Þjóðviljinn - 15.10.1982, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 15.10.1982, Blaðsíða 16
adwiijmm Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins f þessum sfnum: Ritstjórn 81382,81482og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Föstudagur 15. október 1982 81333 81348 r~ 1 Sv^rrir Hermannsson um ráðgerð íbúðarkaup Framkvæmdastofnunar: Eg gerði málamyndatilboð „Sverrir gerði skriflegt kauptilboð”, segir Árni Gunnarsson alþingismaður - Þetta mál er þannig vaxið, að starfsfólk Framkvæmdastofnun- ar hefur verið að óska eftir orlofs- heimili og við könnun kom í Ijós að það vildi frekar að keypt yrði íbúð á Akureyri en orlofshús utan þéttbýlis. Þess vegna gerði ég málamyndatilboð í ákveðna íbúð á Akureyri með fyrirvara um samþykki stjórnar stofnunarinn- ar, sagði Sverrir Hermannsson, kommissar Framkvæmdastofn- unar ríkisins aðspurður um fyrir- huguð íbúðarkaup stofnunarinn- ar á Akureyri. Sverrir bætti því við, að mönnum hefði þótt málið þannig vaxið að ástæða væri til að bíða með það. Árni Gunnars- son, alþingismaður, segir öðru- vísi frá máiinu, sem hann þekkir vel til, þar sem hann leigði þessa umræddu íbúð á sínum tíma, en eigendur hennar eru kunningja- fólk hans, búsett í Kanada. Árni sagði að Sverrir Her- mannsson hafi gert skriflegt til- boð í íbúðina uppá 750 þúsund krónur með fyrirvara um sam- þykki stjórnar. í sínu skriflega til- boði bauðst Sverrir til að stað- greiða íbúðina og einnig að kaupa þau húsgögn sem í henni voru og var tilboð í þau 100-150 þúsund krónur. „Mér er kunnugt um að Sverrir talaði þannig að eigendur íbúðar- innar töldu kaupin full frá gengin og það gerði ég raunar líka. Þau litu svo ákveðið á þetta að þau tóku sér 50 þúsund króna víxil til að komast aftur til Kanada, sem nú er vitaskuld kominn í óreiðu, þar sem Sverrir hætti við kaupin, þegar við Vilmundur Gylfasor; fórum að kanna málið“, sagði Árni. Hann sagði ennfremur að í ljós hefði komið að stjórnarmenn Framkvæmdastofnunar vissu ekkert um þetta tilboð Sverris og það var ekki rætt á stjornarfundi fyrr en í þessari viku. Sverrir sendi hinsvegar skeyti til Gunn- ars Sólnes, lögmanns á Akureyri sem annaðist samningagerð í þessum viðskiptum, þar sem hann afturkallar tilboð sitt. Árni sagðist ekki hafa séð afrit af þessu skeyti og því ekki geta sagt til um hvernig það var nákvæmlega orðað. Gunnar Sólnes neitaði í gær að skýra Þjóðviljanum frá því hvernig skeytið var orðað, sagð- ist bundinn þagnarskyldu. Þjóðviljinn hefur fregnað að í skeytinu segi að það hafi ekki fengist samþykki frá stjórn Fram- kvæmdastofnunar að kaupa íbúðina. Hinsvegar er ljóst að ef þetta er rétt, þá fer Sverrir ekki með rétt mál þar, því að þetta var ekki borið undir stjórnina fyrr en í þessari viku. - S.dór Ráðlnn útibússtjóri á fölskum forsendum? Rangar upplýsingar frá stjórn Sparisjóðs Eyrarsveitar Framsóknar- flokkurinn Viðræður við stjórnar- andstöðuna „Þingflokkur Framsóknar- manna felur formanni flokksins að b( ita sér fyrir því að ríkisstjórnin hefji nú þegar könnunarviðræður við stjórnarandstöðuna um fram- gang bráðabirgðalaganna, fylgi- frumvarpa og annarra nauðsyn- legra þingmála". Svona hljoðar samþykkt þingflokks Framsóknar- flokksins sem afhent var fjölmiðl- un í gær. Tekið var fram að hún hefði verið samþykkt með atkvæð- um allra fundarmanna. Staðgreiðslukerfi skatta: Að hrökkva eða stökkva Oft hefur á liðnum árum verið rætt um að taka upp staðgrciðslu- kerfi skatta hér á landi, en ein- hverra hluta vegna hefur aldrei orðið af því. Við samningu og sam- þykkt síðustu skattlaga var stefnt að þessu, en málinu var frestað. í fjárlagafrumvarpinu segir að vegna þessa ríki mikið óvissuá- stand um framtíðarskipulag inn- heimtu opinberra gjalda. Það hafi staðið í vegi fyrir vélvæðingu og hagræðingu á þessu sviði. Nú hefur verið skipaður starfs- hópur, sem á að kanna til þrautar hvort hægt sé að ná almennri sam- stöðu um texta staðgreiðslufrum- varps, sem dugir til að tryggja mál- inu brautargengi. Takist það ekki er ljóst að leggja verður hugmynd- ina að staðgreiðslukerfi á hilluna, í bili að minnsta kosti. _ S.dór. Allar líkur benda til þess að bankaráð