Þjóðviljinn - 22.10.1982, Síða 2
2 StpA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 22. október 1982
Jónas Hallgrímsson:
Predikar
1 Dóm-
kirkjunni
Árið 1829 settust að í Reykja-
vík tveir ungir menn, sem báðir
áttu eftir að gera garðinn frægan,
hvor með sínu móti.
Annar þessara ungu manna var
Jón sonur sr. Sigurðar á Rafns-
eyri, Jón forseti, svo sem hann
varsíðar nefndur. Hinn var Jónas
Hallgrímsson, norðan úr Öxna-
dal, einnig prestssonur. Ekki
gegndu þeir þó neinum áberandi
ábyrgðarstöðum í höfuðstaðnum
þennan tíma sem þeir dvöldu þar.
Jón Sigurðsson var assistent í
Norðborgarverslun (Knudtzon-
sverslun), og mun hann hafa átt
þann frama sinn að þakka því, að
föðurbróðir hans, Einar borgari
Jónsson, veitti versluninni for-
stöðu.
Jónas Hallgrímsson gerðist
hinsvegar skrifstofumaður hjá
Ulstrup land- og bæjarfógeta.
Þar sem þeir voru báðir stúd-
entar frá Bessastöðum var þeim
leyfilegt að sinna prestsverkum.
Og þessvegna gat Jónas slegið
botninn í árið með því að flytja
prédikun í Dómkirkjunni á gaml-
árskvöld 1829.
- mhg
Gætum ‘
tungunnar
Sagt var: Hann vitnaði til kenn-
ingu kirkjunnar.
Rétt væri: Hann vitnaði til kenn-
ingar kirkjunnar.
Mér er að detta það í hug úr því
að menn vilja hafa hagræðingu í
fjárfestingu, hvort ekki mætti
hafa bæði steinullarverksmiðj-
una á Sauðárkróki og þá í Þor-
lákshöfn í húsakynnum nýju flug-
stöðvarinnar hans Óla Jó í Kefla-
vík?
Dr. Róbert NButu
gerir
atferlisrannsóknir
á Suðurlandi:
„Augu
margra
glansandi
og blóð-
hlaupin”
í meinhorni því sem Forni
nokkur skrifar í Bæjarblaðið á
Selfossi, segir í síðasta blaði frá
grein sem birtist í mannfræðirit-
inu „The Human Races“ og er eft-
ir dr. Robert NButu prófessor við
háskólann í Ouaggadouggu í Efri-
Volta.
í umræddri grein segir dr.
NButu frá ferð sinni til Islands
sem hann fór nýlega til að forvitn-
ast um félagið Norrænt mannkyn
sem nýlega er stofnað hérlendis
og tildrögin að stofnun þess.
Forni segir að doktorinn hafi
m.a. ferðast um Suðurland og
gert þar athuganir sínar á hinu
norræna kyni, og segist honúm
þannig frá:
„Mest kom mér á óvart hinn
mikli fjöbreytileiki fólksins á
suðurströnd lslands. Háralitur og
hárafar er af öllu tagi og margir
karlmenn sköllóttir og tvo sá ég
sem greinilega báru hárkollu.
Augnlitur einnig margskonar og
augu margra blóðhlaupin og
glansandi.
Mikið bar á œðasliti í andliti
og nef í rauðara lagi. Karlmenn
margir grannholda og siginaxla
en konur þéttholda og furðulega
þykkar niður um sig. Limaburð-
ur og göngulag fólksins var sér-
kennilega slyttislegt og margir
eins og reikuðu í spori. Sóttust
flestir eftir að styðja sig einhvers-
staðar, helst við veggi eða bíla og
einstaka við hest. Algengt var að
fólk hópaðist saman og rœki upp
gól eða vein svipað afrískum sœr-
ingasöngvum til að reka burt illa
anda. “
í niðurlagi greinar sinnar kemst
Dr. NButu að þeirri niðurstöðu
að sérkenni hins norrœna kyn-
stofns á Suðurlandi beri ekki ein-
ungis að vernda heldur geti hér
orðið óskaland atferlisfræðinga
og mannvísindamanna um langa
framtíð.
Selfyssingar bíöa
jólanna með óþreyju
Ljósa-
dýrð
á brúnni
„Ljósa-„show“ á brúnni“, segir
í fyrirsögn í bæjarblaðinu á Self-
ossi sem Alþýðubandalagsfélagar
þar í bæ gefa út af miklum mynd-
arskap.
í frétt bæjarblaðsins segir að
nokkur fyrirtæki á Selfossi hafi
farið fram á leyfi yfirvalda til að
koma fyrir ljósaskreytingum á
Ölfusárbrú fyrir næstu jól. Bygg-
ingarnefnd hefur gefið grænt ljós
á framkvæmdina og bæjarráð
samþykkt alla ljósadýrðina.
„Nú bíðum við bæjarbúar
spenntir eftir jólunum og nýrri
jolastemmningu. Enginn vafi er
á, að þessi fyrirhugaða jóla-
skreyting á eftir að setja mikinn
svip á bæinn yfir jólin, segja þeir
á Bæjarblaðinu. Við á 2. síðunni
vonum að vel takist með fram-
kvæmdina, því brúin er mikil
myndarsmíði og setur skemmti-
legan svip á þennan fallega bæ.
Eg vildi *
samt vera
, kominn
I ífótboltann
m aftur...
Þetta eru allt aum }
JT* ingjar, Albert, þeir geta
ekkert án okkar,hvorki Gunnar
né Geir, við smellum fingri
.og stjórn kemur og fer, og svo
Lsetti ég hrossiö inn á túnið
^ _ ti! prestsins og þú varðst j
ÍÉkfoi'seti borgarstjórnar A
i&>. þótt Davíð sé ,Æm
■bT í fýlu... - , \
Peru-
salar
Kópavogsbúar sem hafa þurft að
þreifa sig áfram í myrkri innan-
dyra, vegna ónýtra ljósapera, geta
nú varpað öndinni léttar, því á
næstu dögum mega þeir eiga von á
að perusalar knýi dyra hjá þeim.
Það eru félagar í Lionsklúbbnum
Muninn í Kópavogi sem eru á ferð í
árlegri söluferð til að safna fé til
líknarmála.
í fyrra gekk perusalan Ijómandi
vel, en reikna má fastlega með því,
að margir bæjarbúar þurfi að
endurnýja lagerinn hjá sér og
skipta um þær ónýtu áður en
skammdegið skellur yfir.
Þessir eldhressu karlar ætla að selja Kópavogsbúum perur næstu dagana. Þeir cru f.v.: Jónas Kjartansson
flokkstjóri, form. fjáröflunarnefndar, Sturla Snorrason rafverktaki, form. Munins, og Helgi Magnússon
tannlæknir, ritari Munins.