Þjóðviljinn - 03.11.1982, Qupperneq 3
Miðvikudagur 3. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
30 tonn af
grísum yfir
Norðurpól
— og til Suður-Kóreu
DC-8 vél frá Cargolux lenti á
Keflavíkurflugvelli í gær með
óvanalegan farm í óvanalegu flugi.
Hér voru á ferðinni 30 tonn af lif-
andi grísum frá Malmö á leið til
Suður-Kóreu yfir Norðurpólinn.
Er þetta í fyrsta sinn sem
Cargolux-vél flýgur þessa leið,
sem tekur um sólarhring. Flug-
stjóri í þessu flugi er Kolbeinn Sig-
urðsson.
Tvöföld áhöfn er í vélinni, en
héðan er flogið til Pusan í Suður-
Kóreu með örstuttri viðdvöl í Al-
aska. Ragnar R. Kvaran flugstjóri
flýtur vélinni til skiptis við Kol-
bein.
Við hittum þá félaga þegar vélin
hafði stutta viðdvöl á Keflavíkur-
flugvelli um 4-leytið í gær. Þar sem
hér er um mjög viðkvæman farrn
að ræða, 310 stykki af lifandi grís
um, sem eru allt að 90 kíló að
þyngd hver, verður að fljúga í sem
næst einum áfanga. Ekki má af-
ferma vélina, en opnað er til að
lofta út hjá dýrunum þar sem
stoppað er og tekið bensín á með-
an. Þeir félagar voru hinir hress-
ustu og sögðust lítið heyra í dýrun-
um. Með þeim eru tveir „svína-
hirðar" sem fylgja þeim alla leið til
Pusan í Suður Kóreu, en þar verða
dýrin væntanlega stofninn í nýrri
svínarækt. Dýrin eru nánast í ein-
angrun, þar sem mikilvægt er að
þau taki engar sýkingar eða veirur
á leiðinni. Við spurðum Kolbein
hvort hann hefði flogið áður yfir
Norðurpólinn:
„Nei, aldrei. Við munurn fljúga
rétt sunnan við pólinn og milli-
lenda í Anchorage í Alaska. Þar
verður örstutt viðdvöl og síðan
flogið í einni lotu til Pusan í Suður-
Kóreu. Flugið yfir pólinn tekur
rúma 7 tíma og síðan eru aðrir 8
tímar til Kóreu. Þar verða grísirnir
skildir eftir, en við fljúgum beint
áfram til Hong Kong, þar sem vélin
verður hreinsuð og við fáum
hvíld.“
„Er enginn hávaði í svínunum?"
„Nei, við heyrum ekkert í þeim,”
svarar Ragnar R. Kvaran flug-
stjóri. „En það kemur mikill hiti af
þeim, það verður væntanlega verk
að þrífa vélina þegar við kornum til
Hong Kong. Annars eru dýrin í
búrum og algerlega lokuð frá okk-
ur. En þeim þykir greinilega gott
að anda að sér fríska loftinu hér,“
segir Ragnar og bendir okkur upp í
vélina, þar sem búið er að opna til
að hleypa inn hreinu lofti. Grísirnir
stara undrandi á okkur og hrína út í
íslenska norðanvindinn.
Við máttum ekki tefja þá Kol-
bein og Ragnar lengur, þar sem
vélin átti að fara aftur í loftið eins
fljótt og unnt var og aðeins eftir að
sækja bunka af veðurfarsskýrslum
fyrir ferðina. Við spurðum þá að
lokum hvernig gengi hjá Cargolux.
„Alveg ágætlega. Nú er nóg að
gera og mikið af verkefnum fram-
undan. Við vonum bara að það
haldist" sögðu þeir.
Við óskuðum þeim góðrar ferð-
ar, sem verður ekki á enda þegar
blaðið kemur út. Á leiðinni til
Reykjavíkur iðruðumst við ljós-
myndarinn þess mest að hafa ekki
smeygt okkur inn hjá grísunum og
fylgt þeim alla leið á áfangastað.
- þs
Garcia Villas
á Hótel Vík
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hefur um 2'h. milljón manna undir-
ritað áskorun til norrænna
þjóðþinga um stofnun kjarnorku-
vopnalauss svæðis á Norðurlönd-
um. Undirskriftarsöfnun af þessu
tagi er nú að fara af stað hér á landi
og vinnur starfshópur á vegum
Samtaka herstöðvaandstæðinga að
málinu. Ætlunin er að fá ýims fé-
lagssamtök og einstaklinga til þess
að gangast fyrir söfnun undir-
skrifta. Þeir sem hefðu hug á að
leggja henni lið geta haft samband
við Átla Gíslason í síma 8 68 78 og
Kennevu Kunz í síma 54 506.
Kjamorkug
vopnalaus
Norðurlönd
Mariella Gracia Villas formaður
Mannréttindanefndar E1 Salvador
er stödd hér á landi á vegum Al-
þýðuflokksins og mun eiga hér við-
ræður við ýmsa aðila. I kvöld kl.
20.30 verður hún hjá Kvennafram-
boðinu að Hótel Vík í Reykjavík,
og verður það væntanlega eina
tækifærið sem gefst fyrir almenning
að hlýða máli hennar og inna
tíðinda.
ÆSKAN er 56 síður
Októberblaöíð er komiö.
Foreldrar! Gefiö börnun-
um ykkar árgang af Æsk-
unni. Nýjir áskrifendur fá
einn eldri árgang í kaup-
bæti. Það borgar sig að
gerast áskrifandi. Af-
greiðsla Laugavegi 56,
sími 17336.
Bókaskrá Æskunnar 1982
er komin út.
„Það er tjaldað rækilega á milli grísanna og okkar svo við heyrum ekkert í þeim“, sagði Ragnar K. Kvaran
flugstjóri. Með honum á myndinni er Kolbeinn Sigurðsson, flugstjóri. Ljósm. - eik -
Búnaðarbankinn
Akureyri
Glerárhverfi
Á morgun opnar Búnaðarbankinn afgreiðslu í nýrri
verzlanamiðstöð í Glerárhverfi á Akureyri,
Afgreiðsla þessi er undir stjórn útibússtjóra bankans á
Akureyri og er ætlað að þjóna hinu ört vaxandi bæjar-
hverfi norðan Glerár.
Kaff iveitingar verða fyrir viðskiptavini allan opnunar-
daginn.
Verið velkomin
BIINAÐARBANKI
ÍSLANDS