Þjóðviljinn - 15.10.1982, Síða 11

Þjóðviljinn - 15.10.1982, Síða 11
Föstudagur 15. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Suðumesja- slagur á morgun Þýðingarmikill leikur fer fram í 1. deild karla í handknattleik á sunnudagskvöldið. í Hafnarfirði leika Stjarnan og Valur kl. 20. 1 úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik verður leikin þriðja umferð og þar vekur mesta athygli viður- eign nágrannanna, Keflvíkinga og Njarðvíkinga, í íþróttahúsinu í Keflavík kl. 14 á laugardag. Á sama tíma leika Valur og Fram í Hagaskóla og kl. 19 á sunnudag mætast ÍR og KR á sama stað. Fatlaðir til Stokkhólms íþróttafélag fatlaðra í Reykja- vík sendir þátttakcndur á Solna- leikana, alþjóðlega íþróttaleika fatlaðra, sem fara fram í Stokk- hólmi dagana 6. og 7. nóvember. Á þessa leik mætir yfirleitt allt besta íþróttafólk úr röðum fatl- aðra á Norðurlöndum. íþróttafélag fatlaðra hefur nokkrum sinnum sent þátttak- endur á þessa leika og hefur náðst mjög góður árangur, meðal ann- ars sigraði Elísabet Vilhjálms- dóttir í sínum flokki í bogfimi 1981 og Guðbjörg Eiríksdóttir í borðtennis 1980. Ryðvarimi borðtennis Firmakeppni borðtennisdeild- ar KR 1982 var haldin í KR-heim- ilinu þann 26. september. Saut- ján fyrirtæki tóku þátt og sigraði Ryðvarnarskálinn, en keppandi fyrir hans hönd var Tómas Sölva- son. í öðru sæti varð Morgun- blaðið (Jóhannes Hauksson), þriðja Landsbankinn (Kristinn Már Emilsson) og fjórða Kristinn Guðnason (Guðmundur Maríus- son). KR vfll fá Gunnar og Ragnar KR-ingar, sem höfnuðu í þrið ja sæti í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu í sumar, hafa nú alla anga úti til að styrkja lið sitt fyrir næsta keppnistímabil. Þeir eru með tvo landsliðsmenn í sigtinu, Ragnar Margeirsson frá Kefla- vík, sem er að vísu að athuga að- stæður í Belgíu sem stendur, og Akureyringinn Gunnar Gísla- son, sem var einn helsti burðarás KA í sumar og vann sig inn í landsliðið. KA féll í 2. deild og það gæti orðið erfitt fyrir Gunnar að halda landsliðssæti sínu með því að leika á þeim vettvangi. - VS. Gunnar Gíslason. íþróttir Víðir Sigurðsson Sigurður Svavarsson, Fram og Alfreð Gíslason, KR stíga dans. Algert skipbrot Framara í síðari hálfleiknum gegn KR Það er alltaf sama sagan hjá Fram í 1. deild karla í handknatt- leik. Liðið nær aldrei að halda full- ri einbeitingu heilan leik og í gær- kvöldi hrundi leikur þess algerlega i síðari hálfleik gegn KR. Eftir að staðan hafði verið 14-12 í leik- hléi KR í hag, skoruðu Framarar aðeins fimm mörk í síðari hálf- leiknum, það þriðja þegar sjö mín- útur voru til leiksloka, en KR-ingar héldu sínu striki. Þeir bættu öðrum 14 við og sigruðu með ellefu marka mun, 28-17. Leikurinn var jafn framan af en KR komst þó fljótlega yfir. Fram- arar voru alltaf skammt undan en mestu munaði fjórum mörkum, 13-9. Síðan var 14-12 í leikhléi en KRskoraði þrjú fyrstu mörkin í síð- ari hálfleik. Fram minnkaði mun- inn í 17-14 en þá komu sex KR- mörk í röð, 23-14, og eftir það var hreinlega um leikleysu að ræða. Alls konar furðulegir tilburðir litu dagsins ljós og þegar upp var staðið voru lokatölurnar 28-17. Haukur Ottesen naut þess svo sannarlega að Anders Dahl og Al- freð Gíslason voru rneira og minna teknir úr umferð í leiknum. Hann átti stórleik og var besti maður vall- arins ásamt