Þjóðviljinn - 02.10.1982, Page 10

Þjóðviljinn - 02.10.1982, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 2.-3. október 1982 Vinir og kunningjar hvíslast á um ástandið. Leikritiö Skilnaöureftir Kjartan Ragnarsson veröur frumsýnt í lönó á morgun, sunnudag. Blaöamanni Þjóöviljans gafst kostur á að fylgjast með einni æfingu i vikunni og það veröur aö segjast eins og er að hér er á feröinni verk sem er ákaflega sterkt og magnað og fjallar um vandamál sem er inni á gafli hjáflestum íslendingum. Sjálfurer Kjartan leikstjóri aö verkinu og hann sagöi í samtali að hann væri meö þessu verki aö reyna aö búa til áleitna mynd af nærtæku vandamáli. Leikritiö er ekki fært upp á sviöinu í lönó heldur er leikið á miöju gólfi og áhorfendur sitja allt í kring. Kjartan sagði að hann væri búinn að fá nóg af gamja leiksviðinu í bili og því vildi hann vinna til að breyta um form þó að það kostaði það að færri áhorfendur kæmust á hverja sýningu en húsið tekur 55 færri með þessu móti. Kjartan sagði að svona leiksvið byði Uþþ á ákveðna tilfinníngu, hann væri að færa upp leikrit sem fjallaði um ágengt þema og hann reyndi vísvitandi að brjóta niður öryggiskennd áhorfandans um leið og hann gengi inn í salinn. - Á þetta ieikrit þá aö vera eins konar „shock effect"? - Hugmyndin er ekkert meiri „shock effect" en gerist í lífinu sjálfu. Skilnaði fylgir ákveðið fótfestuleysi og óöryggi. Leikritið Skilnaður fjallar um konu á miðjum aldri sem stendur skyndilega og óvænt frammi fyrir þvi eftir 20 ára hjónaband að maðurinn hennar fer frá henni til að búa með yngri konu. Það lýsir viðbrögðum hennar og umhverfis- ins og hvernig hún vinnur úr þessum aðstæðum. Hún verður að lokum sjálf- stæð - en kannski jafnframt einmana. Að því er sþurt í leikritinu hvort sjálf- stæði og einmanaleiki fari ekkí alltaf saman. Jafnframt sögu Kristínar og Árna fer öðrum sögum fram. Stúlkan sem þrífur hjá Kristínu, Baddí, býr með manni sem drekkur og misþyrmir henni og dóttirin, Sif, fer að heiman til að búa með öðrum krökkum. Einnig kemur við sögu Sól- borg, vinnufélagi Kristínar, sem leyst hefur sín sambúöarmál með öörum hætti en þeim að búa með karlmanni. Þó aö sýningin sé raunsæ er upp- færslan mjög stílfærð á köflum og er brugðið upp ýmsum myndum með lát- bragðsleik t.d. frá diskóteki og úr ferm- ingarveislu. Þá er Ijósum og hljóðum skemmtilega beitt. Effektar og tónlist sem koma úr öllum áttum eru eftir Áskel Másson en Daníel Vilhjálmsson sá um lýsingu. Leikmyndin er eftir Steinþór Sigurðsson. Hjónin Kristínu og Árna leika þau Guðrún Ásmundsdóttir og Jón Hjartar- son. Sigrún Edda Björnsdóttir er í hlut- verki dótturinnar, Sifjar. Valgerður Dan og Aðalsteinn Bergdal leika hjónin, Baddí og Odd, en Soffía Jakobsdóttir fer með hlutverk Sólborgar. Þetta nýjasta leikrit Kjartans Ragn- arssonar á áreiðanlega eftir að vekja mikla athygli, umtal og jafnvel deilur. Þreytt, vonsvikin og rugiuð Hversdagsleg mynd af venjulegri konu. Sif, dóttirin, fer ekki varhluta af erfiðleikunum. Hana leikur Sigrún Edda Björnsdóttir. Á að grafa hana lifandi? Oddur gefur Baddí, konu, sinni tiltal á heimili Kristínar. Valgerður Dan, Aðalsteinn Bergdal og Guðrún Ásmundsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.