Þjóðviljinn - 09.09.1982, Page 7
Fimmtudagur 9. september 1982 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7
Leikfélag Reykjavíkur:
Tvö íslensk leikrit
frumflutt á leikárinu
Tvö íslensk leikrit verða frum-
flutt á nvbvrjuðu leikári Leikfélags
Reykjavíkur. Það er leikrit Kjart-
ans Ragnarssonar, Skilnaður, og
leikrit Þórunnar Sigurðardóttur,
Guðrún, sem byggir á Laxdæla-
sögu og fjallar að meginhluta til um
Guðrúnu Ósvífursdóttur og þá
fóstbræður, Kjartan Ólafsson og
Bolla Þorleiksson.
Á blaðamannafundi sem
leikhússtjórar í Iðnó, þeir Stefán
Baldursson og Þorsteinn Gunnars-
son. héldu í gær kom fram aö alls
verða frumflutt 5 leikrit í Iðnó á
starfsárinu. Auk leikrita Kjartans
og Þórunnar verða tekin til flutn-
ings þrjú erlend leikrit.
Ein var sú borg, leikrit írska
leikritahöfundarins Brian Friel,
Forsetaheimsóknin. verður tekið
til flutnings um jólin, en það er
franskur ganranleikur og að lokum
leikritið, Úr lífi ánamaðks, senr er
eftir sænskt leikritaskáld. Per Olov
Enquist.
Frá fvrra leikári verður leikritið
Jói, eftir Kjartan Ragnarsson tekið
upp aftur, en þess ntá geta að sýn-
ingar á Jóa eru nú orönar næstum
100 talsins. Hassið hennar ömmu,
eftir Dario Fo heldur áfrant, einnig
Salka Valka, en sýningar á Sölku
hefjast aftur um næstu áramót.
Hassið hennar ömmu verður flutt í
Austurbæjarbíói og hefjast sýning-
ar á því 2. október. Öll önnur verk
verða í Iðnó.
Iðnó bvrjar leikár sitt með því að
flytjaverk Kjartans Ragnarssonar.
Skilnaður og veröur það eina
leikritið sem sýnt verður í septem-
bermánuði. Með aðalhlutverk fara
Guðrún Ásmundsdóttir. Jón
Hjartarson, Valgerður Dan, Soffía
Jakobsdóttir, Aðalsteinn Bergdal
og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Ein var sú borg, leikrit Irans
Brian Friel sem kemur á fjalirnar í
október vakti mikla athvgli í
leikhúslífi Lundúna í fyrra og var
kjörið besta erlenda leikritið af
gagnrýnendum. Það hefur verið
sett upp í háborg leikhússlífsins á
Broadway.
Forsetaheimsóknin, leikrit Frakk-
anna Bruno og Rego, verður frurn-
flutt um jólaleytið. Það fjallar unr
daglegt líf verkamannafjölskyldu
og húsbóndans á heimilinu sem er
atvinnulaus. Inni í málið spilar svo
óvænt heimsókn forseta Frakk-
lands.
Úr lífi ánamaðks, eftir Per Olof
Enquist, fjallar um samskipti hjón-
anna Louise Heiberg og manns
hennar við H.C. Andersen.
Kjartan Ragnarsson kemur enn
með nvtt leikrit, Skilnað. Það var
forsýnt á Listahátíð í vor.
Guðrún, leikrit Þórunnar Sigurð-
ardóttur er unnið uppúr Laxdæla-
sögu. Það verður frumsýnt cftir
áramótin.
Leikurinn gerist eina nótt á heimili
þeirra hjóna. en I i.C. Andersen er
þar staddur og er í öngum sínum.
því sá hroðalegi atburður hafði
gerst í veislu hjá konungi að þegar
skáldið var að flytja ræðu missti
hann út úr sér gervitennurnar við
lítinn fögnuð gesta. Leikstjóri
kemur frá Svíþjóð og heitir hann
Ernst Gúnther, en hann hefur sett
þetta leikrit upp áður viö góðan
orðstír.
Guðrún, leikrit Þórunnar Sigurð-
ardóttur, hefur ekki verið dagsett
hvaö varöar trumsynmgu. en
æfingar munu væntanlega hefjast í
febrúar. Þórunn leikstýrir verkinu,
en leikmynd og búninga teiknar
Messíana Tómasdóttir.
