Þjóðviljinn - 22.12.1982, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 22.12.1982, Blaðsíða 1
DlODVIUINN Hvernig iorum við að því að ná alls kyns blcttum ur tvppunum okkar? Búsýslan gei'ur svör viðþví. Sjá 9 desember 1982 miðvikudagur 47. árgangur 286. tölublað „Sólln gengur slna leið” „Sólin heim úr suðri snýr“, segir í vísunni. En hvort hún „sumri lofar hlýju“ að þessu sinni treysti ég mér ekki til að segja um. Væri reynandi að spyrja Trausta, sem sennilcga mundi þá svara, að hún tæki a.m.k. ekkert af um það, og mun rétt vera. í hálft ár hefur sólin veriö að lækka á lofti, sólargangur hvers dags örlítið styttri en gærdagsins. En nú er hverfipunkturinn, styttsti dagur ársins stendur yfir, með morgundeginum tökum við aftur að jrokast inn í vaxandi birtu. Ymsir hafaímugustáskammdeg- inu. Segjast verða þunglyndir og svartsýnir og guð má vita hvað. Og vi'st getur skammdegið verið hæg- fara þegar illviðri herja dag eftir dag, þótt svo hafi ekki verið nú. En það á líka sína töfra þó að rafljósin séu nú raunar að mestu búin að eyðileggja þá. - mhg Fundarhöld um fískverð I gær var haldinn fundur með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi til að kynna þcim stöðu útgerðarinnar og nskviimslunnar í landinu, vcgna nýs fiskverðs um næstu áramót. A fundi fulltrúa þingflokkanna með sjávarútvegsráðherra vegna þessa rnáls kom fram hjá Ólafi Da- víðssyni forstjóra Þjóðhags- stofnunar, sem sat fundinn, að af- koma frystingarinnar væri jákvæð um 1% til 2%. í viðtali við eitt dagblaðanna í gær segir Steingrímur Hermanns- son tiö gengisfelling komi ekki til greintt til að liðka fyrir ákvörðun um nýtt fiskverö um áramótin, en að öðru leyti mun ekki búið að taka ákvörðun um hvernigað málunum verður staðið. Sent kunnugt er ber útgerðin sig afar illa um þessar mundir og vill umtalsverða fiskverðsliækkun um áramótin. S.dór í crlendri fréttaskýringu í dag er gerð úttekt á stöðu mála í Póllandi þegar rétt ár er liðið frá sctningu hcrlaga. Nokkuð hefur borið á óánægju fólks með láglaunabæturnar sem nú eru að berast í hús. Þröstur Olafsson var spurðurhvaða meginreglur giltu við úthlutun þeirra. Innanlandsf lugið: 24 ferðír í Vegna óveðursins um síðustu helgi féll allt innanlandsflug niður, bæði sunnudag og mánudag. Vegna þessa biðu á þriðja þúsund farþcgar um allt land cftir llugi. I gær var komið hið besta veður um allt land og voru þá farnar 24 ferðir. Sæmundur Guðvinsson, blaða- fulltrúi Flugleiða h.f. sagði að hægt hefði verið að fljúga til allra staða í og þar með var vandinn frá helginni leystur gærdag nema Egilssttiðti og Norðfjarðar. Til Egilsstaða var ráðgert að fara fyrstu ferðina kl. gær 18 í gær og síðan 3 aörar um kvöld- ið. Flugbrautin í Norðfirði er aftur á irióti lokuð. Sæmundur sagöi að um kl. 02 í nótt er leið, fteri ein af þotum Flugleiða h.f. með farþega frá Keflavík til Akureyrar og þá ætti ttllir sem biöu eftir flugi frá helginni og þeir sem áttu pantað far í gær að vera komnir leiöar sinnar nema farþegar til og frá Norðfirði. — S.dór Fátt er meira þreytandi en bið í flugstöð og veit þá nokkur vitur- legra ráð en að láta sér renna í brjóst til að stytta biðina. Myndin er tekin á Reykjavíkurtlugvelli í gær (Ljósm. Atli) Fjárhagsáætlun Reykjavíkur um æskulýðsmál: Engar framkvæmdir Framkvæmdir í æskulýðsmálum verða í algeru lágmarki hjá Reykja- víkurborg á árinu 1983, en í fjárhagsáætlun 1983 er aðcins gert ráð fyrir lokafrágangi í Tónabæ og Árseli. Ekki verður ráðist í neitt nýtt verkefni á árinu og frágangi lóðar við Ársel slegið á frest. W árinu 1982 kostuðu fram- kvæmdir á sviöi æskulýðsmála 2,3 miljónir króna, en áætlun ársins 1982 hljóðaði upp á 2.1 miljón. Á næsta ári er hins vegar áætlað að verja aðcins 1,4 miljónuni króna í þennan málaflokk, og er þaö gífur- leg'ur niðurskurður miðað viö þá verðbólgu sem hér ríkir. I ræöu borgarstjóra viö fram- lagningu fjárhagsáætlunar kom fram að Tónabær og Ársel hafa reynst dýrari framkvæmdir en ttpp- haflega var áætlað. Lokafrágangur þessara tveggja æskulýðsmið- stöðva mun á næsta ári kosta sam- tals 1,1 miljón króna. Á síðasta kjörtímabili vortt tekn- ar í notkun 3 æskulýðsmiðstöðvar í borginni: Ársel, Þróttheimar og Tónabær, og drög voru lögð að næsta verkefni í Seljahverfi. Fyrir voru í borginni Fellahellir og Bú- staðir. ÁI Happdrætti Þjóðviljans 1982: Nú eru síðustu forvöð að gera skil! Vinningsnúmer birt á morgun í dag eru síðustu forvöð að gera skil í happdrætti Þjóðviljans 1982, en vinningsnúmerin verða að vanda birt á morgun, Þorláks- messu í Þjóðviljanum. Þeir sem hafa fengið heimsenda miða og eru ekki búnir að gera skil eru eindregið hvattir til þess að gera það í dag. Jafnframt eru þeir sem tekið hafa að sér innheimtu í Reykjavík og nágrannasveitar- félögum beðnir að gera upp fyrir kvöldið. Skrifstofa happdrættisins að Grettisgötu 3 er opin frá kl. 9-22 í kvöld og er því tilvalið að líta inn um leið og menn Ijúka jólainn- kaupunum, en verslanir við Lauga- veg eru opnar fram til kl 22. í kvöld. 7 glæsilegir vinningar, Daihatsu Charade bifreið, húsgagnaúttekt, litasjónvarpstæki og fjórir feröa- vinningar santtals að upphæð 232 þúsund krónur, bíða eftir eigend- um vinningsnúmera. Síminn á Grettisgötunni er 17504 og einnig er hægt að gera skil á afgreiðslu Þjóðviljans, Síðumúla 6, sími 81333.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.