Þjóðviljinn - 02.10.1982, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 02.10.1982, Blaðsíða 19
Helgin 2.-3. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA19 erlcndar baekur Joseph Conrad: Twixt Land And Sea Penguin Books 1982. Josepli Conrad hét réttu nafni, Konrad Korzeniowski og var pólskur. Ungur flutti hann úr heimalandi sínu og þá til Marseil- les, þar sérn hann gerðist sæfari. Hann nam'á þeim áruni frönsku af munni samferðamanna sinna og var orðinn tvítugur þegar hann lær- ði ensku. Prátt fyrir það, átti hann eftir að verða einn merkasti rithöf- undur sem á enska tungu hefur skrifað. Á frönskum förum var Conrad í fjögur ár. Hann lenti í mörgum háska. varð ástfanginn og reyndi að fyrirfara sér. Það tókst honum ekki og eftir að hafa stundað sjó varð hann breskur þegn. Sögur skrifaði hann afsjónum. 1895 kom fyrsta bók hans út, „Almayer’s Folly" og helgaði Conrad sig skrift- um upp frá því. Ekki öðlaðist hann frægð fyrr en með bókinni „Chance". sem kom út 1913. Síðan hefur Conrad verið í há- vegunt hafður meðal rithöfunda. Hemingway mat hann mikils. en þeir eru um flest ólíkir í stíl. „Twixt Land and Sea" inniheld- ur þrjár sögur sem allar gerast við Indlandsstendur. Er ein þessara sagna, „The Secret Sharer" talin til bestu verka höfundar. Writers at Work The Paris Review Interviews/ Third Series Ed. by George Plimpton Penguin Books 1982. Gangið í gegnum bókhlöðurnar og þarsést til hvers höfundar strita. Milljónir binda af bókum sem er fóður fyrir ormana. Eitthvað á þessa leið lýkur viðtali við Blaise Cendrars í þessari röð viðtalanna úr Paris Review. Hér er meira ormafóður. Við þessa er talað: Cocteau, Cendrars. Arthur Miller. Mailer, Ginsberg. W.C. Williams. Bellow. Evelyn Waugh, Céline. Bur- roughs, Pinter. Lilian Hellman. Albee og James Jones. Höfundarnir ljóstra upp um vinnubrögð sín, svo og matarvenj- ur, dægrastyttingar og lestur. Pá telja þeir margir upp. hverra eitur- efna þeir liafi um ævina nevtt. Tom Keene / Brian Haynes: Skyshroud Penguin Books 1982. Höfundar þessarar bókar staría báðir við sjónvarpsstöðvar. Það er ekki að sökum að spyrja. bókin ber þess vitni. Skyndileg sviðskipti og hraði er það sem bókin byggist á. Sagan segir af kapphlaupi stór- veldanna uni kjarnorkuvopn. Sovétmönnum tekst aö smíða nýtt vopn sem ekki fellur undir kjarn- orkuvopnaklásúlurnar í SALT— samningnum, en kona ein, sem starfaði við smíði þess er flúin til Bandaríkjanna og Iætur ekkert uppi. Hún vili, að sonur hennar komist vestur yfir áður en hún gef- ur nokkuð upp. Auðvitað er óður vísindamaður, hjartgóður faðir, dólgur og saklaus hershöfðingi í sögunni. Skyshroud er Current events- reyfari og líkasttil gott fóður fyrir þá sem ganian hafa af slíku. Allur akstur krefst varkárni Ýtum ekki barnavagni á undan okkur við aðstæður sem þessar d%F IFEROAR Dagvistarmál - störf Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftir- taldar stööur: 1. Staða aðstoðarmanns við uppeldisstörf viö Furugrund. Fullt starf. Æskilegt aö umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar gefur forstööumaöur í síma 41124. 2. Staða fóstru á leikskólann Kópahvol. (50% störf fyrir hádegi) Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 40120. 3. Starfsfólk óskast til afleysingastarfa á dagheimiliö Kópastein. Upplýsingar gefur forstööumaöur í síma 41565. Umsóknum skal skilaö á þartilgerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á félagsmála- stofnuninni, Digranesvegi 12, sími 41570. Félagsmáiastofnun Kópavogs. Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráöa fulltrúa í innkaupadeild til að annast innlend innkaup fyrir vinnuflokka og rafveitustjóra. Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra, fyrir 16. okt- óber n.k. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118, 105 Reykjavík. fflgurmn Næstkomandi sunnudag þann 3. okt. er árlegur merkja- og blaðsöludagur SÍBS, en hann er haldinn til ágóða fyrir starfsemi SÍBS. Óskum eftir sölubörnum til starfa kl. 10 árdegis. Sölulaun eru 20%. Merki dagsins kostar 20 krónur og blaðið Reykjalundur kostar 30 krónur. Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði. Vinningurinn er vöruúttekt fyrir 25,000 krónur. Foreldrar, hvetjið börnin til að leggja góðu málefni lið. AFGREIÐSLUSTAÐIR MERKJA OG BLAÐA í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI: SÍBS, Suöurgötu 10, sími 22150 Mýrarhúsaskóli Melaskóli Austurbæjarskóli Hlíðaskóli Álftamýrarskóli Hvassaleitisskóli Breiðagerðisskóli Vogaskóli Árbæjarskóli Fellaskóli Breiðholtsskóli Hólabrekkuskóii Ölduselsskóli Seljaskóli Laugateigur 26, s. 85023 KÓPAVOGUR: GARÐABÆR: H AFN ARFJÖRÐUR: Kársnesskóli Flataskóli Breiðvangur 19 Kópavogsskóli Lækjarkinn 14 Digranesskóli Reykjavíkurvegur 34 Þúfubarð 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.