Gífurleg aðsókn á síðasta starfsári
Á síðasta leikári Leikfélags
Revkjavíkur var aðsókn með ein-
dæmum góð. Varð sætanýting
eitthvað um 94% og einstök leikrit
náðu allt uppí 98% sætanýtingu..
Nokkrar breytingar verða gerðar á
salarkvnnum Iðnó og er. það gert
vegna uppfærslunnar á leikriti
Kjartans Ragnarssonar, Skiln-
aður, en leikurinn fer að einhverju
leyti fram í sal. Á fundinum í gær
hafði ekki verið gengið frá verði á
aögöngumiöum, en búist var við að
þeir kostuðu 110 kr á hvern fullorð-
inn. Ellilífeyrisþegar og námsfólk
fær að venju afslátt á sýningar.
Til viðbótar við 15 fastráðna
leikara við Leikfélag Reykjavíkur
hefur cinn bæst við í hópinn. Þar er
um að ræða Jóhann Sigurðsson, en
á síðasta vetri fór hann með stór
hlutverk í Jóa og Sölku Völku.
-hól
Stórfellt at-
vinnuleysi
ef flotinn
stöðvast
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasanihands Islands vakti at-
hygli á því í gær aö cf hótun LÍÚ um
afí stöðva fiskiskipailotann kæmi til
framkvæmda myndi slíkt hafa í för
með sér stórfelldara atvinnulcysi
verkafólks en hér hel'Ur þekkst um
árahil. UMSÍ skorar því á alla aðila
sem málið snertir að gera allt sem í
þeirra valdi stcndur til þess að
koma í veg fyrir að slíkt ástand
skapist.
Jón Hnefill Aðalsteinsson. Þór Magnússon, Hafsteinn Guðmundson og
Haraldur Ólafsson: fornsögur og mataræði, þjóðsögur og hcilsutar.
— (Ljósm. eik).
Stórt ritverk
um íslenska
þjóðmenningu
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur
ákveðið að gefa út fimm eða sex
binda verk um íslenska þjóð-
menningu sem 20-30 fræði-
menn rita. í ritstjórn verksins
verða Haraldur Ólafsson dós-
ent, dr. Jón Hnefill Aðalsteins-
son og Þór Magnússon þjóð-
minjavörður. Reynt verður að
koma verkinu út á fimm árum.
Á blaðamannafundi á dögunum
kom það á daginn, að forstjóri
Þjóðsögu, Hafsteinn Guðmunds-
son, hafði á sínum tíma handsett
fslenska þjóðhætti Jónasar frá
Hrafnagili, það verk sem mest er
vitnað til um lífshætti íslenska
bændasamfélagsins. Og kvað hann
sér oft síðan hafa verið hugsað til
þess hve margt er að glatast og til
skyldu okkar til að varðveita eins
mikið og hægt er.
Mikil vinna
Ritstjórarnir sögðu, að þegar
hefði verið rætt við ýmsa menn um
framlag til ritsins. Áðstaða þeirra
til að skrifa 40-100 síðna kafla um
sín svið væri mjög misjöfn — á
sumum sviðum væri geysimikið
efni til en á öðrum þyrfti að leggja í
ýmsar frumrannsóknir. Þeir vildu
stefna að því að ritið gæti byrjað að
koma út sem fyrst — en varla gæti
fyrsta bindið séð dagsins ljós fyrr
en um þarnæstu jól í fyrsta lagi.
Lögð verður áhersla á að ritið
standist vísindalegar kröfur og
verði um leið aðgengilegt almenn-
ingi. Myndaefni verður mikið,
bæði verða gerðar skýringarmynd-
ir og fundnar til gamlar myndir og
ekki ofnotaðar.
Um einstaka þætti þjóðmenn-
ingar verður fjallað frá upphafi
byggðar í landinu eftir því sem hei-
mildir leyfa. Ekki er ákveðið hve
nálægt okkur verður farið í tíma,
en líklegt. að tekið verði mið af
hinum stórfelldu breytingum sem
yfir þjóðina ganga upp úr 1940.
