Þjóðviljinn - 23.09.1982, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 23.09.1982, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 23. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 eða hin söfnin til að kanna aðrar bækur og heimildir. En skyndilega var ævi Kristjáns öll. íslenzkir safnmenn misstu í þeirri skjótu svipan ekki aðeins einstæðan samstarfsmann heldur og góðan vin, hver og einn. f>jóð- minjasafn íslands sér á bak einum sinna beztu forvígismanna alla tíð, þeim manni, sem ég veit, að hvað lengst verði minnzt hér á safninu þá stundir líða fram. fslenzka þjóðin missti einn sinn bezta son, sem ævinlega kom fram af virðingu, festu og drengskap og var fyrir- mynd að mannlegum eiginleikum. En mestur er þó harmur hinna nán- ustu skyldmenna, Halldóru konu hans og barna þeirra, og margur hefur hugsað til dótturinnar Ólafar, sem fór með föður sínum vestur um haf og var hjá honum er yfir lauk. Daginn eftir að lát Kristjáns spurðist var komið til mín með gamla rúmfjöl með versi, „tré- skáldskap“, eins og Kristján kall- aði stundum slíkar útskurðarvísur, sem frekar voru ortar af vilja en mætti. Má vera, að þetta vers sé þekkt annars staðar, en mér fannst það koma eins og kveðja frá gengnu kynslóðunum til þess manns, sem náði kannske betur sambandi við þær en flestir menn aðrir: Veittu mér Drottinn vernd og ró, vek mig í réttan tima þó, líkaminn sofí sæll sem hér, I sálin í náðum vaki í þér. Þór Magnússon. Nökur minn- ingarorð og heils- an úr Föroyum Tung vóru boðini at fáa á morgni 15. september, at Kristján Eldjárn, fv. Þjóðminjavörður, var slókn- aður. Av sonnum ein harmadeyði. Tá ið hann vitjaði her í juni mán- aða tóktist hann vera frískur og fer- ugur sum áður, tess meira kornu uppskakandi sorgartíðindini okk- um heilt óvæntað. Vit vinfólk og kunningar hans- ara syrgja við tykkum íslendingum nú Kristján Eldjárn, ein mætasti mentamaður og vísindamaður tykkara er farin. „Farin í annað ljós", sum tey gomlu fyrr so vakurt tóku til. Kristján var ein góður og trúgvur föroyavinur, tí vilja og eiga eisini vit at minnast hann við tökk og æra minni hansara. Hann fylgdi væl við viðurskiftun- um her á landi, og fegnaðist stór- liga um gróðurin tey seinru árini, serliga í menningarligum og vísind- aligum förum. Yvirhövur var hann alhugaður fyri semju og samarbeiði Norður- landa fólka millum; í hesum sam- bandi gloymdi hann ongatíð För- oyar og samvinnuna við starvs- bröður sínar her í oyggjunum. Sjálvandi fara mangir landar hansara at skriva minnisgreinir um henda merkismann, og um alt ið hann fekk útint sum forngranskari, tjóðminnavörður, forseti, rithöv- undur og skald. Tí verður lítið ella einki av he- sum umrött her, men kortini loyvi eg mær at taka upp aftur tey orð, ið harra Ásgeir Ásgeirsson, táverandi forseti, segði ta ferðina eg sum för- oyskur umboðsmaður var boðin til 100-ára hátíðarhald Þjóðminja- safnsins og hann, meðan vit tríggir stóðu í skrivstovu forsetans, legði aðra hond sína á öksl Kristjáns Eldjárns: „Hesin maður er ein hin besti pennur íslands.” Síðan bara eftir förimuni nökur- kanska held- ur persónlig - orð um starvsbróð- urin og vinmannin. Stutt aftaná at Kristján var settur þjóðminjavörður í 1947, komu vit í brævaskifti um sögulig evni, og mangan varð talað um at koma hig- ar at vitja. Eina ferð setti hann fót- in á land, segði hann mær, men so snimma á morgni, at han ikki, hon- um líkt, vildi gera nakað um seg. Fyrst tá ið hann hevði lagt frá sær sum forseti mitjaði hann tá hövi beyðst. Tá hövdu vit framman undan ofta hitst sjálvir í íslandi og hinum Norðurlondum til fundar og hátíðarhalda. Trúfastur vinur var hann allar dagar og umhugsin; ikki hitti hann föroyingar uttan at hann við teimum sendi mær kvöðu, ið gleddi og vermdi. Föroya Fornminnissavni, stovn- að