Þjóðviljinn - 22.10.1982, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.10.1982, Blaðsíða 16
DIÚÐVIUINN Föstudagur 22. október 1982 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til fóstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsúni Helgarsími afgreiöslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Borgarstjórinn gagnrýndur í gær Fór rangt með upplýsingar Fullyrðingar Davíðs í sjónvarpi á dögunum hraktar á fundi borgarstjórnar í gær ✓ Ovissa um Grjóta- þorp Engin svör fengust við því í borg- arstjórn í gærkvöld, hvað Sjálf- stæðisflokkurinn hyggst fyrir varð- andi skipulag Grjótaþorps. Var þó hart eftir því gcngið af þeim Sigurði Harðarsyni og Sólrúnu Gísla- dóttur. Sjáfstæöisflokkurinn felldi í g'ær- kvöldi tillögur um að leita staðfest- ingar á skipulagi þorpsins, og að gerð yrði áætlun um framkvæmd þess. Einnig var fellt að flytja leikvöll á horni Túngötu að Grjóta- götu og að leitað yrði samvinnu við íbúa þar. Sigurður Harðarson sagðist harmaefSjálfstæðisflokkurinn ætl- aði nú að hlaupast undan merkjum og gera að engu þann mikla áfanga sem náðst hefði með einróma sam- þykkt borgarstjórnar á deiliskipu- lagi þorpsins. Þó taldi hann enn von um verndun þess þar sem tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins lýstu á fundinum stuðningi við þau sjónarmið. Það voru Katrín Fjeldsted og Albert Guðmunds- son. Óskaði Sigurður eftir því að haldinn yrði opinn fundur með íbú- um og húseigendum Grjótaþorps hið fyrsta um framtíð þorpsins. -ÁI Norðmenn ætla að mótmæla hvalveiðibanninu: íslendlngar hafa ekki tekið ákvörðun Mótmæli ein þjóð framlengist fresturinn um 90 daga Þær fréttir bcrast frá Noregi, að norska ríkisstjórnin hafi ákveðið að mótmæla hvalveiðibanni því sem samþykkt var á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins fyrr á þcssu ári. Fresturinn til að mótmæla veiði- banninu, scm taka á gildi 1986, -Það er alvarlegt að æðsti emb- ættismaður borgarinnar skuli fara rangt mcð upplýsingar í fjölmiðli, sem nær til allra landsmanna, þar sem enginn er til andsvara, sagði Sigurjón Pétursson m.a. í borgar- stjórn í gærkvöldi. Sigurjón kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í upphafi fundar vegna rangfærslna borgar- stjóra í sjónvarpsþætti s.l. þriðju- dagskvöld þar sem hann tvítók að á síðasta kjörtímabili hcfði um 350 lóðum verið úthlutað að jafnaði á _ári. Hrakti Sigurjón þessar fullyrð ingar Davíðs Oddssonar, sem reyndar er u ekki nýjar af nálinni, því hann bcitti þcim mjög í kosning- abaráttunni s.l. vor. Sigurjón benti á að telja mætti úthlutaðar lóðir með misjöfnum hætti þannig að hægt væri að kom- ast niður í 402 lóðir á ári minnst og 523 mest á kjörtímabili vinstri meirihlutans og væri þá Sogamýri, .120 íbúðir, sem íhaldið féll frá út- hlutun á, ekki talin með. Byggði Sigurjón tölur sem hann fór með á fundinum á upplýsingum tveggja embættismanna borgarinnar, Hjörleifs B. Kvaran og Yngva Loftssonar og benti á að ef þeir færu með rétt mál, sem hann efað ist ekki um, þá færi borgarstjóri með rangt mál. Sagðist hann reyndar trúa þeim betur en borg- arstjóra og um málflutning hans sagði Sigurjón að það væri sama hversu oft sama lýgin væri endur- tekin, hún yrði ekki sannleikur fyrir það. Aðrir talsmenn minnihlutans tóku undir átölur Sigurjóns á máls- meðferð Davíðs Oddssonar í sjón- varpsþættinum. Sagði Kristján Benediktsson að á borgarstjóra hvíldi sú skylda að fara rétt með mál þegar hann kæmi opinberlega fram á þennan hátt en Davíð Odds- son hefði fallið á því prófi. rennur út 4. nóvcmber nk. Aftur á móti framlcngist þessi frcstur um 90 daga, ef ein þjóð mótmælir. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins, sagði í samtali við Þjóðviljann í gær, að enn hefði ekki verið tekin ákvörðun um það hvort íslcndingar mót- mæltu banninu. Hann benti á að nú hefði norska ríkisstjórnin lýst því yfir, að hún myndi mótmæla, og eins sagðist hann hafa heyrt að Jap- anir ætluðu að gera slíkt hið sama. Við það myndi fresturinn til að mótmæla framlengjast um 90 daga hjá öðrum þjóðum. Þá var Jón inntur eftir því hvort menn óttuðust hótanir ríkisstjórn- ar Bandaríkjanna að beita sér fyrir því að banna sölu fisks frá þeim þjóðum, sem ekki virtu hvalveiði- bannið. Ilann sagði að í því sam- bandi stæði mönnum kannski meiri ótti af ýmsum félögum vcstan hafs, sem hafa sýnt það að þau gcta haft mikil áhrif á neytendur, cf þau beita sér gegn ákveðnum vöruteg- undum. Að lokum benti Jón á, að enn væri nokkur tími þar til hvalveiði- bannið á að taka gildi og margt gæti breyst á þessum tíma og því of snemmt að vera að spá um hvað gerast muni. -S.dór Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir hélt í fyrrakvöld kvöldverðarboð að