Þjóðviljinn - 22.10.1982, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 22.10.1982, Blaðsíða 7
ðstudagur 22. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Þannig kemur Borgarspítalinn til meðaðlítaút. Aöeins lítill hluti viðbygginganna er risinn en þar er slysadeild til húsa. m£L íjiisSS iij!í 8 rats Borgarspítala risin B-álma Alllangt er nú um liðið síðan farið var að hyggja að byggingu borgarsjúkrahúss í Reykjavík, en Vilmundur Jónsson fyrrverandi landlæknirvakti athygli bæjaryf irvalda í Reykjavík á því fyrir tæplega hálfri öld að leggja þyrfti meira fé til heilbrigðismála. Það var svo í árslok 1948 sem skriður komst á byggingamálin og bæjarstjórn skipaði sérstaka nefnd til að undirbúa byggingu bæjarsjúkrahúss Reykjavíkur. Skilaði nefndin áliti í júní 1949 og lagði til, að í Fossvogi risi 365 sjúklingasjúkrahús. Varhúsameistari bæjarins Einar Sveinsson fenginn til að teikna bygginguna, og vann með honum Gunnar Ólafsson arkitekt. 5. og 6. hæð byggingarinnar teknar í notkun um mitt næsta ár Þrjátíu ára saga Grunnur að Borgarspítalanum í Reykavík var tekinn árið 1952 og nokkru síðar komu fram tillögur um T-laga byggingu. Hófust bygg- ingaframkvæmdir formlega 1954, á miðju ári. Var strax ákveðið að fresta „um sinn“ byggingu B- álmunnar, en á næstu 7 árum tókst að steypa hina hlutana upp, alls um 56.000 rúmmetra. Fyrsta deildin í Borgarspítalan- um var opnuð í maí 1966 og var það röntgendeild sjúkrahússins. Stofn- dagur spítalans telst hins vegar vera 28. desember 1967, en þá var fyrsti sjúklingurinn fluttur inn. Tóku síðan flestar deildir til starfa á næsta ári. Á árinu 1980 flutti slysa- og sjúkravakt Borgarspítalans í nýja viðbyggingu sem nefnd hefur verið G-álman. Þar er aðeins um fyrsta áfanga fyrirhugaðrar viðbyggingar að ræða, en í framtíðinni er ætlunin að þar komi síðar aðstaða fyrir hin- ar ýmsu stoðdeildir spítalans. B-álman rís Haukur Benediktsson fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans og Magnús Björnsson byggingastjóri B-álmu gengu með blaðamönnum Þjóðviljans um hina nýju álmu sjúkrahússins í fyrri viku og lýstu húsakynnum. Það mun hafa verið á árinu 1974 sem sökklar að þessu húsi voru steyptir, en síðan varð allverulegt hlé á framkvæmdum. Var það ekki fyrr en haustið 1979 sem uppsteypa hússins var boðin út og hafa áætl- anir varðandi allan ytri frágang staðist. Auk kjallara er B-álman 7 hæðir og er heildargrunnflötur bygging- arinnar 6.846 fermetrar og húsið allt 23.176 rúmmetrar að stærð. Það var ákveðið strax í öndverðu að B-álman skyldi hýsa öldrunar- sjúklinga. Á 6 hæðum byggingar- innar verður komið fyrir 174 sjúkrarúmum, og er þar um að ræða 80% aukningu á núverandi fjölda rúma í spítalanum sjálfum, en auk þess koma svo til hin fjöl- mörgu útibú Borgarspítalans. Vegna þess ástands sem skapast hefur á liðnum árum í málefnum aldraðra hefur verið settur kraftur í byggingarframkvæmdir og munar þar mestu um tilkomu Fram- kvæmdasjóðs aldraðra á síðasta ári. Þrátt fyrir það hafa áætlanir frá árinu 1980 ekki staðist fyllilega, en samkvæmt þeim var ætlunin að taka tvær efstu hæðirnar í notkun á miðju þessu ári. Þrátt fyrir 24.4 milljón króna fram iag frá ríki og bæ á bessu ári verð- ur ekki hægt að taka 5. og 6. hæðir hússins í notkun fyrr en í mars til maí á næsta ári, samkvæmt upplýs- ingum Hauks Benediktssonar fram kvæmdastjóra. Þá taldi hann mikinn vafa leika á að hægt væri að ljúka húsinu endanlega og taka það í notkun árið 1984. Til þess þyrfti enn að stórauka fjárframlögin. Varlega áætlað þyrftum við um 40 milljónir á næsta ári frá því opin- bera, sagði Haukur Benediktsson í samtali við blaðið. Hver hafa framlögin verið? Árið 1976 var veitt sem svarar 1 milljón króna til B-álmu Borgar- spítalans af fjárlögum. 