í 1952, sýndi hann miklan ans, og var okkum, mær og nú Arna Thorsteinssyni landsantikvari, alt- íð frálíkur í ávikum, tá ið vit hövdu ivamál ella leitaðu til hansara um fornfröðiligt samanberingartilfar í íslandi. Ómetaliga vitandi, lærdur og klókur var hann á at heita. Eitt ivamál og seráhugamál okk- ara Kristjáns, mest sum framíhjá arbeiði, var royndin at finna prógv fyri, at papar í roynd og veru bú- leikaðu í íslandi og Föroyum. Kristján var í Papey summörini 1967, 1969 og 1971. Leysur úr for- setaembæti fór hann fyri álvara at gera rannsóknir aftur har 1981. Henda rannsóknin man vera tann seinasta av mongum honum untist at útinna. Funnin varð víkingaaldarskáli og lutir frá 10. öld, men tessverri ongar papaleivdir. 1967 kom í ljós sera forvitnisligur smálutur, úr reyðum leirsteini, sum leysliga var rist í mynd av djóri, ið eisini er tíðarfest til 10. öld. Kristján hevur givið tí heitið „Papeyjardýrið". Skrivað hevur hann um tað sera áhugaverda grein í „Fróðskapar- riti“ (28. og 29. bók, Tórshavn 1981, bls. 19-29) til tess at gleða meg. Nevndi frammanfyri at Kristján var alhugaður fyri norðurlendsk- um samarbeiði; sjálvsagt var tí, at hann kom at verða limur í byggi- stýrinum fyri „Norröna húsinu í Föroyum". Tá ið hann í hesum örindum var her í juni 1982, var eg fegin um at gleða hann við ferð til Mykinesar, har ið eg 1947 gav nökrum ser- kenniligum lendum gætur og meg ósjálvrætt greinaði, at tey kundu vera fornir akrar; um so var kann henda papaverk. Tveir af hesum stöðum vórðu kannaðir í 1970 ár- unum við tí úrsliti, at hetta veruliga eru akrar, har havri varð veltur fyrst í 600 árunum, og helst í vík- ingaöld bygg. Við hesum er hóm- ing fingin fyri um búsetning har eini 100 ár longur aftur í tíðina enn áður hildið. Beinleiðis prógv fyri papabúseting er tað ikki, tó trú- ligast kortini. Hvört sinn tey seinru árini eg ha- vi komið til íslands, eri eg tikin ímót við ótilgjördum hjartaligum gestablídni hjá frú Halldóru og Kristjáni á Þjóðminjasafni, Bessa- stöðum og Sóleyjargötu. Hesar samverur eru mær í takksemi ó- gloymandi. Sum menniskja var Kristján Eld- járn sjáldsama dámligur. Öll, ið komu at kenna hann, máttu verða góð við hann og hugtikin av hon- um, reinuríhuga ogsinni, lítillátin, glaðlyntur og blíður, fróður og vinsælur sum hann var. Tykkum Halldóru og börnunum sendi eg - og mangur föroyingur við mær - bestu heilsan við inni- iigari samkenslu í sorg og sakni tykkara. Vit lýsa frið yvir minni Kristjáns Eldjárns. Sverri Dahl Kveöja frá stjórn Hins islenska fornleifafélags Árið 1948 gekk Kristján Eld- jám, sem þá var nýorðinn þjóð- minjavörður, í það af sínum al- kunna dugnaði að endurvekja Ár- bók hins íslenska fornleifafélags, sem þá hafði ekki komið út síðan 1942. Verðbólga stríðsáranna og hvers kyns erfiðleikar, sem af henni spmttu, höfðu valdið því, að menn gáfust upp á útgáfu Árbók- ar. Kristján sá, að ekki mætti við annað una en að Árbókin kæmi út á ný, minjafræðin yrði að eiga sér málgagn, ef safnstörf og rannsókn- ir ættu að bera einhvem árangur og þeir, sem að menningarsögu- legum rannsóknum ynnu, þyrftu vettvang fyrir ritsmíðar sínar á því sérsviði. Árið 1949 kom svo Árbók út að nýju fyrir sex ára tímabil. Var Kristján þá ritstjóri hennar og var það alla tíð síðan. Skrifaði hann sjálfur mest í ritið upp frá þessu, birti þar rannsóknarskýrslur sínar, greinar um athuganir á fomgripum og minjum, fróðleiksgreinar af ýmsu tagi svo og skrár og skýrslur. Hvatti hann aðra til að skrifa í Ár- bók og varð mjög vel ágengt um greinar til hennar. Varð hún skjótt undir ritstjóm hans merkilegt rit, sem átti erindi til innlendra og er- lendra fræðimanna, en þó ekki sízt til almennings hér á landi, enda var Kristjáni sjálfum létt um að skrifa þannig, að ljóst væri lærðum og leikum. Kristján