Hótel Sögu til heiðurs forseta Finnlands, Mauno Koivisto og konu hans Tellervo. Myndin er tekin er þau komu inn á Hótel Sögu. Ljósm. - gel - „Einmgin vex í flokknu 11 — segir Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins „Einingin vex í flokknum“, sagði Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins aðspurður um fundahöld Sjálfstæðismanna utan og innan ríkisstjórnar í baksölum alþingis í gær. Einsog kunnugt er er mikið um smáfundi í gluggakistum og her- bergjum afsíðis í Alþingishúsinu þessa dagana. Svo virðist sem þessi fundahöld fari fram í vinsamlegu andrúmslofti, og þingmenn ganga kampakátir um þingsali eftir þessa makkfundi. Friðrik Sophusson vildi ekki lá,ta annað uppiskátt um fundahöld Sjálfstæðisflokksins beggja arma en tilvitnuð orð hér að ofan. Hins vegar eru margir aðrir um þá skýringu í baksölum alþingis, að Geirsarmur Sjálfstæðisflokksins geti ekki unað við það, að Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra fái að fylgja stjórnarskrármálinu eftir sem formaður stjórnarskrárnefnd- ar, og það sé ein skýringanna á fundahöldum þessum. -óg Endurvarpsstöð relst á Sy ðri-Rauðamelskúlu „Við Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur, sem situr í Náttúru- verndarráði, fórum vestur 25. ág- úst sl. og litum á allar aðstæður við Syðri-Rauðamclskúluna. Gaf Sig- urður síðan umsögn um það hvern- ig standa ætti að framkvæmdum við endurvarpsstöðina, og ég á von á að eftir henni hafl verið farið“, sagði Gísli Gíslason starfsmaður Náttúruverndarráðs í samtali við Þjóðviljann í gær. Póstur og sími ákvað í sumar að reisa endurvarpsstöð sjónvarps á Syðri-Rauðamelskúlu í Hnappadal í sumar. Kvaðst Hans Þormar hjá Pósti og síma vonast til að stöðin kæmist í gagnið í haust, en hún á að þjóna nokkrum bæjum í Kol- beinsstaðahreppi. Þegar framkvæmdir við endur- varpsstöðina áttu að hefjast hafði verkstjóri einn samband við Nátt- úruverndarráð og bað það að kynna sér málið. Brugðu Náttúru- verndarráðsmenn skjótt við og stöðvuðu framkvæmdir í IV2 sólar- hring meðan aðstæður voru skoð- aðar og umsögn gefin að því loknu. Við spurðum Gísla Gíslason hver hefði verið umsögn Sigurðar Þór- arinssonar jafðfræðings um fram- kvæmdirnar: „Hann gaf fyrirmæli um að kofi við sjálfa endurvarpsstöðina yrði færður að syðri brún gígsins, þann- ig að hann sæist síður. Þá yrði húsið með svipuðum lit og gjallið í kring. Vegurinn, sem átti að liggja upp norðurhlið kúlunnar, verði lagður þannig að hann spillti sem allra minnst mosaþembum og öðrum gróðri og að vegarslóðanum yrði kirfilega lokað fyrir allri umferð strax að framkvæmdum loknum“. Og hefur verið farið að þessum fyrirmælum? „Við eigum eftir að taka verkið út, og ég veit raunar ekki til þess að því sé lokið ennþá. En úttekt á framkvæmdum mun fara fram við fyrstu hentugleika‘% sagði Gísli Gíslason starfsmaður Náttúru- verndarráðs að lokum. -v. Miðstjórn ASÍ Fordæmir bann á starf Samstöðu Fundur í miðstjórn ASI sem haldinn var í gær samþykkti sani- hljóða að fordæma harðlega hina nýju vinnulöggjöf herstjórnarinnar í Póllandi. Samþykkt ASÍ hljóðar þannig: „Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands fordæmir harðlega hina nýju vinnulöggjöf herstjórnarinnar í Póllandi, sem gengur þvert á sam- þykktir Alþjóðavinnumálastofnun- arinnar (ILO) um faglcgt frelsi og réttindi, en Pólverjar eru aðilar að þeim samþykktum. Tilgangur lag- anna er augsýnilega sá, að leysa upp verkalýðssamtökin Samstöðu. Nú, þegar Lech Walesa og aðrir löglcga kjörnir forystumenn sam- takanna hafa setið í fangelsi í nær ár, vilja stjórnvöld koma á mála- mynda verkalýðsfélögum á cinstök- um vinnustöum undir forræði stjórnvalda. Samstaða, sem á stuttum tíma fylkti 80% vinnandi manna undir sitt merki, verður að fá fullt athafn- afrelsi í pólsku þjóðfélagi, ef nást á sú þjóðareining sem nauðsynleg er til að leysa þau miklu vandamál sem við er að stríða. Miðstjórn Al- þýðusambands Islands krcfst þess, að pólsk stjórnvöld láti af mann- réttindabrotum og virði rétt verka- fólks til að bindast samtökum.“ Hjálmar Vilhjálmsson Vil ekkert segja Rannsóknarskipið Bjarni Sæ- mundsson hefur verið í rannsókn- arleiðangri á loðnumiðunutn und- anfarið, og í gær höfðum við sam- band við Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðing og leiðangursstjóra og spurðumst frétta. Hjálmar sagðist ekkert geta sagt á þessu stig málsins; hann yrði að vinna fyrst úr þeim gögnuni, sem aflað hefur verið í leiðangrinum. Hann varðist líka allra frétta um það hvort eitthvað nýtt liefði kom- ið fram í þessum leiðangri; gerði sig dularfullan í málrómnum og sagði að menn yrðu að bíða þess að leið- angursmenn kæmu í land. -S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.