Þjóðviljinn - 01.10.1982, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. október 1982
Stjórnmálaályktun aöalfundar kjördæmisráðs Ab á Austurlandi 26.9. 1982
Hnekkjum gagnsókn hægri aflanna
og
erlendri
ásælni
Leiðin til þess
er að stórefla
Alþýðubandalagið
Ávinningar stjórnarsamstarfsins
Núverandi rikisstjórn meö þátttöku Al-
þýðubandalagsins hefur starfaö hátt á
þriðja ár og tekist að koma fram mörgum
mikilvægum stefnumálum, sem um var
samið i stjórnarsáttmála.
Tekist hefur að halda uppi fullri atvinnu
um allt land á sama tima og böl atvinnu-
leysis rikir i flestum nágrannalöndum.
Kaupmáttur láglaunafólks og fólks með
miðlungstekjur hefur rýrnað óverulega
og ráðstöfunartekjur haldist að mestu
óskertar til þessa, þrátt fyrir versnandi
viðskiptakjör.
Tryggð hafa verið og lögfest fjölmörg
réttindamál og félagslegar umbætur fyrir
alþýðu manna, svo og aldraða og öryrkja.
Samneysla hefur aukist á ýmsum
sviðum félags- og menningarmála á sama
tima og jafnvægi hefur náðst i rikisbú-
skapnum.
Hamlað hefur verið gegn óðaverðbólgu
með ákveðnum efnahagsráðstöfunum, nú
siðast i ágústmánuði.
Friðvænlegra hefur verið á vinnumark-
aði en oftast áður og tekist að afstýra
langvinnum kjaradeiium, m.a. fyrir at-
beina rikisvaldsins.
Arangurinn af starfi rikisstjórnarinnar
erþeim mun athyglisverðari sem stjórnin
hefur frá upphafi stuðst við nauman þing-
meirihluta og stjórnarandstaðan ekkert
til sparað að reyna að tefja og hindra
framgang mála og reka fleyga i stjórnar-
samstarfið.
Atvinnuuppbygging og jöfnun
lifskjara
1 málefnum landsbyggöarinnar hefur
margt áunnist til að jafna aðstöðu manna
og renna stoöum undir atvinnuþróun og
bættan hag i framtiðinni. Þar má nefna:
a) Mikilsverðir áfangar hafa náðst i
jöfnun a orkuverði, simkostnaði og
sjúkraþjónustu.
b) öryggi I orkuafhendingu hefur aukist
til muna og ákvarðanir verið teknar um
stórar virkjanir og orkuiðnað á Norður-
og Austurlandi
c) Atak hefur verið gert i vegamálum og
áætlun er i mótun um myndarlegár úr-
bætur.
d) Unnið er að lagningu sjálfvirks sima
um sveitir.
Atvinnulif hefur verið treyst á ýmsum
stöðum, m.a. með áframhaldandi upp-
byggingu i fiskvinnslustöðvum og trygg-
ari hráefnisöflun með nýjum fiskiskipum.
Brugðist hefur veriö við erfiðleikum i
landbúnaði með*samræmdum aðgerðum
samtaka bænda og stjórnvalda.
Undirbúið hefur verið átak i iðnþróun
með samvinnu stjórnvalda, sveitarfélaga
ogeinstaklinga, m.a. með tilkomu iðnráð-
gjafa i landshlutunum.
1 stað erlendrar stóriðju hafa verið
teknar ákvarðanir um ýmis meiriháttar
iönfyrirtæki á vegum landsmanna sjálfra,
svo sem um kisilmálmverksmiðju á
Reyöarfirði.
Flett hefur verið ofan af svikamyllu
Alusuisse varöandi rekstur álversins i
Straumsvik og hamlað gegn auknum
hernaðarumsvifum og itökum Banda-
rikjamanna hérlendis, nú siðast með
stöðvun á byggingu óhagkvæmrar flug-
stöðvar I Keflavik fyrir bandariskt fjár-
magn að stórum hluta.
Utanaökomandi áföll
og viöbrögö
rikisstjórnarinnar
Þrátt fyrir afar mikilvægan árangur á
mörgum sviðum, eins og hér hafa verið
nefnd dæmi um, eru nú alvarlegar blikur
á lofti i þjóðarbúskap Islendinga vegna
utanaðkomandi aðstæðna.
Þjóðartekjur landsmanna dragast
fyrirsjáanlega saman um nálægt 5% i ár
vegna verulegs samdráttar i sjávarafla
og markaðsörðugleika i útflutnings-
Fulltrúar á aðalfundi kjördæmisráðsins.
greinum. Viðskiptakjör halda áfram að
versna og stefnir i mikinn viðskiptahalla
við útlönd, eða sem svarar um 10% af
þjóðarframleiðslu.
Tilkostnaður við atvinnustarfsemi og
ekki sist útgerð hefur vaxið stig af stigi,
og vegur þar þyngst aukinn fjármagns-
kostnaður og hækkun oliuverðs á sama
tima og afli fer minnkandi.
