Þjóðviljinn - 22.10.1982, Blaðsíða 9
Föstudagur 22. október 1982 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 13
Umsjón:
Víöir Sigurðsson
Handknattleikur kvenna:
„Átti að leggja knat
niður í kringum 19
Þorsteinn
Jóhannes-
son skrifar
um hand-
knattleik
kvenna á
íslandi og bendir
á leiðir til úrbóta
Á síðasta ársþingi HSÍ urðu
nokkrar umræður um málefni
kvennalandsliðsins. Beiðni kom
frá fráfarandi kvennalandsliðs-
nefnd um 100 þúsund króna styrk
til kvennalandsliðanna, þessari
beiðni var hafnað. Hins vegar var
1400 þúsund króna fjárhagsáætlun
A landsliðs karla samþykkt. Öll
umræða um þessi mál hefur hingað
til verið á þeim grundvelli að
kvennahandbolta er stillt upp gegn
karlaboltanum og sagt að kvenna-
handboltinn skapi ekki tekjur og í
framhaldi af því skulu þær afla alls
þess fjár sem þær þurfa. Eins hefur
kvennaboltinn ekki átt upp á pall-
borðið hjá félögunum, og hafa
margir stjórnarmenn, bæði hjá
HSÍ og félögunum, haft þá skoðun,
að leggja eigi kvennahandboltann
niður. Það mætti kannski spyrja,
hvort það hefði átt að leggja knatt-
spyrnuna niður á árunum í kring-
um 1970 bara af því að ekki náðist
árangur. Mí.i skoðun er að hlúa
eigi að kvennahandboltanum og
reyna að reisa hann úr öskustónni,
en hvernig er best að gera það?
1. Gera þarf meiri kröfur til
gæðaþjálfunar í kvennahandbolt-
anum.
2. Auka þarf kröfur til stúlkn-
anna á æfingum. Leggja þarf fyrir
æfingar sem gera þær sterkari.
3. Kröfur urn að þær hætti ekki á
þeim aldri sem þær eru fyrst að
byrja að þroskast sem ieikmenn.
4. Keppnisflokkum verði fjölg-
að, til dæmis:
4. flokkur aldur 10-13 ára
3. flokkur aldur 14—16 ára
2. flokkur aldur 17-19 ára
Meistarafl. aldur 19 ára og eldri.
Þessi breyting er hugsuð til að
koma í veg fyrir að stúlkur hætti í
handknattleiknum eins ungar og
þær gera í dag. Flestar hætta þegar
þær eiga að ganga upp í meistara-
flokk.
Koma þarf í veg fyrir að stúlkur hætti eins ungar að stunda
handknattlcik og þær gera í dag.
5. Landsliðið fái að minnsta
kosti 6-8 landsleiki á hverju ári og
þá í formi tveggja móta einu heirna
og einu erlendis. Ekki verði tekið
þátt í heimsmeistarakeppni fyrr en
í forkeppninni fyrir HM 1990. Lagt
verði upp 6-7 ára plan og allt gert
til þess að halda saman sterkum
kjarna.
Á sama tíma verði yngri kvenn-
alandsliðin byggð markvisst upp.
Með þátttöku NM unglinga og öðr-
um slíkum mótum.
6. Félagsliðin stuðli að auknum
samskiptum við erlendar þjóðir þá
heist, með þátttöku í æfingamótum
erlendis, bæði fyrir yngri sem eldri
flokka.
7. Stjórn HSÍ greiði fyrir eina
ferð hjá A-landsliði á hverju ári, og
allan þjálfunar og húsnæðis-
kostnað. Þorsteinn Jóhannesson
Brynjar Valsmarkmaður
með landsliðinu til Spánar
Teiti Þórðarsyni hefur verið.
meinað af félagi sínu, franska 1.
deildarliðinu Lens, að leika með
íslenska landsliðinu í knattspyrnu
gegn Spánverjum á miðvikudag-
inn. Jóhannes Atlason landsliðs-
þjálfari var búinn að hafa samband
við Teit um að koma til Spánar en
þá kom upp sú staða að Teitur hef-
ur verið valinn í aðallið Lens í
fyrsta skipti í vetur og leikur með
liðinu á þriðjudag og föstudag.
Bikar- firma-
og skóla-
keppni KKÍ
Körfuknattleikssamband ís-
lands hefur sett tímatakmörk á
þátttökutilkynningar í þrjú mót á
vegum KKÍ í vetur. Bikarkeppni
KKÍ, Skólamót KKÍ og Firma-
keppni KKÍ.
Þátttöku í bikarkeppninni
1982-83 skal tilkynna eigi síðar
en 5. nóvember og þátttöku í
firmakeppninni fyrir 20. nó-
vember.
Skólamótið skiptist í fram-
haldsskóla- og grunnskóla-
keppni. í framhaldsskólakeppn-
inni er leikið í karla- og kvenna-
flokki en í grunnskólakeppninni í
eftirtöldum flokkum: Stúlkna-
flokki 12-13 ára, eldri flokki
drengja 14-15 ára og yngri flokki
drengja 12-13 ára. Þátttöku skal
tilkynna eigi síðar en 5. nóvemb-
er. Skrifstofa KKÍ, sími 85949,
gefur allar upplýsingar og þangað
ber að senda þátttökutilkynn-
ingar.
