Þjóðviljinn - 22.12.1982, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.12.1982, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 22. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Rauðkál með jóla- Hvemig nœst bletturinn steikinni úr teppinu? l>að hefur ætíð verið siöui að þrífa vel fyrir jólin. Þá er gjarnan tekið til við ýmis konar eldri ó- þrif, sem enginn hefur lagt í fyrr. Þar má nefna bletti. í teppuni þeir eru leiðinlegii" og oft erfiöir viðfangs. Uér er listi sem Teppa- land hefur gert um meðferð á blettum i teppum, en svipaðar hliðstæð, t.d. húsgagnaáklæði og . fleira. Margir láta hreinsa teppin fyrir jólin. en oft þarf að ráðast sérstaklega á blettina með þar til gerðum efnum, þótt teppið sé hreinsað. I fvernig væri að klippa listann út og geyma? Blettahreinsunar tafla fyrir alls konar gólfteppi Nær líka yfir mottur og teppi jafnt úr ull og gerfiefnum Teg. bletta Adferð og efni sem nota skal áfengi, likjör sápuþvo og væta með tréspíra (methyl-spiritus) bjór væta í volgu vatni (max. 50°C þynntu með 3% tréspira kúlupennablek nota skal perchlorethylen og tréspira blóð væta i köldu vatni og sápuþvo. Ef blettur helst notið þá 5% þynnt ammoniak. smjör. olia, sósur og mataroliur vætið i terpentinu (white-spirit) eða perchlorethylen. Sápuþvoið. Annars 5% ammoníak ef illa gengur. kertavax, parafinolía þerripappir á blettinn og strjúka yfir með volgu straujárni. Væta í perchlorethylen, sápuþvo. tyggigúmmi nota ,,anti-gum" eða væta i perchlor- ethylen. súkkulaði, karamellur og annað sælgæti væta í volgu vatni eða 5% þynntu j ammoníaki. kaffi, te Sáþuþvo. Ef blettur helst þá væta með tréspira eða 10% þynntu ammoníaki. varalitur, fegrunarsmyrsl og meðöl terpentína eða perchlorethylen, sápuþvo. Annars 5% þynnt ammoniak eða tréspíra. egg og albumin væta I 5% þynntu ammoniaki eða tréspíra, sápuþvo. ávextir, matarefni væta í volgu vatni og sápuþvo. lim, lakk, málning terpentina eða perchlorethylen, væta í volgu vatni og sápuþvo (shampoo). gras, grænmeti væta í tréspíra. blek, anilin, kolefni sjúgið upp það sem hægt er með þerripappír og væta siöan meö 30/70% trésplra/vatn, sápuþvo. Hreinn sltrónusafi líkar einniq vel. sulta, siróp, ávaxtasafar væta í volgu vatni. Annars terpentina eða perchlorethylen. kvikasilfur vætið i blöndu af % vatn 'A tréspíri. myg|a vætið 1 vatnsþynntu ammonlaki. mjólk, jógúrt, kakódrykkir sápuþvo og væta 1 5% ammonlaks- upplausn eða tréspira. Ef blettur hverfur ei þá terpentína eða perchlorethylen. leðja, mold látið þorna og ryksjúgiö. sinnep, majones, tómatsósa naglalakk 10% þynnt ammonlak og perchlor- ethylen, sápuþvo ef þarf. væta i acetone og sápuþvo. málning oliumálning: terpentína og sápu- þvottur. latex: nýjan latexblett skal væta i köldu vatni. Gömlum bletti er mjög erfitt að ná. ilmvatn væta í tréspíra. ryð 3% upplausn af „pottassium oxalate eða anti-rust efni". sykur væta i volgu vatni og sápuþvo. tjara, þykk feiti, vélafeiti eldsneytisolíur væta i terpentínu eða perchlor- ethylen, sápuþvo. Endurtaka þetta með trésþíra og sápuþvo. joð þynnt ammoniaksupplausn. æla, þvag, saur væta með 50% ediki/50% vatni í blöndu eða með tréspíra og sápuþvo. vatn sjúgið upp með hreinum klút/vél það sem hægt er Látið teppiö þorna. ,,Ský" hreinsuð meó sjampói eða tréspira. vax, bón, húsgagna- eða/og gólffægilögur nota skal spritt eða perchlorethylen og sápuþvo: ef blettur hverfur