Hér er um að ræða einhver mestu áföll
sem borið hefur aö i islensku efnahagslifi
um áratugi og við þau geta bæst vaxandi
áhrif af hinni alþjóðlegu kreppu á næstu
misserum. Rikisstjórnin hefur brugðist
við þessum mikla vanda með sam-
ræmdum aðgeröum, þar sem leitast er við
að jafna byrðum á alla þjóðfélagshópa
eftir efnum og ástæðum og koma i veg
fyrir óviðráðanlega verðbólguholskeflu.
Þannig á að færa niöur kostnaðartilefni
vegna búvöruhækkunar, fiskverðs og
verðbóta 1. desember næstkomandi, en
draga úr áhrifum af skeröingu verðbóta
með sérstökum láglaunabótum og leng-
ingu orlofs. Jafnframt verða gerðar ráð-
stafanir til aö létta byrðar húsbyggjenda
og lækka upphitunarkostnaö ibúðarhús-
næðis, þar sem hann er hæstur.
Verslunarálagning hefur þegar verið
skert um 10% og ljóst að annar atvinnu-
rekstur verður aö taka á sig marghátt-
aðar byrðar.
Afstaða Alþýðubandalagsins og
samtaka launafólks
1 sambandi við efnahagsráðstafanir
gerði Alþýðubandalagið tillögur um
margháttaðarkerfisbreytingar og aðhald
i opinberum rekstri og hjá einkaaðilum,
og náöu sumar þeirra fram að ganga, en
öðrum var hafnaö af samstarfsaðilum.
Alþýðubandalagiö taldi rétt og skylt að
bregðast við aðsteðjandi vanda með þeim
ýtarlegu tillögum sem flokkurinn lagði
fram i rfkisstjórn og láta á það reyna,
hvort samkomulag gæti tekist svo sem
raun varð á. Eftir að það lá fyrir og
bráöabirgðalög höföu verið sett um þá
efnisþætti er þörfnuðust lögfestingar, tók-
ust samningar við opinbera starfsmenn
um heildarkjarasamning til eins árs.
Hefur hann nú verið staðfestur meö mikl-
um meirihluta i allsherjaratkvæða-
greiðslu. Sýnir sá samningur engu siður
en viðbrögð Alþýðusambands Islands, að
stærstu samtök launafólks eru reiðubúin
að taka á sig og umbjóöendur sina hluta af
þeim skell sem viö þjóðarbúinu blasir.
Hins vegar gripu útgerðarmenn til harka-
legra stöðvunaraðgeröa með róðrarbanni
Llú og reyndu aö setja stjórnvöldum
afarkosti. Rikisstjórninni tókst að greiða
úr þeirri deilu, án þess að tii stóráfalla
kæmi.
Atök siðustu mánaða á vinnumarkaði
og innan og utan rikisstjórnar sýna al-
menningi ljóslega þá viðleitni atvinnurek-
enda og stjórnmálaflokka, sem þeim eru
hliðhoilir, að velta samdrættinum i inn-
lendri framleiöslu og áhrifum alþjóð-
legrar kreppu einhliða yfir á launafólk i
landinu. Jafnframt eru háværar kröfur
um, að rikið hlaupi undir bagga með tap-
rekstri illa rekinna fyrirtækja og dregið
verði að sama skapi úr félagslegri þjón-
ustu og samneyslu. Gegn þessum- óbil-
gjörnu kröfum hefur Alþýöubandalagiö
réttilega snúist.
Óábyrg óg málefna-
snauð stjórnarandstaða
Sérstaka athygli vekur óábyrg afstaöa
stjórnarandstöðuliðs Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks. Frá þeim hópum koma
engar tillögur um, hvernig bregöast eigi
við efnahagsvandanum, aðeins upphróp-
anir um að stjórnin eigi aö vikja. Þessir
aðilar töldu þaö hvalreka, er Eggert
Haukdal lýsti endanlega yfir andstöðu við
rikisstjórnina eftir að hafa tvistigið um
langt skeið. A þaö mun reyna eftir að Al-
þingi kemur saman, vort stjórnarand-
staðan stendur óskipt gegn efnahagstil-
lögum rikisstjórnarinnar og vill taka á sig
ábyrgð af þvi upplausnarástandi sem af
þvi hlytist, aö bráðabirgðalögin fengju
ekki staðfestingu þingsins. Þvi verður
ekki trúað fyrr en á reynir, að stjórnar-
andstaðan standi óskipt að þvi að kalla
efnahagslega ringulreið og 100% verð-
bólgu yfir þjóðina við þær aðstæður er nú
rikja og leggja sig undir i kosningum rétt
Frá aðalfundi kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins á Austurlandi, sem haldinn
var á Djúpavogi 25. og 26. f.m.
fyrir lok kjörtimabils eftir slik óheilla-
verk.
