Þjóðviljinn - 23.09.1982, Qupperneq 2
2 SÍÐA— ÞJÓÐVILJINN Migvikudagur 22. september
Gátan
um
krabba-
meinið
ráðin?
Bandarískir læknar telja sig
hat'a gert nýja uppgötvun um eðli
krabbameinssjúkdóma er eigi
eftir að gjörbreyta möguleikum á
greiningu og meðferð. A lækna-
þingi, sem nýlega var haldið í Se-
attle kom fram að vísindamenn-
irnir höíðu fundið svokallaða
onko-litninga í heilbrigðum vef,
en litningar þessir höfðu áður
fundist í vissum vírusum og
krabbameinsæxlum.
Læknarnir álíta að það séu
þessir litningar sem valdi hinni
stjórnlausu frumuskiptingu sem
einkennir krabbamein. En það
sem kom á óvart var, að litningar
þessir skyldu finnast í heilbrig-
ðunt vef. Vincent de Vita, yfir-
maður krabbameinsstofnunar
Bandaríkjanna telur að litningar
þessir gegni stóru hlutverki á
fósturskeiði þegar frumuskipt-
ingin er ör, en „liggi síðan í
dvala" meginhluta æfinnar. En
hjá mörgum gerist eitthvað sem
vekur litninga þessa af dvala
þannig að þeir fara að framleiða
ýmis próteinaefni.
Vísindamennirnir telja að það
sé á þessu stigi sem hin ólíku efni
koma til sögunnar er framkalli
krabbamein, eiturefni í umhverf-
inu, hormónar og vírusar.
Nú þegar við vitum hvernig
æxlismyndunin byrjar er það
næsta verkefni okkar að finna út
hvernig við getum látið onko-
litningana halda áfram að liggja í
dvala.
de Vita sagðist þeirrar skoðun-
ar, að nú ætti að beina öllum
kröftum krabbameinsrannsókna
að onko-litningunum. „Krabba-
ntein er nú orðið sá sjúkdómur
sem mestur möguleiki er á að
lækna af öllum þeirn sjúkdómum
sem við köllum ólæknandi, og
krabbamein gæti orðið sá sjúk-
dómur, sem auðveldast yrði að
fyrirbyggja ef allir leggjast nú á
eitt“, sagði de Vita álæknaráð-
stefnunni í Seattle.
Alexander
Haig
til sölu fyrir
miljón dali
Þeir eru ekki á flæðiskeri
staddir þessir kallar meðan al-
menningur axlar kreppuna. Al-
exander Haig skrifar bók um
tímann sinn í embætti utanríkis-
ráðherra í Bandaríkjunum. Fyrir
þetta lítilræði, að raupa úr ráðu-
neytinu fær Haig eina miljón
dollara. Hann hafði einnig fengið
tilboö um sömu upphæð fyrir
fyrirlestraferð urn sama efni en
hafnaði því. Dýr myndi Haf-
liði....
Lærlingar í iðnaði í Þýskalandi kretjast rcttar til vinnu og menntunar. Atvinnuleysið bitnar verst á unga
fólkinu, en í V-Þýskalandi er nú 6,8% vinnufærra atvinnulaus.
Efnahagsbandalagslöndin
Tíundi hver
atvinnulaus
Atvinnuleysingjum fjölgaði um fræðistofnun EBE og nær það nú
300 þúsund innan Efnahags- til 9,6% atvinnufærra manna, en
bandalags Evrópu í síðasta mán- samsvarandi tala var fyrir ári síð-
uði samkvæmt tölum frá töl- an 8 af hundraði.
Þetta þýðir, að tæplega 11 mill-
jónir manna gangi nú atvinnu-
lausir innan bandalagsins, og
telja sérfræðingar EBE að á-
standið eigi enn eftir að versna
áður en hinn langþráði bati komi
í ljós.
Verst er ástandið í Belgíu, þar
sem atvinnuleysið er 14,6%, en á
eftirkoma írland, Bretland, Hol-
land og Ítalía. Atvinnuleysið hef-
ur lítið aukist í Frakklandi að
undanförnu eða úr 8,3 í 8,6 af
hundraði á síðustu 3 mánuðum.
Minnst er atvinnuleysið í Grikk-
landi og Luxembourg eða 0,9 og
1.1%.
