Þjóðviljinn - 24.11.1982, Síða 16
DWÐVIIIINN
Miðvikudagur 24. nóvember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Flugleiðir h.f. snúast gegn lengingu orlofs:
„Legði flug- og ferða-
mannaþjóniistu í rúst!
Flugleiðir hafa komist að þeirri niðurstöðu að ef frumvarp ríkisstjórn-
arinnar um lengingu orlofs nær fram að ganga, hafi það í för með sér
15.5% hækkun launakostnaðar fyrirtækisins.
Segja Flugleiðamenn að verði nú lögbundin hér á landi ákvæði sem hafa
í för með sér lengingu orlofs og jafnframt verði fyrirtæki skyld að veita það
á tiltölulega stuttu tímabili ársins, mundi það gera íslensk flugfélög ver í
stakk búin til að mæta samkeppni frá erlendum félögum.
í frétt frá Flugleiðum segir að lenging orlofsins eins og stjórnarfrum-
varpið gerir ráð fyrir, þýði 16.154.000 króna kostnað á 1. ári vegna
orlofslengingar 164 flugmanna og flugvélstjóra. Þyrfti af þeim sökum að
ráða 19 flugliða til viðbótar. Viðbótarkostnaður félagsins vegna frum-
varps Vilmundar og félaga um styttingu orlofstímabilsins um 17: mánuð
hefði í för með sér viðbótarkostnað upp á 51.032.000 krónur á fyrsta ári og
að þess vegna yrði að ráða 60 aukaflugliða.
í lok bréfs sem Flugleiðir hafa sent Vinnuveitendasambandinu segir:
„Ef ekki á að leggja innlenda flug- og ferðamannaþjónustu í rúst með
vanhugsuðum aðgerðum verður að gera breytingar á umræddu lagafrum-
varpi. Félagið treystir því að VSÍ komi þessum sjónarmiðum áframfæri og
vinni að minnsta kosti að því að 1) heimilt verði að skipta orlofi og taka
hluta þess utan orlofstímabilsins, slíkt verði fastbundið í lögum og 2) að
einungis 4 laugardagar teljist sem viðbótarorlof og heimilt sé að veita þá
utan orlofstímabilsins”. -v.
Dag- og ferðapeningar fræðslustjórans
á Vestfjörðum þykja háir:
Rfldsendurskoðun
sendi
Ríkiscndurskoðun hefur gert at-
hugasemd við rcikninga Fræðslu-
skrifstofu Vestfjarða og hcfur farið
þess á leit við Kannsóknarlögreglu
rikisins að hún afli frekari upplýs-
inga um málið. Þessi athugasemd
Ríkisendurskoðunar kemur í beinu
framhaldi af fjórðungsþingi á
Suðureyri.
Heildarútgjöld fræósluskrifstof-
unnar, sem þá lágu fyrir, námu
RLR málið
tæplega 550 þús. króna þar af fóru
150 þús. í stofnkostnað. I frétt
þann 18. nóvember síðastliðinn í
Vestfirska fréttablaðinu, segir að
sá partur rekstrarútgjalda sem snúi
að dag- og ferðapeningum
fræðslustjórans hafi vaxið
mönnum í augum: „Af þeim tæp-
um fjögur hundruð þúsund krón-
um sem fara í rekstrargjöld fara um
160 þúsund í ferðakostnað og dag-
peninga fræðslustjórans”, segir
blaðið.
Erla Jónsdóttir deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur
með málið að gera fyrir hönd emb-
ættisins. Sagði hún í samtali við
Þjóðviljann í gær, að málið væri að
komast á lokastig að því er snerti
RLR. Staðfesti hún að á léki grun-
ur um fjárdrátt. Að öðru leyti vildi
hún ekki láta neitt eftir sér hafa.
Starsmenn í turni Hallgrímskirkju koma fyrir speglum, en þeir vörpuðu mynd og hljóði frá umræðum á
Alþingi heim í stofur landsmana. Ljósm. eik.
/
I fyrsta sinn í gærkvöldi:
Beint sjónvarp frá Alþingi
í gærkvöldi var beint sjónvarp
frá umræðum á Alþingi um tillögu
Alþýðuflokksins um vantraust á
ríkisstjórnina. Var þetta í fyrsta
skipti sem sjónvarpað var beint frá
alþingishúsinu.