Eldjám var skrifari fomleifafélagsins frá 1945 og allt til þess að hann var kjörinn for- maður þess árið 1979. Má segja, að á honum hvíldi tilvera félagsins og útgáfa Árbókar, en einnig flutti hann oft erindi á aðalfundum fé- lagsins um rannsóknir sínar og at- huganir. Að leiðarlokum vill stjóm Hins ísienzka fornleifafélags færa dr. Kristjáni Eldjárn þakkir fyrir störf hans í þágu félagsins og Árbókar þess. Hann hóf merkið á loft er aðrir höfðu gengið frá, ótrauður að leggja á sig erfiðleika og fyrir- höfn, sem engin laun komu þó fyrir nema þau, sem fræðimannin- um verða þó oft drýgst, ánægjan yfir vel unnu verki og vitundin um að hafa orðið íslenzkum fræðum að liði. Stjórn Hins íslenzka fornleifafélags Kveðja frá Norræna félaginu Það var ógley manlegur dagur og fögur minning að eiga um vorn látna forseta, þegar þess var kostur að fara með þeim bræðmm Krist- jáni og Hirti og konum þeirra Hall- dóm og Sigríði í það unaðsland Vatnahverfi í Eystri byggð á Grænlandi í ágústmánuði á liðnu sumri. Skjótt hefur sól bmgðið sumri og komið hausthljóð í vind- inn. Kristján Eldjárn var einhver sá maður sem best var að biðja bónar allra sem ég hef kynnst. Ætíð var mér tekið með ljúfri lund og léttri og minnist ég þess ekki að hann léti mig nokkru sinni synjandi ffá sér fara. Alla jafnan voru þetta óskir um að taka á móti fólki eða koma á fundi og tala, en betur máli farinn en hann voru fáir eins og kunnugt er. Ég minnist þess eitt sinn að ég hafði hitt fræðimann af Álandi dr. Dreyer, sem skrifað hafði um doktorsritgerð Kristjáns. Hann langaði að eignast ritgerðina árit- aða af höfundi. Ég færði þetta í tal við Kristján. 'Hann tjáði mér að „Kuml og haugfé” væri svo til ófá- anleg með öllu þótt gull væri í boði. „En ég skal gera annað,” sagði hann að bragði og brosti. „Ég á hér eintak af „100 árum í Þjóð- minjasafni.” Ég skalskrifa á það ef þú vilt, svo að þú getir veitt honum nokkra úrlausn.” Þetta lýsir nokkuð þessum ljúf- lingi, sem ekki vildi láta neinn bón- leið frá sér fara. Við sem erum að leitast við að vinna að norrænum málum sökn- um sannarlega vinar í stað og er þá nú síðast að minnast drengilegs stuðnings Kristjáns við Græn- landskynningu okkar á liðnu vori og aðstoð í Grænlandsferð sem hann átti drjúgan þátt í að gera eftirminnilega. Engan grunaði þegar hann tal- aði yfir okkur íslendingum við Hyalseyjarkirkju - fleiri íslending- um en nokkur maður hefur ávarp- að síðustu sex aldir eða svo þar um slóðir - að hann myndi allur um mánuði síðar. Við getum svo sannarlega tekið undir með Stefáni G. er hann segir í Helgaerfi: Hreifur fram á hinstu stund hann um mein sitt þagði, faidi sína opnu und undir glöðu bragði. Norræna félagið og allir þeir er láta sig norræn samskipti varða sjá á bak hollvini og biðja allar góðar vættir að styrkja Halldóru, börn þeirra og venslafólk í miklum harmi heillar þjóðar. Hjálmar Ólafsson Kveðja frá starfsfólki Þjóðm injasafns íslands Það er ekki laust við, að tilfinn- ingar safnfólksins væru nokkuð á reiki, þegar Kristján Eldjárn var kjörinn forseti og hvarf úr embætti þjóðminjavarðar. Að sjálfsögðu samfögnuðum við þjóðinni að hafa eignast höfð- ingja, sem við vissum af reynslu, að vart gat betri fundist. A hinn bóginn þótti okkur skarð fyrn skildi að sjá á bak yfirmanni, sem með þekkingu sinni, árvekni, áhuga, lipurð og þægilegu viðmóti kom öllum samstarfsmönnum sín- um til nokkurs þroska. Því fór fjarri, að Kristján gleymdi okkur, þótt hann héldi hefðar upp á tind. Honum virtist jafnvel hollt að hafa þar ból, and- stætt orðum skáldsins. Bæði vegna vísindastarfa sinna og ritstjórnar á Árbók Fornleifafélagsins, en ekki síst vegna sívakandi áhuga á mál- efnum Þjóðminjasafnsins, var hann tíður 'aufúsugestur á sínum gamla vinnustað. Gerði hann sér þá jafnan far um að