Brynjar Guðmundsson, mark-
vörður Vals, hefur verið valinn í
landsliðshópinn sem leikur við
Spánverja í Malaga á miðvikudag-
inn kemur í Evrópukcppni lands-
liða í knattspyrnu. Brynjar kemur í
stað Guðmundar Baldurssonar
sem ekki gaf kost á sér í ferðina.
Brynjar er eini nýliðinn í A-
4 landsliðinu en það er þannig
Ískipað:
Markverðir:
Þorsteinn Bjarnason, ÍBK
Brynjar Guðmundsson, Val
Aðrir leikmenn
Arnór Guðjohnsen, Lokeren
Atli Eðvaldsson, Diisseldorf
Lárus Guðmunssson, Waterschei
Sigurður Grétarsson, UBK
Pétur Pétursson, Antwerpen
Sævar jónsson, CS Brugge
Örn Óskarsson, IBV
Ómar Tortason, Víkingi
Marteinn Geirsson, Fram
Sigurður Lárusson, ÍA
Viðar Halldórsson, FH
Gunnar Gislason, KA
Árni Sveinsson, IA
Þjálfari er Jóhannes Atlason og
aðstoðarmaður Einar Gíslason en
fararstjórn skipa Ellert B. Schram,
Friðjón Friðjónsson og Helgi Dan-
íelsson.
Landsliðið undir 21-árs leikur á
sama tíma við Spánverja í Badajos
og er þannig skipað:
Markverðir:
Ögmundur Kristinsson, Víkingi
Friðrik Friðriksson, Fram
Aðrir leikmenn
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Víkingi
Erlingur Kristjánsson, KA
Valur Valsson, FH
Hafþór Sveinjónsson, Fram
Jón Gunnar Bergs, Val
Óli Pór Magnússon, ÍBK
Ólafur Björnsson, UBK
Ómar Rafnsson, UBK
Ragnar Margeirsson, ÍBK
Sigurjón Kristjánsson, UBK
Trausti Ómarsson, UBK
Þorsteinn Þorsteinsson, Fram
Helgi Bentsson, UBK
Þjálfari er Guðni Kjartansson og
aðstoðarmaður hans Þorsteinn
Geirharðsson en fararstjórar eru
Árni Þorgrímsson og Páll Júlíus-
son. - VS
Ráðstefna um knattspyrnu
Knattspyrnusamband íslands
gengst fyrir ráðstefnu á Hótel Esju,
sal þrjú, á morgun, laugardaginn
23. október.Ráðstefnan hefst kl. 10
og stendur eitthvað fram eftir degi.
Gert er ráð fyrir að ráðstefnugest-
um verði skipt upp í starfshópa að
loknum framsöguerindum og í lok-
in verði almennar umræður.
Umræðuefnið verður: Staða
knattspyrnunnar á íslandi. Fjallað
verður um ástæður fyrir fækkun
áhorfenda, áhrif sjónvarps, þjálfun
og leikaðferðir, tekjustofna og út-
gjöld KSÍ og knattspyrnuhreyfing-
arinnar, vallarskilyrði, og þá gervi-
gras, útflutning leikmanna og
fleira.
Til ráðstefnunnar er boðið full-
trúum frá félögum í 1. og 2. deild,
þjálfurum 1. deildar, fulltrúum
ISÍ, ÍBR, KDSÍ og KÞÍ, svo og
blaðamönnum
Öllu frestað
i úrvalsdelld
Öllum leikjum 4, umferðar
úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik hefur verið frestað. Þeir áttu
að fara fram á morgun og á sunn-
udag. Ástæða frestunarinnar er
sú að unglingalandsliðið er nú
statt á írlandi og verður þar fram
á mánudag en þar méð í för eru
leikmenn frá flestum liða úrvals-
deildarinnar.
Reykjav.mót
í borðtennis
Reykjavíkurmót í borðtennis
verður haldð dagana27. og31. okt-
óber í Laugardalshöllinni. Mið-
vikudaginn 27. október kl. 19.40
verður leikinn tvenndarleikur og
tvíliðaleikur „old-boys” í borð-
tennissal. Sunnudaginn 31. októ-
ber hefst keppni kl. 9.30 og þann
dag verður leikið í borðtennissal og
aðalsal. Leikin verður einföld út-
sláttarkeppni nema þar sem ein-
ungis 4 eða færri eru skráðir til
leiks.
Þátttaka tilkynnist til formanna
borðtennisdeilda eða á lista í borð-
tennissal Laugardalshallarinnar;
tvenndarleikur og tvíliðaleikur
„old-boys” fyrir miðvikudags-
kvöld, en fyrir föstudagskvöld 29.
október í öðrum greinum.
Kamba-
boðhlaup
Kambaboðhlaup ÍR og HSK
fer fram n.k. sunnudag, 24. okt.
og hefst á Kambabrún kl. 12:00. í
hverri sveit eru 4 hlauparar sem
hver hleypur 10 km. Hlaupinu
lýkur við IR-húsið við Túngötu.
Þátttaka tilkynnist til Guðmund-
ar Þórarinssonar, ÍR, og eru
keppendur áminntir um að mæta
tímanlega.