Þjóðviljinn - 22.10.1982, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. október 1982
Lagt fram frumvarp
um hellbrigðisþjónustu
Svavar Gestsson heilbrigðisráð-
herra mæiti á miðvikudag fyrir
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
heilbrigðisþjónustu. Frumvarpið
var lagt fram til kynningar á síðasta
löggjafarþingi en það er byggt á
niðurstöðum nefndar sem sett var á
laggirnar tii að endurskoða eldri
lög um heilbrigðisþjónustu.
Hér er um að ræða ítarlegt
leiðréttingarfrumvarp um heilbrig-
ðisþjónustu í landinu, þar sem
tekið er tillit til örrar þróunar og
útþenslu í heilbrigðisgeira þjóðfél-
agsins.
Svavar rakti helstu nýmæli í
frumvarpinu og fara hér á eftir
nokkur þeirra:
Um 2. gr.
Gerð er tillaga um sérstaka
nefnd til þess að sinna kvörtunum
og kærum er varða samskipti al-
mennings og heilbrigðisþjónust-
unnar. I dag eru þessi mál í hönd-
um landlæknis, en lagt er til að til
hliðar við landlæknisstarfið starfi
sérfræðinganefnd, sem auk þess sé
hægt að vísa máli til beint, þ.e.a.s.
sætti aðilar sig ekki við afgreiðlsu
landlæknis á máli. Landlæknir hef-
ur á undanförnum árum ítrekað
óskað eftir því að einhverskonar
ráðgjafarnefnd verði skipuð á
þessu sviði.
Um 3. gr.
Lagt er til að í stað Heilbrigðis-
ráðs Islands, sem verið hefur óst-
Þingsjá
arfhæft, verði haldið heilbrigðisþ-
ing eigi sjaldnar en 4. hvert ár. Yr-
ðu verkefni heilbrigðisþings mjög í
sama anda og störf Heilbrigðisráðs
íslands, en unnin á miklu breiðari
grundvelli. Tillagan er fram komin
í kjölfar heilbrigðisþings sem hald-
ið var haustið 1980 og þótti takast
vel.
Um 4. gr.
Lagt er til að heilbrigðismálaráð
læknishéraðanna hafi ekki sem
verkefni skipulagningu á starfi
ríkisspítala. Tillagan er fram kom-
in þar sem mjög óeðlilegt er að
heilbrigðismálaráð ákveðins hér-
aðs hafi meira með þessi mál að
gera en önnur þar sem starfsemi
ríkisspítalanna snertir landið í
heild, auk þess sem ríkisspítölun-
um eru ekki ætluð þau áhrif innan
heilbrigðismálaráða, samkvæmt
lögunum, að tryggt sé að sjónarmið
þeirra komi nægjanlega fram við
undirbúning. Enn fremur skal á
það bent að fyrir ríkisspítölunum
fer sérstök stjórnarnefnd, sem
heyrir beint undir ráðherra.
Um 9. gr.
Þær breytingar eru lagðar til hér,
að sjúkraþjálfarar verði ráðnir til
starfa við heilsugæslustöðvar. Þessi
breyting mun ekki fela í sér að
sjúkraþjálfarar yrðu skilyrðislaust
ráðnir við allar heilsugæslustöðvar
heldur eingöngu við þær stærstu og
allt samkvæmt nánari ákvörðun rá-
ðuneytis og fjárveitingayfirvalda.
Enn fremur er lögð til sú breyting
hér að stjórnir viðkomandi heilsu-
gæslustöðva fái að gefa umsögn um
hjúkrunarfræðinga og ljósmæður
Hópur írskra
listamanna
frá
Comholcas Ceolrómí émeann
írska þjóölagafélaginu
Skemmtir í Háskólabíói
laugardaginn 23. okt. ’82
með hljóðfæraleik,
söng og dansi
kl. 14.00 og kl. 23.15
Þessir koma f ram: Dansarar eru:
Anthony Mc Auley
FIÐLA — BODHRAN
Kathleen Nesbitt
FIÐLA
Jimmy Mc Greevy
HARMONIKA
Deirdre Hodge
KONSERTINA
Diarmuid Kenny
FLAUTUR
Michael Kenny
BANJO
Eileen Curtin " <
SÖNGUR ^ j.
Michael Ó Brien
SEKKJAPÍPA
Mairead Coyle
OG
Gregory Casey
-'Yr't
ii 1
írsk-íslenska félagið
Forsala aðgöngumiða er hjá bókaverslununum Mál og menning, Sigfús
Eymundsson, Lárus Blöndal og í Háskólabíói.
Verð miða aðeins kr. 100,-
og sjúkraþjálfara er sækja um
stöður.
Lögð er til sú breyting að í stað
heilbrigðismálaráða héraðanna ák-
veði ráðherra hvenær ráða skuli
hjúkrunarforstjóra að heilsugæsl-
ustöðvum. Sú breyting er enn
fremur lögð til að ráðherra geti ák-
veðið að sjúkraliði gegni störfum á
heilsugæslustöð og taki laun úr
ríkissjóði, þegar hjúkrunarfræ-
ðingur eða ljósmóðir fást ekki til
starfa. Á slíkt hefur reynt og hefur
þá þurft að fara krókaleiðir með
greiðslur, þ.e.a.s. viðkomandi
sveitarfélag hefur greitt sjúkraliða-
laun, en síðan hefur ráðuneytið
endurgreitt úr læknishéraðasjóði.
Um 11. gr.