Uppgjör framundan
Reglubundnar alþingiskosningar fara
fram á næsta ári, nema eitthvaö óvænt
beri til, er verði til að flýta þeim. Alþýöu-
bandalagið þarf aö vera sem best undir
slikar kosningar búið og hefja undirbún-
ing fyrir þær af fullum krafti. 1 þeim
kosningum veröurm.a. kosiö um störf nú-
verandi rikisstjórnar annars vegar og
óútfylltan vixil stjórnarandstööunnar hins
vegar. Það verður einnig kosiö milli
flokka og um þau málefni, er þeir tefla
fram.
Alþýðubandalagið gengur til þess upp-
gjörs óhikað. Alþýðubandalagið mun láta
störf sin innan rikisstjórna á undan-
förnum fjórum árum tala sinu máli, bæði
þau málefni sem þaö hefur knúið fram og
önnur sem það hefur sett á oddinn en ekki
haft styrk til að bera fram til sigurs. 1
Alþýðubandalaginu eiga launamenn og
önnur alþýða til sjávar og sveita sinn póli-
tiska bakhjarl, hvort sem flokkurinn á
hlut að stjórn eða er i stjórnarandstöðu.
Á Austurlandi náðu Alþýðubandalags-
menn góðum árangri viðast hvar i
sveitarstjórnarkosningum sl. vor,
Flokkurinn mun sem fyrr heyja málefna-
lega baráttu i næstu alþingiskosningum
og kynnir viöhorf sin til málefna kjör-
dæmisins i mörgum ályktunum þessa
aðalfundar kjördæmisráðsins.
Sókn gegn kreppunni
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á
Austurlandi varar eindregið viö áróðri og
fagurgala hægri aflanna i landinu.
Leiftursóknarlið Sjálfstæðisflokksins
leggur ofurkapp á að komast til valda og
takist þvi það mun afleiöingum kreppu og
samdráttar verða velt einhliða yfir á al-
menning og kallað á erlent fjármagn og
erlenda forsjá i atvinnumálum.
Kjördæmisráðið hvetur alla vinstri
menn til að vera vel á verði gegn þessari
gagnsókn hægri aflanna um leið og bregð-
ast þarf á raunsæjan hátt við aðsteðjandi
vanda með sósialiskum úrræðum, sam-
hjálp og samvinnu.
Um leið og kjördæmisráðið tekur undir
þær tillögur, sem flokkurinn hefur lagt
fram i rikisstjórn, leggur það áherslu á
eftirfarandi:
1. Atvinnustefnu er taki miö af náttúru-
legum auðlindum, þekkingu og getu
þjóðarinnar og tryggi forræði lands-
manna i bráð og lengd.
2. Eflingu og aðlögun hefðbundinna at-
vinnuvega aö breyttum aðstæðum og
nýsköpun i atvinnustarfsemi með auk-
inni fjölbreytni, ekki sist i iðnaði.
3. Aukin gæði og vöruvöndun i fram-
leiðslu, jafnframt þvi sem hvatt er til
kaupa á innlendri vöru og þjónustu.
4. Atvinnulýðræði er tryggi ihlutunarrétt
starfsmanna og samtaka launafólks i
atvinnulifinu og um rekstur fyrirtækja,
samhliöa aukinni ábyrgð og aðhaldi.
5. Hagsýni og sparnaö i rekstri, jafnt á
vegum einkaaðila, sveitarfélaga og
rikisins.
6. Byggðastefnu er taki mið af staðar-
kostum, jöfnun aöstöðu, félagslegri
þjónustu og dreifingu opinberrar um-
sýslu út i byggðalögin.
7. Jafnrétti á sem flestum sviðum, ekki
sist milli karla og kvenna. Þess verði
sérstaklega gætt að hugsanlegur sam-
dráttur i atvinnu verði ekki látinn bitna
á konum umfram karla og aðstaða
kvenna til þátttöku i atvinnulífi og
félagsstarfi verði bætt.
8. Ofluga sókn gegn verðbólgu m.a. með
aðhaldi að verslun og viðskiptalifi,
skynsamlegri fjárfestingu, svo og
hvatningu til innlends sparnaðar til að
draga úr erlendri skuldasöfnun.
9. Fræðslustefnu, þar sem jöfnum
höndum sé lögð rækt við huga og hönd
og öllum tryggð sem jöfnust aðstaða til
skólagöngu.
10. Varðveislu og eflingu islenskarar
menningar, m.a. með þvi að greiða
fyrir virkri þátttöku fólks i félagslifi og
skapandi menningarstarfsemi.
Hnekkjum gagnsókn hægri afI-
anna og erlendri ásælni.
Bregöumst viö kreppu og sam-
drætti meö vinstri úrræðum.
Tryggjum jafnrétti og örugg lifs-
kjör i landinu til frambúðar.
Leiðin til þess er aö stórefla Al-
þýöubandalagiö sem baráttutæki
vinstri aflanna í landinu.