Eldfimur kjóll
Liv Llllman - kynnir alþjóðlegu
friðardagskrána „Good Morning
World“.
Fjölmiðlun
Alþjóðlegt
friðar-
dagskrá
24. október
Sænska sjónvarpið hefur átt
frumkvæði að gcrð sameigin-
legrar dagskrár uni friðarmál í
samvinnu við 8 önnur lönd á degi
Sameinuðu þjóðanna hinn 24.
októbcr n.k. Löndin sem taka
þátt í dagskrárgerðinni eru auk
Svíþjóðar Noregur, Ítalía, Sviss,
Spánn, Júgóslavía, Frakkiand,
írland og Grikkland. Verður
dagskránni sjónvarpað samtímis
í öllum löndunum.
Það var sænska leikkonan Bibi
Anderson sem átti frumkvæðið,
en hún safnaði um sig fólki eins
og Harald Ofstad og Alva Myr-
dal, sem þekkt er fyrir afskipti sín
að friðarmálum. Hópurinn fékk
svo margar hugmyndir að báðar
rásir sænska sjónvarpsins ætla að
helga vikuna í kring unt 24. októ-
ber friðarmálum með mörgum
dagskrám, en ein þeirra veröur
hin sameiginlega alþjóðlega dag-
skrá sem fyrr var getiö. Ákveöið
hefur verið að sænska framlagið
verði tekið upp utan húss: mynd-
uð verður órofa keðja fólks sem
helst í hendur frá sendiráði
Bandaríkjanna í Gárdet í Stokk-
hólmi út á Marieberg þar sem
sendiráð Sovétríkjanna er til
húsa. Keðjan á að tákna banda-
lag friðar og bræðralags og um
leið að vera eins konar bræðra-
lagsbrú á milli þessara stórvelda.
Sameiginlega dagskráin, sem á
að heita Good Morning World.
verður kynnt af norsku leikkon-
unni Liv Ullman af tröppum
aðálmiðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna í New York.
rn r •
Truin
flytur
kjöt-
fjöll?
Það eru ekki bara við íslendingar.
sem erum að kikna undan kjöt-
Ijalh'nu. Svíar eiga líka miklar
umframbirgðir af kjöti, sem þeir
reyna að flytja út með niður-
greiðslum frá ríkinu. Endanlega
hafnar þó rcikningurinn hjá neyt-
andanum, segir Uageus Nyheter.
En það er ekki b ira að Svíar
framleiði ot mikiö af kjöti, sem
ekki selst á innanlandsmarkaði.
Kjötverðið er svo hátt, að sænsk
fyrirtæki sem vinna að niðursuðu
á kjöti vilja heldur flytja inn kjöt
frá EBE-löndununt en að nota
innlent kjöt.
Það eru m.a. fyrirtæki eins og
Findus, sem flytja síðan út aftur.
Aukið við kjötfjallið
Innflutningsgjaldið fá þeir endur-
greitt við útflutninginn. Niður-
soðna kjötið selur Findus m.a. til
sænsku þróunarhjálparinnar,
sem flytur kjötið til þróunar-
landa. Stjórnarformaður Findus
sagði, að ef þeir notuðu innlent
Þessi kjóll brennur auðveldar en
þurr pappír segja sænsku neytenda-
samtökin. Kjóllinn er úr þunnu bóm-
ullarefni með víðum ermum. Kjólar af
þessari gerð með þrykktu indversku
mynstri eru vinsælir og víða til sölu,
einnig hér á landi. Neytendasamtökin
sænsku létu kanna málið eftir að kona
nokkur hafði hlotið varanlega skaða er
kjóllinn hennar brann. Hún var að
hreinsa borðin heima hjá sér eítir
gestaboð þegar logi af kerti náði að
kveikja í hinni víðu ermi kjólsins. Eld-
hættan stafar af hinum víðu crmum og
hinu þunna efni. Neytendasamtökin í
Svíþjóð hafa nú farið fram á að slíkir
kjólar verði teknir út af markaðnum.
kjöt myndi dæmið ekki ganga
upp.
Spurningin er hvort Svíum hef-
ur tekist að finna rétta lausn á
dæminu, eða hvort kjötfjalla-
flutningarnir gætu ekki orðið
hagkvæmari með öðru móti?