Þessi grein fjallar um þá þjón-
ustu sem veita á á heilsugæslustöð
eða í tengslum við hana. Nýmælin
eru eftirfarandi:
Sjúkraflutningar, heilbrigðisfræ-
ðsla í fyrirbyggjandi, tóbaksvarnir,
að í félagsráðgjöf skuli meðal ann-
ars fólgin fjölskyldu- og foreldrar-
áðgjöf og sérstaklega er vísað til
laga nr. 46% 1980, um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum að því er snertir atvinnusj-
úkdóma og varnir. Enn fremur
segir að sé aðsetur heilbrigðisfull-
trúa ákveðið, þar sem heilsugæslu-
stöð er, skuli heilbrigðiseftirlit
starfrækt frá stöðinni og er þetta í
samræmi við ákvæði laga nr. 50/
1981, um hollustuhætti og heilbrig-
ðiseftirlit enda á allan hátt eðlilegt
að sem sterkust bönd séu milli
heilbrigðiseftirlits og heilsugæsl-
unnar.
Um 23. gr.
Lagt er til að um framkvæmdir
við sjúkrahúsbyggingar gildi sömu
framkvæmdareglur og getið er um
að framan varðandi byggingar
heilsugæslustöðvar og sem eru efn-
islega eins og reglurnar um bygg-
ingu skólahúsnæðis.
Lagt er til að settar verði reglur
um framkvæmd og skipulagnignu
sjúkraflutninga með hliðsjón af
hverju umdæmi og séraðstöðu þess
og að m.a. skuli setja reglur um
lágmarksmenntun sjúkraflutnings-
manna, réttindi þeirra og skyldur
svo og búnað flutningstækja.
Ákvæði sem þessi skortir algjör-
lega í gildandi lög. Rétt er að benda
á að á ofanverðu s.l. Alþingi var
samþykkt tillaga til þingsályktunar
um greiðslu, framkvæmd og skipu-
lag sjúkraflutninga og ríkisstjórn-
inni falið að skipa nefnd til að vinna
að breytingum á lögum þeim sem
hér um ræðir í þeim tilgangi. Þegar
þessi þingsál.till. var samþykkt
hafði starfshópur sá er að frum-
varpinu vann þegar gert þær til-
lögur sem hér líta dagsins ljós.
Ennfremur voru á s.l. Alþingi sam-
þykktar breytingar á almannatr-
yggingalögum hvað snertir sjúkra-
flutninga milli sjúkrahúsa, en um
þá skorti áður lagaákvæði. Fyrri
því verður að líta svo á að þegar
hafi verið tekið á ákveðnum þátt-
um sem fram koma í þingsál.till. í
lögum og að hér með sé gerð tillaga
um þá sem á vantar. Þess vegna
þurfti ekki að skipa til þessa verks
sérstaka nefnd.
Salome Þorkclsdóttir sagðist
ekki líta svo á að hér væri um ein-
hverjar róttækar breytingar að
ræða hedlur væru hér einungis
leiðréttingar á ferðinni. Að lokinni
fyrstu umræðu var frumvarpingu
vísað til nefndar og annarrar um-
ræðu.
-og.
ff
Lögð hefur verið fram á
þingi svohljóðandi fyrirspurn
frá Halldóri Blöndal: Hvenær
er þess að vænta að frumvarp
um fuglafriðun verði lagt fram
á Alþingi? Fyrirspurninni er
beint til menntamálaráð-
-«g-
„Stöðva
rányrkju
Fœreyinga
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að gera nú þeg-
ar ráðstafanir til að stöðva
rányrkju Færeyinga við
veiðar Atlantshafslaxins í
efnahagslögsögu sinni og hafa
um það samráð við önnur up-
prunalönd laxastofnsins ef
nauðsynlegt reynist“. Þetta er
tillaga frá Eyjólfl Konráð og
Albert Guðmundssyni til
þingsályktunar sem lögð hefur
verið fram í sameinuðu þingi.
-«g-
Hafsbotns-
réttindi á
Reykjanes-
hryggnum
Lögð hefur verið fram þing-
sályktunartillaga frá Pétri Sig-
urðssyni og Eyjólfi Konráð
um hafsbotnsréttindi íslands á
Reykjaneshrygg.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að gera nú þeg-
ar ráðstafanir til að tryggja
formlega þau ótvíræðu rétt-
indi til hafsbotnsins á
Reykjaneshrygg og út frá
hlfðum hans sem ísland á til-
kall til samkvæmt 76. grein
Hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna."
-óg
Veiðiaðstaða í
Ameríku og Afriku
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að kanna
möguleika á kaupum veiði-
leyfa og öflun veiðiaðstöðu
fyrir íslensk fískiskip í fisk-
veiðilögsögu ríkja í Norður-
Ameríku og Vestur-
Afríku.“Þannig hljóðar þing-
sályktunartillaga sem lögð
hefur verið fram í sameinuðu
þingi af Eiði Guðnasyni og
fleirum.
Bann við bráðabirgðalögum
Lagt hefur verið fram frumvarp í
neðri deild alþingis frá Vilmundi
Gylfasyni og fleiri Alþýðuflokks-
mönnum um að 28. grein stjórnar-
skrárinnar falli brott. Sú grein
stjórnarskrárinnar um útg-bráða-
birgðarlaga. í greinargerð með
frumvarpinu segja flutningsmenn
að hinn ótryggi meirihluti sem
ríkisstjórnin njóti á alþingi undir-
striki nauðsyn þess að þetta „gamla
og úrelta ákvæði verði numið úr
stjórnarskrá lýðveldisins íslands".
-óg