kynnast því, hvemig hverjum og einum vegnaði á sínu sérsviði og hvatti menn og örvaði á ýmsa lund. Átti það jafnt við um nýliða sem gamalgróna starfsmenn. Einnig tyllti hann sér oft og drakk kaffisopann með okk- ur og spjallaði um dægurmálin ell- egar heilsaði upp á gæslukonumar til að fylgjast með hag þeirra og líðan. Hinn 8. september sendi hann okkur póstkort frá sjúkrahúsinu vestra. Hann vonaðist þá til að ná fullri heilsu og bjóst við að hverfa heim eftir hálfan mánuð. Sex dög- um síðar var hann allur. Með söknuði kveðjum við Kristján Eld- járn, ágætan mann og vin. Að- standendum hans öllum færum við innilegar samúðarkveðjur. Kveðja frá Listasafni íslands Á kveðjustund hefur starfsfólk Listasafns íslands margs að minn- ast. Kynni okkar Kristjáns Eldjáms hófust á ámnum 1950-51 er Lista- safnið fluttist í nýbyggt hús Þjóð- minjasafnsins. Þau 17 ár sem við störfuðum samtímis í safnhúsinu hlutum við að hafa mikil dagleg samskipti af ýmsu tilefrii. Starfsfólk safnanna var þá svo fátt að heita mátti að við vænim eins og ein lítil fjölskylda. Á þessum ámm bjó Kristján í safnhúsinu ásamt fjölskyldu sinni. Reyndi þá oft á þolinmæði og vel- vild hans bæði sem embættis- manns og einstaklings vegna starf- semi Listasafnsins en margvíslegt ónæði fylgdi oft listsýningum og undirbúningi þeirra, jafnvel að kvöld- og næturlagi. Þrátt fyrir þetta bar aldrei skugga á sambýli safnanna og má fyrst og fremst þakka það einstakri lipurð og ljúfmennsku Kristjáns og fjölskyldu hans. Ekki dvínaði vinátta Kristjáns í garð Listasafnsins og starfsmanna þess þó að hann tæki við embætti forseta íslands. Hann hafði lifandi áhuga á starfsemi safnsins og við- gangi. Heimsóknir hans. hvort heldur var í embættis- eða einkaer- indum, voru ávallt gleðiefni því að frá honum stafaði óvenjulegri hlý- ju og skemmtan sem hafði jákvæð og hvetjandi áhrif jafnt við háttðleg tækifæri sem í önn dagsins. Að lokinni samfylgd vill starfs- fólk Listasafnsins þakka af alhug vináttu Krisfjáns Eldjárns og tryggð. Við kveðjum hann með söknuði og sendum Halldóru og öðrum ástvinum hans innilegar sam úðark veð j ur. Selma J ónsdóttir Kveðja frá Félagi íslenskra fræða í dag kveðjum við einn okkar virtasta og virkasta félaga. Fyrir okkur var hann ekki aðeins ástsæll forseti og dyggur embættismaður heldur miklu fremur framúrskar- andi fræðimaður og skemmtilegur félagi. í félagi okkar eru margar kynslóðir og Kristján Eldjám var þeim öllum mikils virði hverri á sinn hátt. Þeim eldri var hann skólafélagi og starfsbróðir, hrókur alls fagnaðar á góðri stund, úr- ræðagóður og glöggur fræðimaður sem gott var að leita til. Hinum yngri var hann leiðarljós í fræði- mennsku og uppspretta fróðleiks og skemmtunar hvenær sem hann tók til máls á fundum. Það vakti í raun furðu margra hve oft honum tókst frá önnum embættis forseta íslands að sækja samkomur félags- ins okkar og þegar Kristján var mættur til Ieiks þá var víst að ekki skorti hnyttnar athugasemdir og fjörugar umræður. Dr. Kristján Eldjárn lauk magistersprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla íslands 1944, var einn af stofnendum Félags íslenskra fræða árið 1946 og fulltrúi þess í Vísindasjóði í mörg ár. Hann bar hag félagsins ávallt fyrir brjósti og sýndi það eftirminnilega í verki á 25 ára afmæli félagsins sem félags- mönnum er í fersku minni. Störf hans í þágu íslenskra fræða voru umfangsmikil og hugur hans stóð til að helga sig þeim enn meir þeg- ar erilsömum embættisstörfum var lokið. Um leið og við kveðjum mætan félaga og góðan dreng vottum við frú Halldóru og öðrum aðstand- endum innilega samúð okkar. Þeirra er söknuðurinn mestur. Við þökkum hins vegar marga góða stund á liðnum árum. Frú Halldóra Eldjárn og dr. Kristján í júlí 1980.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.