1977 var veitt 1.2 milljónum, 1978 4.2 mill- jónum, 1979 voru engin framlög, 1980 var veitt 700 þúsundum, 1981 var veitt 9.6 milljónum af fjár- lögum til B-álmu, en það framlag var skorið niður um 480.000 krón- ur það ár. Á þessu ári veitti heilbrigðisráðherra 18 milljónum króna til B-álmunnar úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra en það framlag hefur nú verið skorið niður um 3 milljónir á þessu ári og flyst fram yfir áramót. Fær því B-álman á þessu ári 15 milljónir úr Fram- kVæmdastjoði. Reykj avíkurborg hefur lagt fram sem svarar 15% byggingarkostnað- ar eins og lög gera ráð fyrir. -v. „Verður einungis fyrir aldrað fólk” , Jfú, það er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur varðandi skortinn á hjúkrunarfræðingum, og ég er ekki í vafa um að erfiðleikar verða á að manna B-deildina þegar þar að kemur“, sagði Haukur Benediktsson framkvæmdastjóri Borgarspítalans þegar blaðamaður Þjóðviljans spjailaði við hann fyrir skömmu. „í sumar urðum við að loka tveimur deildum spítalans vegna skorts á hj úkrunarfræðingum, en ekki tókst að ráða fólk í afleysingar Rætt við Hauk Benediktsson framkvæmda- stjóra Borgarspítalans þegar sumarleyfin byrjuðu. Þarna var um legudeildir að ræða, eink- um lyflækningadeildarsjúklingar sem fyrir þessu urðu”. Hver er ástæðan fyrir þessum skorti á hjúkrunarfræðingum? „Þær eru sjálfsagt margvíslegar, en ég held að launakjörin skipti ekki öllu máli. Auðvitað verður að útskrifa meira af þessu fólki, en ég tel óraunhæft að til séu hundruð hjúkrunarfræðinga sem sitja heima og munú 'koma ef launakjörin batni. Lau þessarar stéttar voru stórbætt í sumar, en það hafði eng- in áhrif í þessa átt. Meginhluti þeirra sem ekki eru úti á vinnu- markaðinum koma ekki til með að taka til starfa í sínu fagi. Þetta er staðreynd sem men verða að viður- kenna”. Nú hefur heyrst að ásókn sé í rúmin á B-deildinni frá öðrum deildum spítalans. Koma aldraðir örugglega til með að njóta B- álmunnar? „Já, þeir koma örugglega til með að njóta þeirra 174 rúma sem þar verða tekin í notkun á næsta ári og þarnæsta ári. Fjárframlög til bygg- ingarinnar eru eyrnamerkt þannig að álman verður að nýtast fyrir öld- runarsjúklinga. Hinu má svo ekki gleyma að stór hluti „almennra" sjúklinga á sjúkrahúsum eru aldr- aðir, þannig að tilkoma B-álmunn- ar léttir auðvitað öðrum deildum Borgarspítalans. Haukur Benediktsson: eflaust verða erfiðleikar með að manna B-álmuna þegar þar að kemur. Varðandi ásókn frá öðrum deildum að leggja þarna inn sjúk- linga, má eflaust gera ráð fyrir að svo verði. Það vantar tilfinnanlega rúm fyrir háls- nef- og eyrnasjúk- linga, en Borgarspítalinn er eini spítalinn hér sem tekur slíka sjúk- linga. Þá vantar mjög rúm fyrir sjúklinga sem koma af slysadeild," sagði Haukur Benediktsson fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans að lokum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.