara-
legur flokkur telja aö hann sæki
fylgi sitt og hugmyndafræöi til
smáborgara i þéttbýli. Þetta
hafi gerst eftir áratuga hórdóm
i ihaldssænginni og natódaður
og andsósialismi hafi upplitaö
þetta flokkskrili þannig aö engin
von sé um að braggist i náinni
framtið.
Þeir hinir bjartsýnu á vinstra
kantinum telja að skilnaðurinn
við ihaldiö hafi gefið Alþýðu-
flokknum nýtt lif. Ýmis teikn
séu um aö Alþýöuflokkurinn sé
að verða sósialdemókratiskur
að nýju. Þessir bjartsýnismenn
benda þá á að flokkurinn hafi
gerst viðsýnni meö nánara sam-
bandi við alþjóðasamband jafn-
aðarmanna, þar sem margir
ágætis sósialistaflokkar gefa
tóninn á köflum. Þannig hafi
margar hugmyndir orðið til að
hressa uppá hrygðarmyndina
sem Alþýðuflokkurinn var orð-
inn. í þessu sambandi er bent á
hugmyndir krata um atvinnu-
lýðræði, stuðning þeirra við
friöarhreyfingar og andóf gegn
leiftursókn borgaralegra
flokka.
Upphlaup
Að hvaða niðurstöðu sem
menn komast i þessu efni er hitt
ljóst aö Alþýöuflokkurinn
sjálfur gerir tilkall til þess að
kallast verkalýösflokkur. Að
visu kunna ekki nema fáir
krataforingjar á þessa nýju
linu sem lýsir sér ma. i þvi að
óþoliö og pirringurinn vegna
þess hve hægt gengur að koma
ihaldinu til forræðis að nýju
veldur allra handa vanhugs-
uðum upphlaupum.
klippt
Ó\)\\ÖW
M\
\.
.mhuní
sag>&'
ft»<'
N;»rp
,»h •
,o<
v\U\»oS
v nrt'
»*<>'
:l.\\n"
.„ué" •' f
______it*
Karvel og Karl Steinar. En þeir
hafa ekki ennþá fengið heiðurs-
nefnbótina „vindhanar” i Al-
þýðublaðinu.
Nær daglega fáum við i
starfshópnum sem les Alþýðu-
blaðið að sjá kraftbirtingu þess-
ara upphlaupa. Jón Baldvin,
sem enn er pólitiskt staddur á
sviðinu i Tónabió, skrifar frjáls-
hyggjuleiðara á milli þess sem
hann heldur áfram að hefna
fyrir listasætið sem hann hlaut
ekki fylgi til á Tónabiósfund-
inum.
En i samanburði við gaura-
ganginn i verkalýösmálum eru
þessar siðbúnu hefndaraðgerðir
Jóns' Baldvins bara sniðugar.
Þegar Alþýöublaöið fjallar um
verkalýðsmál þá er það með
þeirri lágkúrulegu forskrift, að
allir forystumenn i verkalýös-
hreyfingunni sem jafnframt eru
i Alþýðubandalaginu, séu örg-
ustu óvinir verkafólksins.t þess-
um skrifum er verkalýðsfor-
ystan gjörvöll gerð að ómerkum
handbendum Alþýöubandalags-
ins. Og ákvarðanir og úrslit
samninga eru þannig túlkaðar
sem verk Alþýðubandalagsins i
verkalýðshreyfingunni. Skiptir
þá engu hvort viðkomandi
ákvarðanir og samningar séu
undirritaðar og þeim framfylgt
af mönnum úr Alþýöuflokknum
sjálfum. Máske Alþýðublaöið
noti á slikum stundum Al-
baniu/KIna-aöferöina til að
koma höggi á þingmennina
Hið frjálsa imyndunarafl
Tilgangurinn helgar meðalið
á Alþýðublaðinu. Og þegar ekki
er einusinni flugufótur fyrir
árásum og áburði á forystu-
menn i verkalýðshreyfingunni
og Alþýðubandalagsmenn, þá er
bara að búa hann til. Þannig var
„fabúleruð” frétt” 1. september
að um að Guðmundi J. hefði
„verið varpað á dyr” á vinnu-
staðafundi i Eimskip. 1 „frétt-
inni” segir orðrétt: „Alþýðu-
blaðið reyndi að afla sér frekari
staðfestingar á sannleiksgildi
máls þessa, en enginn þeirra
verkamanna sem haft var sam-
band við kannaðist við það”. En
þegar Alþýöublaðið er komiö af
stað með frétt fær enginn stööv-
að hana. Og þannig kom óstað-
festa „fréttin” samt!
