Þjóðviljinn - 02.10.1982, Blaðsíða 9
Helgin 2.-3. október 1982 ÞJóÐVlLJINN — SiÐA 9
Bréf frá Helgu
Sigurj ónsdóttur
26. september 1982
Kæri Guðjón.
Ég sendi þér þetta litla bréf til
að leiðrétta smárriisskilning hjá
þér í blaðinu í dag. Þú telur mig
vera að skrifa um hugmyndafræði
Samtaka unt kvennaframboð í
DV-greinum mínurn undanfarið.
Það er ekki rétt. Ég skrifa ekki á
vegum neinna samtaka og er ekki
í Samtökum um kvennaframboð
og hef aldrei verið.Ég er heldur
ekki lengur í Rauðsokka-
hreyfingunni né, öðrum kvénna-
samtökum og ekki í neinum
stjórnmálaflokki. Af þessu sérð
u,að égersvosanriarlega „frjáls
uppí háls“ eins og Sigurlína
Sölku-Völkumamma forðum.
Hitt er svo annað mál að e.t.v.
eru kvennaframboðskonur og
kvennaframboðskarlar (eins og
þú manst eru karlar líka félagar í
SamtÖkum um kvennaframboð)
sammála mér í einhverjum grein-
um rétt eins og aðrir sem lesa það
sem ég skrifa en nátfúrlega get ég
ekkert gert að því.
Ég mun halda áfram að skrifa í
eigin nafni um þau mál senr mér
eru hugleikin og þætti að sjálf-
sögðu vænt um ef skrif mín yrðu
konum að liði. Til þess er líka
leikurinn gerður. Hvort þau
éeröa körlum að liði fer eftir
ýmsu. Því fyrst og fremst hvort
þeir geta sett sig í spor kvénna.
Þeir eru bara svo sorglega fáir
sem það geta. Það liefur lífs-
reynsla mín á alllangri ævi ítrekað
sannað mér. Mér finnst einmitt
greinin þín, Guðjón minn, benda
til þess að enn sért þú ekki einn af
þeim, en kannski ertu á leiðinni.
Á meðan held ég að þú ættir að
halda áfram að lesa greinarnar
rnínar; má vera að það verði þér
til góðs.
Þú værir vænn ef þú birtir þetta
bréfkörn í heilu lagi, það er nú
svo stutt hvort eð er. og helst á
fremur góðum stað.
Bestu kveðjur.
Þín fyrrverandi flokks-
og starfssystir
Hclga Sigurjónsdóttir.
Segibretti eru liklega ekki
nema rúmlega tiu ára gömul, en
það hefur á skammri stundu orðið
mjijg vinsæl iþrótt að sigla þeim,
ekki sist á baðströndum. Og þótt
þeir sem brettum og segli stýra
megi búast við þvi að fá marga
dýfu er þessi iþrótt lika komin til
íslands, eins og sjá mátti i sjón-
varpinu á dögunúm.
Og þegar iþrótt er til orðin eru
settar reglur og það eru haldin
mót. Málum er svo langt komið
að fyrir þrem árum samþykkti
Alþjóðasamband siglingamanna
(IYRU) að „seglreið” (samanber
„brimreið”) skuli orðin ólympiu-
grein 1984. Fyrirtæki i Þýskalandi
og viðar eiga nú i harðri rimmu
um réttinn til að framleiða hin
einu sönnu og réttu kappsiglinga-
bretti.
Komnar teinamöppur fyrir
eftirfarandi tímarit:
(icstgjaíniii KtílS&raQlMQIj iTiYTrferi
burdo iisterii ámasL
1
rSzans
GÖG
ÖGOKKE
Fást í öllum bókaverslunum
Jbeí ri.t.
Lffl Sími: 53948
SETBERG
og leiList í
Leiðir til megrunar geta verið ákaflega lystugar. í bók-
inni „Léttir og ljúffengir réttir“ er 3ja vikna megrunar-
kúr eða matseðill.
Þar er lýst lystugri leið til megrunar-girnilegir og
næringaríkir réttir. Fjöldi litprentaðra mynda.
BARA MAGNÚSDÓTTIR hefur þýtt og staðfært
efni bókarinnar. Hún hefur áralanga reynslu í
umfjöllun um heilsu- og megrunarfæði fyrir fólk á
öllum aldri.
FJALA
kötturinn
Tjarnarbíó Sími 27860
Celeste
Fyrsta mynd Fjalakattarins á þessu misseri
er Celeste, ný vesturþýsk mynd sem hlotið
hefur einróma lof.
Leikstjóri: Percy Adlon
Aðaihlutverk: Eva Mattes og Jurgen Arndt.
sýnd kl. 3, 5 og 7 laugardag
sýnd kl. 3, 5, 7 og 9 sunnudag
Mánudag kl. 5 og 9 mánudag.