Jens Einarssyni mar- kverði KR, sem varði ein 18 skot. Haukur skoraði 5 og Anders 4. Hjá Fram komst Hannes Leifs- son einna best frá leiknum og þá varði Ragnar Kristinsson vel loka kaflann. Hannes og Gunnar Gunnarsson skoruðu 4 mörk hvor fyrir Fram, Erlendur Davíðsson, Jón Árni Rúnarsson og Sigurður Svavarsson 2 hver. -VS Fréttlr af fýluferð Jón Kr. Valdimarsson formað- ur Handknattleiksdeildar Vík- ings hafði samband við blaðið í gær vegna leiks Víkings og Þrótt- ar í 1. deild karla, sem samkvæmt mótabók HSÍ átti að fara fram í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld. Eins og fram hefur komið var talsvert af fólki mætt við Höllina og fór fýluferð því í Ijós kom að leiknum hafði verið frestað. Að sögn Jóns var þessi frestun ákveðin fyrir hálfuni mánuði vegna Evrópuleikja Víkings í Færeyjum um síðustu helgi. Það sem HSÍ og stjórn Víkings láðist að gera var að láta fjölmiðla og aðra vita um þessa breytingu. í tilfellum sem þessum er nauðsynlegt að þeir aðilar sem í hlut eiga láti fjölmiðla vita. Það- an fá flestir upplýsingar um leiki, en þær upplýsingar eru einmitt fengnar úr mótabók HSÍ. íþróttafréttaritarar gera ráð fyrir að allar dagsetningar og tíma- setningar í því riti standist og í þeim tilfellum sem svo er ekki er það fyrst og fremst skylda HSÍ að greina fjölmiðlum frá þeim breyt- ingum með eins góðum fyrirvara og hægt er. Annars er hætt við að fýluferðirnar, með allri þeirri óá- nægju sem þær hafa í för með sér, verði fleiri, handknattleiksíþrótt- inni til skammar og skaða. - VS TBR gegn norskum í kvöld TBR, Tennis- og badmintonfé- lag Reykjavíkur, tekur þátt í Evr- ópukeppni félagsliða i badminton sem hefst í Antwerpen í Belgíu f dag. TBR leikur í riðli með Co- unty Club frá Skotlandi, Kristi- ansand Badminton Klubb frá Noregi og Jezica B.C. frá Júgó- slavíu. í kvöld mætir TBR norska fé- laginu, í fyrramálið Júgóslövun- um og Skotunum seinni partinn á morgun. Sigurvegarinn í riðlin- um mætir B.C. Duinwijck frá Hollandi og sá sem stendur uppi eftir þá viðureign kemst í fjög- urra liða úrslit. Landslelkur í Belgíu ísland og Belgía leika landsleik í badminton í Antwerpen á sunn- daginn. Landsliðsnefnd hefur valið keppendur en kínverski badmintonþjálfarinn, You Zuor- ong, sem verður á vegum TBR í Antwerpen, mun raða niður í li- ðin. Þetta verður fyrsti landsleik- ur þjóðanna. Islenska unglingalandsliðið leikur við færeyska jafnaldra sína í TBR-húsinu á sunnudaginn og hefst keppni kl. 14. opið hús Knattspyrnudeild ÍK mun hafa móttöku og sölu á getraunaseðl- um í vetur í ÍK-húsinu við Mela- heiði í Kópavogi á hverjum laug- ardegi kl. 10 - 12.30. Þar verður meðal annars boðið upp á knattspyrnumyndir af myndböndum, kaffiveitingar og gosdrykki á vægu verði. Sedov skrifar u þjáifun 11 Youri Sedov, hinn kunni þjálf- ari íslandsmeistara Víkings í knattspyrnu hefur skrifað leið- beiningabók um þjálfun knatt- spyrnumanna og nefnir hana: „Nútíð og framtíð íslenskrar knattspyrnu". Bókinni er skipt í þrjá hluta og heita þeir Upphit- un, Líkamsþjálfun og Tæknileg taktisk þjálfun. f henni er fjöldi skýringamynda og er bókin tilval- in fyrir þá sem vilja lesa sér til um þjálfun. Forsíðuna prýðir lit- mynd af Arnóri Guðjohnsen. Út- gefandi er Bókhlaðan h.f. Youri Sedov

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.