Fylkir Þórisson hjá Sjónvarpinu
kvað stofnunina hafa keypt tækni-
búnað frá danska sjónvarpinu sl.
sumar, sem gerði beinar útsending-
ar af þessu tagi mögulegar. Hefðu
þessi tæki verið notuð við beina út-
sendingu frá jarðarför dr. Kristjáns
Eldjárns og einnig frá ýmsum
íþróttaviðburðum.
Starfsmenn byrjuðu strax í gær-
morgun að koma fyrir speglum sem
endurkasta mynd og hljóði eftir
beinni sjónlínu frá sendingarstað
til móttökustaðar. Var einum slík-
um skerrni komið fyrir í þinghús-
inu, tveimur uppi í klukknaporti
Hallgrímskirkju og svo var mót-
tökuskermi komið fyrir á þaki
Sjónvarpshúsinu við Suðurlands-
braut. Störfuðu urn 10 manns við
þessa beinu sendingu frá Alþingi.
- v.
iRáðstefna um orkunotkun í fiskveiðum:
JKramílan”
mun hverfa
með tilkomu olíueyðslumælanna
í gær gekkst orkusparnaðar-
nefnd fyrir ráðstefnu um orkunotk-
un og orkusparnað í fiskveiðum.
AIIs voru flutt 14 erindi um þetta
mál á ráðstefnunni og öll hin fróð-
legustu. Óhætt mun að fullyrða að
erindin um olíueyðslumælana hafl
vakið hvað mesta athygli, enda er
þar um að ræða tæki sem hægt er
að setja í öll skip og spara olíu-
eyðslu um 10% til 30%, semer ekk-
ert smáræði, þegar fullyrt er að
olían sé orðin um 30% af út-
gerðarkostnaði.
í erindi Jóhanns Fannbergs
verkfræðings urn olíueyðslu-
mælana frá Tæknibúnaði kom fram
m.a. að hin svo nefnda „dýra míla“
geti verið úr sögunni ef olíueyðslu-
mælar eru notaðir. Nefndi hann
sem dæmi könnun, sem fór fram
um borð í togaranum Vigra RE að
þegar hraðinn var minnkaður úr 13
hnútum í 11 hnúta minnkaði olíu-
eyðslan úr 317 lítrum á klukku-
stund í 220 lítra. Og þegar tonnið af
svartolíu er komið í nærri 2700
krónur, þá er hér ekki um smápen-
inga að ræða.
Fyrir utan olíusparnað hefur
komið í ljós með olíueyðslumælana
séu þeir notaðir af skynsemi og
forðast að keyra vélar skipanna á
fullu álagi, minnkar viðhald þeirra
og þær endast betur. Nefndi Jó-
hannes sem dæmi skipið Vest-
mannaey, sem brennir svartolíu,
að áður en olíueyðslumælir kom í
skipið þurfti að skipta um útblást-
ursventla á 1500 klukkustunda
fresti. Eftir að olíueyðslumælir var
settur um borð var vélin keyrð á
sömu ventlum í 3.000 klukkustund-
ir. Þá voru þeir skoðaðir en það sá
ekki á þeim og þeir settir í aftur.
Mjög margt fleira fróðlegt kom
fram á ráðstefnunni sem Þjóðvilj-
inn mun gera grein fyrir síðar.
-S.dór
Happdrætti
Þjóðviljans 1982:
Gerið skil
sem fyrst
Dregið verður í happdrætti
Þjóðviljans 1. desember næstkom
andi, og eru þeir sem fengið hafa
heimsenda iniða vinsamlega beðnir
að gera skil hið fyrsta.
Happdrætti Þjóðviljans hefur
löngum verið ein af helstu undir-
stöðunum fyrir útgáfu blaðsins, en
nú stendur blaðið á tímamótum.
Blaðaprent, þar sem Þjóðviljinn
hefur verið settur og prentaður
undanfarin ár hefur liðast í sundur
og á fyrstu hæð Þjóðviljahússins,
Síðumúla 6 hefur blaðið nú komið
sér upp eigin aðstöðu til setningar
og umbrots. Slíkt hefur vitaskuld
mikinn kostnaðarauka í för með
sér, þannig að nú er brýnna en oft
áður að velunnarar blaðsins
bregðist vel við happdrættinu.
Gera má skil á afgreiðslu Þjóð-
viljans, Síðumúla 6 og á Grettis-
götu 3. Síminn er 17500 og 81333.