Þjóðviljinn - 23.09.1982, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. september 1982
ALt>ÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Austurlandi - Aðalfundur
kjördæmisráðs 25.-26. september
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi heldur aðal-
fund á Djúpavogi dagana 26. og 26. september.
Fundurinn hefst á laugardag 25. seþtember kl. 13 og lýkur síðdegis á
sunnudag.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf. 2. Málefni kjördæmisins. 3. Kosningastarf og undir-
búningur framboðs. 4. Stjórnmálaviðhorfið. 5. Önnur mál.
Tilkynningar um kjör fulltrúa berist Einari Má Sigurðssyni, formanni
kjördæmisráðsins í síma 7468 (á kvöldin), og veitir hann nánari upplýsing-
ar, m.a. um ferðir á fundinn, sem er opinn öllum flokksmönnum. - Stjórn
kjördæmisráðs.
Djúpivogur - nærsveitir
Alþýðubandalagið
Helgi
Hjörleifur.
Kjördæmisráð Suðurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýöubandalagsins í Suðurlandskjördæmi
veröur í verkalýðshúsinu á llellu helgina 25. og 26. september n.k. og
hefst kl 14. á laugardag.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Garðar Sigurðsson og Baldur Óskarsson flytjit stuttar ræður. Þorbjörn
Broddason flytur erindi um prófkjör.
Kvöldvaka á laugardagskvöld.
Fundarslit eru áætluð kl. 16 á sunnudag.
Stjórn kjördæmisráðs
Flelgi Seljan og Hjörleifur Guttorms
son boða til almenns fundar á Dj úpa-
vogi föstudagskvöldið 24. septem
ber kl. 20:30.
Allir velkomnir.
Svavar
Alþýðubandalagði Hafnaríirði
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í
Hafnarfiröi verður haldinn að
Strandgötu 41 þriðjudaginn 28.
september, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Inntaka nýrra félaga.
2) Venjuleg aðalfundarstörf.
3) Geir Gunnarsson og Svav-
ar Gestsson mæta á fundinn
<>g ræða stjórnmálaástandið.
4) Önnur mál. ,, .
Geir
Kaffi á könnunni. Félagar tjöl-
mennið. - Sjórnin.
Greiðum félagsgjöldin
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík skorar hér meö á þá Aiþýðuband-
alagsmenn sem enn skulda gjaldfallin félagsgjöld að greiöa þau sem fyrst
Stöndum í skilum með félagsgjöldin og eflum þannig starf Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík.
Stjórn ABR
Orðsending til styrktarmanna
Alþýðubandalagið hvetur styrktarmcnn flokksins til að greiða útsenda
gíróseðla hið allra fyrsta. — Alþýðubandalagið.
Frá skrifstofu Alþýðubandalagsins
Skrifstofur Alþýðubandalagsins verða lokaðar eftir hádegi í dag vegna
útfarar dr. Kristjáns Eldjárns. — Alþýðubandalagið.
Innritun í
almenna flokka
verður 29. sept. til 1. okt. kl. 17-21 í
Miðbæjarskóla.
Sjá auglýsingu miðv.d. 29. sept.
Helgi Kristjánsson
Leirhöfn
verður jarðsunginn frá Snartastaðakirkju laugardagmn 25.
september n.k. kl. 14.00
Andrea Jónsdóttir
og fjölskylda.
Fagnar
samstarfi
um kjara-
samninga-
mál
Hér fara á eftir nokkrar ályktan-
ir nýafstaðins iandsþings sveitarfé-
laga og tjalla þær um hin fjölbreytt-
ustuefni.
Samskiptamiðstöð
sveitarfélaga
Þingið..fagnar þeirri samstöðu
og þeim árangri, sem náðst hefur
með stofnun Samskiptamiðstöðvar
sveitarfélaga" og samþykkir að
miðstöðin „verði efld svo að hún
geti fylgst með þeirri öru þróun,
sem er á sviði tölvumála og sinnt
ráðgjafar- og fræðsluhlutverki sínu
sem best." Er stjórn miðstöðvar-
innar falið „að leggja fram tillögur
þar að lútandi fyrir næsta fulltrúa-
ráðsfund sambandsins."
Verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga
Fagnað er því „frumkvæði
félagsmálaráðherra að skipa
samninganefnd til að hraða störf-
um í sambandi við verkaskiptingu
þessara aðila."
Staðgreiðsla opinberra
gjalda
Þingið var samþykkt því fyrir-
komulagi og vísar til fyrri ályktana
sinna þar um.
Fjármál sveitarfélaga
Talið er löngu tímabært að trúa
sveitarfélögum fyrir ákvörðunar-
valdi yfir tekjustofnum sínunt og
álítur þeini hafi verið settar of
þröngar skorður viö tekjuöflun
undanfarin ár. Varhugavert er „að
stjórnvöld skerði þau frekar með
einhliða aðgerðum."