ekki þá 5% ammoníaksupplausn, eða tréspira. létt vin eða gosdrykkir 50% edik/50% vatn og sápuþvo. Einföld og ódýr jólaskreyting Skerið út í þykkan pappa (með gólfdúkahníf) hjörtu, stjörnur, bjöllur, epli o.sfrv. Berið lím á og veitið upp úr t.d. hrísgrjónum, kókósmjöli, mislitum sykurkúl- um (fást í matvöruverslunum) glimmeri eða litlum tréperlum. Ef notuð eru t.d. hrísgrjón er til- valið að úða lit úr brúsa yfir, t.d. rauðum eða gylltunr. Hvítur„jóla snjór" er líka tilvalinn. Þessar skreytingar eru ætlaðar á jólatréð og má hnýta band í gegnum þær, eða gera á þær gat með gatara um leið og skorið er úr pappanum. Það er mjög fljótlegt að búa til þetta skraut og liægt að gera það unr leið og jólatréð er skreytt og hengja beint á tréð. Rauðkál tilheyrir jólamatnum, hvort heldur hann er svínakjöt, reykt eða nýtt, rjúpur eða hangi- kjöt. Hér er uppskrift af sérlega Ijúffengu rauðkáli, en heimagert rauðkál er miklu ódýrara og betra en tilbúið í glösum eða dósunt. Þessa rauðkálsuppskrift er hægt að nota hvort heldur kálið er soðið samdægurs og borðað heitt, eða er gert fyrirfrant, kælt. og borðað kalt. Stór rauðkálshaus 4-5 dl edik (t.d. íslenskt) 4-6 dl. sykur 2 msk rifsberjahlaup 2 msk smjör. Hakkið kálið fremur smátt og sjóðið með öllum efnunum í um Hurðir hœkkuðu um 50% Til Þjóðviljans hringdi gamall lesandi og sagði farir sínar ekki sléttar. Hann hafði farið á stúf- ana í haust til að leita sér að skápahurðum í forstofu. Leist honum best á hurðir sem fengust í fyrirtækinu Hurðunt hf. og kost- uðu 600 krónur stykkið. Skömmu eftir mánaðamótin nóvember- desember ákvað hann svo að kauða þessar tilteknu hurðir, en var þá tjáð að þær kostuöu 900 krónur stykkið! Var hann að von- um undrandi og reiður yfir þess- um viðskipaháttum og bað okkur kanna málið. Talsmaður Hurða hf. kann- aðist vel við þessa sögu og sagði skýringuna á þessum gífurlega verðmun vera þá að gengi er- lendra gjaldntiðla hækkaði svo ört að verslunarmenn íslenskir hefðu vart undan við að breyta verðmiðum þegar nýjar sending- ar kæmu. Ný sending á umrædd- um hurðum hefði komið um síð- ustu mánaðarmót og því hefði verðið hækkað svona mikið. Hjá verðlagsstofnun fcngust þær upplýsingar að eldri birgðir mætti hækka ef inn í búðina kæmu sams konar vörur í sams konar stærðareiningum og þar fram eftir götum. Þetta gilti t.d. um sekkjavöru. Hana mætti hækka ef um væri að ræða sönru þyngdareiningu í nákvæmlega sams konar pakkningum. Þjóðviljinn leggur engan dónt á hvort umrædd hækkun á hurðum eigi við skynsamleg rök að styðjast, til þess skortir okkur upplýsingar. En hitt er auðséð að í mörgum tilfellum geta kaup- nrenn hækkað vörur sínar að vild og lítið sem ekkert skeytt um verðlagseftirlit og þess háttar pappírsgögn. Því er það við- skiptavinurinn sem fær skellinn oftast. -v- Sykurhúð á svínakjöt Hvort sem reykt svínakjöt er soðið eða ofnsteikt, er gott að setja sykurhúð á það. Þegar búið er að sjóða kjötið (eða ofn- steikja) er blandað saman 4 nrsk sinnepi, 1 msksvrópi. 1 msk kart- öflumjöli, 1 eggjarauðu og raspi. Þessari hræru er smurl yfir steikina og hún bökuð í 200° heit- um ofni í 15-20 mínútur þar til hún verður gulbrún. það bil eina klukkustund, eða þar þykkbotna potti og munið að það til það er meyrt, en ekki orðið að á ekki að setja vatnsdropa í mauki. Best er að sjóða það í pottinn!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.