Búnaðarbankans hafi samþykkt ráðningu útibússtjóra á Grundarfirði á fölskum forsend- um. í bréfi frá stjórn Sparisjóðs Eyrarsveitar til bankaráðs, var tal- ið meðal skilyrða ábyrgðarmanna að Arni Emilsson fyrrverandi hreppsnefndarmaður Sjálfstæðis- flokksins á staðnum yrði ráðinn útibússtjóri. Abyrgðarmenn Spari- sjóðs Eyrarsveitar gerðu aldrei slíka samþykkt, sem er þó talin upp á meðal skilyrða fyrir því að Bún- aðarbankinn fái leyfi til að setja úti- bú á laggirnar á Grundarfirði. Forsaga þessa máls er sú, að Sparisjóður Grundarfjarðar hefur átt við mikla rekstrarerfiðleika að etja að undanförnu. Var svo komið að ekki þótti annað sýnt en að ann- að hvort Landsbankinn eða Bún- aðarbankinn tækju yfir starfsemi Sparisjóðsins. Fljótlega var sam- þykkt að Búnaðarbankinn myndi setja þarna útibú á laggirnar. Á fundi ábyrgðarmanna Spari- sjóðsins var samþykkt samhljóða að Búnaðarbankinn tæki yfir starf- semi Sparisjóðsins með þeim skil- yrðum eingöngu, að þarna yrði um sjálfstætt útibú að ræða og að úti- búið sinnti ákveðnum skyldum við sveitarfélagið. Næst gerist það að stjórn Spari- sjóðsins sendir bréf til bankaráðs Búnaðarbankans, þarsem skilyrð- in eru upptalin. Til viðbótar áður- nefndum skilyrðum ábyrgðar- mannafundar, var nú komið skil- yrði um að Árni Emilsson yrði ráð- inn útibússtjóri. í bréfinu er þetta Sparisjóður Eyrarsveitar í Grund- arfirði verður senn leystur af hólmi með útibúi Búnaðarbankans, en kurr er kominn upp vegna ráðn- ingar nýs útibússtjóra. Ljósm. gel. sett fram einsog um skilyrði á- byrgðarmanna væri að ræða, sem það ekki var. Virðist stjórn spari- sjóðsins hafa bætt þessu við skil- yrði ábyrgðarmanna. Á þessum grundvelli, að um ein- lægan vilja heimamanna væri að ræða, tók bankaráð síðan afstöðu með því að þessi maður yrði ráðinn útibússtjóri. Á áðurnefndum hlut- hafafundi mun sú hugmynd ekki einu sinni hafa komið fram. Árni Emilsson mun hafa verið ein af stærri viðskiptavinum Spari- sjóðs Eyrarsveitar og eiga sem slík- ur verulegan þátt í núverandi fjár- hagsaðstöðu hans. Árni hefur m.a. gegnt störfum sveitarstjóra á Hell- issandi og gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. - óg Alþýðubandalagið vill traustan þingmeirihluta: Bráðabirgðalögintil afgreiðslu strax Falli frumvarpið Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins hefur lagt áherslu á að bráðabirgðalögin verði afgreidd strax í samþykkt sem ráðherrar flokksins kynntu ríkisstjórninni í gær. Jafnframt samþykkti þing- flokkurinn að standa að viðræð- um stjórnaraðila við stjórnar- andstöðuna um afmörkuð mál, þ.e. framgang bráðabirgðalag- anna, stjórnarskrármálið og er rétt að rjúfa þing og efna til kosninga hugsanlegar kosningar. I frétt sem send var frá Alþýðu- bandalaginu í gær segir svo: „Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins telur nauðsynlegt aðfrum- varp til staðfestingar á bráða- birgðalögum um efnahagsað- gerðirnar í ágúst s.l. verði lagt fram á Alþingiþegar ístað, þann- ig að sem fyrst fáist niðurstaða í þeirri óvissu sem nú er í stjórn- málum landsins. Félli frumvarp- ið, sem yfirlýsingar formanna þingflokka stjórnarandstöðunnar benda til, er rétt að rjúfa þing þeg- ar í stað og efna til kosninga svo tímanlega fyrir lok nóvember að ríkisstjórn með skýran meirihluta að baki gœfist tími til að gera þœr ráðstafanir sem hún teldi nauð- synlegar fyrir 1. des. Þingflokkurinn bendir á að sú óvissa sem núer um að rœða getur haft í för með sér að ýrnis mál ríkisstjórnarinnar stöðvist eða tefjist í þinginu. Jafríframt er hœtta á að þingstörf verði í heild ekki jafn markviss og skyldi við þessar aðstæður. Með tilliti til framanritaðs leggur þingflokkurinn áherslu á að bráðabirgðalögin verði af- greidd strax. “ Þessa samþykkt lögðu ráðherr- ar flokksins fyrir ríkisstjórnina í morgun. Jafnframt samþykkti þing- flokkurinn ígœr að standa að við- rœðum stjórnaraðila við stjórnar- andstöðuna um afmörkuð mál, þ.e. framgang bráðabirgðalag- anna, stjórnarskrármálið og hugsanlegar kosningar. Hugsanlegar viðrœður við stjórnarandstöðuna eru nú til meðferðar milli stjórnarflokk- anna. “

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.