Þjóðviljinn - 23.09.1982, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 23. scptember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Framtíð Hongkong
til umrœðu í heimsókn
Thatcher til Peking
í gær kom Margaret Thatch-
er forsætisráðherra Bretlands í
opinbera heimsókn til Peking.
Markmið heimsóknarinnar
mun fyrst og fremst vera að
ræða við kínverska ráðamenn
um framtíð bresku nýlendunn-
ar Hong Kong.
Hong Kong á sér sögu sem bresk
nýlenda allt frá lokum ópíumstríðs-
ins svonefnda árið 1842, er Bretar
náðu undir sig Viktoríueyju. Árið
1898 gerðu þeir síðan samning við
Kína um „Nýju landsvæðin" á
meginlandinu og rennur sá samn-
ingur út eftir 15 ár, árið 1997. Ljóst
er að kínverska stjórnin áskiiur sér
allan rétt til Hong Kong eftir þann
tíma, og því er orðið brýnt fyrir alla
aðila að ákveða um framtíð ný-
lendunnar.
Paradís
einkaframtaksins
í Hong Kong búa nú um 5,2 mill-
jónir manna, og mun þriðjungur
íbúanna vera flóttafólk frá rauða
Kína. Á síðustu áratugum hefur
Hong Kong orðið eitt at „efnahags-
undrum" veraldar og hefur hag-
vöxtur þar á síðasta áratug verið
um 10% á ári að meðaltali og er
spáð að hann verði um 6% á krepp-
uárinu 1982, og mundu margir ves-
trænir hagspekingar líta þann ár-
angur öfundaraugum. Ekki skal
hér freistað að skýra forsendur
þessa efnahagsundurs, en geta má
þó þess, að óvíða mun ódýrara
vinnuafl fáanlegt en einmitt í Hong
Kong, þar sem hvers konar smá-
iðnaður hefur einmitt náð að blóm-
stra, sem krefst vinnuafls mikils.
Þá er vitað að barnaþrælkun er al-
Kína framtíöarinnar:
T"t • -| • r X ae j ••
Ein þjoð með tvo
þjóðfélagskerfi?
menn í Hong Kong, og þykir ekki
tiltökumál þar í landi að láta ung-
börn vinna við óhol! iðnaðarstörf á
þrælalaunum. Þá má einnig geta
þess að þrátt fyrir glæstar verslun-
arhallir, búa enn um 600 þúsund
manns eða rúmlega 10% íbúa í
hreysum þar sem aurskriður, elds-
voðar og smit frá opnum skolpræs-
um og sorphaugum ógna stöðugt
tilveru fólksins. Og bilið á milli fá-
tækra og ríkra fer stöðugt vaxandi
samkvæmt alkunnu mynstri.
En engu að síður hefur Hong
Kong verið álitin paradís hins
frjálsa framtaks, og flóttamennirn-
ir sem koma frá rauða Kína virðist
ekki gera miklar kröfur um laun
eða aðbúnað.
Gjaldeyrislind
fyrir Kína
En Hong Kong hefur mikla efna-
hagslega þýðingu fyrir stjórnina í
Peking. Um40% af gjaldeyristekj-
um Kínverja koma frá Hong Kong
eða sem samsvarar um 8 miljörð-
um bandaríkjadollara á ári. Og
kínverska stjórnin hefur sjálf fjár-
fest í þessari draumaparadís kapít-
alismans fyrir um 2 miljarði doll-
ara, bæði í landi, fasteignum og
fyrirtækjum.
Deng Tsjaoping lýsti því yfir í
júní s.l., að Kínverjar hygðust taka
Hong Kong undir kínversk yfirráð
einhvern tímann í kringum 1997,
en hann sagði jafnframt að það
skyldi gerast með þeim hætti, að
áframhaldandi velmegun og stöð-
ugleiki yrði tryggður og að Hong
Kong ætti áfram að vera fríhöfn.