I mörg horn
að líta
í frumdrögum efnisyfirlits eru
m.a. þessi kaflaheiti: Landið og
lífsskilyrðin. Mannfræði og upphaf
menningar. Dagleg störf til sjávar
og sveita. Skepnurnar. Fatnaður.
Utsaumur. Hagleiksverk. Miðalda
list. Handritaskreytingar. Alþýðu-
list. Flúsagerð. Samfélagsgerð.
Bændafjölskyldan. Æviskeiðin.
Samgöngur og verslun. Mataræði.
Heilsufar. Fornsögur. Sagnadans-
ar. Skemmtanir. Tónmenntir. Alþ-
ýðuskáld. Leikir og íþróttir. Þjóð-
sögur og sagnir. Hátíðir. Trú og
kirkja. Þjóðtrú. Alþýðleg vísindi.
Alþýðulækningar. Alþýðleg veð-
urvísindi. Alþýðlegir tímatalsút-
reikningar. Þéttbýlismvndun.
Kvennamenning.
Leitað hefur verið til milli tut-
tugu og þrjátíu manna til að rita í
verkið eða vera til ráðuneytis um
gerð einstakra kafla. Eftirtaldir
menn eru í hópi þeirra sem þegar
hefur náðst til: Agúst Georgsson
fil.kand., Dr. Alda Möller, Árni
Björnsson safnvörður, Elsa E.
Guðjónsson safnvörður, Frosti F.
Jóhannsson fil.kand., Dr. Gísli
Pálsson, Gunnlaugur Haraldsson
þjóðháttafræðingur, Flallfreður
Örn Eiríksson cand.mag., Hall-
gerður Gísladóttir safnvörður, Jón
Samsonarson handritafræðingur,
Jón Steffensen prófessor, Jón Þór-
arinsson tónlistarmaður, Kristján
Eldjárn prófessor, Lúðvík Kristj-
ánsson rithöfundur, Óskar Hall-
dórsson dósent, Páll Jónsson bóka-
vörður, Páll Bergþórsson veður-
fræðingur, Ragnheiður Helga
Þórarinsdóttir forstöðumaður, Dr.
Selma Jónsdóttir forstjóri, Sigurð-
ur Þórarinsson prófessor, Dr. Stef-
án Aðalsteinsson, Sveinbjörn
Rafnsson prófessor, Vésteinn Ola-
son dósent, Þórður Tómasson
safnvörður, Dr. Þorsteinn Sæm-
undsson stjarnfræðingur.
IAMfrá
BORGAR SIG AÐ SPARA?
SVAR: Þarfir nútímamanna eru margvíslegar allt frá
húsnæði og klæðum,til bíla, vídeótækja og skíða-
útbúnaðar. Sumar þessar þarfir eru manninum
lífsnauðsynlegar, aðrar ekki. Islendingar hafa
búið við það undarlega ástand í yfir 40 ár, að þeir
sem veittu sér allt sem hugurinn girntist þurftu
ekki að greiða fyrir það fullu verði, heldur voru
hinir. sem neituðu sér um munaðinn, látnirgreiða
fyrir þá að hluta með rýrnun á sparifé sínu. Er ekki
að furða þó að svo löng reynsla hafi sett svip sinn
á afstöðu mannatil sparnaðar. En nú hefur verið
snúið við blaði. Sparifjáreigandanum hefur verið
tryggt að hann fái verðgildi aura sinna til baka og
reyndar örlitla vexti að auki. Þetta er gjörbreyting.
Nú ættu allir að hugleiða, hvort þeir geti ekki
frestað einhverjum þörfum sínum um smátíma og
keypt sér hlutina síðar og þá fyrir eigið sparifé í
stað þess að taka mjög dýr lán til kaupanna.
Eigið sparifé er auk þess hluti af sjálfstæði
manna. Maður sem á t.d. sex mánaða laun á
sparisjóðsbók er miklum mun frjálsari en hinn,
sem er búinn með mánaðarlaunin um miðjan
mánuðinn og á ekkert upp á að hlaupa. Þetta ættu
menn að hugleiða vel áður en þeir steypa sér í
miklar fjárfestingar.
LANDSSAMBAND SAMBAND ALMENNRA
LÍFEVRISSJÖÐA LÍFEYRISSJÓÐA ItílA