Heilbrigðismál
Þingið Ieggur „áherslu á, að
rekstur heilsugæslustöðva verði
tekinn til endurskoöunar með það
að markmiði, að dregið verði úr
kostnaði og stjórnunarábyrgð
sveitarstjórna viðurkennd." Hvatt
er til „endurskoðunar á nýsam-
þykktum lögum um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit, sem setja
sveitarstjórnum mjög miklar og
kostnaöarsamar skyldur á herðar."
Bent er „á rnjög erfiða rekstrar-
stöðu sjúkrastofnana, sem reknar
eru af sveitarfélögum eða í sam-
rekstri með ríki".
Húsnæðismálalöggjöf
Þingið leggur til „að jafnaðir
verði lánamöguleikar þjóð-
félagshópa úr húsnæðismálalána-
kerfinu". Að bættir verði
lánamöguleikar vegna íbúða fyrir
aldraða og öryrkja, bæði til eignar
og leigu, og fagnar nýsettum
bráðabirgðalögum um afnám
kaupskyldu sveitarfélaganna á
verkamannabústööum.
Eignarnám landa
Þingið..skorar á ríkisst jórn og
Alþingi að setja löggjöf, sem tryggi
að eignarnánisverðmæti landa
verði í’ samræmi við þann af-
rakstur. sem eigandi hefur af nýt-
ingu landsins. en án tillits til legu
þess. Jafnframt bendir þingið á, að
nauðsynleg forsenda þessarar lög-
gjafar er breyting á reglum unt fast-
eignamat ianda."
Kjarasamningur sveitar-
félaga
Þingiö..fagnar því samstarfi,
sem tekist hefur um
kjarasamningamál. Hvatt er til að
sveitarfélögin nýti sér þá þjónustu.
sem þetta samstarf býöur upp á."
Jafnframt fer þingið Þess á leit. að
sambandið fái aðild að nefnd. sem
ákeöið hefur verið aö skipa til að
endurskoða lög um kjarasamninga
opinberra starfsmanna." mh
Vegna útfarar dr. Kristjáns Eldjárns, fyrr-
verandi forseta íslands verða skrifstofur
Sambandsins lokaðar eftir hádegi í dag
fimmtudag 23. september.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉLAGA
Bæjarskrifstofur
Hafnarfjarðar
verða lokað^r frá kl. 13 í dag vegna jarðarfar-
ar dr. Kristjáns Eldjárns fyrrverandi forseta.
Bæjarstjóri
Stofnanir
Reykjavíkurborgar
verða lokaðar fimmtudaginn 23. september
kl. 13.30-15.30 vegna útfarar dr. Kristjáns
Eldjárn, fyrrv. forseta íslands.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Vegna jaröarfarar
Óskars Þorvarðarsonar verður skrifstofa vor
lokuð frá kl. 13 til 15 föstudaginn 24. sept-
ember.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Sjúkraþjálfari
óskar nú þegar til starfa að Heilsugæslustöð
og sjúkraskýli í Bolungarvík.
Upplýsingar veitir heilsugæslulæknir í
símum 94-7287 og 94-7387.
Bæjarstjórinn í Bolungarvík
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágúst- mánuð 1982, hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20% en síðan eru viðurlögin 4% til viðbótar fyrir hvern
byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. október.
Fjármálaráðuneytið, 17. september 1982.
Auglýsing
um starfslaun
til listamanns
Stjórn Kjarvalsstaða auglýsir eftir umsóknum um starfslaun
til íistamanns í allt að 12 mánuði. Þeir einir listamenn koma til
greina við úthlutun starfslauna, sem búsettir eru í Reykjavík,
og að öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir við úthlutun, sem ekki
geta stundað listgrein sína sem fullt starf. Það skilyrði ersett,
að listamaðurinn gegni ekki fastlaunuðu starfi meðan hann
nýtur starfslauna.
Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum samkvæmt 4.
þrepi 105. Ifl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfslaun eru greidd án
orlofsgreiðslu eða annarra launatengdra greiðslna.
Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir starfi
sínu með greinargerð til stjórnar Kjarvalsstaða, framlagn-
ingu, flutningi eða upplestri á verki í frumflutningi eða frum-
birtingu, allt eftir nánara samkomulagi við stjórn Kjarvals-
staða hverju sinni og í tengslum við Listahátíð eða Reykja-
víkurviku. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri greiðslu samkv.
þessari grein, en listamaðurinn heldur höfundarrétti sínum
óskertum.
(umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því sem umsækj-
andi hyggst vinna að og veittar aðrar nauðsyniegar upplýs-
ingar.
Umsóknum skal komið til stjórnar Kjarvalsstaða fyrir 10. okt.
1982.
22. september 1982
Stjórn Kjarvalsstaða