Athyglisvert er, að í tillögum
stjórnvalda um nýja stjórnarskrá
fyrir Kína er rætt um möguleikann
á að stofna „sérstjórnarsvæði'" þar
sem sérstakar aðstæður eru fyrir
hendi. Margir töldu að þessi
ákvæði hefðu verið sett inn í stjórn-
arskráruppkastið vegna Taiwan,
en nú er ljóst að stjórnvöld hafa þar
einnig haft Hong Kong í huga. Hin
nýja formúla fyrir Kína framtíðar-
innar er „ein þjóð og tvö þjóðfélag-
skerfi", segir Hong Kong blaðið
Zeng Ming.
„Sérstök
efnahagssvæði“
Pað er einnig athyglisvert, að
kínversk stjórnvöld hafa á síðustu 2
árum unnið að því að koma á fót
„sérstökum e f n a h agss væöu m “ í
Suður-Kína. Þessi svæði eru eins
konar fríríki, þar sem útlendum
fyrirtækjum er boðið upp á vildar-
kjör: skattgreiðslur eru engar
fyrstu 3-5 árin og síðan mun lægri
Verslunargata í Hong Kong: paradís einkaframtaksins þar sem vinnuaflið
er á útsöluverði og skattfrelsið ríkir.
en annars staðar í Kína. Innflutn-
ingur er tollfrjáls, land fá þau mjög
ódýrt og sömuleiðis vinnuafl. Tvö
þessara „sérstöku efnahagssvæða"
eru einmitt í námunda við Hong
Kong annarsvegar og portúgölsku
nýlenduna Macao hins vegar. Yfir-
völd hafa beinlínis lýst því yfir, að
svæðunum væri valinn þarna stað-
ur til þess að íbúarnir gætu „lært af
kapítalíska kerfinu hinum megin“.
Ef til vill er þessum svæðum ætlað
að auðvelda samrunann.
Macao
Macao er gömul verslunarmið-
stöð Portúgala í S-Kína, sem er
ekki nema 15 ferkm. að flatarmáli,
en þar búa nú um 400 þúsund
manns. Þegar einræði var kollvarp-
að í Portúgal vildi byltingarstjórnin
afhenda Kínverjum þessa nýlendu.
Kínverjar afþökkuðu það hins veg-
ar, og nú heitir Macao „landsvæði
undir portúgalskri stjórn“. Macao
hefur um langan aldur verið eins
konar spillingarbæli í niðurníðslu,
en á síðustu árum hafa erlendir
aðilar séð möguleika á miklum við-
skiptum við Kína í gegnum Macao
á sama hátt og Pekingstjórnin hef-
ur ákveðið að fjárfesta fyrir um 1
miljarð dollara í „efnahagssvæð-
inu“ við Macao. Þannig virðist það
vera hagsmunamál stjórnvalda í
Peking að viðhalda sem lengst því
nýlendukerfi, sem viðgengist hefur
í þessum litlu nýlendum, þar sem
þær opna leiðir til greiðari við-
skipta við hinn kapítalíska heim.
Þar á móti kemur hins vegar þjóð-
arstoltið, sem gerir kínverskum
stjórnvöldum erfitt að viðurkenna
þessar erlendu nýlendur á kín-
versku landi. Spurningin er, hvort
Margaret Thatcher tekst að fá á-
kveðin svör hjá valdhöfum í Peking
um framtíð Hong Kong í ferð sinni
eða hvort spáin um framtíð Kína
sem „eina þjóð með tvö þjóðfé-
lagskerfi" eigi eftir að rætast.
(ólg. tók saman)
Af merkilegri ráðstefnu í Færeyjum:
„V erkalýðshreyfingin
í NAtlantshafF’ stofnuð
Islensk, færeysk og
grænlensk
verkalýðshreyfing
efna til víðtækra
samskipta
í síðustu viku var haldin
ráðstefna allmerkileg í
Færeyjum. Henni lauk með
því, að stofnuð var hvorki
meiranéminnaen
„Verkalýðshreyfingin í
Norður-Atlantshafi“, hverrar
hlutverk er að efla samstarf
og samskipti
verkalýðssamtakanna í
löndunum, sem aðild eiga að
„Verkalýðshreyfingunni“.
Þessi lönd eru: ísland,
Grænland og Færeyjar.