Ekki virðast rannsóknar-
blaðamennirnir á Alþýðublað-
inu heldur hafa lært á sima. Það
verður nú að fyrirgefast þeim
sem staddir eru I miöju póli-
tisku skitkasti aldamótaáranna.
En vegna þessarar vankunnáttu
koma fréttir einsog sú sem birt-
ist á forsiðu Alþýðublaðsins 7.
september sl. um að „Alþýðu-
bandalagið hafi nú gefist upp á
vinnustaðafundunum”. Allt
talar þetta sinu máli.
— óg
Sjaldan hefur nokkur stjórn-
málamaöur á seinni timum látiö
út úr sér jafn spakleg ummæli
og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins Geir Hallgrimsson i Varðar-
feröinni frægu I sumar, þegar
hann sagði i heyranda hljóði:
Nató er öflugasta friðarhreyf-
ingin. Morgunblaðinu þótti svo
vænt um þessi ummæli for-
mannsins, að þau komu hvað
eftir annað i blaðinu frameftir
sumri. I sömu ferð sátu þeir
saman i túninu Geir og Eggert
Haukdal — og það urðu sögu-
legar sættir. Reyndar kom
mynd af þeim pólitiska viðburði
i Morgunblaðinu, en féll alger-
lega i skuggann fyrir hinum
merku tiöindum: Nató er öflug-
asta friðarhreyfingin.
Hreyfingin mikla
Mönnum varö þá fljótlega
ljóst i Sjálfstæðisflokknum að
nú haföi formaöurinn látið frá
sér fara sögulegt framlag til
frjálshyggjunnar i heiminum.
Það þótti einnig ljóst, að nú væri
vegur að segja þjóöinni að fleiri
gætu nú verið hugmyndafræð-
ingar hins borgaralega forræðis
en Hannes Hólmsteinn. Sjálfur
formaöurinn stæði nú fyrir sinu
i hinum hugmyndafræðilegu
efnum: vopnaður friöur er
bestur.
Heimdallur gefur út límmióa:
„Nato — stærsta
friðarhreyfmgin“
NATO
HKIMDALLIJR, samtök ungra
sjálfsta'öismanna í Keykjavík, hefur
gefið út Itmmiða með áletruninni
„NATO — SUersta friðarhreyfing-
in“. Aletrun límmiðans er hvit á
rauðum grunni. Limmiðinn er fáan-
legur í Valhöll, Háaleitisbraut 1. f
fréttatilkynningu frá Heimdalli,
kemur fram að tilgangurinn með út-
gáfunni sé að minna á hið mikilvæga
hlutvcrk Atlantshafsbandalagsins
sem friðarbandalags.
Jafnframt útgáfunni hefur
Heimdallur ályktað eftirfarandi:
„í hinum hugmyndafræðilegu
kenningum ráðamanna í Sovét-
ríkjunum, er stefnt að heimsyfir-
ráðum kommúnismans og bent er
á að slík heimsyfirráð séu aðeins
„eðlilegt" framlag ráðamanna í
Sovétríkjunum til hinnar „sögu-
legu þróunar". Þessar staðreyndir,
ásamt sýnilegri útþenslustefnu
STÆRSTA
FRIÐARHREYFINGIN
Arangur hefur verið ágætur á
sumum sviðum en lítill á öðrum.
Hins vegar er ljóst, að án sam-
stöðu lýðræöisríkjanna hefðu
mál við Heim-
Strætó
dall?
Það þótti þvi veröugt verkefni
fyrir hina herskáu ihaidsæsku i
landinu að koma þessum boö-
skap á framfæri viö almenning.
Almenningur hefur nefnilega
heyrt minnst á Nató i sam-
bandi við striö og her. Og al-
menningur i öðrum löndum
hefur meir að segja fengið aö
kenna á vopnabúnaöi Nató. Þarf
ekki annað en minna á striðs-
rekstur Nató-hersins breska við
Falklandseyjar i sumar. En
með oröum formannsins i iðja-
grænu túninu i sumar eru slikar
staðreyndir týndar og tröllum
gefnar. Þvi hefur Ihaldsæskunni
verið falið að minna á stærstu
friðarhreyfinguna með lim-
miðum. Limmiðarnir eru þegar
farnir að sjást á fjölmennum
stöðum, einsog t.d. á strætis-
vagnaskýlum.
Heyrst hefur að Eirikur As-
geirsson forstjóri Strætisvagna
Reykjavikur hafi orðiö æfur
vegna þessa og ætli að höföa
mál gegn Heimdalli sem er
skráður útgefandi þessa boð-
skapar formanns Sjálfstæöis-
flokksins, en sá orörómur hefur
ekki fengist staðfestur.
— óg