Af hálfu Alþýðusambands ís-
lands sóttu ráðstefnuna í Þórshöfn í
Færeyjum þeir Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, Óskar
Vigfússon, formaðurSjómanna-
sambands íslands, Þórunn Valdi-
marsdóttir, framkvæmdastjóri
Verkakvennafélagsins Framsókn-
ar, ogSnorri Konráðsson, starfs-
maðurMFA.
Hér á eftir fer fréttatilkynning
ASI um stofnun „Verkalýðshreyf-
ingarinnar í Norður-Atlantshafi“.
(MillifyrirsagnireruÞjóðviljans).
Þrír stofnaðilar
„Verkalýðshreyfíngarinn-
ar“
Verkalýðssamtökin á íslandi,
Grænlandi og Færeyjum stofnuðu
síðastliðinn föstudag, 17. septem-
ber 1982, meðsérformlegsamtök
til að efla samstarf og samskipti
verkalýðshreyfingarinnar í löndun-
um þremur. Stofnun samtakanna
var lokaáfanginn á ráðstefnu ASÍ,
Alþýðusambands Grænlands
(SIK) og færeysku verkalýðsfélag-
anna, sem haldin var í Þórshöfn
dagana 13.-17. þessa mánaðar. í
Færeyjum eru engin heildarsamtök
launafólks, en stofnaðilar þessara
nýju samtaka eru Föroya Ár-
beidarafélag, Föroya Fiskimanna-
félag og Föroya Handverkarafé-
lag, auk SIK og ASÍ.
Nafn hinna nýju samtaka er
„Verkalýðshreyfingin í Norð-
ur-Atlantshafi“,sem á færeysku er
„Verka- og veiðumannafylkingin í
Norðuratlantshavi“ og á græn-
lensku „Nunat atlantikup avanna-
aniittut suiinermik inussutissarsi-
uteqartuisa suleqatigiiffiat“.
og áður sagði, að efla samstarf og
samskipti verkalýðssamtakanna í
löndunum þremur. í því skyni
munu samtökin miðlaupplýsing-
um sín á milli um þá hætti þjóðlífs-
inssem mikilsverðirteljastfyrir
hagsmuni launafólks í löndunum,
hvort sem um er að ræða kj ara-
samninga, félagslega löggjöf eða
nýtingu fiskmiða. Þá er stefnt að
gagnkvæmum heimsóknum trúna-
ðarmanna á vinnustöðum og sam-
eiginlegri nýtingu fræðsluefnis.
Sérstaklega er tekið fram í starfsá-
ætlun samtakanna, að aðildarfé-
lögin séu skuldbundin til að taka
ekki að sér verkefni sem stöðvast
hafa vegna verkfalla í einhverju
landanna. Einnig er stefnt að
menningarlegum samskiptum og
hafa þau þegar hafist, með yfirlits-
sýningu 30 verka í eigu Listasafns
ÁSÍ, sem haldin var ráðstefnu dag-
anaíÞórshöfn. Rétterað getaþess
að Flugleiðir sýndu þann velvilja
að flytj a listaverkin til og frá Fær-
eyjum án endurgjalds.
Næst hist
á Grænlandi
Á ráðstefnunni var ákveðið að næsti
ársfundur samtakanna verði haldinn á
Grænlandi í ágúst 1983. Þriggja manna
samstárfsnefnd mun fara með málefni
samtakanna milli ársfunda og er Jens
Lyberth, formaður SIK, formaður
hennar. Aðrir í nefndinni eru Óli Jaco-
bsen, formaður Föroya Fiskimannafé-
lags, og Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ.
Tilgangur samtakanna er, eins
Stjórnmálaflokkarnir í Færeyjum buðu ráðstefnugestum til kynningarfundar. A myndinni má sjá þau Guðmund
[. Guðmundsson, formann Verkamannasambands íslands, Óskar Vigfússon, formann Sjómannasambands
íslands, og Þórunni Valdimarsdóttur, framkvæmdastjóra Verkakvennafélagsins Framsóknar..
-(Liósm. Snorri Konráðsson).